Tíminn - 03.03.1951, Blaðsíða 2
2.
TÍMINN, laugardaginn 3. marz 1951.
52. blað.
hafi til
Útvarpib
Útvarpið í dag:
8.30 Morgunútvarp. — 9.10
Veðurfregnir. 12.10—13.15 Há-
degisútvarp. 15.30—16.30 Mið-
degisútvarp. — (15.55 Fréttir og
veðurfregnir). 18.25 Veðurfregn-
ir. 18.30 Dönskukennsla; I. fl.
— 19.00 Enskukennsla; II. fl.
19.25 Tónleikar: Samsöngur
(plötur). 19.45 Auglýsingar. 20.00
Fréttir. 20.30 Leikkvöld Mennta
skólans 1951: „Við kertaljós“,
leikrit eftir Sigfried Geyer. Leik
stjóri Baldvin Halldórsson. —
22.00 Fréttir og veðurfregnir. —
22.10 Passíusálmur nr. 34. 22.20
Danslög: a) Gamlir dansar
(plötur). b) 23.00 Dansmúsík frá
Iðnó: Hljómsveit hússins leikur
undir stjórn Óskars Cortes. 24.00
Dagskrárlok.
Hvar erti skipin?
Sambandsskip:
M.s. Hvassafell er í Keflavík.
M.s. Arnarfell fór frá Reykjavík
28. f. m. áleiðis til Frederiks-
havn.
Rikisskip:
Hekla var væntanleg til Siglu
fjarðar seint í gærkvöld á leið
til Akureyrar. Esja fór frá
Reykjavík um hádegi í gær
austur um land til Siglufjarðar.
Herðubreið kom til Hornafjarð
ar síðdegis í gær. Skjaldbreið
er í Reykjavík og fer þaðan um
miðja næstu viku til Skaga-
fjarðar- og Eyjafjarðarhafna.
Þyrill er á leið frá Norðurland- ^
inu til Reykjavíkur. Ármann lá
í Reykjavík í gær.
Þessi létti göngukjóll1 er úr
ull og snið hans er mjög tíðk
að i New York um þessar
mundir enda er hann frá
Hansen Bang, einu kunnasta
| tízkuhúsi þar í borg. Hann er
I talinn eiga sérlega vel v ð
hina fyrstu vordaga með duttl
ungafullu veðri og stundum
f hráslagalegu.
Ur ýmsum áttum
Gestir í bænum.
Eimskip:
Brúarfoss fer frá Kaupmanna
höfn í kvöld 2.3. til Reykjavík-
ur. Dettifoss fór frá Reykjavík
25.2. til New York. Fjallfoss fer
frá Hull í kvöld 2.3. til Reykja-
víkur. Goðafoss fór frá Hull 1.3.
til Reykjavíkur. Lagarfoss er í
Reykjavík. Selfoss er í Leith.
Tröllafoss fór frá Reykjavík 1.3.
'væntanlegur til 'Patreksfjarðár
um kl. 17.00 í dag 2.3. Auðumla
fór frá Vestmannaeyjum 24.2.
til Hamborgar.
Messur á morgun
Laugarneskirkja.
Messa á morgun kl. 2, séra
Sigurjón Þ. Árnason prédikar.
Barnaguðsþjónusta kl. 10,15,
séra Garðar Svavarsson.
Nesprestakall.
Messað í Mýrarhúsaskóla kl.
2,30, séra Jón Thorarensen.
Árnað heiila
Trúlofun.
Þann 28. febr. s. 1. opinberuðu
trúlofun sína, Sigrún Ragnars-
dóttir, Ásgeirssonar garðyrkju-
ráðunauts, og Grímur Jósafats
son, útibússtjóri Hveragerði.
Blöð og tímarit
Spegillinn.
Marzblað Spegilsins kom út í
gær. Flytur það að vanda margt
vel gerðra mynda, spaugilegra
kvæða og hnittinna greina. Það
er venjulega dagamunur að því,
þegar nýr Spegill heilsar og
ekki er þessi síðri bræðrum sín-
um að létta skap og hressa.
V.
Færeyskt blað
14. september, birti nýlega
heilsíðuviðtal við Sigurð Bjarna
son alþingismann um ástand
og horfur á íslandi. — Ritstjóri
að 14. september er Erlendur
Patursson frá Kirkjúbæ. ótíi;
JkUBl i
Sigurður Elíasson, tilrauna-
stjóri á Reykhólum, Karl Hjálm
arsson, kaupfélagstjóri á
Hvammstanga, Sigurður Gísla-
son, bókari á Hvammstanga.
