Tíminn - 22.06.1951, Síða 8
85. árgangur.
Reykjavlk,
22. júní 1951.
137. blað.
„Bezta knattspyrnufélag ísl. 1951”
REIKNINGAR RE/EKJAVÍKURB/EJAR:
Greiðsluhallinn varð 7.5 milljónir
og skuldaaukningin 17 millj. kr.
Bifreiðaliristnaðiir bœjfarskrifstofaim5t‘ ,
1850 varð oins mikill og' iög'rog'liiimar 1949j HVGF kíirfsfsrílllir"
inn af öðrum kemur
til Akraness
L5ð Akurnesinga, sem sigraði í íslandsmótinu og hlaut titil-
inn. „Bezta knattspyrnufélag íslands 1951“ Á myndinni eru
í fremri röð talið frá hægri: Guðjón Finnbogason, Ólafur
Vilhjálmsson, Magnús Kristjánsson, Sveinn Benediktsson
og Sveinn Teitsson. Efrj röð. Halldór S'gurbjörnsson, Rík-
arður Jónsson, Dagbjartur Hannesson, Þórður Þórðarson,
Pétur Georgsson og Guðmundur Jónsson. (Ljósmynd
Ragnar Vignir)
Reikningar Reykjavíkurbæjar voru til umræðu á fundi
bæjarstjórnar í gær. Niðurstöður þeirra eru óglæsilegur
vitnisburður um óreiðustjórnina í fjármálum Reykjavíkur
undanfarið ár. Það var ófagurt um að litast þar í árs-
byrjun, en þó sýna reíkn'ngarnir, að enn hefir mjög sigið
á ógæfuhliðina á síðasta ári. Það var heldur ekkert sigur-
hljóð í borgarstjóranum eða öðrum forsvarsmönnum þess-
arar ráðsmennsku, heldur aðeins vesaldarlegar afsakanir
vegna þess, hvernig komið er.
Jón fligurðsson, formaður Knattspyrnusambands íslands
afhendir Ríkarði Jónssyni, fyrirliða Akurnesinga á leik-
Velli, íslandsmótsb:karinn. (Sjá grein á 3. síðu) (Ljósmynd
Ragnar Vignir)
Akurnesingar fögnuðu
vel sigurvegurunum
Slnrlaug'iir Böðvarsson gaf Ígiróttabamlal.
Akranoss 10 S»ú«- kr. hoiðursgjöf
Frá fréttaritara Tímans á Akranesi
Akurnesingar tóku fagnandi á móti knattspyrnul'ði sínu
er það kom heim sigri hrósandi með íslandsbikarinn og
titilinn „bezta knattspyrnufélag íslands 1951“ í fyrrakvöld.
Þótt komið værj fram yfr miðnætti, voru 6-700 Akurnes-
ingar saman komnir á bryggjunni, er piltarnir komu, til þess
að fagna þeim.
300 sóttu leikinn.
Það voru ekki færri en 300
Akurnesingar, sem fyigdu lið
jnu til Reykjavíkur, er það
fór til að leika síðasta leik-
inn, seni þó var ekki einu
sinni úrslitaleikur, því að það
var búið að vinna mótið áður.
Svo þegar Laxfoss lagðist
að bryggju á Akranesi klukk
an hálfeitt í fyrrakvöld, voru
þar saman komnir 3—400
raanns, eða allir, sem á fót-
um voru, svo svo að í allt var
mannsöfnuðurinn 6—700.
Bæjarstjórinn býður
þá velkomna.
Bæjarstjórinn á Akranesi
bauð piltana velkomna heim
úr sigurförinni með ræðu og
þakkaði þeim fyrir hönd
bæjarins. Karlakór fagnaði
þeim einnig með söng, og
mannfjöldinn hvllti þá.
10 þús. kr. heiðursgjöf.
En þeim var ekki einungis
þakkað með orðum. Sturlaug
ur Böðvarsson, útgerðarmað-
ur, gaf íþróttabandalagi
Akraness 10 þús. kr. í þakkar
og heiðursgjöf af þessu til-
efni. Skal féð notað tii fram
kvæmda í þágu íþróttanna á
Akranesi.
Þórður Björnsson deildi
fast á niðurstöður reikning-
anna og sýndi með Ijósum
dæmum hve ástandið er í-
skyggilegt. Það er nú svo kom
ið, að Reykjavík er í mikilli
fjárhagslegri hættu ef ekki
verður stungið við fótum.
Ilallinn 7,5 millj.
Rekstrarútgjöld bæjar-
sjóðs fóru 4 millj. kr. fram úr
áætlun árið 1950, og greiðslu-
halli bæjarsjóðs nam 7,4 millj.
kr. Þrátt fyrir það fóru tekj-
urnar 4,4 millj. fram úr á-
ætlun þetta ár. Hvernig
hefði útkoman orðið, ef tekj
ur hefðu aðeins staðizt áætl-
un eða jafnvel orðið minni?
Skuldaaukningin
gífurleg.
Skuldaaukning bæjarsjóðs
á árinu 1950 varð hvorki
meira né minna en 17 millj.
kr. Skuldir uxu úr 24 millj. í
40 millj. kr. Þessi geysilega
skuldaaukning stafar þó ekki
af hlífni við greiðsluþol borg
aranna, því að útsvörin hækk
uðu um 15 millj. kr. á árinu.
Innheimt útsvör urðu áríð
1949 45 millj. kr. en árið 1950
hvorki meira né minna en 60
millj.
Bruðlið allsráðandi.
