Tíminn - 14.10.1951, Side 1
Ritstjórl:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Bkrifstofur í Edduhúsi
Frét'casímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Eada
35. árgangur.
Reykjavík, sunnudaginn 14. október 1951.
332. blað.
Hentar trjáfræ af suð-
lægum háfjölluEH okkur?
Hálcon Bjarnason skógræktarstjóri er um þessar muhdir
að velti fyrir sér nýjum viðhorfum, sem geta haft mikla
þyðingu fyrir skógræktina hér á landi i framtíðinni, ef nið-
urstöður af tilraunum verða jákvæðar.
Broddfuran á
Hallormsstað.
Fyrir fjörutíu árum kom
Flensborg hinn danski hingað
til lands með broddfurufræ,
er fengið var af háfjallasvæði
í Kóloradó í Bandaríkjunum,
sunnan af fertugasta breiddar
stigi. Var broddfuran alin
upp að Hallormssstað. og hef
ir henni aldreí hlekkzt á
þessi fjörutíu ár. Af þessu
vaknar sú spurning, hvort
unnt sé að flytja hingað trjá-.
tegundir af suðlægum breidd
arstigum, ef þau vaxa þar í há
lendi, þar sem veður er svalt
eins og hér.
Nýjar kenningar.
í þessu efnj eru nú einmitt
uppi nýjar kenningar meðal
erlendra skógræktarmanna.
Reynsla síöustu ára virðist
benda til þess, að flutningur
Munaði meiru en
fyrst var ætlað
Það hefir nú komið á dag-
inn að íslendingar hafa sigr-
að í norrænu sundkeppn-
inni með fniklu meiri yfirburð
um en fyrstu fregnir um úr-
slitin skýrðu frá. Er stigatala
íslendinga meira en helmingi
hærri en næsta lands fyrir
neðan, Finnlands. í frétt, er
blaðinu barst í gær frá lands
nefndinni segir svo:
Af skeytum sem bárust
frá Finnlandi 1. okt. s.l. um
úrslit keppninnar, varð ekki
betur skilið en að þar í
landi hefðu synt 200 metr-
ana 251874, sem gæfu 359820
stig, en nú hafa borizt glögg
ar tölur, sem sýna að 176312
Finnar syntu og fyrir þann
þátttakendafjölda fær Finn
land 251874 stig, svo að út-
koman úr keppninin er því
þessi:
ísland 36037 þátt. 540555
Finnland 176312 — 251874
Danmörk 50492 — 189345
Noregur .32904 — 137160
Svíþjóð 128035 — 128035
Fundur Framsókn-
arfélaganna
Framsóknarfélögin í
Reykjavík halda sameiginieg
an fund í Edduhúsinu næst-
komandi þriðjudagskvöld kl.
8,30{ FT’ummælandi verður
Hermann Jónasson ráðherra,
og ræðir um stjórnmálin í
landinu. Fólk sýni félags-
skírteini við innganginn. Fjöl
mennið stundvíslega.
trjáplan-na sé ekki eins mikl
um erfiðleikum burídinn og
talið hefir verið, og geti hæð-
armunur landsins, þar sem
skógurinn vex, vegið upp á
rnóti mismunandi breiddar-
stigum.
Fræ úr Alpafjöllum.
Hákon Bjarnason er nýkom
inn heim frá útlöndum, og
fór hann í þessari ferð sinni
suður til Sviss, einmitt með
þessa hluti í huga. Komst
hann að þeirri niðurstöðu, að
hátt í Ölpunum vaxi hinar
sömu jurtir og hér á landi.
Þarna aflaði hann sér trjá-
fræa, sem tilraunir verða
gerðar með hér, og verði ár-
angurinn jákvæður mætti fá|
hátt í svissnesku Ölpunum
fræ af rauðgreni, Evrópu-
lerki og zembrafuru.
Fleiri tegundir.
Kömi þaö á daginn, að upp
eldi trja af fræi úr háfjöllum
í Sviss geti líeppnast hér,
opnast nýir möguleikar um
öflun fleiri trjátegunda, er
ættu lífvænt hér. Má í þv.í
efni nefna háfjallasvæði í
Ameríku og Asíu. Myndi því
fylgja mikil fjölbreytni í teg-
undavali, ef hægt væri að
sækja þangað trjáfræ, sem
hentaði okkur.
Fyrsta Framsókn-
arvistin
Fyrsta Framsóknarvistin á
þessu hausti verður í sam-
komusalnum á Laugaveg 162
næstkomandi fimmtudags- j
dvöld kl. 8,30 stundvíslega.
Fjölbreytt skemmtiatriði.
Þar sem búast má við mikilli
aðsókn á þessa skemmtun er
fólk faeðið að panta miða
tímanlega í síma 6066.
a
Varðmonn, sem voru á
Kili í sumar, segja, að þar
hafi verið mlkið dýrðarríki.
Svo að segja sumarlangt
var þar sífellt sólskin og
kom varla skúr úr lofti.
Oft var sterkjuhiti á dag-
inn þarna innj á miðjum
öræfunum í næs'a ná-
grenni við meginjöklana.
Kabarettsýningar
fram í miðja viku
Það hefir orðið að samn-
ingum, að hin:r erlendu fjöl-
listamenn, sem sýnt hafa á
vegum sjómannadagsráðsins.
dveljj hér nokkrum dögum
lengur en upphaflega var
samið um. Áttí sýnlngum að
ljúka á morgun, en svo hefir
samizt, að sýnngar verða
framlengdar þar tll í miðri
vikunni.
