Tíminn - 27.09.1951, Blaðsíða 3

Tíminn - 27.09.1951, Blaðsíða 3
V»’VÍ* í v>- **,>;■ iv»'' fc>104 U104). 1A Ferð á bílum yfir 535 m. háa heiði á Ingjjaldssandi Eftir Björn Guðmundssou, skólastjóru Undanfárin 3 sumur hefin verið unnið að því með jarð- ýtu, að ryðja undirlag bílveg- ar úr Dýrafirði yfir Lands- heiði á Ingjaldssandi. Er því verki nú svo langt komið, að bílar komast þar hindrunar- lítið. Ingjaldssandur tilheyrir Mýrahreppi, þótt dalurinn liggi upp frá Önundarfirði, fyrir opnu hafi norðan til við Barðann. Leið þessa, yfir á 6. hundrað metra háa heiði, hefir þvi orðið að fara um ár og aldir gangandi eða ríð- andj til allra innansveitar- starfa og embættisverka. Presturinn til messugerða og annarra skyldustarfa, dalbú- ar sótt hreppsskil og aðra al- menna sveitarfundi o. fl. Mér finnst eins og þetta allt blasi við mér með öllum sínum erf iðleikum, þegar ég nú í fyrsta skipti get farið þessa leið hindrunariítið, sitjandi í þægilegu sæti með þak yfir höfði mér og jafnframt sé í hendi mér, að þessi leið verð- ur farin á minna en einni klukkustund, þegar vegurinn verður fullgerður. Það var laugardaginn 8. þ. m. að Slysavarnadeild Mýra- hrepps ákvað að heimsækja Sandsbúa. Um 40 manns tóku þátt í förinni. Sex jeppar voru farartæki okkar og skiptust þeir yngri um að ganga spöl og spöl, þar sem mestar voru torfærurnar á veginum. Þetta gekk allt slysalaust og það var notalegt að koma inn í upphitaðann salinn í félagsheimili þbirjja Sands- búa að Vonalandi. Brátt var setzt að kaffiborði og nesti snætt undir fjörugum sam- ræðum. Seinna um kvöldið komu Sandsbúar til móts við okkur og tóku þátt í skemmt- uninni. Fól þá formaður slysa varnadeildarinnar og farar- stjóri, Valdimar Kristinsson, undirrituðum að ávarpa sam komuna með nokkrum orðum. Var í því ávarpi minnzt á sam starf slysavarnadeildanna, sagt frá því, sem áunnizt hefði með því að reisa skýlið á Fjallsskaga. talað um þýðingu þess, sem nú væri að gerast í samgöngubótum fyrir sveit- arfélagið, látin í ljós sú skoð un, að Ingjaldssandur væri grösugasti dalur Vestfjarða og minnt á vísuna, sem prest ur nokkur hefði kveðið, er hann leit af heiðarbrún yfir dalinn: „Veí lízt mér á byggð og bú brautir, teiga og mosa. Sé ég ofan á Sandinn nú, sýnist mér hann brosa“. Var svo þéttstiginn dans fram yfir lágnætti með miklu fjöri og almennri þátttöku. Þá kvaddi Guðmundur Bern- harðsson í Ártúni sér hljóðs og minntist á fyrstu drögin til vegagerðar á Sandinum hjá Ungmennafélaginu Vor- blómi fyrir 40 árum. — Bauð hann, fyrir hönd Sandsbænda öllu ferðafóikinu til gistingar á býlum þeirra og til hádegis verðar að lokinni hvíld. Var að verðleikum gerður góður rómur að ræðu hans. Eftir að notið hafði verið hinnar ágætu gestrisni Sands manna var lagt af stað heim leiðis eftir áðurnefndum vega frumdrögum frá Brekku að Núpi, sem mun vera um 15 km. leið og fór jeppinn, sem ég var með, þá leið á rúmlega 2 yz