Tíminn - 22.03.1951, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur í Edduhúsi |
Fréttasimar: |
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300 V
Prentsmiðjan Edda l
35. árgangur.
Reykjavík, fimmtudaginn 22. marz 1951.
68. blað.
Fyrsta björgun með flug-
línutækjum fyrir 20 árum
BjörgunarsajSa Grindvíkinga: 117 manns
bjargað úr sjávarháska á 20 árum
' ....... .......... J
f dag eru tuttugu ár liðin síðan bjargað var í fyrsta sinn á
vegum Slysavarnafélagsins mönnum úr sjávarháska með
flugiínutækjum frá landi. Má því segja, að nú sé tuítugu
ára afmæli hinnar skipulögðu björgunarstarfsemi.
HIRÐIN ( „HEILAGRI JÓHÖNNU
/\
Snjóbíll flytur sjúkl
ing á Akureyrar-
spítala
Frá fréttaritara Tím-
ans á Akureyri.
Gamli snjóbíllinn, sem kom
inn er til Akureyrar hefir lít-
ið verið notaður enn. Þó hef-
ir hann flutt eitthvað smá-
vegis fyrir bændur. í fyrra-
dag sótti hann sjúkling fram
í Hleiðargarð í Eyjafirði og
flutti hann til botnlanga-
skurðar í sjúkrahúsið á Akur
eyri. Gekk ferðin vel.
Snjóýtan, sem átti að ryðja
veginn fram á Melgerðisflug
völl byrjaði eitthvað á þvi
verki eftir helgina en bilaði
eitthvað smávegis. Nú er hins
vegar búin að vera allmikil
snjókoma þar nyrðra undan-
farna tvo daga, svo að ekki
er hægt að vinna að ruðningi
svo að gagni komi.
Björgunin 24. marz 1931.
Þessi atburður gerðist
skammt frá Hrauni við Þór-
kötlustaðahveríi. Að morgni
hins 24. marz 1931 símaði
Einar Einarsson í Garðhús-
um til erindreka Slysavarna-
félagsins í Reykjavík, Jóns E.
Bergsveinssonar, og tilkynnti
honvuti strand fransks tog-
ara á þessum slóðum. Var
allri áhöfn skipsins, 38 mönn
um, bjargað með hinum nýju
fluglínutækjum Slysavarna-
féiagsins. Þóttu það mikil
tíðindi og góð.
Björgunarsaga
Grindvíkinga
Síðan þetta gerðist hefir
björgunarsveitin í Grindavík
mörgum manninum bjargað
úr sjávarháska. 10. apríl 1933
var 24 mönnum bjargað af
Skúla fógeta, 6. september
1936 fjórtán mönnum af
enska togaranum Trocadero,
6. janúar 1947 fimmtán mönn
um af enska togaranum Lois
og loks 28. febrúar 1950 23
mönnum af olíuskipinu Clam.
(Framhald á 7. síðu.)
Færeyskri skútu með 17 manns
bjargað úr sjávarháska við Eyjar
Aðalfundur M jólkurbús
Flóamanna í gær
Innvegin mjólk 1950 nær 15 niilj. kg.
Aðalfundur Mjólkurbús Flóamanna var haldinn í gær, en
var fásóttari en venjulega vegna veðurs og snjóa, fundar-
menn 150. Er nú gífurleg ófærð á vegum austan fjalls, og
hefir aldrei verið eins erfitt um samgöngur í vetur og ein-
mitt í gær. Átti tíðindamaður blaðsins tal við Sigurð Inga
S gurðsson mjólkurbússtjóra í gærkveldi eftir fundinn.
Var nscrri kosnin npp í klctta. er skipvcr.i-
nni á véibátnu2n M ngg tókn>t híörg'iin
í fyrrakvöld var færeyskri skútu með 17 manna áhöfn
bjargað úr bráðum háska utan við höfnina í Vestmanna-
eyjum. Hafði færeyska sk pið verið í dragi hjá annarri fær-
eyskri skútu, en slitnað aftan úr á hinum hættulegum slóð-
um undir björgunum. Voru það skipverjar á vélbátnum Mugg
úr Vestmannaeyjum, sem tókst að koma dráttartaug í sk pið,
er það var á siðasta bárusoginu upp í kletta, og mátti því ekk:
tæpara standa um björgun.
• *
Utbreiðslufundur
Framsóknarmanna
á Akureyri
Öll Framsóknarfélögin á
Akureyri hafa ákveðið að
efna til almenns fundar til
útbreiðslu og kynningar á
málefnum flokksins hinn 8.
apríl n. k. Hafa félögin feng
ið Rannveigu Þorsteinsdótt-
ur til þess að koma til Akur-
eyrar og flytja eríndi og taka
þátt í umræðum á fundi þess
um.
Þá gengst F. U. F. á Akur-
eyri einnig fyrir stjórnmála-
námskeíði í fyrstu viku apríl.
