Tíminn - 03.03.1951, Blaðsíða 6
6.
TÍMINN, laugardasinn 3. marz 1951.
52. blað.
i -
Liiiln-Bellc
Mjög skemmtileg og spenn-
ani ný amerísk mynd með
hinum vinsælu leikurum: |
Dorothy Lamour |
George Montgomery
Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
TRIPOLI-BÍÓ)
OFLRHVGAR !
(Brave Men)
Gullfalleg ný, rússnesk llt-!
kvikmynd, sem stendur ekki j
að baki „Óð Síberíu". Fékkí
1. verðlaun fyrir árið 1950.1
Enskur texti.
Gurzo
Tshernova
SýQd kl. 9.
!
Olítifiimliirinn
(Strike it Rich)
Afar spennandi ný, amerísk|
mynd um baráttu fyrir olíu-|
lindum.
Rod Cameron
Bönnuð innan 12 ára.
Sýnd kl. 5 og 7.
NÝJA BÍÓj
Nætnræfintýri
(Half Past Midnight)
Aukamynd: Hertir til hnefa-j
leika. — íþróttamynd. — j
Bönnuð börnum yngri en 12)
ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Vér héldnm lirint
Grínmyndin mikla með:
Abbott og Costello.
Sýnd kl. 3.
Sala hefst kl. 11 f. h.
BÆJARBÍÓ
HAFNARFIRÐI
Storknrinn
ÍMjög spennandi amerískí
alu ÆejtcJU
0Cui/eLa$ur%
Austurbæjarbíó
ISrighton Rork
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 7.
Frumskóga-
Ntiílkan
(Jungle Girl)
— I. hluti —
Sýnd kl. 5.
Kabarett kl. 9.
TJARNARBIO
Leyudardwinur
| stórhorgarinnar
(Johnny O'Clock)
j Amerísk sakamálamynd,
jspennandi og viðburðarík.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð innan 16 ára.
Máfiirinn
ÍHin glæsilega stórmynd eftir
isamnefndri sögu Daphne Du
! Maurier.
Sýnd kl. 3.
Sala hefst kl. 11 f. h.
GAMLA BÍÓ
Ég man þá tíð
Ný amerísk söngvamynd í
eðlilegum litum.
Mickey Rooney
Gloria de Haven.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Enginn sér við
Ásláki
Sýnd k(. 3.
HAFNARBÍÓ
Ævintýri
Kornbloins
j Bráðskemmtileg ný sænsk
igrínmynd, gerð eftir skop-
[ myndasyrpu Elov Perssons.
Aðalhlutverk:
Ludde Gentzel
Dagmar Ebbesen
Julia Cæsar
Sýnd kl. 3. 5, 7 og 9.
Sala hefst kl. 11 f. h.
Bergur Jónsson
Málaflutningsskrifstofa
Lsugaveg 65. Síml 5833.
Helma: Vltastíg 14.
'♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦«
Askriftarsímli
TIMIIVIf
Gerlzt
í Menningartengsl Islands og
| Ráðstjórnarríkjanna.
Sýning í Lista-
mannaskálanum
ÍMyndir úr þjóðlífi og menn-
jingu allra 16 Ráðstjórnarlýð-
Iveldanna. Einnig verða sýnd
| ar myndir úr lífi vísinda-
imannsins: Ivans Pavlovs og
j frá Litla leikhúsinu í Moskvu.
jSýningin verður opin daglega
| kl. 2—10 e. h. — Litkvikmynd
I in Eyðimörkum breytt í akur
jlönd sýnd kl. 5 og 9.
jÓkeypis aðgangur fyrir fé-
[lagsmenn sem sýni skírteini.
Stjórn MÍR.
Erlent yfirlit
(Framhald af 5. síðu.)
ára gamall, mun líka hafa verið
orðinn þreyttur á því, að vera
einskonar gerfikonungur og því
gjarnan viljað stuðla að því, að
sérréttindi Ranaættarinnar yrðu
afnumin, því að líklegt væri, að
við þá breytingu myndu áhrif
konungsins aukast.