íslandskiukkan
verður sýnd í Þjóðleikhúsinu
í næst síðasta sinn í kvöld. Þetta
er 49. sýningin.
Bólusetning gegn barnaveiki
Pöntunum veitt móttaka
þriðjudaginn 6. marz n. k. kl.
10—12 f. h. í síma 2781.
í Rangárþingi
var sums staðar orðið mjög
bagalegt vatnsleysi nú fyrir hiák
una og urðu margir að sækja
neyzluvatn handa fclki og bú-
peningi langar leiðir. — Nú er
að kalla alautt í héraðinu, að-
eins grátt í rót, en víða gífur-
leg svellalög, svo að fénaður er
á fullri gjöf.
Basar
Kvenfélags Hallgrímskirkju er
á morgun, sunnudaginn 4. marz,
að Röðli (Laugaveg 89).
Knattspyrnufélagið Valur.
Ferðir í skíðaskála Vals um
helgina: í dag kl. 2 og til 6.
Farið frá' Arnarhóli v/Kalk-
ofnsveg.
Skíðafélag Reykjavíkur.
vill að gefnu tilefni mælast
til þess, að þeir sem sækja skíða
skála þess í Hveradölum noti
að öðru jöfnu skíðabíla þess.
Afgreiðslan er í Hafnarstræti
21, sími 1517.
Góð gjöf.
Kona, er ekki vill láta nafns
síns getið, kom á skrifstofu Full
trúaráðs sjómannadagsins í
Edduhúsinu 2. marz, og afhenti
dvalarheimilissjóði aldraðra
sjómanna gjöf að upphæð kr.
1,000,00, sem renna skal til bóka
safns hins væntanlega dvalar-
heimilis.
Gjöf þessi er gefin til minn-
ingar um Guðmund Svein Krist
jánsson, Sólmundarhöfða á
Akranesi, er drukknaði árið 1906
þá 16 ára.
Fyrir hönd fjársöfnunarnefnd
ar vil ég færa þessari konu kær
ar þakkir.
Böðvar Steinþórsson.
Vinnumaður
Ég undirritaður vil ráða árs vinnumann á bú við
Þingvallavatn 14 til 18 ára piltur eða eldri maður- kem
ur helzt til greina. Þarf helzt að vera vanur silungsveiði
og netaviðgerðum. Þeir sem hafa áhuga fyrir þessu,
sendi mér línu, fyrir 20 marz n. k. ásamt upplýsingum
um fyrri störf.
JÓNAS S. JÓNASSON
Antmannsstíg 5, Reykjavík
VV.V.,.V.V.V.V.VAV.V.V.V.V.,.,.V.V.V.,.V.V.VA\VV.V
Ykkur öllum sem minntust mín á sextugsafmælinu í
■" Jjánn 24. febrúar s. 1. þakka ég hjartanlega. !■
S í
■’ Þuríður Magnúsdóttir, Stykkishólmi ■;
AV.'.V.V.V.VAV.V.V.V/.V.V.'.VAV.V.V.’.V.V.VAV.Vi
6 iv
*
4 jjWltUtn t’etji:
STRÆTISVAGNARNIR
Verkfall vagnstjóranna hjá Strætisvögnum Reykja-
víkur er mörgum óþægilegt og kemur illa niður á fólki,
sem sækja þarf vinnu úr eða í úthverfum bæjarins.
Og sérstaklega kemur það illa við nú að vetrarlagi, er
tíð er um hleypingasöm og færð á götunum oft mið-
ur góð.
★ ★ ★
Það mun sýnt, að ekki horfir vænlega um samninga
milli Reykjavlkurbæjar og vagnstjóranna, sem hafn-
að hafa tveimur tilboðum, sem gerð hafa verið. Getur
því svo farið, að verulegur dráttur verði á samkomu-
lagi, og afleiðingarnar bitni á almenningi í bænum
enn alllengi. Er margt, sem veldur því, að torveldlega
gengur að ná samkomulagi, en þó sérstaklega ótti
þeirra, sem bænum stjórnar, við það, að kauphækkun
til handa vagnstjórunum yrðu 1 náinni framtíð notuð
sem skrúfa til þess að hækka kaup fleiri spétta og auka
þannig á fjármálaringulreið í landinu. — Þetta eru
sem sagt viðhorf atvinnurekandans.
★ ★ ★
Á hinn bóginn eru svo viðhorf vagnstj óranna, sem
telja sig vanhaldna af kaupi sínu við þá dýrtíð, sem
orðin er, og vilja illa sætta sig við lítinn ávinning af
verkfallinu, úr því það hefir staðið þetta marga daga.