Reikningarnir bera það svo
greinilega með sér, að ekki
verður um villzt, að skulda-
söfnunin og greiðsluhallinn
stafa af gegndarlausu bruðli
í rekstrinum einu saman
Kostnaðurinn við bæjarskrif
stofurnar einar jókst um 900
þús. kr. Þar af er bifreiða-
kostnaður skrifstofanna ó-
heyrilegur. Bifreiðakostnað-
ur borgarstjóraskrifstofanna
varð éins mikill árið 1950 og
bifreiðakostnaður allrar lög-
reglunnar árið áður.
Sparnaðurinn sem
varð meiri halli.
Flestum er í fersku minni,
er íhaldið hældi sér af því að
það hefði átt tillögu að sparn
aðarnefnd þeirri, sem skipuð
var í fyrra og vann gott starf.
Sýndi hún með ljósum rök-
um og lagði til, að spara
mætti allverulega á ýmsum
bæjarstofnunum, sem mikill
tekjuhálli hafði orðið á að
undanförnu. Bæjarstjórnar-
íhaldið tók því öllu með fag-
urgala og þóttist ætla að hlíta
ráðum nefndarinnar. Og
reikningarnir sýna árangur-
inn. Á þeim stofnunum ein-
um, sem nefndin taldi að
mest mætti spara og draga
úr kostnaði á, óx rekstrarhall
inn um hálfa milljón króna,
úr 1,2 millj. árið 1949 í 1,7
millj. árið 1950.
Frá fréttaritara Tím-
ans á Akranesi
Togarinn Egill rauði land-
aði á Akranesi í fyrrinótt og
gær karfafarm og Fylkir land
aði þar 250 lestum á mánu-
daginn. Kemur nú hver tog-
arinn af öðrum til Akraness
með lcarfa, svo að ekkert lát
verður á frystingunni. Er
unnið alla daga í frystihús-
unum.
Húsln eru nú öll að fyllast
af karfa og þarf að losa þau.
Dettifoss mun og koma þang
að þessa daga og taka farm
af frystum fiski til Ameríku.
Dómur í Geysismálinu:
Flugstjórinn og flugleið-
sögumaður dæmdir í sektir
AAalorsök slyssins talin si^liugaskekkja
sem stafaði af röiigum staöarákvörðnnum
Hinn 16. þ. m. var kveðinn upp dómur í aukarétti Reyk.ja-
víkur í máli því, sem höfðað vanr vegna Geysisslyssins í haust.
Blaðinu barst í gær eftirfarandi fréttatilkynning um niálið
frá sakadómara:
„Mál var höfðað gegn flug-
stjóranum, Árna Magnúsi
Guðmundssyni og flugleið'-
sögumanninum, Guðmundi
Sívertsen fyrir brot gegn loft
ferðalöggjöfinni og XXIII.
kafla hegningarlaganna og
gegn Arnóri Kristjáni Hjálm
arssyni flugumferðarstjóra á
Reykjavíkurflugvelli fyrir
mánuði, en flugleiðsögumað-
urinn var dæmdur í 3000 kr.
sekt og sviftur flugleiðsögu-
mannsréttindum ævilangt."
Samkvæmt rannnsókn und
irrétar í málinu er megin or-
sök slyssins talin siglinga-
skekkja, sem stafaði af röng-
um staðarákvcrðunum flug-
leiðsögumanns og ónákvæmni
brot á loftferðalöggjöfinni. í starfi hans. Þá var talið aö
Niðurstaða dómsins var sú,flugstjórinn hefði eigi haft
að Arnór Hjálmarsson varþað eftirlit með öryggi flug-
sýknaður, flugstjórinn dæmdvélarinnar, sem honum bar
ur í 2000 króna sekt og svift-skylda til við þau flugskilyrði,
ur flugmannsréttindum í 6sem fyrir hendj voru.
Óeirðir aukast í
Persíu
Allmiklar óeirðir og verk-
föll og kröfugöngur urðu í
Persíu í gær, einkum í höfuð
borginni og Abadan. Á þingi
í gær fór forsætisráðherrann
fram á traustsyfirlýsingu til
handa stjórn sinni og hlaut
hana með 90 samhljóða at-
kvæðum. Hafði hann lýst yfir
að hann mundi biðjast lausn
ar og hætta afskiptum af
þjóðnýtingu olíulindanna, ef
þingið veitti honum ekki
traust.
í Abadan voru miklar
kröfugöngur en ekki kom til
verulegra óeirða. Leiðslunum
að brezku olíuhreinsunarstöö
inni hefir ekki verið lokað
enn.
í Teheran brauzt æstur
múgur inn í skrifstofur brezk
íranska olíufélagsins og braut
þar auglýsingaspjöld og fleira
eftir það lokaði lögreglan
skrifstofunum.
Mikið kal í túnum
í Norður-Þing.
— Eftir hrakviðrasumar og
harðindavetur kom einhver
hinn bezti maímánuður, sem
menn muna hér i Norður-
Þingeyjarsýslu, sagöi Benja-
mín Sigvaldason er hann leit
inn á skrifstofu blaðsins í gær
nýkominn að norðan. — Síð-
an í byrjun júní hefir hins
vegar verið allþurrt, og hefir
það tafið gróður á túnum en
úthagi er vel sprottinn. Kal
er mikið í túnum en einkum
í Kelduhverfi og Núpssveit og
fremstu bæjum í Öxarfirði.
Skepnuhöld eru mjög góð.
Snjór er enn mjög mikill á
hálendi og Reykjaheiði er að
sjálfsögðu ófær enn, en farið
er um Hólssand og nýju
brúna á Jökulsá til Mývatns-
sveitar og þaðmi til Húsavík-
ur og Akureyrar.