Mohun Shamser sá þegar, að
óhjákvæmilegt myndi að koma
nokkuð til móts við hina nýju
frelsisvakningu. Rétt eftir valda
töku sína skipaði hann sérstaka
nefnd, sem gera skyldi tillögur
um breytingar á stjórnarháttum
ríkisins. Starf þessarar nefndar
sækist hins vegar seint, eins og
fleiri stjórnarskrárnefnda, og
hefir enn ekki komið neitt álit
frá henni. Andstæðingar for-
sætisráðherrans segja þvi, að
hann hafi aðeins skipað nefnd-
ina til að svæfa málið. Út af
þessu spruttu deilur hans og
konungsins á s. 1. hausti, en
þeim lauk með því, að konung-
urinn taldi sig ekki óhultan og
leitaði því á náðir Indverja.
Mohun Shamser mun í fyrstu
hafa gert sér von um, að hann
gæti farið sínu fram eftir að
konungurinn var flúinn og upp
reisn kongressflokksins brotin
á bak aftur. Þetta sést m. a. á
því, að hann setti þriggja ára
gamlan sonarson konungsins í
konungsstólinn eftir að hafa
áður gift honum tveggja ára
gamla sonardóttur sína. Gifting
þessi, er fór fram með hátíð-
legri viðhöfn, var nauðsynleg
vegna þess, að samkvæmt göml-
um lögum í Nepal má ógiftur
maður ekki taka við konung-
dómnum. Með giftingu þessari
mun Mohun Shamser líka hafa
ætlað að tengja saman til fram
búðar ætt sína og konungsætt-
ina.
Við nánari athugun mun
Mohun Shamser þó hafa séð, að
þessi ráðagerð var ekki hyggi-
leg. Hún gæti gefið hinni nýju
hættu, kommúnismanum, byr
í seglin. Indverjar munu eftir
megni hafa reynt að benda hon
um á þetta og fá hann til að
fallast á sættir. Þó munu ráð
Breta hafa mátt sín mest, því
að Ranaættin hefir jafnan þótt
mikið til stjórnvizku Breta koma
og talið sig eiga hauka í horni,
þar sem þeir væru.
C'jina _J\auói
Sérleyfisferðir
alla daga
Frá Reykjavík kl. 9 f.h. og
kl. 5 e. h. — Afgreiðsla hjá
Frímanni, Hafnarhúsinu.
Frá Stokkseyri—Rvík kl.
9,30 f. h.
Frá Eyrarbakka—Rvík kl.
10 f.h.
Frá Hveragerði—Rvík kl.
11 f. h.
Frá Selfossi—Rvík kl. 10,
30 f. h. og kl. 3,30 e. h.
KAUPFÉLAG ÁRNESINGA
í
;+;
ÞJÓDLEIKHÚSID
Laugardag kl. 20.
49. sýning á
íslamlskliikkiiiini
Næst síðasta sinn.
Sunnudag kl. 14.00.
Snædrottningin
Sunnudag kl. 20
Flekkaðar hendur
Bannað börnum innan 14 ára.
Aðgöngumiðar seldir frá kl.
13.15—20.00 daginn fyrir sýning
ardag og sýningardag.
Tekið á móti pöntunum
Sími 80000.
SKIPS-
LÆKNIRINN
47
perlur sínar til gimsteinasala, og gimsteinasalinn skoðar
þær og lýsir yfir því, að þær séu falsaðar. Greifafrúin er að
falla í öngvit..
Tómas fleygði blaðinu i gólfiA.- Hvað varðaði hann um
greifafrúna og perlur hennar? Hvað varðaði hann um fas-
istana í Róm eða um kommönistana í Shanghai? Hvað varð-
j aði hann um allan skarkala veraldarinnar? Skip sigla yfir
, úthöfin og loftför fljúga yfir þau. En hann lét sér það í léttu
rúmi liggja.
Hann æddi út. Ef Júlía Kapósí hefði ekki einmitt búið
í klefa 34, hefði hann farið til hennar.
Hann vissi í rauninni varla hvert hann fór, og hann vakn-
aði sem af draumi við það, að hann var kominn í annað
farrými og farinn að leita að Krieglacher. Þar rakst hann
á systur Mörtu. Frú Weber hafði kastað upp mjólkinni, sem
hún drakk, og Marta óttaðist,' að hún kæmist ekki lifandi
vestur yfir hafið, svo að hún fengi að sjá hinn þráða son sinn.
