Tíminn - 27.05.1951, Síða 2
2.
TÍMINN, sunnudaginn 27. maí 1951.
115. blað,
Otá kaft ~til Tdia®\
0Mörk og Rínarljómi. ^
„Tillögugóður Reykvíkingur" ~ #
Útvarpið
Útvarpið í dag:
8.30—9.00 Morgunútvarp. —
10.10 Veðurfregnir. 11.00 Messa
í Dómkirkjunni (séra Jón Auð-
uns). 12.15—13.15 Hádegisút-
varp. 15.15 Miðdegisútvarp
(pötur). 16.15 Fréttaútvarp til
Islendinga erlendis. 16.25 Veður
fregnir. 18.30 Barnatími (Þor-
steinn Ö. Stephensen). 19.25 Veð
urfregnir. 19.30 Tónleikar: Fiðlu
lög eftir Sarasate (plötur). 19.45
Auglýsingar. 20.00 Fréttir. 20.20
Einleikur á píanó (Magnús Bl.
Jóhannsson). 20.40 Erindi: Um
íslenzkan messusöng; síðari
hluti (Björn Magnússon pró-
fessor). 21.10 Sinfóníuhljómsveit
in; Róbert A. Ottósson stjórnar;
Sinfónía í G-dúr op. 66 (Oxford
sinfónían) eftir Haydn. 21.35
Upplestur: Jón Norðfjörð leik-
ari les kvæði eftir Matthías
Jochumsson. 22.00 Fréttir og veð
urfregnir. 22.05 Danslög (plötur)
23.30 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
8.30—9.00 Morgunútvarp. —
10.10 Veðurfregnir. 12.115 Hádeg
isútvarp. 13.00—13.30 Óskalög
sjúklinga (Björn R. Einarsson).
15.30 Miðdegisútvarp. — 16.25
Veðurfregnir. 19.25 Veðurfregn-
ir. 19.45 Auglýsingar. 20.00 Frétt
ir. 20.20 Útvarpshljómsveitin;
Þórarinn Guðmundsson stjórn-
ar. 20.45 Um daginn og veginn
(Böðvar Steinþórsson). 21.05
Einsöngur: Ria Ginster syngur
(þíotur). 21.20 Erindi: Indlands
för Högna Björnssonar læknis
(ÓÍafur Gunnarsson frá Vík í
LóniK 21.40 Tónleikar (plötur).
21.45 íþróttaþáttur (Sigurður
Sigurðsson). 22.00 Fréttir og veð
urfregnir. 22.10 Búnaðarþáttur:
Samtal um kartöflurækt og
kartöflutilraunir (Gísli Krist-
jánsson o. fl. 22.30 Dagskrár-
lok.
Hvar eru skipia?
Sambandsskip:
Hvassafell fór frá Akureyri 22.
þ. m. áleiðis til Grikklands. Arn
arfell fór frá Vestmannaeyj-
um 17. þ.m. til ítalíuf væntan-
legt til Genúa n.k. mánudags-
kvöld. Jökulfell er í New York.
Ríkisskip:
Hekla fer frá Reykjavik kl.
20 í kvöld til Glasgow. Esja er
á Austfjörðum á norðurleið.
Herðubreið er á leið frá Aust-
fjörðum til Reykjavíkur. Skjald
breið er á Húnaflóa á leið til
Skagastrandar. Þyrill er i Faxa
flóa. Ármann fer frá Reykja-
vík um hádegi i dag til Vest-
mannaeyja.
fimskip:
Brúarfoss er í Hamborg. Detti
foss kom til Hull 19.5., fer það-
an 29.5. til London, Leith og
Reykjavíkur. Fjallfoss er í Kaup
mannahöfn. Goðafoss kom til
Antwerpen 26.5., fer þaðan 28.5.
íil Reykjavíkur. Gullfoss er í
Kaupmannahöfn. Lagarfoss fór
frá New York 18.5., væntanlegur
til Reykjavíkur um miðnætti
26.5. Selfoss fer frá Reykjavík
kl. 20.00 í kvöld 26.5. vestur og
norður. Tröllafoss fór frá Reykja
vík 17.5. væntanlegur til New
York 27.5. Katla fór frá Reykja
vík 25.5. til Gautaborgar.
Árnað heiila
Hjónaband.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband Guðný Halldórsdótt-
ur frá Gunnarsstöðum í Þistil-
firði og Snæbjörn Pétursson
garðyrkjufræðingur (sonur Pét
urs Jónssonar í Reykjahlíð í
Mývatnssveit). Heimili þeirra
verður að Reynihlíð í Mývatns-
kveit.
Mörk og Rínarljómi.
