Tíminn - 06.03.1951, Side 8
„ERtEJVT YFiltLH " I DÁGs
KosHÍiHfai'nni' « Gullströnd
35. árgangur.
Reykjavík
Samvinnan efnir tii
smásagnasamkeppni
Tímaritið Samvinnan tilkynnir það í nýútkomnu hefti,1
að riiið efni til smásagnasamkeppni, og eru fyrstu verðlaun
í samkeppninnj ferð til Miðjarðarhafsiandanna með „Arn-
arfelli“ eða „Hvassafelli.“ Munu þrenn verðlaun verða veitt
fyrir beztu frumSamdar smásögur, 1000 til 4000 orð, sem
berast Samvinnunni fyrir 1. maí næskomandi, og er öll-
um íslenzkum borgurum heimilt að taka þátt í samkeppn-
fnni, hvort sem þeir hafa
ekki.
Skíðamót sköla-
nemenda á
Klambratúninu
í vetur er í fyrsta skipti
háð í Reykjavík skíðamót
nemenda í framhaldsskól-
um, og verður fyrri hluti
mólsins í dag. Það er íþrótta
bandalag framhaldsskóla í
Reykjavík og nágrenni, sem
fyrir þessu gengst.
Það er boðganga, sem
fram á að fara í dag, og
hefst hún á Klambratúni kl.
fjögur. Þrír skólar höfðu í
gærkvöldi tilkynnt þátttöku
sína. Taka þátt í keppninni
tvær sveitir frá Iðnskóian-
um, tvær frá Menntaskólan
um og ein frá Háskólanum,
fimm menn í hverri. Geng-
ur hver maður þrjá kíló-
metra.
Síðari hluti þessa skíða-
móts skólanemenda fer fram
á Kolviðarhóli á sunnudag-
inn kemur, ef veður leyfir,
og verður þar keppt í svigi
og bruni.
r birt eftir sig smasogur eða
Þriggja manna dómnefnd
mun velja verðlaunasögurn-
ar og skipa hana þeir Árni
Kristj ánsson, magister,Andrés
Björnsson, magisíer og rit-
stjóri Samvinnunnar. Skal
senda handritin og nafn höf-
undar með þeim i lokuðu
umslagi, en hvorttveggja
merkt eins. Sá, sem hlýtur
fyrstu verðlaun, getur sam-
iö um það við Samvinnuna,
hvenær hann fer verðlauna-
ferðina á tímabilinu ágúst
1951 til maí 1952, og hlýtur
hann ókeypis ferð fram og
aftur í sömu íerð skiDsins. —
Önnur verðlaun verða 500 kr.,
en þriðju verðlaun 250 kr. —
Úrslit samkeppninnar verða
væntanlega birt í júníhefti
Samvinnunnar.
Frá þessari samkeppni er
skýrt í febrúarheft: Samvin^-
unnar, en efni þess er meðal
annars: Höfum það heldur,
er sannara reynist, ritstiórn-
argrein, Leikmannsþankar
um Alþingi, Má bjóða yður
ost? Viðtal við yngsfu kyn-
slóðina, Tvær stutí.ar gfein-
ar eftir sænska sálfræðirg-
inn fil. dr. Alf Ahlberg Breytt
skipan Samvinnuskólans,
Siglingar samvinnuskipanna,
Heilsast og kveðjast — það er
lífsins saga, Grein um Mao
Tse-tung, Kvennaþáttur cg
margf fieira.
Ungur drengur drukkn-
ar í Akureyrarpolli
Var að leika sér á sloða á veikum ís á-
samt félaga sínum «« fóru báðir í sjóinn
Frá fréttaritara Tímans á Akureyri.
Það slys varð á Akureyri á sunnudaginn, að lítill drengur
drukknaði ofan um ís á Pollinum, en félagi hans bjargaðist
nauðulega.
Á sleða á ísnum.
Um klukkán 4,30 voru tveir
drengir, fjögurra og fimm
ára, að leika sér á sleðum á
þunnum ís, sem lagt hefir á
voginn innan Akureyrar-
tanga. ísinn getur tæplega
kallazt mannheldur við land-
ið, og alls ekkl, er fjær dreg-
ur landi. Höfðu drengirnir
farið út á ísinn í leyfisleysi
og án vitundar vandamanna.
fsinn brestur.
Drengirnir munu hafa ver-
ið um það bil 50 metra frá
landi undan flugplaninu
svonefnda, sem er á miðri
Oddeyrinni, þegar ísinn brast
undir þeim, og þeir fóru báð-
ir í sjóinn. Fólk, sem var á
gangi á Strandgötunni sá slys
ið, og brugðu nokkrir menn
þegar við til bjargar.
JJrðu að brjóta fsinn frá sér.
Heldur seinlega gekk þó að
komast út til drengjanna, því
að mennirnir urðu að brjóta
Isinn frá sér, þar sem hann
hélt þeim ekki. Um það bil
stætt vatn fullorðnum mun
hafa verið þar sem drengirn-
ir féllu í sjóinn.
Annar meðvitundarlaus.
Þegar drengirnir náðust,
var annar þeirra lífvana en
hinn með meðvitund. Voru
þegar hafnar lífgunartilraun-
ir við þann meðvitundarlausa
bæði þegar í stað í fjörunni
og af læknum í sjúkrahúsi,
en þær báru engan árangur.
Drengurinn, sem drukknaði,
var f jögurra ára og hét Árni
Kristján Sveinsson, sonur
Sveins Kristjánssonar af-
greiðslumanns í KEA.
