Tíminn - 26.09.1951, Page 6

Tíminn - 26.09.1951, Page 6
n. TÍMINN, miðvikudafflna 36 september lft51. 211. blað. Óður Indlands (Song- o£ India) Spennandi og mjög skemmti leg ný amerísk mynd um töfr andi ævintýri inni í frumskóg um Indlands. Sabu, Gail Russell. Sýnd kl. 5, 7 og 9. NÝJA BIO Bréf frá óhunnri honu (Letter from an Unknown Woman) jHrífandi fögur og rómantísk 'ný amerísk mynd. Aðalhlutverk: Joan Fontaine, Louis Jourdan. Sýnd kl. 5, 7 og 9. BÆJARBÍÓ i HAFNARFIRÐl ♦ Snðrænar syndir (South Sea Sinner) Spennandi ný amerísk mynd, •cr gerist í Suðurhöfum með- ;al manna, er ekkert láta sér lyrir brjósti brenna. Sýnd kl. 7 og 9 Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 9. [Utvarps viðgerðir íÍRadioviimastofan LAUGAVEG 16C I f: Auglýsingasími TÍMANS er 81 300. Bergur Jónsson Málaílutningsskrifstofa Laugaveg 65. Sími 5833. Helma: Vitastig 14. «Cr tfeJtaV 0uo/éUí$ic?fy Austnrbæjarbíó SARATOGA Bönnuð innan 14 ára. Sýnd kl. 9. GLÓFAXI Sýnd kl. 5. HLJÓMLEIKAR KL. 7. jTJARNARBÍÓ S Æviníýrarík uppskera (Wihl Ilarvest) Afarspennandi og viðburða- rík mynd. Aöalhlutverk: Alan Ladd Dorothy Lamour Sýnd kl. 5, 7 og 9. GAMLA BÍÓ Dansineyjar í Hollywood Hollywood Revels) Þessi einstæða mynd sýnd aftur í örfá skipti vegna eft- irspurnar. HNEFALEIKAKEPPNI Randy Turpins og „Sugar Ray“ Robinsons um heimsmeistaratignina. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5 og 9. ísland Litkvikmynd Hal Linkers sýnd kl. 7. HAFNARBÍÓ Bortjarljósin (City Lights). Ein allra frægasta og bezta kvikmynd vinsælasta gaman leikara allra tíma: Charlie Chaplin. Sýnd kl. 5, 7 og 9. * i TRIPOLI-BÍÓ Æshn-ástir (I Met My Love Again) Skemmtileg og vel leikin amerísk mynd. John Bennett, Henry Fonda. Sýnd kl. 7 og 9 Sitt af hvoru tagi Skemmtilegt smámyndasafn: m. a. teiknimyndir, skopmynd ir og fleira. Sýnd kl. 5. AlnnilS að greiða blaðgjaidið ELDURINN gerir ekkl boS á nnðan aér. Þeir, sem eru hyggnlr, tryggja strax hjá SamvinnutryggineuM Á flatneskjunnf (Framhald af 5. síðu) tekna væl og auglýsing um skilningsleysi sitt á einföld- ustu hlutum, er að verða þreyt andi. Skattfrelsistal fulltrúa kaupmanna, er ekkert ann- að en krafa um tvöfaldan skatt á samvinnuverzlun. Að öðrum kosti skilja þessir flatn eskjumenn ekkert hvað þeir cru að fara. Samvinnuverzlun greiðir skatt af gróða sínum, en ekki af því sem endurgreitt er viðskiptamönríunum. Af þoirri upphæð greið'ir hver cinstakur skatt. Hvaða nauður rekur kaup- menn til að græða mikið og borga háa skatta? Ef þeir selja ódýrt og græða lítið, borga þeir litla skatta. Þetta er allur galdurinn. Óttalegast af öllu finnst Mbl, að mikill meiri hluti samvinnumanna eru Fram- sóknarmenn. Blaðið hefir fengið margar hríðar út af þessu síðari hluta sumars. Uggur blaðsins mun hafa við rök að styðjast. Enda þótt framkvæmdastjórar kaupfé- iaganna séu af öllum flokk- um, munu langflestir þeirra Framsóknarmenn, en fæstir Sjálfstæðismenn. Sama er sennilega um félagsmennina. Þetta er eðlileg rás viðburö- anna, sem enginn mannlegur máttur megnar að standa gegn. Mbl. er málgagn þess flokks, sem hefir meginþorra kaup- rnanna og herídsala landsins innan sinna vébanda. Mbl. og þess flokkur, hugsar um þeirra hag og verður að hugsa um þeirra hag. Annars sýndi það húsbændum sínum ótrúmennsku, — og fengi bágt fyrir. Hagur samvlnnumanna og húsbænda Mbl. fer ekki sam- an. Þess vegna fer þeim sam- vinnumönnum, sem fylla flokk heildsalanna, fækk- andi með ári hverju. Þctta eru þær einföldu stað reyndir, sem Mbl. læst ekki skilja. Blaðið þykist fletta ofan af yfirgangi, braski og misnotk- un með samvinnufélögin. En allt þetta nöldur minnir á ein tal gamalla, uppþornaðra sála, sem eru staðnaðar á flatneskju lífsins og harma einstæðingsskap sinn og kenna öðrum um ólán sitt. B. G. Sigge Stark: í leynum skógarins 11 Brúðusýnmgm opin kl. 1—7. seinustu atriðin endurtekin klukkan 6. VIÐ GIFTUM OKKUR, verður sýnd kl. 9. Miðasala hefst kl. 3. Sími 3191 Guðrún Brunborg & ÞJÓDLEIKHÚSIÐ „RIGOLETTO“ Næstsíðasta sýning miðviku- dag