Tillögugóður Reykvíkingur“
hefir sent blaðinu þessar lín-
ur: „íslenzku knattspyrnu-
mennirnir hafa orðiðg sér úti
um mikið af mörkum í Þýzka-
landi, svo sem frægt er orðið,
en ekki hefir heyrzt, hvort
gjaldeyrisyfirvöldin hér hafi
gert ráðstafanir til þess að
krækja í eitthvað af þeim, þeg
ar vikingarnir koma heim með
allan Rínarljómann. Það voru
engin dusilmenni, sem sóttu
fram í Dússeldorf. Og þeir eiga
skilið að fá að halda sinum
Rínarljóma sjálfir, er þeir
koma af slóðum Sigurðar Fáfn
isbana og fleiri kappa, er hafa
aflað sér fjár og frægðar á
undan þeim.“
Úr ýmsum áttum
ímyndunarveikin.
Vegna geysimikillar aðsóknar
verða tvær sýningar á Imynd-
unarveikinni á mánudaginn,
önnur klukkan tvö, en hin klukk
an átta. Aðgöngumiðasalan verð
ur opnuð klukkan ellefu í dag.
— Vegna þessa verður frum-
sýningu á Rígólettó frestað til
3. júní, og hefst aðgöngumiða-
sala á miðvikudaginn.
I
Tafl- og bridgeklúbburinn,
| æfingar alla mánudaga, nán-
ar um keppni síðar.
j Frá íþróttasambandi íslands.
j. Móts- og þátttökureglur Í.S.Í.
eru komnar út. Nauðsynlegt er
fyrir alla ,sem þátt taka í í-
þróttum að kynna sér þessar
reglur. Þær, ásamt leikreglum
hinna ýmsu íþróttagreina, fást
j nú hjá bókaútgáfu Menningar-
sjóðs, sem sér um alla sölu á
bókum 1.8.1.
Skeyti, sem geigar.
Vísir ræðst í gær á Tímann
fyrir að segja frá því, að tveir
togarar í Reykjavík hafi verið
auglýstir í Lögbirtingarblaðinu
til sölu á nauðungaruppboði og
dylgjar óspart um það, að slíkt
beri vitni um illvilja. Hverjum,
sem eitthvað veit um blaða-
mennsku, hlýtur þó að vera
ljóst, að blað verður að segja
fréttirnar, hvort sem þær eru
góðar eða illar, og góður eða ill
ur vilji ræður þar engu um.
Það er ekki af illvilja, að sagt
er frá slysum og óhöppum og
afbrotum, og það blað, sem
aldrei segði frá öðru en því, sem
gleður og örvar, yrði utan garna
í lífinu. Það hlýtur óneitanlega
að teljast til tíðinda, ef atvinnu
tæki sem togarar eru auglýst til
sölu á nauðungaruppboði, og
þótt búið væri að inna af hönd
um tilskilda greiðslu, áður en
auglýsingin birtir, þá eru mis-
tökin stofnlánadeildinni að
kenna, en ekki Tímanum, og
þangað ber því Vísi að stefna
skeytum sínum, ef þau eiga
ekki að geiga.
Heimilisskógar
(Framhald af 1. síðu.)
frumskilyrðið tll, að hægt sé
að hefjast handa um skóg-
rækt í sveit, þar sem búfé
gengur laust.
Jarðyrkja að byrja
í Borgarfirði er jarðyrkja
að byrja, þótt ekki sé klaki
farinn allur úr jörð. Er til
dæmis svo mikill klakj ennþá
að þeir sem ætla að byggja í
vor, hafa ekki getað lokið við
að grafa fyrir byggingum
vegna þelans. Er áformað að
byggja heygeymslur á nokkr
um bæjum í sumar og einnig
peningshús sums staðar.
Minna verður hins vegar um
íbúðarhúsabyggingar, enda
vel byggt á flestum býlum í
Borgarfirði.
fluylijAtö í Twamm
*
/I fornutn Veyi:
Er þetta öryggi?
Hvernig myndi þér getast að því, lesandi góður, ef
einhver persóna hefði fengið þá flugu í höfuðið, að hún
ætti hjá þér stórfé, sem þú hefðir með rangindum tekið
frá henni, héldir fyrir henni einhverjum réttindum,
kannske konungstign, tilkalli til ríkiserfða eða öðrum
miklum erfðaréttindum, án þess að þú vitir til þess,
að þú hefir nokkru sinni komið nálægt neinu því, er
þessa manneskju varðar? Segjum ennfremur, að per-
sóna þessi sé sífellt að ganga eftir þessum ímynduðu
fjármunum eða réttindum með bréfum eða munnleg-
um kröfum, svo að ekki verði annað kallað en ofsókn,
hafi í hótunum við þíg, beri jafnvel vopn og hleypi
kannske af skoti í vistarverum þínum.