Egill Thorarensen kaupfé-
lagsstjóri flutti skýrslu félags
stjórnar og gerði gre n fyrir
rekstri mjólkurbúsins. Inn-
vegin mjólk árið 1950 nam
14,970,389 kg., aukning 4,5%
frá árinu áður. Meðalverð t'l
bænda var kr. 1,91,3 fvrir
litrann.
Sveinbjörn Högnason skýrði
frá rekstri Mjólkursamsölunn
ar og Stefán Björnsson flutti
erind' um mjólkurgæði og
vöruvöndun.
Austurvegur.
Ýms önnur mál voru rædd
á fundinum, meðal annarra
samgöngumálin. Var sam-
þykkt áskorun til stjórnar-
valdanna að láta sem fyrst
koma til framkvæmda lögin
um Austurveg.
Blaðamaður frá Tímanum
átti í gær tal við Einar Jóhanns
son skipstjóra á vélbátnum
Mugg, en hann og skipvarj-
ar hans sýndu frábæran dugn
að og snarræði við að bjarga
skipinu á síðustu stundu. Eig
andi Muggs er Helgi Bene-
diktsson.
Sáu eldflaugum
skotið
— Við vorum að koma frá
því að leggja net, segir Ein-
ar. Klukkan var um níu um
kvöldið. Vindur var allhvass
um 9 vindstig og mikill sjór.
Er við komum fyrri Klett.s-
nefið og beygðum inn að inn
siglingunni, sáum við skotið
til lofts tveimur eldblvsum
frá skipi, sem var mjög nærri
landi. Sáum við strax að eitt
hvað var að oe: breytt.um
stefnunni í áttina til skipsins.
| Rak óðfluga til
lands
I Þegar nær dró. sáum við. að
þetta var færeyska fiskiskút-
an Boöasteinur. Var vél skips
ins biluð og rak það óðfluga
til lands. Önnur færevsk
skúta hafði dregið Boðastein,
en dráttartaugin hafði slitn-
að og vél hins skipsins jafn-
framt bilað eithvað, svo að
, það gat ekki aðstoðað Boða-
steinur frekar, og lónaði frá
honum. Varðskipið óðinn
var hins vegað komið á vett-
vang.
Djarfleg björgun
Fyrsta tilraun skipverja
á Mugg að ná með taug til
Boðasteins mistókst. Varð
nú úr vöndu að ráða, þar
sem sýnt var, að engan
tíma mátti missa, ef skip-
ið átti ekki að reka upp i
JJrðirnar. Tóku skipverjar
á Mugg því það ráð að
fara á bát sínum m'Ili hins
bilaða skips og iands hlés-
megin svo nærri, að hægt
var að rétta drátfartaug-
arnar á milli skipanna.
Ðráttartaugin slitnaði
í Faxasundi —
Óð'nn tók við
Þetta t.ókst og dró Muggur
nú Boðasteinur frá landi og
ætlaði með hann norður fyr-
ir Heimaklett og leggjast und
ir Eiðið. En þegar komið var
i mitt Faxasund. biluðu drátt
artaugar færevska skipsins
aft.ur. En varcskipið Óðinn
tók þá við og náði skipinu,
og dró það undir Eiðið, en
Muggu hélt heini og inn á
Vestmannaeyjahöfn.
Góð aðsókn hjá
Valtý Péturssyni
24 málverk hafa selzt á
málverkasýningu Valtýs Pét-
urssonar. og um 500 menn
hafa skoðað sýninguna.
Sýningln verður opin alla
bæna- og páskadagana.
Tíminn kemur næst
út á miðvikudaginn
Að venju kemur Timinn
ekki út fyrr en miðvikudag-
inn eftir páska, þar eð ekki
er unnið i íslenzkum prent-
smiðjum laugardaginn fyrir
páska.
Víða vatnsskortur
í sumum byggðarlögum
sunnanlands hafa nú um
skeið veríð veruleg brögð að
vatnskorti, og verður á sum-
um bæjum að sækja allt
vatn, bæði handa búpeningi
og til heimilisnota, um lang-
an veg. Hafa brunnar, sem
alla jafnan er nægt vatn í,
þrotið algerlega í hinum lang
varandi kuldum.
Lektorsstaða í ís-
lenzku við Halnar-
háskóla laus
Lektorsstaða í íslenzku er
nú laus við háskólanna í
Kaupmannahöfn og er ætlast
til þess, aö íslendingur sé ráð
inn í stöðuna. Háskóla ts-
lands hefir verið beðinn um
að taka við. umsóknum og
skulu umsóknirnar, ásamt
meðmælum og vottorðum.
vera á dönsku og stilaðar til
danska menntamálaráðu-
neytisins. Skal skila þeim i
skrifstofu Háskóla íslands i
siðasta lagi laugardag 31.
marz.
Ráðið er í stöðuna til
þriggja ára í senn. Að öðru
leytl gefur háskólaritari upp
lýsingar.