Tómas hlustaði á frásögu hennar, og sér til mikillar skelf-
ingar uppgötvaði hann allt í einu, að hann lét sér litið
annara um örlög gömlu konunnar en greifafrúarinnar með
perlurnar eða Belgíumannanna, sem fórust í námunni. Er
ekki bezt fyrir hana að deyja? hafði hann hugsað. Er það
ekki bezt fyrir okkur öll — frú Weber líka? Enginn veit,
hvaða vonbrigðum hún verður fyrir, þegar hún sér Frans,
því að hvar í heiminum er það, sem ást er virt að verðleikum?
Hann slangraði að lokum inn í barinn og bað um kon-
jakka. Hann hafði hætt við að leitá að Krieglacher. Það voru
skriftamálin frá kvöldinu áöur, sem fældu hann frá honum.
Því fór að vísu fjarri, að Tómas fordæmdi hann ^egna spila-
fýsnarinnar, en samt hafði hann reynzt annar en hann
bjóst við og gerði sér í hugarlund. Krieglacher hafði sagt
honum margt af lífi og hugðarefnum vísindamannsins, en
síðar valdið Tómasi þeim megnu vonbrigðum, er ekkert
getur verndað manninn fyrir — ekki einu sinni visindin.
Hann tæmdi þriðja konjakksstaupið, og hann tæmdi hið
fjórða. Þá fór hann að hugsa um það, sem var fyrir einni
viku. Hann fann, að hann var breyttur maður. Hann gat
aldrei framar lifað áhyggjulausu lífi og treyst á trú og
tryggð samborgara sinna. Hver er ég, og hver ert þú? Ert
þú vinur minn eða óvinur, og hver er sá, sem ég hefi opnað
hús mitt fyrir? Hann bjóst alls staðar við fjandmönnum, og
hættulegastir voru þeir fjandmenn, sem næstir honum stóðu.
Rétt fyrir eitt fór hann inn til Stefansons til þess að dæla
í hann insúlíninu.
— Hvers vegna eruð þér svo hljóður? spurði Stefanson
eftir nokkra stund. Hvað amar að lækninum í dag?
— Lífið kvelur mig, sagði Tómas, sem drukkið hafði sex
staup af konjakki.
— Lífið, sem er svo dásamlegt?
— Það er kannske hættulegast af öllu, hve það getur
verið dásamlegt.
Stefansson hló. í senn hættulegt og dásamlegt, sagði hann,
og þess vegna er það svo heillandi. Haldið þér, að ég treysti
nokkrum manni? Ekki neinum. Ekki einu sinni ungfrú Fiel-
ding. Ef ég segði henni upp fyrir einhverja skyssu, sem hún
kynni að gera, myndi hún auövitað vera reiðubúin til þess
að undirrita dauðadóm minn. Ég geri ævinlega ráð fyrir
hættunni — í viðskiptum, ferðalögum og ástamálum....
— Hvað er ást án trausts? sagði Tómas beisklega.
— Ást er alls ekki til, svaraði kaupsýsiumaðurinn. Það
er ekki annað en þvættingur úr bókum.
Augu Stefanssons ljómuðu, og hreystin glampaði af hinu
brúna hörundi.
— Mér virðist, að þér hafði hresstzt til mikilla muna þessa
daga, sagði Tómas. Lífið á sjónum er að gera kraftaverk á
yður.
— Nei. Lífið á sjónum er viðbjóðslegt. Hér kvelur hver
annan. Ég þrái einveru. Ég vildi óska, að ég ætti afdrep
einhvers staðar sem lengst frá menningu og gæti eldað
handa mér mat í potti á hlóðum....
Eftir hádegisverðinn bauð skipherrann Stefansson að
drekka kaffi með sér og Friðriku í skipherraíbúðinni. Fritz
malaði sjálfur kaffið í könnuna í tyrkneskri kvörn. Vatniö
sauð þegar á katlinum. En þá var skipherrann allt í einu
kallaður brott.
Stefansson var óskabarn guðanna. Hann hafði einmitt
óskað sér einveru, og nú var hann einn með hinni fögru
konu í íbúð skipherrans. Hann þreif kvörnina, sem skip-