Tíminn - 06.03.1951, Page 2
2.
TÍMINN, þriðjudaginn 6. marz 1951.
54. blað.
Útvarpið
Útvarpið í kvöld:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20,20 Tónleikar (plötur):
Oktett fyrir blásturshljóðfæri
eftir Stravinsky (höfundurinn
stjómar). 20,35 Erindi: Fiskveið
ar við Grænland (Lúðvík Kristj-
ánsson ritstjóri). 21,00 „Sitt af
hverju tagi“ (Pétur Pétursson).
22,00 Fréttir og veðurfregnir. —
22,10 Passíusálmur nr. 36. 22,20
Vinsæl lög (plötur). 22,45 Dag-
skrárlok.
Hvar eru skipin?
Eimskip:
Brúarfoss fór frá Kaupmanna
höfn 2. 3. til Reykjavíkur. Detti-
foss fór frá Reykjavík 25. 2. til
New York. Fjallfoss fór frá Hull
2. 3. til Reykjavíkur. Goðafoss
fór frá Hull 1. 3., væntanlegur til
Reykjavíkur kl. 13—14 í dag 5. 3.
Lagarfoss er í Vestmannaeyjum,
fer þaðan til Keflavíkur og Akra
ness. Selfoss er í Leith. Trölla-
foss er á Patreksfirði, fer þaðan
til New York. Auðumla kom til
Hamborgar 2. 3.
Ríkisskip:
Hekla er í Reykjavík. Esja
verður væntanlega á Akureyri
í dag. Herðubreið átti að fara frá
Reykjavík kl. 24 í gærkveldi til
Breiðafjarðarhafna og Vest-
fjarða. Skjaldbreið er í Rvík.
í>yrill er á leið til Norðurlands-
ins. Ármann fer frá Reykjavík
síðdegis í dag til Vestmannaeyja.
Flugferðir
Flugfélag Islands h.f.
_ Innanlandsflug: í dag er á-
ætlfið að fljúga til Akur?yrar,
Vestmannaeyja, Blönduóss og
Sauðárkróks. Á morgun eru ráð
gerðar flugferðir til Akureyrar,
Vestmannaeyjá og Hellisands
Millilandaflug: „Gullfaxi" fór
í morgun til Prestwick og Kaup
mannahafnar. Flugvélin er vænt
anleg aftur til Reykjavíkur um
kl. 18,00 á morgun.
Árnað heilla
í harðara lagi. En frá harðari
vetri herma annálar fyrir tvö
hundruð árum — 1751. Þá voru
ísalög svo mikil, að riðið var á
sjávarís milli allra eyja fyrir
Helgafellssveit, Skógarströnd
og Skarðsströnd og um Breiða-
sund milli Hrappseyjar og Brok
eyjar. Jafnvel rastirnar lagði.
Þennan mikla frostavetur var
Húnaflói fullur af ís, og í Þing
eyjarsýslum flosnaði fólk upp
hópum saman, jafnvel prestar
fóru á vergang, en fjöldi fólks
dó úr harðrétti.
Hefir hvort tveggja verið, að
fastar hefir að sorfið um tíðar
farið þá, og svo hitt, að íslend-
ingar voru verr við vondum
vetri búnir fyrir tvö hundruð
árum en nú.
ur Óskarsson ritari, Sigurjón Á.
Ólafsson og Björn Ólafsson.
Varaformaður er Stefán Björns
son, varagjaldkeri Böðvar Stein
þórsson og vararitari Pálmi Jóns
son. Endurskoðendur: Theodór
Gíslason og Þorsteinn Árnason,
til vara Tryggvi Þorfinnsson.
Fundarstjóri var Einar Þor*
steinsson skipstjóri.
Um tuttugu bifreiðir
lentu í árekstrum um þessa
síðustu helgi.
Mannslát.
Fyrir nokkrum dögum lézt
Kristín Jónasdóttir, Dagverðar-
nesi í Dalasýslu rúmlega sjötug
að aldri. Átti jarðarför hennar
að fara fram í gær en varð að
fresta henni vegna stórhríðar.
Röskir skíðagöngumenn.
