Tíminn - 17.05.1951, Page 7
106. bláð.
TÍMINN, iimmtudaginn 17. mai 1951.
7,
Engisprettuplága
í Persíu
Mikill engisprettufaraldur
herjar nú í Persíu, og hefir
engisprettusveímurinn lagt
undir sig þúsundir hektara
af ræktuðu landi. Öllum hugs-
anlegum ráðum er beitt gegn
ófögnuði þessum, sem bók-
staflega svíöur jörðina, þar
sem hann fer yfir, og eru
komnar hjálparsveitir frá
Bandaríkjunum til þess að
berjast við engisprettufar-
aldurinn, og Rússar og Pak-
istanbúar hafa einnig boðið
Persum aðstoð.
Bílstjóraverkf a 11 ið
(Framhald af 1. slðu.)
Heildarsamningar A.S.Í.
Heildarsamningar þeir, sem
Alþýðusamband íslands hefir
gert við vegagerðina, fjalla
um aðbúnað manna við vega-
vinnu og brúargerðir, ráðs-
konuhald og matreiðslu, ferð-
ir í næsta kaupstað og mörg
önnur slík atriði, en kaup
það, sem greitt er, miðast við
kauptaxta i hlutaðeigandi
héruðum.
Vinnustöðvun bílstjórafé-
lagsins Mjölnis er því sér-
stök herför gegn viðhaldi
veganna í Árnessýslu, þar eð
unnið er hjá öðrum fyrir
sama kaup og gilti hjá vega-
gerðinni.
Bílstjórana greinir sjálfa á.
Ekki munu allir meðlimir
bílstjórafélagsins á einu máli
um þetta viðurhlutamikla
verkfall eða réttmæti þess, og
innan þess menn, sem kysu
að hefja vinnu við vegina
þegar í stað, og forða þannig
meira tjóni fyrir héraðið og
landið en orði^ er. Ágreining
ur mun einnig uppi um það,
hvort löglega sé til þess stofn-
að. —
Báðu vegagerðina um hjálp.
Eins og áður er sagt, eru
bílstjórarnir í vinnu hjá öðr-
um atvinnurekendum en vega
gerðinni, en hafa sjálfir feng
ið að kenna á því, hvað gild-
ir að halda ekki við vegunum.
Hafa þeir þá fest bila sína
eins og aðrir, og kom fyrir í
þvi sambandi spaugilegt at-
vik. Sneru bílstjórar, sem
þátt tóku í herförinni gegn
vegagerðinni, sér til henn-
ar og báðu hana að senda
á vettvang jarðýtu til þess
að draga þá upp úr forað-
inu. —
Sýnikennsla
(Framhald af 8. síðu.)
sem sýnt var, hvernig hægt
er að gleðja börnin á afmæl-
um þeirra, án stórmikils til-
kostnaðar og íburðar. Brúða,
Stína fimm ára, sat í önd-
vegi, og við hvert sæti var lít
ið spjald, sem fest var við
lítill svampur og krítarstöng
til þess að skrifa með nöfn
litlu gestanna á spjöldin. Á
borðinu var svo súkkulaði í
glösum, afmæliskringla og
skrítin kaka — lítið, skreytt
hús.
Hreinsun.
Enn er á sýningunni ein
deild, þar sem sýnt er, hvern-
ig hreinsa sk.al hanzka og
hatta og annað og ná blek-
blettum og ryðblettum úr
fatnaði og taui. Einn blaða-
mannanna, sem kom með
gamlan og blettóttan hatt á
hpfði, fékk. hann tjreins.aðan
þarná níe'ð ‘ágætum''árángrií
Vorbodskapur
(Framhald af 4. síðu.)
fosfórsýra og kalí. Áburðar-
blöndur sem þessar, eru eink
um mikið notaðar í Þýzkalandi
en einig nokkuð á Norðurlönd
um. Þá má geta þess, a~ð
Ameríkumenn nota mikið
blandaðan áburð. Líkur eru
því til, að Björn Jóhannes-
son hafi numið þessa áburð-
arblöndunarfræði sína þar
vetra. Þó trúi ég ekki, að
Ameríkumenn blandi áburðar
efnunum saman hvernig
sem helzt, nema því aðeins
að þeir séu komnir upp á lag,
að framleiða blandaðan áburð
á efnafræðilegum grundvelli
þannig að ekki komi að sök,
þó að jurtanæringarefnun
um sé blandað þannig saman.
