Tíminn - 03.03.1951, Blaðsíða 8
„ERLEJVT YFMRLIT“ I DAG:
Lausn Nettuldcilunnar
35. árgangur.
Reykjavík,
„A FÖRAUM VEGI“ í DAG:
Strtetisvafinarnir
3. marz 1951.
52. blað.
KORfeKI „UH RIVV
Þrílitna risagrís alinn
Skaut tvo norska flugmenn en var upp á búgarði á Skáni
handsamaður eftir harða.orustu
Lék sér á skíðnm nniliverfis fórnardýr sín '
vopnaður byssu — lvs(i morðunum í dag'bók
í vikunni sem Jeið átti sér stað einslæð viöureign og elt-
ingaleikur í Norður-Noregi, er geðveikur maður frá Nar-
vík drap tvo flugmenn, sem voru að leita hans, og náðist
ekki sjálfur fyrr en eftirleitarmenn höfðu sært hann skot-
sári. Maðurinn hafði lagzt út og valdið ótta og skelfingu
meðal Lappanna á þessum sléðum.
Varð fyrir höfuðmeiðsli
á stríðsárunum
Árið 1943 varð 17 ára gam-
all piltur fyrir höfuðmeiðsli.
er þýzk sprerígja sprakk
nærri honum. Eftir það var
hann mjög undarlegur í hátt
um, einrænn og fáskiptinn, en
ekki talinn svo hættulega
geðveikur, að hann þyrfti að
vera í hæli. Hann var gáfað-
ur og las mikið í einrúmi.
Lærði hann þannig þýzku,
ensku og rússnesku, svo að
hann varð allfær í þeim mál-
um. Hann heitir Thorbjörn
Hansen og er nú 25 ára.
Thorbjörn leggst út.
í desember i vetur hafði
Thorbjörn fengið til umráða
fjallakofa við Sjangri skamrnt
þar frá er ríkisjárnbrautin
liggur yfir sænsku landaméer
in. Hann hafði áður dvalið
langdvölum á fjöllum, og 6.
des. fór hann í þennan fjalla
kofa. Myrkur er nær allan sól
arhringinn á þessum árstíma
þarna. Þegar Thorbjörn kom
ekki heim um jólin, lýstu
vandamenn hans eftir honum
og siðan hefir verið haldið
uppi leit og eftirgrenslan um
hann undanfarnar vikur.
Skaut á sænskan mann.
Fyrir rúmlega hálfum mán
uði rakst sænskur skíðamað
ur á hann þarna í fjöllunum,
en Thorbjörn skaut á hann
og særði hann illa, en honum
var þó bjargað til byggða.
Eftir þetta var hert á leit-
inni og tóku flugvélar þátt í
henni.
Drepur tvo norska
flugmenn
Á sunnudaginn var voru
tveir norskir flugmenn frá
Bardufoss að svipast eftir
honum í lítilli flugvél á þess-
um slóðum. Urðu þeir að nauð
lenda á Ruostajaure-vatni, og
Séttu upp tjald sitt þar á
vatnsbakkanum. Sænskur
flugmaður, sem flaug þar yfir
siðar sama dag, sá þá vera að
búa um sig.
Skelfing í Lappa-
byggðum
Thorbjörn útilegumaður
hafði undanfarnar vikur gert
Löppunum þarna í byggðun-
um margan grikk, brennt
hús þeirra og rænt frá þeim,
meira að segja ógnað þeim.
Var því ótti ríkjandi í
Lappabyggðunum við þennan
gest, sem þar var setztur að.
Herti það mjög á leitinni að
honum, og hafði herinn tekið
málið að sér og sent af stað
nokkrar flugvélar og her-
mannaflokka á skíðum.
Úr dagbék
„Úrfsins”
Þætt r úr dagbók „ÍJlfs-
ins“ eins og norski út legu-
maðurinn, Thorbjörn Han-
sen, vill helzt kalla sig,
hafa verið b rt r. Dagbókin
öll er mörg hundruð þétt-
skrifaðar síður með teikn-
ingum og fjettda, titvitn-
ana úr verkum skálda, eink
um Ibsens og Björnsons, á-
samt hugle ð ngum höfund
arins sjálfs um lífið og til-
veruna.