í vikunni sem leið gengu tveir
menn á skíðum úr Mývatnssveit
til Akureyrar á átta klst. og 15
mín. Þeir voru þó ekki nema 6
klst. og 15 mín á göngu, því að
þeir töfðu á Fosshóli og í Skóg-
um klukkustund á hvorum stað.
Er hér rösklega gengið, því að
vegalengdin frá Mývatnssveit til
Akureyrar er um 70 km. að lengd
og hafa göngumennirnir því
gengið rúmlega 11 km. á klukku-
stund. Menn þessir voru norski
skíðakennarinn, sem dvalið hef
ir norðan lands undanfarið, J.
Tenmann og Matthías Kristjáns
son, Litlu-Strönd í Mývatnssveit,
kunnur skíðagöngumaður.
Árshátíð
halda Framsóknarfélögin á
Akureyri að Hótel KEA næsta
laugardag.
Marmari.
Leikfélag Reykjavíkur lék
Marmara, sjónleik Guðmundar
Kambans, s. 1. sunnudagskvöld.
Hafði verið ákveðið að sú sýning
yrði hin síðasta á leikritinu, en
aðsókn reyndist svo mikil, að
margir urðu frá að hverfa, og
linnti ekki símahringingum og
fyrirspurnum til félagsins frá
fólki, sem óskaði að sjá þetta
veigamikla og mjög umtalaða
leikrit. Vegna þeirra verkefna,
sem félagið hefir nú með hönd-
um, eru erfiðleikar á því að
verða við þessum óskum, samt
hefir félagsstjórninni tekizt að
hliðra til um sýningartíma fyrir j
Marmara og gefa almenningi
kost á enn einni sýningu á leik-
ritinu. Þessi sýning verður ann-
að kvöld, miðvikudagskvöld, og
er félaginu með öllu ókleift að
verða við óskum um fleiri sýn-
ingar. Af sérstökum ástæðum
getur þessi sýning ekki hafizt
fyrr en kl. 8,30 og eru menn
vinsamlegast beðnir að taka það
til athugunar.
Harðir bardagar á
miðvígstöðvum
Kóreu
Harðir bardagar geisuðu á
miðvígstöðvunum í Kóreu í
gær, og tefldi norðurherinn
fram nýjum og óþreyttum lið-
sveitum. Suðurherinn hélt þó
sókn sinni áfram, hopaði
hvergi og sótti sums staðar
fram nokkra km. Annars var
tíðindaiaust á vígstöðvunum.
AuglÝsmgasími
TÍMANS
81300
Hjónaband.
í fyrradag voru gefin saman
í hjónaband ungfrú Ragna Sig-
urðardóttir, kaupkona í Reykja-
vík og Pétur Guðmundsson kaup
maður.
Trúlofun.
Nýlega hafa opinberað trú-
lofun sína ungfrú Aðalbjörg
Jónsdóttir frá Yzta-Hvammi í
Aðaldal og Sigtryggur Árnason,
Reykjum, Reykjahverfi, Suður-
Þing.
Úr ýmsum áttum
Aðalfundur
fulltrúaráðs sjómannadagsins
var haldinn í Reykjavík sunnu-
daginn 4. marz, og varð aðal-
fundarstörfum ekki lokið, og
verður framhaldsaðalfundur
haldinn síðar.
Áður en gengið var til dag-
skrár fundarins, minntist form.
fulltrúaráðsins, Henry Hálfdán-
arson, nýlátins fulltrúa sjó-
mannadagsráðs, Kristmundar
Guðmundssonar, varaformanns
Sambands matreiðslu- og fram
reiðslumanna, og heiðruðu
fundarmenn minningu hans
með því að rísa úr sætum. ■
Á fundinum var mikið rætt
um starfsemi ráðsins s. 1. ár, og
einnig um væntanlegar fram-
kvæmdir á þessu ári, og varð
fundi frestað, eins og fyrr segir.
Stjórn sjómannadags ráðsins
var endurkjörin, en hana skipa:
Henrý Hálfdánarson form., Þor-
/4 ffcritupi i/egi:
BÝFLUGNARÆKT
Danir hafa byrjað tilraunir með býflugnarækt á
Grænlandi, og fór sérfróður maður í þeirri grein þang-
að í sumar til þess að fylgjast með árangrinum. Eftir
heimkomuna lét hann i ljós, að hann teldi allar líkur til
þess, að býflugnarækt gæti þrifizt þar, ef rétt væri að
farið, enda væri þar mikið af blómgresi, sem væri bý-
flugunum hentugt til hunangssöfnunar.