Um slíkar áburðarblöndur
þarf ekki, að gilda hið sama
og hinar, sem hrærðar eru
saman af áburðarefnum sem
ekki eru framleidd með það
fyrir augum, að þeim sé bland
að saman.
En betur gæti ég þó trúað
hinu, að á svipaðan hátt og
t. d. Þjóðverjar gera, þó hinir
fyrnefndu geri það kannski í
stærri stil. Þær áburðarblönd
ur, sem ég til þekki eru sam-
ansettar af eftirfarandi á-
burðartegundum. Brenni-
steinssúru ammoniaki, super
fosfati og brennisteinssúru
kalíi, en oft eru líka notað-
ar aðrar kalítegundir. Slíkar
áburðarblöndur eru víða
framleiddar og notaðar aðal-
lega sem garðáburður. Því fer
svo fjærri, að Þjóðverjar
telja það litlu máli skipta
hvernig þeir blanda áburðinn
eða hvaða tegundir notaðar
eru í áburðarblönduna. Því
þeir fylgja ákveðnum reglum
í þessum efnum, svo sem aðr-
ar þjóðir gera, sem ég til
þekki.
Nokkrar spurning:ar.
Að lokum ætla ég, að beina
nokkrum spurningum til
doktorsins. Elestar þeirra eru
hinar sömu og í fyrra, en það
ætti ekki að torvelda svörin.
1. a. Eru staðhæfingar
Björns um það, að hægt sé
að blanda áburðarteg-
undunum saman, hverjar svo
sem þær eru, án þess að sök
verði að, samkvæmt eigin
rannsóknum? b) Ef svo er
ekki, á hverju byggir Björn
þær þá?
3. Treystir Björn sér til þess,
hrekja- það sem þekktir vís-
indamenn, eins og t. d. pró-
fessor Bonderff heldur fram
um blöndun áburðartegund-
anna?
4. Treystir Björn sér til
þess, að hrekja þær vísinda-
legu niðurstöður, sem liggja
fyrir frá Jordbruksförsöks-
anstattan í Stokkhólmi um
blöndun áburðarefnanna og
sem þar hafa fram komið um
margra ára skeið?
5. Treystir. Björn sér til
þess, að dæma það markleysu,
sem prófessor Svonberg segir
um blöndun hinna ýmissu á-
burðarefna?
6. Og treystir Björn sér til
þess, að dæma það vitleysu
eina sem dr. Meyer Rhein-
wald og fleiri þýzkir sérfræð
ingar halda fram um blönd-
un áburðartegundanna.
Þegar Björn Jóhannesson
hefir svarað þessum spurning
um og fært rök að þvi, að það
sem þessir fræðimenn svo sem
fjölmargir aðrir halda fram
um blöndun áburðartegund-
anna sé rangt, þá má segja,
að taflið sé unnið hjá Birni.
En þar til þetta er gert
mun ég að minnsta kosti
fresta að óska hþnum til ham
'ingjú úieð áigúrinn'.' Lýk svo
Segðn steinimun
eftir John Patrick
Sýning í Iðnó í kvöld kl. 8.00.
Aðgönumiðar seldir frá kl. 2
í dag. Sími 3191.
Hjól á öxli
fyrir aftan í kerru til sölu hjá
Kristjáni, Vesturgötu 22,
Reykjavík.
DEKK
900X20, 825X20, 750X20,
1000X20, 1000X18, 825X18,
650X16, 600X16, notuö —
tækifærisverð — hjá Björg-
vin Þorsteinssyni, Eyrarveg 5,
Selfossi.
DEKK
900x20, 825x20, 750x20, 900x
16, 750x16, 650x16, 600x16,
1050x20, notuð — tækifæris-
verð — iijá Krístjáni, Véstur-
götu 22, ReykjaVik.
Varahlutir
í vindrafstöðvar (Wincharg-
er) eru væntanlegar til lands
ins í sumar. —
Vindrafstöðvaeigendur sendi
pantanir sem fyrst til
G. Marteinsson, Pósthólf 781,
Reykjavík, eða
Véla- og raftækjaverzlunin,
Tryggvagötu 23. Sími 81279.