Þú myndir væntanlega vilja, að andleg heilsa slíks
náunga væri rannsökuð. Máske taekist þér að koma því
til leiðar, en vera mætti, að þig furðaði á því, ef hann
yrði innan skamms tíma útskrifaður sem heilbrigður,
einkum ef.sama sagan og áður héldi áfram að marg-
endurtaka sig.
★ ★ ★
Nú kann einhverjum að þykja þetta undarlegur pist-
ill og gert ráð fyrir ýmsu, sem þú veizt ekki dæmi um.
Ekki hafa þó verið tekin önnur dæmi en raunverulega
hafa gerzt sum mjög nýlega. En því er þetta fært í
mál hér, að sú aðferð, sem virðist tíðkuð, þegar fólk
með slíkar flugur í höfðinu á hlut að máli, getur haft
í för með sér hættu fyrir líf og öryggi manna. Það er
ekki ýkjalangt síðan að ógæfusamur, geðbilaður mað-
ur varð að bana ungu barni og særði fleiri. Skeytingar-
leysi í þessu efni getur hæglega leitt til þess, að fleiri
viðlíka atburöir gerist. Á því er rétt að vekja athygli
yfirvalda og einnig þeirra manna, er taka á sig þá
ábyrgð að úrskurða hvort hætta getur stafað af þess-
um eða hinum, sem svo ógæfusamur er að hafa komizt
úr andlegu jafnvægi. J. H.
Til sláturgerðar:
Vambir,
Blóð
HERÐUBREIÐ
Sími 2678
Vasahandbók bænda 1951
Örfá eintök óseld, fást hér á skrif-
stofunni. — Verð kr. 40,00.
Búnaðarfélag Islands
y.v.v.v.v.v.'.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.’.v.v.v.'/
| Jörð til sölu |
I; í Helgafellsveit, laus til ábúðar í næstu fardögum. Sil-
í; ungsveiði og vikurtekja, nýlegt íbúðarhús. Uppl. kl. 5—
7 e. h. virka daga. ;•
Málaflutningsskrifstofa
I; Ma^niis Árnasson & Svavar Jóhannsson ;1
Hafnarstræti 6 — Sími 1431 og 7339 eftir kl 7 »J
.V.V.V.V.V,
.v.v.v.v.v,
V.V.’.V.V.V.V.V.V-V-V.
,V.V.V. V.V.V.V.V......
Samkvæmt heimild
í 3. gr. laga nr. 119, 28. desember 1950, um stjórn flug-
mála, hefir ráðherra ákveðið að setja reglur um flug-
ferðir innlendra flugfélaga. Frá 10. n. m. mega ekki
félög eða einstaklingar halda uppi reglubundnum á-
ætlunarflugferðum innan lands og utan, nema fengið
hafi til þess sérstakt leyfi frá ráðuneytinu.
Þeir, sem óska eftir sérleyfum fastra áætlunarflug-
ferða á ákveðnum leiðum innanlands og utan, sendi
umsóknir til ráðuneytisins fyrir 7. júní n. k.
Samgöngumálaráðuneytið, 25. maí 1951.
V/AVJ’/.VJV.V.V.V/V.V.W.’.V.V.V.V.V.V.’.V.V.’.V.V
V^/.V.V/.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.’.V.V.V.V.W.V.V.
I Hreðavatn I
•; Duglegan kven- eða karmann vantar í næsta mán- ■;
;I uði til þess að veita forstöðu sumardvalarstað vorum •!
í að Hreðavatni um 3—4 mánaða skeið. Það fólk, sem hef %
;■ i rhug á þessari stöðu, sendi upplýsingar — m. a. um ;■
I; störf og sérmenntun ásamt kaupkröfu — fyrir 1. júní ;■
■; til Baldvins Þ. Kristjánssonar, Sambandshúsinu. Hann I;
■; gefur og allar nánari upplýsingar, kl. 11—12 og 16—17. ^
■I Símar: 7080 og 6657. ■;
■:
;l Samband ísl. samvinnufélaga ;!
“■ ■■
í; 26. maí 1951
v.v.w.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v
'.V.V.V/.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.’.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V
;; Vatnsþétt og höggheld i;
KARLMANNSÚR
KVENÚR I;
í gullplett og stáli I;
Sendum gegn póstkröfu £
Úra- og skartgripaverzl. J;
MAGNÚSAR ÁSMUNDS
SONAR & CO., £
Ingólfsstræti 3. !’
W/rV.V.V.V.V.V.’.V.V.V.V.V.V.’.V.V.V.V,V.V.W.V.V
* V i
• v m4. * v ». ,
«• .j m v v r. < 0. u K .v •