Þetta er því alls ekki svo auðyelt viðfangs og einhver
kann að halda.
★ ★ ★
Nú hafa komið fram tillögur um það, að reynd verði
ný leið í þessu máli. Hún er í stuttu máli sú, að bær-
inn hætti rekstri strætisvagnanna, sem hann mun
hafa tapað á um tveimur milljónum króna síðasta ár,
og leiti heldur fyrir sér um það, hvort bílstjórarnir eða
bilstjórafélagið vilji ekki taka að sér reksturinn gegn
styrk frá bæjarfélaginu, Eru þessar tillögur meðfram
bornar fram með það fyrir augum að leysa verkfallið
og meðfram til þess að þreifa fyrir sér um nýtt fyrir-
komulag, sem tryggði betri rekstur vagnanna og gæfi
von um minnkandi tap á útgerð þeirra. J. H
úi&iíid rAJ.-i iiss’l.'jr’ ji1 . .
Laugarholtsbúar
skora á borgarstj.
að leysa verkfallið
í dag var borgarstjóranum
í Reykjavík sent eftirfarandi
bréf á vegum Framfarafélags
Laugarholtsbúa:
„Enda þótt strætisvagna-
verkfall það, sem nú stendur
yfir valdi öllum bæjarbúum
örðugleikum og tjóni, gefur
að skilja, að það kemur harð
ast áffur á þeim, sem í út-
hverfunum búa.
LanghrjíitshverfiÖ er eitt
fjölmennasta úthverfi bæjar-
ins, og býr þar fjöldi fólks,
sem verður að sækja vinnu
eða skóla í b'ænum, auk þeirra
barna, sem sækja efga
kennslu i Laugarnesskólan-
um, en geta þó ekki orðið
ferða skólabifreiðarinnar að-
njótandi. Margt af þessu
fólki er ekki svo hraust, að
það þoli að ganga í bæinn í
misjöfnum veðrum og mis-
jafnri færð, en akstur með
einkab'freiðum er hins vegar
svo dýr, að hann hlýtur að
verða óbærilegur baggi, þeg-
ar til lengdar lætur. Hvað
skólabörn snertir, liggur í
augum uppi sú slysahætta, er
af því stafar, að verða að
láta þau ganga eftrlitslaus
langa og fjölfarna umferðar
ieið, oft í roki og dimmviðri,
og er þó enn ótalið margvísleg
óþægindi og örðugleikar, sem
verkfall þetta veldur úthverfa
búum.
Við leyfum oss í því trausti
á skilning yðar og góðvild í
þessu máli, að skora á yður
herra borgarstjór’, að þér
hlutizt til um að leitað verði
allra ráða, sem hugsanlegt er
að stuðlað geti að því, að
verkfall þetta leysist sem
fyrst, þar eð þeir erf ðleikar
og tjón, sem það bakar okk-
ur úthverfabúum, getur ekki
talizt viðunanlegt.“
Undir bréf ð rita af hálfu
Framfarafélags Laugarholts-
búa: Jón Pálsson, Haraldur
Sigurðsson, Þórunn Magnús-
dóttir, Klemens Þórleifsson,
Sigurður Ólafsson, Eiríkur
Stefánsson, Loftur Guðmunds
son og Örnólfur Valdimars-
son.
* Mmniiigarspjiöld
Krabbameinsfélagsins
f Reykjavík.
Fást í verzluninni Remedia,
Austurstræti 7 og á skrifstofu
ítbrciðið Tímann.
Eftir Guðmund Kamban.
Leikstjóri: Gunnar Hansen.
Sýning í Iðnó annað kvöld,
sunnudag, kl. 8. Aðgöngumiðar
seldir kl. 4—7 í dag. Sími 3191.
Allra síðasta sinn.
Nýju og gömlu
DANSARNIR
í GÓÐTEMPLARAHÚSINU
í kvöld kl. 9
Við bjóðum ykkur:
bezta dansgólfið
beztu loftræstinguna
algera reglusemi
ágáta hljómsveit
BRAGI HLÍÐBERG
stjórnar OKKAR hljómsveit
Aðgm. frá kl. 6,30, Sími 3355
S. K. T.
GÖMLU
DANSARNIR
í GÓÐTEMPLARAHÚSINU
f kvöld kl. 9
Við bjóðum ykkur:
bezta dansgólfið
beztu loftræstinguna
örugga dansstjórn
ágáta hljómsveit
BRAGI HLÍÐBERG
stjórnar OKKAR hljómsveit
Aðgm. frá kl. 4-6, Sími 3355
S. K. T.
$tí$lifáic í ^Jítnamtn