Tíminn - 27.05.1951, Síða 8

Tíminn - 27.05.1951, Síða 8
„A FÚRMH VEGi“ t DAGi 35. árgangur. Reykjavík, Er þetta öryfini? 27. maí 1951. 115. blað. Anna Borg í ísl. bún- ingi á afmæli Parísar Hinn fimmta júní gangast sendiráð Norðuriandanna í París fyrir hátíðakvöldi þar í tilefni af 2009 ára afmæli borg arinnar. Munu þar koma fram ýmsir norrænir listamenn. Námskeið fyrir kennara Kennaranámskeið i íslenzku dönsku og söng hefjast í Reykjavík 1. júlí n. k. og standa yfir í 8-—12 daga. Leið beinendur í íslenzku verða Sveinbjörn Sigurjónsson, yfir kennari, og Lárus Pálsson, leikari. Viðfangsefni Svein- bjarnar verður aðallega setn ingafræði- og hljóðfræði- kennsla, en Lárus mun leið- beina um framsögu og upp- lestur. Martin Larsen, lektor’, og Elsa Hansen, kennari, munu ieiðbeina á dönskunámskeið inu. Þetta mun verða siðasta tækifærið að sinni til að njóta hér tilsagnar lektorsins, þar eð hann er nú á förum eftir rösklega 5 ára kennslustörf hér við háskólann. Elese Hansen hefir hins vegar starf að við framhaldsskóla Reykja víkur í vetur og kynnzt þar dönskunámi eins og því er nú háttað hér. Martin Lar- sen mun flytja 3 fyrirlestra á námskeiðinu og fjalla þar m. a. um danskt ríkismál, framburðarkenns.'ju en Else Hansen mun svo leiðbeina um undirstöðuatriði dönsku- náms. Á námskeiði söngkennara mun dr. Edelstein kynna kennsluaðferðir, sem eru við barnahæfi, og Robert A. Ottós son leiðbeinir um grundvall- aratriði söngstjórnar svo sem taktslátt, hlutverk hægri og vinstri handar, tækni og túlk un. Áherzla verður lögð á verklegar æfinga/r þátttak- enda. Þessi námskeið eru að sjálf sögðu fyrst og fremst ætluð starfandi kennurum á hvaða skólastigi sem er. Hins vegar verður öllum áhugamönnum heimili þátttaka, ef rúm leyf ir. Kennslutíma verður hagað þannig, að menn getí sótt öll námskeiðin ,ef þeir óska. Námskeið þessi, sem Land- samband framhaldskólakenn ara beitir sér fyrir í samráði við fræðfclumálastjóri, verða haldin i Gagnfræðaskóla Austurbæjar við Barónsstíg. Þátttaka tilkynnist fræðslu- málaskrifstofunni sem allra fyrst. Fyrir íslands hönd mun koma fram frú Anna Borg- Reumert. Verður hún klædd íslenzkum búningi og les kafla úr íslendingasögum á íslenzku. Einnig verði sýndar lítkvikmyndir frá íslandi. Paul Reumert kemur fram af hálfu Dana og mun lesa ævintýri eftir H. C. Andersen. Finnskir, norskir og sænskir listamenn munu einnig koma þarna fram, en af hálfu Fær eyinga mun engin þátttaka verða. Ær á Sléttu láta lömbum Frá fréttaritara Tímans á Kópaskeri. i Talsverð brögð hafa verið að því í vor á Melrakkasléttu, að ær hafl látið lömbum. Hafa margir bændur þar orð ið fyrír þungum búsifjum af þeim sökum. Á Oddsstöðum, en þar hefir mest borið á þessu, hafa um tveir þriðju hlutar ánna látið. 