klukkustund. Raunveruleiki. Sandsbúar hafa haft og hafa verzlunarviðskipti sín við Flateyri, því þangað er tæplega klukkustundar ferð á vélbát. En nú var veðráttan þannig að aldrei var fært að komast fram fyrir brimi all- an ágústmánuð og voru ýms ar vörubyrgðir bænda þrotn- ar. Var þá gripið til þess að fara á vörubíl um hinn ný- brotna veg yfir Sandsheiði og Gemlufjallsheiði og sem leið liggur innfyrir Önundar fjörð að Flateyri. Mun sú leið vera um 55 km., eða 110 km. ferð, er bændur þurfa að fara til að bæta úr nauðsynlegustu þörfum sínum, þegar hin skjóta sjóleið var lokuð. Væri það mjög eðlileg úrbót í þessu efni að Sandsmenn hefðu verzlunarviðskipti við Þing- eyri, þegar vegurinn yfir Sandsheiði verður fullgerður. Jeppaþörf á Sandi. Það er hverjum manni aug ljóst mál, að íbúum Ingjalds sands er þörf á farartæki, (Framhald á 4. síðu.) Píanóhljómleikar Gísla Magnússonar Verðmætasta veganestið, sem ungur listamaður tekur með sér frá föðurhúsum, er gott uppeldi. Síðaii kemur veganestið frá fyrstu kenn- urunum, síðan fyrstu kenn- arar, sem áhrif hafa á sálar- líf unglingsins, því að listin verður aldrei nema hálfur leikur, ef fyrstu kennararn- ir hafa lagt óskilmerkan veg í sál byrjandans . Ungi píanistinn, Gíslj Magn ússon, sem á vegum Tónlist- arfélagsins, hélt píanóhljóm- leik í Austurbæjarbíó á þriðjudaginn, — hefir bæði fengið gott uppeldi, og góða kennara, — hér heima og i útlandinu. Listamannssál þessa unga píanista, sem er stórbrotin, er á þroskabraut, og hefir nú þegar náð svo langt, að hægt er að rekja spor snillingsins í allri leikni og túlkun á verkum klass- isku meistaranna. Hin þrjú stóru „B“, Bach, Beethoven og Brahms, lék þessi ungi pi- anisti af óvenjulegri leikni og skilningi, — og hvar væri annars þessi syndugi heimur staddur, ef hann ætti ekki þessa þj óðversku tónmeist- ara, — og það er undrunar- efni, að kornungur piltur norð an frá ísalandinu skuli vera orðinn prúðmannlegur prédik ari í túlkun á stórverkum þessa meistara. — Chopin varð heldur ekki útundan, ef til vill kom þar bezt í ljós, leikni og skap þessa unga pianista, sem þó að öllu leyti var í hóf stillt. Sýndi hann, að hann hefir gengið í skóia þess kennara, sem skilið hefir hans íslenzku listamannssál. Sig. Skagfield. Utan úr heimi Frímerki Sameinuðu þjóðanna. Eftir nokkra mánuði munu Sameinuðu þjóðirnar í fyrsta skipti gefa út sín eigin frí- merki, og mun upplagið skipta nokkrum milljónum. Er þetta í fyrsta skipti, sem alþjóða- samband gefur út sín eigin frí- merki. Áhugi fyrir útgáfunni er þegar mjög mikill, og póst- málastjórn S.