Tíminn - 27.02.1951, Qupperneq 2
2.
TÍMINN, þriðjudaginn 27. febrúar 1951.
48. blað.
Orá harfi tii heiía
Útvarpih
Útvarpið í dag:
8.30 Morgunútyarp. — 9.05
Húsmæðraþáttur. — 9.10 Veð-
urfregnir. 12.10—13.15 Hádegis-
útvarp. 15.30—16.30 Miðdegis-
útvarp. — (15.55 Fréttir og veð-
urfregnir). 18.25 Veðurfregnir.
18.30 Dönskukennsla; I. fl. —
19.00 Enskukennsla; II. fl. 19.25
Þingfréttir. — Tónleikar. 19.45
Auglýsingar. 20.00 Fréttir. 20.30
Minnzt sjötugsafmælis Sveins
Björnssonar forseta íslands: a)
Afmæliskveðja: Steingrímur
Steinþórsson forsætisráðherra.
b) Erindi: Dr. juris Björn Þórð
arson lögmaður. c) Frásögn: Vil
hjálmur Þ. Gíslason skólastjóri
talar um forsetasetrið Bessa- j
staði. d) Islenzk tónlist (plötur). '
22.00 Fréttir og veðurfregnir. —
22.10 Passíusálmur nr. 31. 22.20
Tónleikar: Islenzk tónlist (plöt-
ur). 22.45 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Eimskip:
Brúarfoss fór frá Hull 25.2.
til Kaupmannahafnar. Detti-
foss fór frá Reykjavík 25.2. til
New York. Fjallfoss kom til
Antwerpen 24.2., fer þaðan 27.2.
til Hull og Reykjavíkur. Goða-
foss kom til Rotterdam 24.2. fer
þaðan 27.2. til Gautaborgar.
Lagarfoss kom til Reykjavikur
25.2. frá Leith. Selfoss er í Leith.
Trgllafoss er í Reykjavík. Auð-
urala fór frá Vestmannaeyjum
24.2. til Hamborgar.
Sambandsskip:
M.s. Hvassafell fór frá Cadiz
21. þ. m., áleiðis til íslands. M.s.
Arnarfell er í Reykjavík.
Ríkisskip:
Hekla er í Reykjavík og á að
fara þaðan á morgun vestur
um land til Akureyrar. Esja var
væntanleg til Reykjavíkur í
morgun að vestan og' norðan.
Herðubreið er í Reykjavík.
Skjaldbreið er í Reykjavík. Þyr-
ill er í Reykjavík. Armann var í
Vestmannaeyjum í gær.
Sarah Halim, frajnka íai-
ouks konungs hins egypskaj
er talin mjög fögur. Hún á að
sýna hatta á vortízkusýn-
ingu Simone Mirmans í Paris
á næstunni. I
Flugferðir
Loftleiðir:
í dag er ætlað að fljúga til:
Vestmannaeyja og Akureyrar.
Á morgun er áætlað að fljúga
til: Vestmannaeyja, ísafjarðar,
Akureyrar, Patreksfjarðar og
Hólmavíkur.
Úr ýmsum áttum
Háskólafyrirlestur
flytur dr. Simon Jóh. Ágústs-
son, prófessor í I. kennslu-
stofu Háskólans í kvöld kl. 6,15.
Fyrirlesturinn fjallar um fagur-
fræði, og er þetta síðasta er-
indi hans um þetta efni. Öll-
um er heimill aðgangur.
Gjafir og áheit
til Melstaðarkirkju í Miðfirði
1950. Áheit: Kr. 50, 300, 20, E.J.
100, M.S. 100, M.J. 50, 50, jóla-
gjöf kr. 200. Samtals 870 krón-
ur. Ennfremur færum við þeim
systrum Ingibjörgu og Magréti
Gunnlaugsdætrum frá Syðri-
Völlum í Melstaðarsókn innileg
ustu þakkir fyrir hina fögru
og snyrtilegu innrömmun á hin-
um ævagömlu helgimyndum,
sem skemmdust í kirkjufokinu
15. janúar 1942. Fyrir allar gjaf-
ir og áheit til Melstaðarkirkju
fyrr og síðar, færi ég fyrir hönd
safnaðar og sóknarnefndar inni
legustu þakkir, og óska öllum
gefendunum góðrar framtíðar.