63 í gagnfræða- skóla Húsavíkur Gagnfræðaskóla Húsavíkur var slitið fyrir nokkur. Voru nemendur 63, og luku seytján gagnfræðaprófi og tveir mið skólaprófi. Hæsta gagnfræða prófseinkunn hlaut Jónhild- ur Halldórsdóttir í Húsavík, j 8,91. Hún hlaut einnig verð- laun úr minningarsjóði Bene díkts Björnssonar fyrir bezt- an námsárangur í íslenzku og sögu. Hæsta einkunn 1 skólanum hlaut Sverrir Bergmann, nem andi í öðrum bekk, 9,23. Skólinn starfaði í vetur samkvæmt hinni nýju skóla löggjöf og tók við börnum, sem lokiö höfðu barnaprófi úr sjötta bekk barnaskólans. — Nýr kennari við skólann i vetur var Jónas Geir Jóns- son, áður kennari við barna- skólann. Unnið að málamiðl- uo milli Rússa og Bandaríkjamanna Wallenberg, bankastjóri rík isbankans í Stokkhólmi, er nú sagður vinna að málamiðlun og sáttargerð milli Rússa og Bandaríkjamanna. Er Wall- enberg staddur um borð í skipi í grennd við Kirkjunes i Norður-Noregi, og mun þar vera með honum háttsettur embættismaður úr bandaríska utanríkismálaráðuneytinu. Ekki er vitað hvort fulltrúi frá Rússastjórn er einnig á skipinu. Afli að glæðast í Húsavík Frá fréttaritara Timans í Húsavík. Afli hefir glæðzt hér síðustu daga, og er fiskurinn lagður upp til vinnslu, í hraðfrysti- hús fiskiðjusamlags Húsavík- ur og til söltunar hjá söltun- arstöð hlutafélagsins Ugga. Robert Davis. Kvikmyndir af Islandi eftirsóttar í U.S.A. Ungur Bamlaríkjamaður kominn hingað til að taka kvikmynd af landi oj»' |»j«ð Með síðustu ferð Kötlu frá Vesturheimi kom hingað ungur Bandaríkjamaður, sem ætlar að taka kvikmyndir hér á landi til að sýna síðar vestan hafs. Þessi ungi maður, sem Robcrt C. Davis heitir, hefir atvinnu af því fyrir vestan að halda skemmtifyrirlestra og segja ferðasögur og sýna kvikmyndir, sem hann hefir sjálfur tekið, einkum í fylkinu Arizona f Drykkjugildi nppi á kirkjuþakinu Tveir bræður, Alhola að nafni, klifruðu upp á þakið á kirkjunni í Lójó í Finnlandi og settust þar að drykkju. Er þeir höfðu þjórað um hríð, féll annar bróðurinn niður um þakglugga og rotaðist hann á gólfi kirkjuloftsins. Hinn bróðirinji féll aftur á móti niður í kirkjugarðinn, og gat hann dregizt brott. Það vitnaðist ekki um þenn an atburð, fyrr en bróðirinn, sem í kirkjugarðinn féll, kom f sjúkrahúsið í Lójó og bað um læknishjálp. Var hann illa meiddur og mjög drukkinn. Hann gat þó skýrt frá því, að þeir bræðurnir hefðu setið uppi á kirkjuþakinu að drykkju, og bróðir sinn hefði verið svo óheppinn að hrapa niður um þakglugga. Sögunni var tæplega trú?.ð, en þó var farið i kirkjuna. Fannst hinn bróðirinn þar dauður. Hafði hann í'otazt við tuttugu metra fall. Hreinsað til í finnska kommúnista- flokknum Bandaríkjunum. ísland lítið þekkt. — Ég ákvað að fara til ís- Iands, sagðrRobert í viðtali við blaðamann frá Tímanum, vegna þess að mikill áhugi er fyrir landi ykkar vestan hafs, en kvikmyndir eru engar til í Bandaríkjunum frá íslandi svo heitið geta. í Bandaríkjunum eru ferða sögur og kvikmyndir um fjar læg lönd vinsælt skemmtiefni og margir kvikmyndatöku- menn þar, sem ferðast um heiminn og sýna síðan fólki kvikmyndir sínar frá ýmsum löndum, þegar heim kemur, og segja fræðandi frá kynn- um af löndum og þjóðum. Nú er það svo, að öll gömlu löndin í Evrópu eru orðin nokk uö mikið notuð á þennan hátt og fólk vill gjarnan sjá kvik- myndir frá nýjum stöðum og heyra um lönd, sem lítil fræðsla hefir áður fengizt um. Slíkt land er einmitt ís- land. Var hér í Banda- ríkjaher. Robert Davis var hér á fs- landi sem hermaður á styrjald arárunum, og var þá lang- dvölum í herbúðum við Reykjavík og siðar á Kefla- víkurflugvelli. Tók hann á þessum árum tryggð við ís- lenzka