Tíminn - 22.07.1951, Síða 1
Ritstjórl:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjórl:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur í Edduhúsi
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
35. árgangur.
Reykjavík, sunnudaginn 22. júlí 1951.
162. blaff.
SVIKABRIGSLUM IIRURÍBIÐ:
Markmið Framsóknarflokks
ins hefir ailtaf veriö frjáls
verzlun, er gerði opinhert
verðlagseftirlit ónauðsynfegt
í blöffum kommúnista og Alþýðufiokks'ns er nú ekki
hamrað á öðru imeira en að Framsóknarflokkurinn
hafi svikið stefnu sína og yfirlýsingar með því að fall-
ast á afnám verðlagseftirlits meö vissum vörum, sem
von er um, að fluttar verið inn í svo stórum stíl, að
eftirspurninni verði fullnægt. Til að sanna þennan
óhróður hefir Þjóðviljinn gengið svo langt að birta
kafla úr greinargerff verðlagsfrumvarpsins, er Fram-
sóknarmenn fluttu og núgildandi verðlagslöggjöf er
aff verulegu leyti byggð á. Kaflar þessir eru vitanlega
algerlega slitnir úr samhengi og gefa því allranga
hugmynd um stefnu flokksins.
Til þess að sýna þessa ósvífnu fölsun Þjóðviljans
þykir rétt aff birta hér upphaf og niðurlag greinar-
gerðarinnar, sem fylgdi verðlagsfrumvarpi Framsókn-
armanna, er það var fyrst lagt fram í marzmánuði
1949.
Upphaf greinargerðarinnar hljóðar á þessa leiff.
„Flutningsmönnum þessa frumvarps er það
Ijóst, að t’l þess að útrýma svörtum markaði, út-
ríma okri og skapa heilbrigt verðlag á þeim vör-
um, sem nú er mestur skortur á eða almenning-
ur sækist eftir meir en framboði þolir, er verðlags
eftirlit og þungar refsingar fyrir verðlagsbrot
ekki einhlítt. Fyrsta skrefið, sem stíga þarf, er,
að landsmenn öðlist að nýju frelsi til kaupa nauð
synjar sínar þar, sem þeir óska, velja milli verzl
ana, stofna samtök og láta þau vaxa óhindrað
til þess aff annast sjálfir innkaup neyzluvöru
sinnar, eða verzla við kaupmenn, eftir því sem
hver og einn kann helzt að kjósa. Þetta frelsi,
sem nú hefir verið í f jötra lagt um skeið, er fyrsta
frumskilyrði þess, aff í landinu verði endurreist
heilbrigð verzlun og verðlag. Meðan þetta frelsi,
þessi réttur hvers einstaklings í landinu er fót-
um troðinn, getur afleiðingin aldrei orðið önn-
ur en sú, er nú blasir við í verðlags- og verzlunar
málum íslendinga“.
Niðurlagsorð greinargerðarinnar hljóða á þessa le'ð:
„Flutningsmenn vilja að lokum taka þaff fram,
að takmarkið er ekki fyrst og fremst verðlags-
eftirlit og þungar refsingar, ef verðlagsbrot eru
framin. Takmarkið er svo heilbrigð verzlun, að
I henni sjálfri feFst nóg trygging fyrir almenning
— án þess að ríkið kostj opinbert eftirlit. En með
an verðlagseftirlit helzt, vegna illrar nauðsynj-
ar, verður að koma því svo fyrir, að það sé sem
öruggast.
Vonandi ber þjóðin gæfu til að koma verzlun-
armálum sínum sem fyrst í það horf, að það cftir
lit, sem frumvarpið gerir ráð fyrir, verðí afnum-
iff meff öllu.“
Þessar tilviínanir sýna það og sanna ljóslega, að
samkvæmt stefnu Framsóknarmanna hefir verðlags-
eftirlitið aldrei verið hugsað öðruvísj en sem bráða-
birgðaráðstöfun meðan vöruframboðið væri of lítið í
landinu. Aðalstefna flokksins hefir alltaf verið og er
sú, að reyna að tryggja frjálsa verzlun og nægilegt
vöruframboð og láta verðlagseftirlitið þannig vera í
höndum neytr lanna sjálfra.
Síldveiðiflotinn varð að flýja
í landvar undan norðanveðri
^oíikssr skip hiíSu tjón á nótahátuin «« vci®
aríaermM. En«iu sílthwöi síðan í fyrratl.
Frá fréttariturum Tímans á Siglufirði og Raufarhöfn.
Engin síldveiði varð siðasta sólarhring fyrir Norðurlandi,
því að i fvrrakvöíd tók að hvessa og í gærmorgun var komið
norðanveður allhvasst með þoku, rigningu og nokkrum sjó-
gangí. Skipin urðu því öíl að leita i landvar og lágu inni á
! höfnum víðs vegar norðan lands í gær.
Tjón á veiðarfærum.
| Nokkur skip urðu fyrir tjðni
á veiðarfærum. Misstu sum
nótabáta eða þeir skemmdust,
! og nætur tók einnig út. Ekki
! var vitað með vissu þegar blað
; ið fór í prentun í gær, hve stór
ivægilegt þetta tjón er, né hve
mikið hjá einstökum skipum.
