Tíminn - 29.08.1951, Side 8

Tíminn - 29.08.1951, Side 8
,ERLENT YFIRLtT“ í DAG: Éru Muo ofi Staiín ósamtnéla? S5. árgangur. Revkjavík, 194. blað. 29. ágúst 1951. Neita að framselja morðiogja Abdullah Sex menn hafa nú verið úæmdir til dauða vegna morðsins á Abdullah Trans- jcrdaníukonung:. Tveir þeirra komust úr lanöi eftir mörðið og dveljast nú í Egyptaiandi. Hefir stjörn Egyptalands neit að að framselja þá Trans- jórdaniu til að taka út refs- inguna. Annar þeirra er bróð ursonur stórmúftans sem einriig dvelst landflótta í Egyptalandi. Ridgway sendir liðs foringja til Kaesong Ridgway liershöfðingi sendi í gær tvo liðsforingja sína i helikopter til Kaesong til fundar við fulltrúa norður- hers'ns. Fékk hann þar afrit af orðsendingu þeirri, er her- stjórn norðurhersins lét lesá í Peking útvarpið í fyrradag. Ridgway hershöfðingi hef- ir ekki enn svarað þessari orð sendingu. Hann lét svo um mælt í gær, aö nánari rann- sókn að loftárárs þeirri, sem kommúnistar fullyrða að flug vélar S. Þ. hafi gert Kaesong svæði fyrir viku, væri nú til- gangslaus, þar sem staður þessi hefði algerlega verið undir umsjá norðurhersins þenna tíma og nægur tími hefði nú gefizt til að búa til vegsummerki, er hægt væri að segja að væru frá loftárás þessari. Rannsókn þessi hefði átt að fara fram þegar daginn eftir, en þá hefði íull- trúum S. Þ. verið meinað það. Harðir bardagar geisuðu á austurvígstöðvunum í gær og lét her S. Þ. undan síga á nokkrum stöðum. Flugvélar S. Þ. gerðu geysiharða árásir á ýmsar flutningaleiðir norð- urhersins i gær. Fyrir nokkru var skýrt frá því í frétium, aö norskt skip hefðj farizt í Norðursjó. Hét það Bess. Áhöfn og farþegar fóru í bátana og var nokkrum bjargað af þýzku skipi, sem fór með þá til Esbjerg, en áður liafði skipbrotsfólkið orðið að hrekjast í opnum bátum í 2C klukkustundir. Mynditt sýn- ir þernu af skipinu, eftir komuna til Esbjerg og franskan mann, sem hörfði á unnustu sína drukkan. Til hasgri eru tvcir menn af áhöfn skipsins. FranSki maðurinn var feini farþeginn sem bjargaðist Akurnesingar sigr- uðu Akureyringa Eins og fyrr hefir verið frá sagt hér í blaðinu fóru ís- landsmeistararnir, Knatt- spyrnufélag Akraness norð- ur t'l Akureyrar og kepptu við úrval úr knattspyrnufé- lögunum á Akureyri. Lauk þeim ieik svo, að Akurnesing ar sigruðu með 10 mörkum gegn 1. Akurnesingar láta hið bezta yfir förinni og öllum móttökum á Akureyri. Tregfiski fyrir Austfjörðum Frá fréttaritara Tímans á Stöðvarfirði. Mjög tregur fiskur er nú fyrir Suðausturlandi og raun- ar Austfjörðum öllum. Trillu bátar héðan fá ekki nema éitt til hálft annað sk ppund i róðri, en afli getur ekki kallazt sæmilegur nema tvö til þrjú sk ppund fáist. Óþurrkar hafa verið hér um slóðir nú i hálfan mánuð. Ríkfsvaidið á Norður- löndum á hættubrsut AfstaSa iii^fræðinga á norrænu móti Það hefir kþriiíð 'skýyt í Ijós á norrænum lögfræðinga- fundi í Síokkháími, að lögfræðingarnir óítasí vaxandi íhíut un framkVæmdavaldsins í norrænum ríkjum af margs kon- ar málefnum, sem bæri í raunirini ekki að hlutast tii. Norski prófessorinn Jó- hannes Andenæs sagði meðal annars í íyrirlestri, að það væri gremjulegt íyrir dóm- stólanna, sem rannsökuðu af nákvæmni þau mál, er til þeirra kasta