náttúrufegurð og seg- ir sem er, að mikil tækifæri séu hér til fjölbreytilegrar kvikmyndatöku í óvenju tíl- komumiklu og fjölbreyttu lancli og tæru lofti, þegar heiðskírt er á annað borð. (Framhald á 7. síðu.) K jarnorkuf ræðingi Perons varpað í fangelsi Braslíublaðið Tribuna da Imprenza skýrir frá þvi, aö Peron Argentínuforseti hafi skipaö lögreglunni að hand- taka austurríska visindamann inn Ronald Richter, forstöðu mann kjarnorkurannsókna argentínska ríkisins á Huemúl eyju. Það eru aðeins tveir mánuð ir siðan Peron tilkynnti opin berlega, að þessi maður hefði leyst kjarnorkú úr læðingi á nýjan og auðveldari hátt en áður hafði tekizt. Var Richt- er þá sæmdur æðsta heiðurs- merki, sem Peron veitir. En þegar sérfræðingar frá argentinska hernum fóru að kynna sér starfsaðferðir vís- indamannsins, lýstu þeir því yfir, að allar kjarnorkurann- sóknir hans væru ein svika- mylla. Þegar Peron frétti þetta, varð hann hamslaus af reiði og lét varpa prófessorn- um í fangelsi. Yrjo Leino, einn af helztu foringjum kommúnista í Finn landi og fyrrverandi innan- 1 ríkisráðherra, verður ekki í kjöri við þingkosningarnar í júlí i sumar. i Leino var þrj ú ár ráðherra, en lét af embætti 1948 og var síðar sagður fallinn i ónáð. Hann var þó í kjöri við kosn- ingarnar 1948. Síðastliðið ár skildi Leino 7. alþjóðamót skáta í Austurríki í ágúst Um 25 íslonzkir séátar muiiu hafa hug á að sækja alþjóðamtUið, ef kostur er á Sjöunda alþjóðamót skáta, Jamboree, verður haldið í Aust við konu sína, hina frægu Herttu Kuusinen, eftir fj07-1 urra ára hjónaband. Hertta1 Kuusinen er nú foringi finnska kommúnistaflokksins. Tveir aðrir kommúnistaþing menn fá ekki að verða í kjöri aftur, E. K. Kujanpaa og T. I Sormunen. Sá síðarnefndi var j látinn leggja niður þing-! mennsku siðastliðið haust, og mun honum hafa verið gef- inn Títóismi að sök. Treg lúðuveiði út af Austfjörðura Afli er tregur fyrir Austur- landi og virðist svo sem lúðu afli sé þar einnig með minnsta móti að þessu sinni. Frá Djúpavogi eru tveir bátar urríki i sumar, og munu um 25 íslenzkir skátar hafa hug á að sækja það. Áttu fslendingar rétt á að senda þangað fjöru- tíu skáta, fjórtán til seytján og hálfs árs að aldri. Ilafa tslendingar jafnan sótt aiþjóðamót skáta síðan 1924. Nokkrir erfiðleikar munu þó vera í vegi skátanna af gjaldeyrisástæðum, en vonað, að það mál leysist af sann- girni og góðvild. Verði af förinni, leggja skátarnir af stað með Gull- fossi 21. júlí og slást í hóp hinna norrænu skátanna í Kaupmannajiöín. Fagur mótstaður. Mótið fer fram fyrri hluta ágústmánaðar og verður það byrjaðir lúðuveiðar og kom annarr þeirra inn eftir tvo daga með hálfa aðra smálest af lúðu. á mjög fögrum stað, Salz- kammergut, milli borganna Strobl og Bad Ischl, fimmtíu kílómetra suðaustur frá Salz burg. Er mótsvæðið afmarkað af greni- og furuskógum, en 2000—3000 metra háir tindar Alpanna skammt frá. Á heimilum austur- rískra skáta. Að loknu Jamboree er fyrir hugað að skátarnir dvelji s^r algerlega að kostnaðarlausu á heimilum austurrískra skáta í vikutíma. Heim er ráð gert að halda frá Austurríki 21. ágúst og koma með Gull- fossi til Reykjavíkur 30. ágúst.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.