! Eru það einkum minni síld-
; veiðibátar sem orðið hafa fyr-
; ir tjóni. Vitaö var um bátana
: Minný frá Sandgerði, Dagný
| frá Siglufirði, Snæfell frá Ak-
ureyri og Millý frá Siglufirði,
sem orðið hefðu fyrir tjóni.
I
ðlörg skip inni á Siglufirði.
! Vegna síldarfregna vestan
Grímseyjar í gær var allmikið
af flotanum á þeim slóðum og
leitaði inn til Siglufjarðar eða
nærliggjandi hafna. Var mik-
ill fjöldi innlendra og er-
lendra skipa á Siglufirði og
nokkur skip losuðu sig við smá
slatta, er þau höfðu meðferð-
is, en ekki var um teljandi sild
arlöndun að ræða þar í gær.
3000 mál til Raufarhafnar.
AUmörg skip komu inn til
Raufarhafnar losuðu sig
við smáslatta og bárust verk-
smiðjunni um 3000 mál síldar
í gær.
Síldar varð vart í fyrradag á
öllu svæðinu frá Skagagrunni
austur fyrir Langanes, en hún
var alls staða rmjög djúpt.
Bandarískt lán til
spánskra járnbrauta
Inn- og útflutningsbanki
Bandaríkjanna hefir ákveðið
að veíta spánsku ríkisjárn-
brautunum 7,5. milj. dollara
lán til þess að endurbæta og
endurbyggja spánska járn-
brautarkerfið, sem er mjög úr
sér gengið og gamaldags. Ætl
unin er að koma upp raf-
magnsjárnbrautum, og neðan
jarðarbrautum.
Sumar á kæsta fjaltvegi landsins
Flestir myndu geta þess til viff frystu sýn að þetta væri vetr-
ar mynd. Svo er þó ekki. Þetta er sumar á hæsta fjallvegi
landstns, veginum yfir Oddsskarð milli Esk'tfjarðar og Nes-
kaupstaðar. Myndin var tekin þar 14. júlí og sýnir göngin
þar sem ekið er m'lli 6—7 metra hárra skafla þó á miðju
sumri sé. Vegurinn yfir Oddsskarð hefir reynzt mjög vel.
Lokið var við hann haustið 1949 og hefir hann síðan verið
stórfeld samgöngubót. Þegar myndin var tekin var búin að
vera utnferð um véginn í um það bil einn mánuð og má geta
sér nærri um hvernig umhorfs hefir verið á þessum slóðum
er ýtan lauk verkin (Ljósm. Guðni Þórðarson) v
Sjómenn vongóffir.
Sjómenn eru vongóðir um,
að norðangarðurinn muni að-
eins bæta síldveiðina ef hann
stendur ekki of lengi og bíffa
þess með eftirvæntingu, hvern
ig viðhorfið verður eftir hann.
Verið getur, að norðanveðrið
færi rauðátuna aðeins nær
nær landi og síldina með.
Formlega boðið til
ráðstefnunnar í
San Francisco
Bandaríkin sendu í fyrra-
dag boð til fimmtíu annarra
þjóða, sem þátt tóku í stríðinu
við Japan, um þátttöku í ráð-
stefnu um japönsku friðar-
samningana. Hefst ráðstefn-
an eins og fyrr hefir verið frá
skýrt i San Francisco 4. sept.
næstk.
I Boðinu fylgdi afrit af upp-
| kasti því, að friðarsamning-
unum, sem var birt 3. júlí s.l.
og var sent með boðinu ásamt
allýtarlegri greinargerð til
frekari skilningsauka.
I Samtímis þessu var til-
kynnt í Washington, að Tru-
man forseti hefði tilnefnt
néfndir Bandaríkjanna, sem
1 fjalla eiga um samninga milli
Bandaríkjanna, Ástralíu og
Nýja Sjálands svo og friða-
samningana við Japan.
Acheson utanríkisráðherra
og John Foster Dulles, sérstak
ur fulltrúi Trumans forseta í
Austur-Asíumálum verða full-
trúar í öllum þrem nefndun-
um. Einnig verða í nefndum
þessum Connally, öldunga-
deildarmaður og Alexander
Willy.
Siglfirðingar kveðja
prest sinn með
vegsemd
Frá fréttaritara Tímans
á Siglufirði.
Séra Óskar J. Þorláksson,
sem verið hefir sóknarprest-
ur á Siglufirði en flytur nú til
Reykjavíkur hefir verið kvadd
ur með virktum af Siglfirðing
um. R.otary-klúbburinn hélt
honum samsæti þar sem
margar ræður voru fluttar og
honum þakkað mlkið og gott
starf. Var honum færður fag
urlega útskorinn vindlakassi
að gjöf. Kirkjukórinn kvaddi
hann einnig með samsæti svo
og góðtemplarar. Bæj^rstjórn
in gaf honum fagurt máiverk
af Siglufirði að skilnaði og
söfnuðurinn færði honum
vandað skrifborð.
'i