Eldri drengurinn, Bragi Ax-
fjörð, sonur Sigfúsar Ax-
fjörðs, náði sér fljótt eftir
volkið og virtist ekki hafa orð
ið meint af.
Póliand heíir nýlega undirritað landamærasáttmála við Austur-Þýzkaland og er sá sátt
máli staöfesting á Oder-Neisse iínunni. Hér sést Skrzeszewsky utanríkisráðherra Póiiands
rita undir (til vinstri) og Georg Dertinger utanrikisráðherra Austur-Þýzkalands (til hægri)
Roskin kona verð-
ur fyrir bifreið
Skömmu fyrir klukkan fjög
ur i gær varð roskin kona,
Bergþóra Björnsdóttir, til
heimilis að Barónsstíg 16 í
Reykjavik, fyrir bifreið
skammt vestan við gatna-
mót Laugavegar og Baróns-
stígs.
Bergþóra ætlaði að fara
yfir götuna vestan við vega-
mótin, en í sömu andrá kom
fólksbifreið innan Laugaveg-
inn. Er bílstjórinn varð kon-
unnar var, hemlaði hann, en
bifreiðin rann á hálkunni. —
Reyndi bílstjórinn þá að
sveigja til vinstri til þess að
forða því, að hann æki á kon
una, en við það snerist bill-
inn, og skall hægri framhurð
in á konuna, sem íéll á göt-
una.
Bergþóra missti meðvitund
við fallið, og var hún flutt í
Landspítalann. Hafði hún
hlotið nokkurn áverka á höf-
uð, en virtist ekki beinbrot-
in. Hins vegar var hún ekki
komin til fullrar meðvitund-
ar í gærkvöldi. — Bergþóra
er 73 ára gömul.
Dagskrárfundur fjórveld-
anna hófst í París i gær
Jéssiip vili ræða öll helzíu cleiiumálln
en Gromyko Þýzkalandsmnlin ein
Fundur aðstoöarutanríkisráðherra fjórveldanna og starfs-
manna utanríkisráðuneytanna til undirbúnings dagskrár
tjórveldafundar hófst í París í gær. Paroudi skrifstofustjóri í
franska utanríkisráðuneytinu stjórnaði fundi.
Líkur til að stjórn-
armyndun takist
í Frakklandi
R^tari franska jafnaðar-
mannaflokksins, Mollier, til-
kynnti Auriol forseta í gær,
að hann mundi taka að sér
að reyna stjórnarmyndun.
Kvað hann viöræður sínar við
leiðtoga helztu miðflokkanna
hafa sannfært sig um það, að
sér mundi takast að mynda
ráðuneyti, er styddist við
þingmeirihluta. Er gert ráð
fyrir, að hann muni leggja
ráðherral'sta sinn fram mjög
fljótlega og leita þegar trausts
þingsins. Hann þarf að fá 311
atkvæði í þinginu.
Bretar leggja fram tillögu.
í upphafi fundarins lagði
Davis aðstoðarutanrikisráð-
herra Breta fram tillögu um
dagskrá fundarins á þá lund,
að fyrst skyldi rætt um orsak
ir þeirrar tortryggni, sem nú
ætti sér stað milli Austur-
og Vestur-Þýzkalands.
Vill öll helztu deilu-
málin á dagskrá.
Jessup aðalfulltrúi Banda-
ríkjamanna tók til máls og
sagði, að Bandaríkjastjórn
vildi láta ræða á væntan-
legri fjórveldaráðstefnu öll
þau deilumál, sem nú yllu
mestum ótta og tortryggni á
alþjóðavettvangi. Gæti ekki
orðði samkomulag um það,
hefðu Bandaríkjamenn ekki
mikinn hug á að fjórvelda-
ráðstefna kæmist á. Friðar-
samninga við Austurríki yrði
t.d. óhjákvæmilegt að ræða.
Aðeins Þýzkalandsmálin,
segir Gromyko.
Gromyko, fulltrúi Rússa,
sagði að stjórn sín legði á
það áherzlu, að þessi fjór-
veldaráðstefna tæki aðeins
fyrir lausn helztu deilumál-
anna um Þýzkaland og ein-
beitti sér að þvi að leysa þann
vanda, einkum með tilliti til
endurhervæðingar landsins.
Búnaðarþing ræðir
eignaskatt á
búpeningi
Á fundi búnaðarþings í gær
flutti Hákon Bjarnason skóg-
ræktarstjóri erindi um fram-
tíð skógræktar nnar hér á
landi. Siðar urðu umræður um
eignamat á búpeningi til skatt
framtals, og var samþykkt á-
lyktun, sem átal^i mjög hve
hátt búpen'ngur er nú met-
inn.
Bílddælir sigruðu
I Bílddælir og Patreksfirðing
, ar háðu skákkeppni símleið-
| is síðastliðna sunnudagsnótt.
| Var teflt á sjö borðum, og
báru Bílddælir hærra hluti.
Þeir unnu fimm og hálfa
skák.
Viðureignin stóð i um það
bil ellefu klukkustundir.
Dæmt í könguléai'-
málfnu
í gær voru kveðnir dómar
í hinu víðfræga köngulóar-
máli í Danmörku. Sakborn-
ingar fengu 4—8 ára fangelsi
ílestir. —
F.U.F.
Málfundahópur F.U.F. í
Reykjavik heldur fund i
Edduhúsinu i kvöld, og hefst
| hann kl. 8,30. Fundarefni:
Marshallaðstoðin og verkleg*
ar framkvæmdir. Frummæl-
andi Einar Ágúgtssorj,