kæmu, að engin trygging væri fyrir því, að stjórnarvöldin færu eins aö við þann þátt málanna, sem til þeirra kasta kæmi. Þetta dæmi kæmi oft í ijós, þegar stjórnarvöldin ættu að kveða upp úrskurði. Það væri lágmarkskrafa, sagði hann, að borgurum landsins væri leyft áð kynn- ast málum og segja sitt álit, ef þá fýsir, áður en stjórnar- völdin felldu úrskurði um það, hvað gera ætti. í öðru lagi ætti að vera hægt að skjóta úrskurði ráðherra og stjérnarvalda undir einhvern yfirdóm. Danski prófessorinn Poul Andersen gagnrýndi, hvernig það væri sífeilt algengara, að í lögum værj lagt bann við einu og öðru, en stjórnarvöld- unum þó leyft að veita undan þágu.'Allt stefndi í þá átt að leita þyrfti í sívaxandi mæli I um leyfi stjórnarvaldanna, og þau geti leyft æ fleiri Poul Jacobsen, hæstaréttar lögmaður í Dánmörku, lét i ljós, að hætta gæti vevið á, að ^ danska þjóðfélagið bæri upþ á sker einræðisins, ef ekki yrði breytt um stefnu. í stáð dómstólá hefðu menn fengið nefndir, sem nánast gætu að- eins skotið dómum undir náð areamlegan úrskurð stjórnar- valdanna. En samfélagið ætti aldrei að þola löggjöf, sem legði stiórn arvöldunum í hendur ótak- markað vald til þess að veita undanþágur éða fella, úr- skurði; og borgarar landsins ættu meira að segja að geta skotið ágreinirigi við stjórnar völdin undir dómstólana. Það væri hlutverk lögfræðings að berjast gegn óhæfilegri að- stöðu stjórnarvaldanna, og embættismönnum ber að skilja, að þeir eru þjónar en ekki herrar samfélagsins. Höfnin í Ólafsfirði dýpkuð Frá fréttaritara Tímans í Ólafsfirði. Undánfarna daga hefir dýpkunaskipið Grettir unnið að uppmökstri í Ólafsfjarðar- höfn, og er nú verkinu langt komið. Að verk'nu loknu eiga flest íslenzk skip að geta lagzt að bry"gju í Ólafsfirði Vegna dýpis ,is. Á hinu ie kur vafi, hvort sandurinn muni ekki berast inn aftur. E'nnig hefir verið unhið að því að aka grjóti frarii á nyrðri hafnargarðinn, honum til stýrktar og til varnar því, að sjór gangi eins yf r hann og verið hefir. Við þénrian hafn- argarö laskaðist bryggja í foráttubrimi í íyrravetur. a i Unnið að bryggjugerð á Kópaskeri í sumar Heyskapur hefir gcng'ið skaplega í í sumar eu heýfeiigur varla í meðallagi „Heyskapur hefir gengið skaplega í Norður-Þingeyjar- sýslu í sumar, þótí heyfengur nái líklega ckki meðellagi vegna kals og sprettuleysis“, sagði Baldur Öxdal á Kópa- skeri, cr tíðindamaöur blaðsins hitti hann að máli í gær nýkominn að norðan. Túnin eru yfirleitt ákaflega léleg en nokkuð hefir bætt úr, að útengi, einkum áveituengi er víða mjög vel sprottið, og gott að heyja það sökum þurrka. Síðasta hálfan mánuð inn hefir þó verið þurrkleysa og er allmikið úthey úti. Lónaengi og Vatnsbæjaengi í Kelduhverfi heflr verið frá bærlega vel sprottið, og bæir þeir, sem þar eiga land eru því tiltölulega vel settir. Þeir hafa og miðlað öðrum engj- um, en það hrekkur að sjálf- sögðu skammt. Byggðir votheystumar. í sumar hafa verið byggðir nokkrir votheysturnar, hálf- turnar í Kelduhverfi og Öxar firði og hér og hvar er veriö að byggja peningshús. Litið er um áðrar byggingar, enda er fyrir alllöngu búið að byggja íbúðarhús á flestum bæjuin. Fjögur nýbýli. í Kelduhveríi er unnið að byggingu þriggja nýbýla. Eitt er í Ási, þar