Tíminn - 26.08.1951, Page 2
2.
TÍMINN, sunnudaginn 26. ágúst 1951.
192. blað,
. _iuj„ii._iu-i»ijjn_iwm.j tJMimi.ii >niií i 1 rnf i
kafi til keiía j
dís Pálsdóttir (Zóphóníassonar ^
búnaðarmálastióra) og Baldvin ~ — '
Utvarpið
Útvarpað á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. lí Messa í Aðventkirkj-
unni: Óiiáði fríkirkjusöfnuður-
inn í Iteykjavík (séra Emil
Björnsson). 18,30 Barnatími
(Baldur Pálmason). 20,20 Tón-
leikar: Prelúdía, kóral og fúga
eftir César Frank. 20,35 Erindi:
Gleymd orð, en gild; síðara er-
indi (Sigurbjörn Einarsson pró-
fessor). 21,00 Tónleikar: „Ösku-
buska“ fantasía eftir Eric
Coates. .21,10 Upplestur (Karl
Guðmundsson leikari). 21,35 Tón
leikar. 22,00 Fréttir og veður-
fregnir. 22,05 Danslög (plötur).
23,30 Dagskrárlok.
Útvarpið á mánudag:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20,2U Útvarpshljómsveitin;
Þórarinn Guðmundsson stjórn-
ar. 20,45 Um daginn og veginn
(Sigurðuf Benediktsson blaða-
maður). 21,05 Einsöngur: Gunn
ar Óskarsson (tenór). 21,20 Þýtt
og endursagt: Norðuríshafsför
Nansens eftir Sven Hedin (Frið
rik Hjaitar skólastjórí). 21,45
Létt lög (piötur). 22,00 Fréttir
og veðurfregnir. Síldveiðiskýrsla
Fiskifélags íslands. 22,25 Búnað
arþáttur, Garnaveiki (Guðm.
Gíslason læknir). 22,40 Dagskrár
lok.
Útvarpið á þrlðjudag:
8.00—9.00 Morgunútvarp. —
10.10 Veðurfregnir. 12.10—13.15
Hádegisútvarp. 15.30 Miðdegis-
útvarp. — 16.25 Veðurfregnir.
19.25 Veðurfregnir. 19.30 Tón-
leikar: Óperettulög (plötur).
19.45 Auglýsingar. 20.00 Fréttir.
20.20 Tónleikar. 20.45 Erindi: Frá
löndum Múhameðs (Benedikt
Gröndal ritstjóri). 21.10 Tónleik
ar (plötur). 21.15 Upplestur:
Kvæði eftir Davíð Stefánsson
(Ingibjörg Steinsdóttir leik-
kona). 21.30 Tónleikar: Gamlir
dansar (plötur). 22.00 Fréttir og
veðurfregnir. 22.10 Vinsæl lög
(plötur). 22.30 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Ríkisskip:
'Hekla fór frá Reykjavík kl. 20
í gærkvöldi til Glasgow. Esja er
á Vestíjörðum á norðurleið.
Herðubreið er á Austfjörðum á
norðurleið. Skjaldbreið var á
Sauðárkróki í gærkvöldi á leið
til Akureyrar. Þyrill er á leið til
Norðurlandsins. Ármann var í
Vestmannaeyjum í gær.
Flugferðir
Flugfélag fslands:
Innanlandsflug: 1 dag er á-
ætlað að fljúga til Akureyrar (2
ferðir), Vestmannaeyja og Sauð
árkróks. Á morgun eru ráðgerð
ar flugferðir til Akureyrar (2
ferðir), Vestmannaeyja, Ólafs-
fjarðar, Neskaupstaðar, Seyðis-
fjarðar, Kirkjubæjarklausturs,
Hornafjarðar, Siglufjarðar og
Kópaske;-s.
Millilandaflug: Gullfaxi er
væntanlcgur til Reykjavíkur frá
Osló og kaupmannahöfn kl. 19.
00 í dag. Flugvélin fer til Lond-
on kl. 8.00 á þriðjudagsmorgun.
Loftleiðir:
í dag er áætiað að fljúga til
Vestmannaeyja, Akureyrar og
Keflavíkar (2 ferðir.)
Á morgup á að fijúga til Vest-
mannaeyja, ísafjarðar, Akur-
eyrar, Hellissands og Keflavikur
(2 ferðii).
Amað heulo
Hjónaband.
í gær voru gefin saman hjá
séra Jóni Auðuns ungfrú Vig-
dís Pálsdóttir (Zóphóníassonar
búnaðarmálastjóra) og Baidvin
Halldórsson, leikari. Heimili
þeirra verður á Snorrabraut 35.