Þ. undir forustu Svíans Bertil Renborg býst við betri hag eftir útgáfu frímerkj anna. Fyrsta útgáfa þessara frí- merkja verður með 15 mis- munandi gildum, frá einu centi til dollars, 11 þeirra verða fyrir j venjulegan póst, en 4 fyrir flugpóst. Frímerkin verða J prentuð í prentsmiðjum í Eng; landi og Hollandi, og er reiknað með að 36 milljónir frímerkja verði sett á markað inn og er álitið að það dugi í tvö ár. j Póstmálastjórn S. Þ. vonar að hagnaður af frímerkjasöl- unni verði um 300,000 dollarar á ári, og á útgáfudaginn er reiknað með að selja frímerki fyrir 1000,000 dollara, og muni frímerkjakaupmenn víðs veg ar í heiminum kaupa mest. Markmiðið er þó ekki ein- göngu að græða á þessari út- gáfustarfsemi, segir Bertil Renborg. Frímerkin eiga fyrst og fremst að kynna almenn- ingi í heiminum starf og tak- mark S. Þ. 113 ára gamall Arabi. Halid Grandura, Arabi, sem settist að í Sarajevo 1888, varð nýlega 113 ára, og ekkert bend ir til þess, að hann ætli að yfir gefa heiminn næstu 10 árin. Þegar hann var 72 ára giftist t hann 13 ára gamalli dóttur. bezta vinar síns. Hann átti með henni átta börn — það . síðasta, þegar hann var 93 ára. i Hann hefir þegar lifað fjögur þeirra. Nú get ég séð stúlkurnar. Hinn 23 ára gamli Blas Es- milla missti sjónina fyrir fimm árum síðan. Nú hafa læknar gefið honum sjónina aftur með því að flytja hornhimnu ÚT nýlátnum manni og setja hana í augu hans. Blas varð mjög glaður, þegar hann gat séð aftur. Það fyrsta, sem hann sagði var: Guði sé lof, nú get ég séð stúlkurnar aftur — greinilega. Stalin-líkneski í Albaníu. Albanska fréttastofan hefir skýrt frá því, að Stalin- líkneski hafi verið reist í Stalin Kuchevo í Albaníu. For sætisráðherrann Enver Hodza sagði við afhjúpun líkneskis- ins: Verkamennirnir eiga að koma hér á hverjum degi, áð- ur en þeir fara i vinnuna, og sverja fyrir framan líkneskið, að þeir muni vinna mikið. Á heimleiðinni á kvöldin eiga þeir að stanza fyrir framan líkneskið, og skoða hug sinn, hvort þeir hafi haldið loforðið. H :: I! :: TILKYNNING frá Skuldaskilasjóði útvegsmanna um greiðslu sjóveðs- krafna (mannakaups). Greiðsla sjóveðskrafna (mannakaups) á hendur neð- angreindum útvegsaðilum hófst í skrifstofu Skulda- skilasjóðsins í Eimskipafélagshúsinu, mánudaginn 24 .þ. m. klukkan 13: Árni Kl. Hallgrímsson o. fl., Vogum (v/s Jón Dan G. K. 341). Björn h.f., Keflavík (v/s Björn K. E. 95). Ingólfshöfði h.f. (v/s Ingólfur K. E. 96). Jökull h.f., Hafnarfirði (e/s Jökull R. E. 55). Maí h.f., Reykjavík (v/s Marz R. E. 27). Útgerðarfélag Eyfirðings (v/s Eyfirðingur E. A. 480). Útgerðarfélag Keflavíkur h.f., Keflavík (v/s Vísir K. E. 70). Ólafur Lárusson, Keflavík (v/s Jón Guðmunds- son K. E. 5 og v/s Svanur K. E. 6). Júlíus Daníelsson, Grindavík (v/s Bjargþór G. K. 515). Straumey h.f., Akureyri (v/s Straumey E. A. 301). Runólfur h.f., Grundarfirði (v/s Runólfur S. H. 125). Grundfirðingur h.f., Grundarfirði (v/s Grund firðingur S. H. 123). Vísir h.f., Súðavík (v/s Jón Valgeir í. S. 98). Hvítingur h.f., Reykjavík (v/s Hvítingur R.' E. 228). Greiðslur fara fram daglega klukkan 13—16, nema laugardaga, kl. 10—12. Skorað er á kröfuhafa að sækja greiðslur sem allra fyrst Jafnframt er vakin athygli á auglýsingum sjóðsins í dagblöðum