Drápi norsku flugmann-
anna lýsir hann m. a. á
þessa leið: „Ég sá flugvél
lenda á ísnum. Tveir menn
komu út og gengu frá flug
vél nni skíðalausir og
sukku mjög í snjóinn. Þeir
settu upp tjald. Ég áleit,
að bezta vörnin mundi vera
árás og skaut nokkrum
skotum í nánd við þá. Þeir
urðu hræddir, skutu á mót
með einu byssunni sem þeir
höfðu, kjöguðu um í snjón
um og það var dásamleg
skemmtun að sjá þá böðl
ast þarna bjargarlausa.
Ég renndi mér kringum þá
á skíðunum og skaut ann-
an þeirra í höfuð ð aftan
frá. Hann lézt þegar. Hr’nn
komst þá í hellisskúta við
vatnsbakkann með byss-
una í höndum. Skot mín
náðu ekki til hans þar inn
tsvo að ég fór að reyna að
tæla hann út og sagði:
„Vertu éhræddur, komdu
út. Ég geri þér ekkert. >Ég
skal leyfa þér að fara aft-
ur heim, við erum þó land
ar. Komdu, en hentu byss-
unni fyrst út.“ Þetta tókst.
Hann kom út, en ég skaut
hann samstundis og kast-
læk!nn.“
aði líkinu í
Fli gmennirnir
sjást ekki
Daginn eftir að norsku flug
mennirnir nauðlentu á vatn-
inu flugu ýmsar flugvélar úr
norska og sænska hernum
þar yfir. Brá þá svo við að
tjald þeirra sást ekki og þótti
það kynlegt, en flugvélin stóð
enn í sömu skorðum á ísnum.
Vaknaði þegar sá grunur, að
hinn geðveiki útilegumaður
hefði myrt þá.
Líkin finnast.
Næsta dag, þriðjudaginn í
vikunni sem leið, tóku nokkr
(Framhald á 7. síðu.)
Merkil««t tilraunastarf dr. Hás'gqiiists,
scm »1 upp risakanínurnar i hitto5fyrra
Sænsku vísindamennirnir Gösta Hággquist og aðstoðar-
maður hans', Allan Bane, eru nú að gera tilraunir um eldi
risagrísa á Rydsgarði á Skáni. Eru þetta sömu mennirnir
og ólu risakanínurnar í hitteðfyrra, og er vöxtur dýranna
enn sem fyrr byggður að því að auka litþráðatöluna, géra
þau þríliína, sem kallað er.
„Ulfurinn“ Thorbjörn
Hansen
Fé drepst enn úr
Hvanneyrarveiki
í Dýrafirði
Frá fréttaritara Tímans
i Dýraf rði.
Hér er enn fannkyngi mik-
ið og hefir fé verið á inni-
gjöf síðan í desember.' — í
Innr -Lambadal þar sem
Hvanneyrarve^kin kom upp i
vetur er enn mikil óhreysti
í fé og hafa ærnar verið að
týna tölunni fram að þessu,
þótt hætt hafi verið við vot-
heysgjöf og lyf feng n. Hafa
nú alls drepizt þar um 20
k'ndur.
Tve'r bátar róa nú frá Þing
eyri og hinn þriðji er í úti-
legu. Gæftir eru stopular og
afl! sáralítill þótt á sjó gefi.
Tilraunir með jurtir
Tilraunir i þessa átt hafa
verið gerðar um alil^ngt skeið
og til dæmis reyudi Rússi
einn árið 1924 að mynda á
þennan hát.t jurt af káli og
hreðkum, er gæfi af sér af-
urðir beggja, en mistókst. í
Sviþjóð er risaöspin, sem orð
ið hefir til í sjálfri náttúrunni
vegna litþráðafjölgunar, og
nú eru Svíar á þennan hátt
að gera tilraunir með hvít-
smára, sem þeir vona, að gefi
jafnt af sér og rauðsmári,
ennfremur lín og fle ri jurta-
tegundir.
Mikill sigur.
Slík fjölgun litþráðanna er
örðugri hvað dýr snertir, og
dr. Hággquist og þeir félagar
hafa fyrstir leyst þann vanda.
Er efni, sem colchincin nefn-
ist, annars gigtarlyf, notað í
þessu skyni. Er efni þessu
dælt í móðurdýrið með sæð-
inu, og veldur það stöðnun á
skiptingu á litþráðunum. Þó
mun með þessum hætti ekki
hægt að hafa áhrif á nema
10—15% eggjanna, og auk
þess er nokkuð hætt við, að
afkvæmin deyi i móðurkviði
eða farist af óþekktum orsök
um eftir að þau eru fædd.
Áfangi, en ekki
takmark
Þótt þannig takist að
mynda kynslóð dýra með
(Framhald á 7. síðu.)