Úr ýmsum. áttum
Dómaranámskeið í hand-
knattleik.
Iþróttasamband íslands og
Handknattleiksráð Reykjavíkur
halda domaranámskeið í hand
knattleik í Reykjavík. Námskeið
ið hefst mánudaginn 10. sept.
n.k. og stendur yfir til 15. sept.
— Öllum félögum innan íþrótta
sambands íslands er heimil þátt
taka.
Kennarar á námskeiðinu
verða: Hafsteinn Guðmundsson,
formaður handknattleiksráðs-
ins, og Sigurður Magnússon,
sími 80655, sem gefa allar nán-
ari upplýsingar um námskeiðið.
Hafrannsóknarskipið Scotia
kom hingað til Reykjavíkur í
fyrradag en það hefir verið að
I rannsóknum í Norður-Atlants-
; hafi. Skipið er skozkt og á því
skozkir vísindamenn. Skipið hef
ir hér litla viðdvöl.
I
Háðtíðahöld að Jaðri
| verða í dag að tilhlutan Þing
stúku Reykjavíkur. Þau hefjast
kl. 3. Glímumenn frá KR, sem
fóru til Færeyja, sýna þar glimu
og fleira verður þar til skemmt-
unar. Ef veður verður gott æ4,tu
bæjarbúar að fjölmenna á þenn
an fagra stað í nágrenni bæjar-
ins. ^
Ráðningar
til starfa á Keflavíkurflug-
velli fara aðeins fram á þriðju-
dögum og föstudögum að því er
flugvallarstjóri rikisins tilkynn-
ir.
Samúðarskeyti.
Utanríkisráðherra hefir bor-
izt símskeyti frá utanríkisráð-
herra Tékkóslóvakíu, þar sem
vottuð er samúð vegna fráfalls
| Stefáns Þorvarðssonar sendi-
herra.
Danski sendiherrann befir
gengið á fund utanríkisráð-
herra og látið í ljós samúð rík-
isstjórnar sinnar vegna frá-
falls Stefáns Þorvarðssonar.
Ennfremur hefir sendiherra
Frakklands vottað utanrikis-
ráðuneytmu samúð sína. Loks
hafa sendiherra Islands í Stokk
hólmi og Magnús Z. Sigurðsson
ræðismaður og viðskiptafulltrúi
íslands í Prag sent samúðar-
skeyfi til utanrikisráðherra.
Frá Reykjavíkurdeild Rauða
Kross ísiands.
Börnirp sem dvalið hafa á
Skógum, koma heim mánudag-
inn 27. ágúst, kl. 5 e.h.
Börnin frá Varmalandi komá
þriðjudaginn, 28. ágúst kl. 2—3
e.h.
Frá Silungapolli koma börnin
mánudaginn 3. september, kl.
10,30—11 f.h.
Aðstaildendur barnanna eru
beðnir aö taka á móti þeim við
Ferðaskrífstofu ríkisins.
Islenzkir hljómleikar
í þýzka utvarpinu.
í útvarpinu í Frankfurt am
Main verða fimmtudaginn 6.
september næstkomandi klukk-
an 21,10—22,00 eftir Mið-
Evrópu tíma haldnir sérstakir
tónleikar með íslenzkum verkum
eingöngu. Dagskráin verður á
þessa leið:
Jón Leifs: Hljómsveitarfor-
leikurinn „Minni íslands",
Sveinbjíirn Sveinbjörnsson:
„Idyile", píanólag, Páli ísólfs-
son: „Glettur“, Sigv. Kaldalóns:
„Þrá“, sönglag, Jón Þórarinsson:
Sónata fyrir klarinett og píanó,
Jón Leifs: Tilbrigði við tema eft
ir Beethoven.
Er þetta ein af þeim íslenzku
tónleikadagskrám, sem Fritz
Jaritz hefir undirbúið vegna
flutnings erlendis. Þessir tón-
leikar verða endurteknir í dag-
skrá stuttbylgjustöðvar Frank-
furt 10. september kl. 20,05 eftir
Mið-Evrópu tíma.
Gjöf til IIiin-
vetningafélagsiiis
(Framhald af 1. slðu.)
vaxandi skógræktaráhugi, og
er líklegt, að Húnvetningafé-
lagið í Reykjavík muni telja
sér það metnaðarmál að efna
þarna til svo myndarlegrar
skógræktar, að það megi verða
öllu héraðinu órækur vitnis-
burður þess, að Húnaþing sé
ekki verr til skóggræðslu fall-
ið en önnur héruð norðan
lands.