bæjarins dagsettum 16. og 24. ágúst s. 1., en í þeim auglýsingum voru tilkynntar greiðslur sjó- veðskrafna (mannakaups) á hendur 39 útvegsaðilum. Þá er og vakin athygli á þvi, aö kröfuhafar verða að sanna á sér deili og þeir, sem greiðslur sækja fyrir aðra að leggja fram gild umboð. Reykjavík 21. september 1951. Nr. 6, Nr. 12, Nr. 35, Nr. 43, Nr. 50, Nr. 88, Nr. 90, Nr. 108, Nr. 116, Nr. 121, Nr. 127, Nr. 128, Nr. 136, Nr. 147, :: Skuldaskilasjóður útvegsmanna. H * Meistaramót Iþróttabandalags drengja Köttur fær hitapoka á hverju kvöldi. Köttur ungfrú Oliviu Bin- fields, „Pétur“, varð nýlega 25 ára, en því hefir verið haldið fram, að eitt kattarár svari til sjö ára hjá fólki, og eftir því ætti „Pétur“ að vera 175 ára eftir reikningi okkar. En „Pétur“ fylgist vel með því, sem gerist í kringum hann. Einn daginn réðist hann á fimm ketti, og hætti ekki fyrr en þeir flýðu, rifnir og tættir. Ungfrúin elur köttinn mjög vel og á kvöldin, þegar hann leggst í bæli sitt, lætur hún hitapoka undir hann. Meistaramót „íþróttabanda | lags drengja" Í.B.D. fór fram á íþróttavellinum í Reykja- vík dagana 25.—26. ágúst. — Keppendum var skipt í flokka, A., B. ög C. eftir aldri. í A-flokknum eru 16 ára drengir, ári yngri í B-flokkn- um og drengir 14 ára og yngri i C-flokknum. Árangur kepp- enda var yfirleitt frábær, sér- staklega þó hjá Jafet Sigurðs syni. íþróttabandalag drengja samanstendur af mörgum fé- lögum, og er starfsemi banda- lagsins mjög víðtæk, og hin- um ungu drengjum, sem að því standa, til hins mesta sóma. Helztu úrslit voru þessi: A-fl. 100 m. hlaup: 1. Jafet Sigurðsson ÍD 11,1 2. Þórir Þorsteinsson ÍD 11,5 3. Kristinn Ketilsson ÍF 11,5 4. Gúðm. Guðjónsson ÍD 11,8 400 m. hlaup: Þórir Þorsteinsson ÍD 55,3 Kristinn Ketilsson ÍF 56,4 Einar Sigurðsson ÍD 57,3 Guðm. Guðjónsson ÍD 59.8 800 m. hlaup: Þórir Þorsteinsson ÍD 2:15,6 Einar Sigurðsson ÍD 2:16,4 Kristinn Ketilsson ÍF 2:17,8 Bergþór Jónsson ÍF 2:23,3 80 m. gr.-hlaup: Sigurður Gíslason ÍD 11,3 Baldur Alfreðsson ÍD 11,5 Baldvin Árnason ÍD 11,5 Ingvar Hallsteinsson ÍF 11,6 •i" Hástökk: Jafet Sigurðsson ÍD 1,7Ö Baldur Alfreðsson ÍD 1,65. Ingvar Hallsteinsson ÍF 1,60 Þorkell Guðmundsson ÍD 1,55 Langstökk: 1 'í:' Baldur Alfreðsson ÍD 5,93 Ingvar Hallsteinsson ÍF 5.5á Þórir Þorsteinsson ÍD 5,46 Baldvin Árnason ÍD 5,33 Þrístökk: Baldur Alfreðsson ÍD 12,20 Samúel Guðmundss. ÍD 12,QQ v Þorkell Gúðmundss., ÍD 11,06 Ólafur Pálmason ÍD 10,37 Stangarstökk: Baldvin Árnason ÍD 2,85 Þorkell Guömundsson ÍD 2,75 Gunnar H. Pálsson ÍE 2,75 Jafet Sgurðsson ÍD 2,6^ Kúluvarp: Bragi Jafetsson, ÍF 13,76 Karl Benediktsson, ÍD 12,93 Ásgeir Óskarsson ÍD 12,40 Sigurjón Jónsson ÍF 12,05 Kringlukast: Geirharður Þorsteinsson ÍD Bragi Jafetsson ÍF Sigurjón Jónsson ÍF Gunnar H. Pálsson ÍE Spjótkast: Baldvin Árnason ÍD 46,28 Sverrir Jónsson ÍF 45,61 (Framhald á 6. síðu) ;

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.