kl. 20.00. — Síðasta sýning föstudag kl. 20.00. Aðgöngumiðasalan opin frá kl. 13.15 til 20.00. Kaffipantanir í miðasölu. — Þú veizt með öðrum orðum ekki neitt um morð, sem var framið svo að segja við dyrnar hjá þér? Sýslumaðurinn hvessti augun á Pétur Brask. En hann leit ekki undan, þótt varirnar herptust saman og hnúarnir hvítnuðu við takið á borðplötunni. — Nei — nei, sagði hann. Svo leit hann af sýslumanninum og renndi augunum upp í heiðan himininn, sem rofaði í milli trjánna fyrir utan gluggann. Andlit hans varð á svipstundu blítt og angurvært, eins og þegar hann kom fyrst inn. Andrés Foss brann af löngun til þess að kynnast þessum undarlega manni. til hlítar. — Þú mátt fara, Pétur, mælti sýslumaðurinn vingjarn- lega. Þakka þér fyrir. Pétur Brask hneigði höfuðið og gekk hljóðlega út. — Vesalings maðurinn, sagðj héraðslæknirinn. Ég hefi alltaf vorkennt þessum manni. I Sýslumaðurinn reis á fætur og gekk fram í eldhúsið til þess að sjá, hvort þar væru fleiri, sem hann kærði sig um að yfirheyra aö sinni. Læknarnir sátu eftir þegjandi. Andrés |Var þungt hugsi. Það, sem þegar hafði komið fram, leiddi gruninn óneitanlega að Friðrik á Efra-Ási, en honum fannst !einnig, að Ágúst klæðskeri og Pétur Brask myndu eitthvað vita. Svo gat slátrarinn frá Hvolbæ komið til greina, en (hann hafði-hann ekki enn séð. Það voru meö öðrum orð- um fjórir eöa jafnvel fimm, sem hugsazt gat, að eitthvað ! væru við þetta mál riðnir. Hann hafði heyrt getið um enn !einn mann, sem var óvinur Eiríks — þennan, sem hann hafði átt hestakaupin við. Hitt var nær alveg víst, að Frið- rik og Pétur vissu eitthvað um morðið, jafnvel þótt aðrir (kynnu að vera sekir. En hann hallaðist mjög að því, að Frið- rik væri sökudólgurinn. Loks kom sýslumaðurinn inn aftur. — Naómí á Mýri er ekki heima í dag, sagði hann. Það segir, að hún sé á berjamó. En ég er viss ufn, að hún hefir hlaupið í felur. Hún er víst ekki öll, þar sem hún er séð. En hún skal ekki sleppa. Það er skylda mín aö láta einskis ófreistað til þess að finna morðingjann, og þótt svo væri ekki, myndi ég vegna Jóns í Noröurseli ekki unna mér hvíld- ar meðan nokkur von væri um það. Mig tekur sárt til hans. Eiríkur var einkasonur hans og átti að taka við búinu að vori, og það var óvenjukært með þeim feðgunum. Þau voru ham- ingjusöm, öll þrjú í Norðurseli, áður en þetta dundi yfir.... Það veit enginn ævina fyrr en öll er. — Förum við þá nú? spurði héraðslæknirinn. Það fer bráðum að skyggja, og ég verð að komast heim í kvöld. Sýslumaðurinn kinkaði kolli, og tók saman skjöl sín. III. Systurnar í Holti — Heldurðu, að þeir komi heim í kvöld? spurði Irma í Holti eldri systur sína, sem sat álút yfir hannyrðunum. — Það vona ég, svaraði írena. Mig langar til þess að heyra fréttirnar. — Þig langar líklega mest til þess að heyra, hvort Andrés ætlar að verða heima og skemmta þér á morgun, sagði Irma hæðnislega. — Mér er sama um það, svaraði írena stutt í spuna. En hvers vegna ertu eiginlega sífellt aö erta mig? Ég hélt, að þér litist sjálfri dável á Andrés. I — Ég daðra að piinnsta kosti ekki við hann, og hann er ekki alla daga að stíga í vænginn við mig, sagði Irma. Og 1 ég kvel mig ekki við hannyrðir alla daga, þegar húsið er fullt af allskonar dúkum og saumi — bara til þess að sýnast j • kvenleg, þegar hann kemur heim. j — þú ert viðbjóðsleg, hvæsti írena og roönaði upp í hárs- i rætur. Það var í rauninni nokkuð til í því, að hún sýslaði meira við hannyrðir en hennar var vandi, nú síðan Andrés kom, í stað þess að lesa skáldsögur. Hann hafði oft haft orð á því, hvað það væri heimilislegt, þegar ungar stúlkur sætu við hannyrðir. En hana hafði ekki grunað, að Irma veitti þessu athygli, og það gerði henni gramt í geði, að hún skyldi hitta svona naglann á höfuðið. En Irma hafði aldrei kunnað sig. Hún var óhæfilega opinská, og það var eins og ekkert leynd- ist hinum brúnu, hæglætislegu augum hennar. — Vertu ekki að reiðast af þessu, mælti Irma. Saumaðu

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.