★ ★ ★
Hvernig er þetta hér á landi? Getur býflugnarækt
ekki þrifizt hér? Fyrir allmörgum árum gerði Jónas
Þór, verksmiðjustjóri á Akureyri, tilraunir um þetta,
en mun svo hafa horfið frá býflugnaræktinni vegna
erfiðleika, sem á voru. Væri þó ekki vert að frekari til-
raunir ættu sér stað?
★ ★ ★
Það er auðvitað ekki við því að búast, að býflugna-
rækt verði eða geti orðið atvinnugrein, er máli skiptir.
En mætti ekki hafa hér býflugnabú á heimilum til til- i
breytni, skemmtunar og matardrýginda, væri nokkuð
unnið. Á því er ekki vafi, að bæði erlend dýr og jurtir j
geta þrifizt oft og tíðum, og hefir sennilega aðeins
fátt eitt af þvi verið reynt hér á landi. En í þessu efni j
þurfum við oft að þreifa okkar áfram, unz við finnum !
réttar aðferðir.
★ ★ ★
Fari svo, að Dönum takist býflugnarækt á Grænlandi,
má það kallast undarlegt, ef hún getur ekki blessazt
hér. Við erum að minnsta kosti vön að hugsa okkur, að
vetur séu grimmg,ri á Grænlandi en hér, og sumurin
- ,‘iiza lengri'eða sumarveðráttaíi b'étri. J.H.
J L'. - . JZ'. v .' ■ i*. j * •,
’imrnrn;
ORÐSENDING
írá HÓTEL KEA
Smurðbrauðsdömu, vana eldhússtúlku vantar á hótel H
ið í sumar. Einnig frammistöðustúlkur, ”
Upplýsingar í síma 80496, eða hjá hótelstjóránum í
K. E. A. Búnaðarbankanum 5. hæð.
Ungmennafélag Reykjavíkur
heldur árshátíð sína n.k. laugardag 1 Listamannaskál-
anum, er hefst klukkan 8,30. Ungmennafélágar utan
af landi eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Tekið á móti þátttökutilkynningum kl. 6—7 í sínijj
6369. (Ekki samkvæmisklæðnaður).
Ungmennafélagið.
V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V,
UTBOÐ
Tilboð óskast í að byggja hús á lóð H. í. S. í Örfyris-
ey, svo og að girða lóðina og fylla hana upp, ;;
Uppdrættir og útboðslýsing verða afhent á teikni- jl
stofunni gegn kr. 50,00 skilatryggingu, og þar eru einn- V
ig gefnar upplýsingar. '■
Tilboðum skal skilað fyrir 16. þ.m. á sama stað. I;
TEIKNISTOFA S. í. S. ;!
Hafnarstræti 23.
V.V.VAV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V
Þar- sem samningur milli Sjómannafélágs ííeykja-
víkur og Útvegsmannafélags Reykjavíkur, um kaup og
kjör háseta, matsveina og vélamanna, með 250 ha.
réttindum á skipum félagsmanna er stundá lúðuveiðar
með lóð, dags. 2. júní 1950 er úr gildi fallinh, hafa
stjórnir Sjómannafélags Reykjavíkur og Sjómanna-
félags Hafnarfjarðar ákveðið, að aðeins sé heimilt að
skrá á lúðuveiðar samkvæmt samningi dágs. 6. jan.
1947, um helmingaskipti á útlegubátúm, sém fiska
með lóð.
Stjórn Sjómannafélags Revkjavíkur
Stjórn Sjómannafélags Hafnarfjarðar
Inn legar þakkir til allra nær og fjær, sem sýndu
okkur samúð við andlát og útför móður minnar og
ömmu ekkar
JÓNÍNU JÓNSDÓTTUR
frá Æsustöðum.
Lára Pálmadóttir
Heiða Aðalsteinsdóttir Halla Aðalsteinsdóttir
Auglýsingasími Tímans 81300