F. h. sóknarnefndar Mélstað-
arsóknar,
Björn G. Bergmann.
Það hjarta er....
Það er á valdi bæjarstjórn
anna að framlengja hnsa- '
leigulögin. Hér í Reykjavík
hefir það ekki enn verið gert
og verður að öllum líkindum
ekki gert. Húseigendur geta
því sagt upp fjölskyldum, er
leigja hjá þeim, með þriggja
mánaða fyrirvara — í fyrsta
lagi 14. maí.
Það virðast vera til þeir i
menn, sem mjög hefir verið
í mun að nota sér þetta og
gæta þess, að þeir misstu
ekki af voninni í húsaleigu-
hækkuninni nokkurn dag —
án tillits til alls annars.
Sömu dagana og verið var
að leita að Glitfaxa var ckkju
Reykvíkings, sem fórst með
honum sent ábyrgðarbréf frá
húseigandanum, er þau hjón
in leigðu hjá, þar sem ekkj-
unni og börnum hennar
tveimur var sagt upp húsnæð
inu. Mikið lá við. Ef húseig-
andinn hefði beðið þar til
leitinni var lokið, sVo að ekki
sé nefnt, að hann dokaði við,
þar til minningarathöfnin
var um garð gengin, gat
hann átt á hættu að missa
’Mr..
af húsaleigugróða sínum einn
mánuð.
Davíð Stefánsson segir: Sú
lund er hörð, er hæðir snauð-
an mann, það hjarta er kalt,
er rænir þreyttan svefni. —
Hvaða lýsingarorð á að hafa
um það hjarta, sem slegið
hefir á bak við þetta verk?
Sænska bókiistarsýningin
í Þjóðminjasafninu er opin dag-
lega kl. 2—7 til sunnudags 4.
mars og auk þess á föstudags-
kvöld kl. 8—10.
B/öð og tímarit
Læknablaðið.
7. tbl. 35. árg. er nýkomið út
og hefir borizt blaðinu. 1 blað-
inu birtist erindi eftir Sigurð
Samúelsson um hjartasjúkdóma
og skurðaðgerðir á hjarta og
æðum. Kristbjörn Tryggvason
minnist Péturs Magnússonar,
læknis.
„HEKLA”
Tekið á móti flutn'ngi til
Djúpavíkur og Hólmavíkur ár
degis í dag.
Útvarpsblaðið
Hálfsmánaðarblað um út-
varpsmál. Birtir fyrirfram
þriggja vikna útvarpsdagskrá.
Ritstjóri: Loftur Guðmunds-
son, blaðamaður. Aðalútsala:
Bókabúð Menningarsjóðs,
Hverfisgötu 21, Sími: 80282;
pósthólf 1043.
11 {jCfhum tieqi:
Tlf íhugunar
Það er talsvert atvinnuleysi í Reykjavík, og það eru
víða miður þrifalegar götur í bænum. Þegar dregúr
verulega út úr miðbænum, eru óvíða fullgerðar götur,
og mjög víða vantar gangstéttir algerlega.
★ ★ ★
Margir eru þannig skapi farnir, að þeir vilja, að
sem þokkalegast sé í kringum hús sín. Þeir leggja sig
í framkróka um það að mála og halda við húsum
sínum, svo að þau líti sem bezt út, og þeir leggja bæði
mikla vinnu og fé að gera garða umhverfis húsin og
hafa þá sem snyrtilegasta. En svo dregst gatan aftur
úr, og það, sem bæjarfélagið á að gera.
★ ★ ★
Við skulum þó ekki deila á bæjarfélagið fyrir það.
Göturnar í Reykjavík eru langar, og það er í mörg
horn að líta og mörgum verkefnum að sinna, en út-
svörin orðin ærið þungur baggi. En gæti hér ekki
komið til greina samvinna? Húseigendur, sem það
vildu á sig leggja, keyptu hellurnar, en bærinn sæi
síðan um að leggja þær. Það væri áreiðanlega margir
húseigendur fúsir til þess að taka á sig þessa byrði, ef
bærinn vildi koma til móts við þá. Þeir eru sennilega
svo margir, að við þetta skapaðist veruleg vinna, sem
leysti vanda margra, er ekkert fá að gera. Og með
þessum hætti þokaði áfram fyrr en ella því nauðsynja-
verki að gera göturnar snyrtilegar.