Útvegsmenn
Rafgeyma 6 volta og raf-
magnsperur 6, 12, 32 og 110
volta fyrirliggjandi. Ýmsar
stærðir.
Véla- og raftækjaverzlunin,
Tryggvagötu 23. Sími 81279.
Kaupum — Seljum
Allskonar notuð húsgögn
Staðgreiðsla.
PAKKHÚSSALAN
Ingólfstræti 11. Sími 4663
Mmnmgarspjöld
Krabbameinsfélags
Reykjavikur
fást í Verzluninni Remedia,
Austurstræti 7 og i skrifstofu
Elli- og hjúkrunarheimilis-
ins Grund.
máli mínu með beztu árnaðar
óskum Birni til handa og
hans mikilvæga starfi í þágu
íslenzks landbúnaðar.
Reykjavik, 14. maí 1951
Friðjón Júlíusson
Vélbátur
■
::
»; 30—50 tonna, óskast á leigu til landhelgisgæzlu um 4ra
:■ mánaða tíma í sumar. Báturinn verður að vera hrað- S>
í ■:
■; skreiður og í 1. fl. standi að öllu leyti. Leigusali sjái
í um viðhald og vátryggingu bátsins, en leigutaki beri
v >;
;■ annan kostnað við útgerð hans á leigutímanum. Til- *.
*: I;
;. boðum sé skilað til vor fyrir kl. 11 árdegis á mánudag- j.
*: inn 21. þ.m., og verða þau þá opnuð.
■: *:
VANV.V.VAV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V
/Wi
TILKYNNiNG
^ Nr. 18/1951. . > :]
Fjárhagsráð hefir ákveðið eftirfarandi hámarksverð £
Ijí á brenndu og möluðu kaffi frá innlendum kaffi- ;:
■; brennslum: ■;
í; Heildsöluverð án söluskatts . kr. 34.67 pr. kg. í;
;; Heildsöluverð með söluskatti . — 35.74 — — í;
í Smásöluverð án söluskatts ... — 38.42 — — ;■
;í Smásöluverð með söluskatti .. — 39.20 — — ;í
■; Sé kaffi selt ópakkað, skal það vera kr. 0,40 ódýrara ■;
í; hvert kíló. í;
í; Reykjavík, 16. maí, 1951, í;
í VERÐLAGSSKRIFSTOFAN. >
DUR
Húðir og skinn eru nú I háu verði. Vandið því sem
bezt alla verkun þeirra. Umfram allt verður að vanda
vel fláninguna. Hver hnífrispa eða skurður í húðina
gerir hana verðminni. Farið hreinlega með húðirnar,
þegar slátrað er og látið þær kólna sem fyrst, án þess
að holdrosinn skurni. Saltið húðirnar strax eftir að þær
eru orðnar kaldar og áður en holdrosinn byrjar að
þorna. Sé dregið að salta, gengur saltið ekki eins vel
inn í húðina, en það er skilyrði fyrir góðri geymslu
að húðin gegnumsaltist á sem skemmstum tíma. Þegar
saltað er, verður vandlega að breiða úr öllum skækl-
um og jöðrum og dreifa saltinu vel yfir alla húðina. —
Eftir því sem skinniö er þykkra þarf meira salt. Fyrir
hver 3 kg. af hráhúðarvigt þarf sem næst 1 kg. af salti.
Mikið salt gerir aldrei skaða og er því betra að salta of
mikið en of lítið. Notið ávallt hreint salt.
Nýsaltaðar húðir má ekki brjóta saman í búnt til að
geyma þannig. Þær eiga að liggja flatar, lítið eitt hall-
andi, svo að hið blóöi blandaöa vatn, sem saltið dregur
úr húðinni, geti runnið burt. Má salta þannig hverja
húðina ofan á aðra í stafla og snúa holdrosanum upp
á hverri húð. Húðirnar verða að liggja þannig i stafla
þar til þær eru gegnsaltaðar, en það tekur venjulega
1—2 vikur. Þá má, þegar hentugt þykir, taka þær upp
og búnta til flutnings eða geymslu.
Athugið leiðbeiningar þessar nákvæmlega hver og
einn og leitist við að fara eftir þeim 1 öllum greinum.
Það tryggir yður hæst verð fyrir húöirnar.
Samband ísl.samvinnufélaga
Frestið ekki iengur, að gerast
áskrifendur TÍMANS
... ....