sem tveir bræður búa, og er það annar bróðir- inn, sem nýbýlið byggir. Ann- að er í Hlíðargerði í Ingveld- arstaðalandi, gömlu eyðibýli, og hið þriðja í landj Hóls og nefnist Lyngás. Er það einna lérigst á vég komiði 1 í Axárfirði er byrjað á bygg irigu nýbýlis í landi Ærlækjar og nefnist það Víðines. Bryggja lengd á Kópaskeri. i Á Kópáskeri hefir veriö unnið að því að lengja bryggj una þaf. Hefir hún verið lengd um 30 metra í sumar en hrekkur þó ekki til þess að , strandferðaskip svo sem Herðubreið og Skjaldbreið géti lagzt að henni. Til þess l'vérður annað tveggja að ilengja bryggjuna enn um 60 metra eða dýpka við hana með uppgreftri, og er ekki fullráðið, hvor leiðin verður farin. Kaupfélag Norður- Þingeyinga hefir og í hyggju að hefjá innan skamms bygg ingu verzlunarhúss og íbúðar kaupfélagsstjóra á Raufar- höfn. Sæmilegur heyskapur á Hólsfjöllum. Tún og engjar spruttu mjög seint á Hólsfjöllum í sumar, ’ enda kom jörð seint undan I þar efra. En þegar leið á sum ar var orðin þar allgóð gras- spretca, og heyskapur hefir gengið þar vel, svo að líkur eru til, að Fj allabændur verði sæmilega á vegí staddir með hey í haust. Má það unclur kalla, hve Fjallabændur komust vel af í vor eftir hrak viðrasumariö í fyrra og harð i indaveturinn. Líkur eru til að fé verði allvænt á þessum slóð um í haust. Unnið að Vegi við Jökulsá. Nokkuð hefir veriö uririið að vegagerð niður með Jökuls á að austan bæði borið ofan i gamla veginn og nýi upp- hlaöni vegurinn niöur frá Dettifossi lengdur. Harriman Rominn til Parísar Harriman fulltrúi Trumans forseta hélt frá London i gær flugleiðis 11 Parísar, þar sem hann mun ræða i dag viö framkvæmdastjóra efnahags samvlnnustofnunarinnar í París og Eisenhower hershöfð ingja. Á morgun heldur hanri flugleiðis vestur um haf og gengur á fund Trumans for- seta og flytur honum skýrslu sina um sendiförina til Persíú á fostudaginn. Harriman ræddi enn einu sinni við fréttamenn í gær um olíudeiluna. Lagðj hanri áherzlu á það, að mesturn erfiðleikum i samningunum i Teheran hefði valdið, hve Persar eru viðkvæmir í bjóð- ern'slegum efnum og yrði að hafa það vel hugfast, er sarimingar verða teknir upp að nýju. Hins vegar kvaðst hann sannfærður um það, að hægara væri nú fyrir en áður, og mundi næsta t'lraun bera meiri árangur. Hann kvaðst ekkitrúaður á að Persar mundu gera samn- inga við Rússa um olíusölu heídur reyna að halda þeim markaði, sem þeir hefðu áð- ur haft. Öháði fríkirkjusöfn uðurinn fær stór- gjöf frá Vesturheimi Nýlega hafa vestur-is- lenzku hjónin Margrét Odd- geirsdóttir Bjarnason og Skúli Bjarnason í Los Angel- es sent Óháða frík:rkjusöín- uðirium hér í bæ um 2000 kr. að gjöf í íslenzkum krónuítt taiið. Þessa stórhöfðinglegu gjöf, sem Andrés Andrésson safnaöarformaður hefir veitt viðtöku, gefa þau til efl'rigar kirkj ubyggingarhugsj ón þessa safnaðar, jafnframt því sem þau láta í ljös aðdáun á áhuga þess að söfnuðurinn megi sem fyrst eignast k'rkju. Frú Margrét er dóttir séra Guðgeirs Guðmundsens í Vest mannaeyjum en Skúli er son- ur Gissurar Bjarnasonar söðla smiðs á Eyrarbakka óg hafa þau hjón dvalizt langdvöl- um vestra en komu þó he.'m í kynnisför fyrir tveimur ár- um.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.