★ ★ ★
Mér er sagt, að maður, sem á stóra byggingu, hafi
boðið bæjaryfirvöldunum þessi býti. En þau hafi ekki
viljað sinna boðinu. Sennilega stafar þaó af því, að
þau hafa ekki athugað fyllilega allar hliðar þessa
máls. Vilja þau ekki taka það til nýrrar ihugunar?
J. H.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim fjær og
nær er sýnt hafa okkur samúð og vinarhúg við hið
sviplega fráfall míns elskulega eiginmanns, bróður
okkar og sonar r
ðlafs Jóliaiinssonar
flugstjóra
er fórst með flugvélinni Glitfaxa 31. f. m.
Ellen Sigurðardóttir Waage
Ágústa Jóhannsdóttir
Svana Guðrún Jóhannsdóttir Hodgson
Magnea og Jóhann Þ. Jósefsson
Móðir okkar og tengdamóðir
RAGNHILDUR SVEINSDÓTTIR
andaðist 24. þ. m. að heimili sinu Grund í Svínadal.
Börn og tengdabörn
Orðsending frá lánsútboðum
virkjananna
Athygli skal vakin á því, að þeir, sem kaupa skulda-
bréf fyrir 1. marz, fá að full greidda þriggja ára vexti
iyrir fram, en eftir þann tíma verða dregnir frá eins
mánaðar vextir, talið frá 1. febrúar síðastliðnum.
Með því að kaupa skuldabréf fyrir 1. marz græðið þér
því mánaðar vexti.
SOGSVIRKJUNIN. LAXÁRVIRKJUNIN
ÍV.V.V.Y.V.V.V.V.V.V/.V.Y.V.V.V.V.V.V.V.V.V/.V,
V
Vörubílstjórafélagið Þróttur:
Fundur
verður haldinn í kvöld kl. 8,30 í húsi félagsins.
Dagskrá:
1. Lagabreytingar (2. umræða) atkvæðagreiðsla. |
2. Bréf frá A.S.f. Uppsögn samninga.
3. Önnur mál.
Félagar sýni skírteini við innganginn.
Stjórnin.
aataiiiiiiigwiiimíciiimmrnmCTimiafflimmmmii
♦♦♦♦♦•♦♦♦♦♦♦^♦•^
♦♦♦♦♦♦♦••♦♦♦♦é *
.♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦!
►♦•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦♦<
LESIÐ ÞETTA!
LESIÐ ÞETTA!
Danslaga-keppni
S.K.T.
efnir hérmeð til nýrar danslagakeppni um ný íslenzk
danslög.
Keppnin sé tvíþætt: — nýju danslögin og gömlu
danslögin.
Nefnd, skipuð 3 sérfróðum mönnum, velur úr beztu
lögin, ákveðinn fjölda, ef þátttaka verður mikil, — en
hljómsvolt Góðtemplarahússins í Reykjavík léikur
þessi úrvals-danslög á opinberum dansleikjum um
mánaðamótin apríl-maí í vor, þar sem dansgestirnir
geira úrslitaatkvæðið um 3 þau beztu, hvers flokks.
Þess er óskað, að íslenzkur texti fylgi hverju dahs-
lagi, ef því verður við komið, að minnsta kosti nýju
dönsunum.
Veitt verða þrenn aðalverðlaun í hvorum flokki:
500,00 kr„ 300,00 kr„ 200,00 kr.
Miðí, með nafni höfundarins, skal fylgja, í lokuðu
umslagi, með hverju lagi — og þetta umslag merkt
nafni danslagsins.
Frestur til skila handritum er til 1. apríl n. k. Utaná
skrift er: Danslagakeppni S. K. T. pósthólf 501,
Reykjavík.
; ts ■.<: : jsr-.'iint 1 . . ,