Mikil trúarvakning
víðs vegar um Noreg
Undanfarin ár hefir kirkjulíf verið talið dauft I Noregi
og sértrúarfélögum orðið lítið ágengt þar í landi. En í vetur
hefir brugðið svo við, að víða hefir fólk flykkzt á trúar-
samkomur, og heimatrúboðið norska talar um öldu trúar-
vakningar.
Hagar komnir upp
í Skagafirði
AHgóðlr hagár eru nú komn
ir í framsveitum Skagafjarð
ar, því að mjög tók upp snjó
í hérað nu í hlákunni á dög-
unúm. Svellalög eru þó geysi
lega m kil í héraðinu á flat-
lendinu, og út með Skaga-
firði að austan er enn mikd
fönn.
Eins og kunnugt er eiga sér
trúarflokkar ýmsir, sem ekki
telja sig e'ga að öllu leyti
samle ð með norsku ríkiskirkj
unni, meiri ítök í Noregi en
í mörgum öðrum lönclum.
Vakningaralda.
Nú i vetur v'rðist þessum
trúarflokkum hafa orðið mik-
;ð ágengt í starfi sínu, og hef
ir verið skýrt frá kristilegri
vakningu í svipuðum mæli og
var í Noreg fyr'r alllöngu.
Það er þó einkum á Vestur
landinu, sem þessi hreyfing
hefir átt sér stað, og er þar
sérstaklega getið Haugasunds
og Skánarvíkur, þar sem fólk
hefir hópazt á trúarsamkom-
ur og i k'rkjur.
Stærstu sal:r í Þrándheimi
of 1 tlir.
He matrúboðið hefir i vetur
haft trúarsáJUteimuv í stærsta
samkomusal Þrándheimsborg
ar,' og hefir aðsóknin verið
svo rnik l, að kvöld eftir kvöld
hefir fjöldi fólks orðið frá að
hverfa. Svipuðum árangri
segist heimatrúboðið hafa náð
víðar.
Aímenn hreyfing í trú-
málum.
Það er þó alls ekki til he ma
trúboðsins eins, sem fólk
hneig st i vaxandi mæli í
Noreg5. Flest trúarfélög og
kirkjudeildir eiga við uppgang
að búa, einn g fríkirkjurnar.
í Halden hafa ýms trúarsam-
tök efnt 11 sameiginlegra
vakningafunda með þeim ár-
angri, að ekki hefir verið hús
rúm fyrir alla, er þá vildu
sækja.
*
Akvæði húsaleigu-
laganna ekki fram-
lengd í Reykjavík
Bæj arst j órnarmeirihlu t: nn
í Reykjavík bar í fyrradag
fram t llögu, er hann sam-
þykkti síðan. um að bæjar-
stjórnin muni ekki fram-
lengja ákvæði húsale gulag-
anna, sem ella e:ga að falla
niður 14. maí. Falla þau því
úr gildi þá.
Við ekráningu kom fram, að
sagt hafði verið upp le gjend
um í 250 íbúðum í bænum,
með hliðsjón af afnámi húsa
le'gulaganna, en fullvíst er,
að þar hafa ekki öll kurl
komið til grafar. Má með rök
um telja líkur 11, að slíkar
uppsagnir séu um 500. Bitn-
ar það því áreiðanlega þung-
lega á mörgum, sem erfiðar
aðstæður á v:ð að búa, er
ákvæði húsaleigulaganna
falla úr gildk
Hins vegar var bætt við til
| lögu Sjálfstæðismeirihlut-
ans ósk um það, að Alþingi
' setti ákvæði um hámarks-
húsaleigu og forgangsrétt
Reykvíkinga til húsnæðis í
Reykjavík. Hvort slík löggiöf
i verður sett, er þó vafamál, því
j að senn er komið að þ ng-
( slitum. • .....
Bidault gefst upp
við stjórnarrayndun
Bidault foringi kaþólska
flokksins gafst i gær upp við
að reyna stjórnarmyndu í
Frakklandi. Auriol forseti fól
þá Queuille, foringja raxlíkala
flokksins, að reyna stjórnar-
myndun.
Fékk nýtt nýra «p dó
Franska stúlkan, sem grætt
var í nýra úr morðingja, er
var hálshöggvinn, andaffist
af hjartaslagi, þremur vikum
eftir að hún fékk nýja nýrað.
Skurðaðgerðin heppnaðist
þó vel, og nýrað virtist starfa
eins og það átti að gera.