S.K.T,
Nýju og gömlu
Dansarnir
í G. T. húsinu í kvöld kl. 9
Hanknr Mortens
syngur með hljómsveitinni mörg nýjustu og skemmti-
legustu danslögin.
Aðgöngumiðar í G. T.-húsinu kl. 6,30. — Simi 3355
tttmmttttttttttttttutttu
ogsóC
NIVEA styrkir húðina, varn-
ar hættulegum og sárum
sólbruna og gerir húðina
dökka. Dekkri og hraust-
legri húð með NIVEA.
iV.V.V.VV.V/.V.V.V.'.V.V.V.V.'.'.V.V.V.V.’.V.V.V.V.
H.f. Eimskipafélag ísiands l
Miklir loftbardag-
ar í Kóreu
Lítið var um bardaga á víg
stöðvunum í Kóreu í gær,
nema lítilsháttar áhlaup af
hendi norðurhersins á aust-
urströndinni, þar sem barizt
er um nokkrar hæðir þessa
dagana.
Hlns vegar hefir verið mik-
ið um loftbardaga yfir Norð-
ur-Kóreu síðustu dagana og
virðist flugstyrkur Kínverja
þar fara vaxandi og beita þeir
meira þrýstiloftsflugvélum af
rússneskri gerð.
í fyrradag var tveggja
stunda loftorusta yfir Pyong-
yang milli 30 kínverskra flug
véla og 25 flugvéla S.Þ. Lauk
orustunnj með því, að tvær
kínversku flugvélanna voru
skotnar niður. Einnig var háð
mikil loftorusta í gær á svip
uðum slóðum en hún stóð
skemur og endaði með því að
kínversku flugvélarnar flugu
undan eftir að tvær þeirra
höfðu verið laskaðar.
Ridgway hershöfðingi hefir
ítrekað það, að hann bíði þess
eins að kommúnistar tilkynni
að þeir séu fúsir að hefja
vopnahlésviðræðurnar á ný,
og muni sendinefnd S.Þ. þá
þegar verða send til Kaesong.
Segir hann, að ásakanirnar
um brot á hlutleysi Kaesong
svæðisins séu gripnar úr lausu
lofti og aðeins tilbúið áróðurs
bragð af hendi kommúnista
til að skella skuldinni á S.Þ.
þótt þeir eigi sjálfir alla sök
á því að viðræðunum var hætt
og hve seint miðar.
Davses ræðir við Tito
Davies varautanríkisráð-
herra Breta hefir verið á
ferðalagi í Júgóslavíu og hitti
hann Tito þar að máli. í við-
tali við fréttamenn segir
Davies, að þeir hafi rætt um
ýmis sameiginleg hagsmuna-
mál Breta og Júgóslava og
orðið mjög á eitt sáttir. Telur
Davies ,að samskipti Breta og
Júgóslava í viðskiptum geti
vaxið mjög báðum þjóðunum
til hagsbóta.
LLL
ALL'T MÉÐ-
EIMSKIP
M.s. Gullfoss
fer frá Reykjavík . laugardaginn 15.
september kl. 12 á hádegi til Leith og
Kaupmannahafnar.
Pantaðir farseðlar skulu sóttir eigi
síðar en þriðjudag 4. sept. Það skal
tekið fram, að farþegar verða að
sýna fullgild vegabréf þegar far-
seðlar eru sóttir.
í .
.■.•.■.■.V.V.V.V.V.V.’.V.V.V.V.V.V.V.V.'.V.V.V.V.
Aiijyjíýsið í Tímaiiiim
Útiskemmtun
að Jaðri í dag kl. 3 c. h.
Mörg' g'óð skemmtiatriði:
Meðal annars sýnir glímuflokkur K.R.
(Færeyjafararnir) undir stjórn Þor-
steins Kristjánssonar.
Enn fremur verður handknattleikur,
Kórsöngur o. fl.
Ferðir verða frá B.S.R. allan daginn
frá kl. 1 e. h.
NEFNDIN.
itttnttttttttmrtttttttittttttttttmnfflttttinttttnttttttmi
uuuuuuuu
ttuttuuuautttttttti
Ráðskonu og ráðsmann
(helzt hjón) vantar á heimili með öllum nútíma
þægindum í ofanverðri Árnessýslu frá miðjum septem-
ber n. k. til vors, og helzt árlangt. — Upplýsingar gefur
|j Metúsalem Stefánsson, Þingholtsstræti 21, simi 5976,
|j eða Búnaðarfélagi íslands, sími 3110.
tt
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og jarðarför konu minnar
MARGRÉTAR JAKOBSDÓTTUR.
Sigurður Maríasson
og synir.