Aðsókn að kabarettinum
hefir verið geysilega mikil, og
er fullvíst, að svo verður, þar
til sýningum lýkur.
Hörður Ágústsson
opnar málverka-
sýningu
Klukkan tvö í dag opnar
Hörður Ágústsson Ilistmál-
ari málverkasýningu í Lista
mannaskálanum, og verða
á henni 64 olíumálverk, auk
nokkurra teikninga. .Er
þetta í annað sinn, að Hörð
ur efnir hér til sjálfstæðr-
ar sýningar, en auk þess hef
ir hann haldið tvær sýning-
ar í París, þar sem hann
lilaut mikið lof listdómara.
Sýnngin verður opin í
ellefu daga. Ættu þeir, sem
áhuga hafa á listum, ekki
að láta hjá líða að kynna
sér verk Hr.lðar, sem talinn
er einn h.nna efnilegustu í
hópi yngstu Kstmálaranna.
Qrunsamlegur bruni
sumarhúss í fyrradag
Er sssia íkveikju að ræða?
Seint í fyrrakvöld varð fólk þess vart, aö eldur var uppi
í sumarbústað á Vatnsendahæð, en þegar slökkvMiðið kom
á vottvang, var sumarbústaðurinn alelda, og varð engu
bjargað úr honum.
Sumarbústaður þessj var
eign Hrafns Hagalín, en hafði
um skeið staðið mannlaus, og
enginn umgangur átti að
vera í honum. Hafði maður,
sem bjó þarna í grenndinni
eftirlit með bústaðnum í fjar
vist eigandans.
íkveikja af mannavöldum.
Þórður Þorsteinsson á Sæ
bóli, hreppstjóri í Kópavogs
hrepp:, vann í gær að rann-
sókn málsins, en brunj sum
arbústaðarins þykir harla
grunsamlegur. Munu ung-
I ngar hafa sézt á ferli við
sumarbústaðinn í fyrra-
kvöld, og er ekki grunlaust
um, að þeir eða aðrir óboðn-
ir gestir kunni að hafa
kve kt í honum.
Forsetinn farinn ut-
an til heilsubótar
Forseti . íslands, herra
Sveinn Björnsson, tók sér
far með m.s. Gullfossi til
Englands í dag. Fer forsetinn
utan til heilsubótar að ráði
lækna sinna.
Hermaður í þriggja
mánaða varðhald
Dómur hefir nú verið kveð-
inn upp yfir hermanni þeim,
sem beitti hníf í ryskingum í
Tjarnarkaffi i sumar. Var
hann dæmdur í 3ja mánaða
varðhald fyrir brot á hegning
arlögunum og lögreglusam-
þykkt Reykjavíkur.
Einnig hefir verið kveðinn
upp dómur vegna hermanna-
tyskinga, sem urðu á Adlon-
uar við Aðalstræti fyrr í sum-
ar. Hermaður, sem' dró þar
upp hníf, er hann beitti þó
okki, var dæmdur í 800 króna
.sekt, íslenzkur piltur, sem
þátt átti í átökunum í 500
króna sekt, og nokkrir menn
aðrir í 75 króna sekt fyrir að
neyta áfengis inni á veitinga-
staðnum.
Óskadraumur Eyrbekkinga: Ný stór-
brú á Ölfusá hjá Óseyrarnesi
Frá fréttaritara Tímans á Eyrarbakka
Það er nú draumur Eyrbekkinga, að ráðist verði í það
stórvirki að brúa Ölfusá við Óseyrarnes í framhaldi af hafn
argerðinni í Þorlákshöfn. Yrðj þá ekki nema eitthvað stund
aríjórðungsakstur frá Eyrarbakka til Þorlákshafnar.
Það er ekki að efa, að þarna
kemur brú í framtíðinni, enda
stytti brú þar til mikilla
muna leiðina frá Þorlákshöfn
austur í byggðarlögin austan
Ölfusár og auðveldaði flutn-
inga, á vörum, sem settar
verða á land í Þorlákshöfn.
Er nú að vakna hreyfing
um það á Eyrarbakka, að í
þetta verði ráðizt sem fyrst,,
þar sem um svo mikið hags- |
munamál að ræða. Þessu
máli hefir að vísu ekki verið
iireyft opinberlega fyrr en nú,
en þess verður héðan af ekki
langt að bíða, að umræður
um það hefjist.
Endurreisn Eyrarbakka.
Eyrbekkingar litu fyrst .í
stað nokkuð misjöfnum aug- I
um á hafnargerð í Þorláks- ;
höfn. En nú er viðhorf þeirra 1
gerbreytt. Kemur þar fyrst til
greina, að Þorlákshöfn er j
mjög til öryggis fyrir báta,
sem gerðir eru út frá Eyrar-
bakka, þar sem oft brimar
fljótt á vetrum. í öðru lagi
vænta þeir þess, að ný Ölfus-
árbrú við Óseyrarnes myndi
stuðla að því, að Eyrarbakki
næði aftúr fornri reisn með
styrk af hinrii nýju Þorláks-
höfn.
Sigurður Nordal
skipaður sendi-
herra í Höfn
Fyrir nokkru skýrði Tím-
inn frá þvi, að ráð ð væri, að
Bigurður Nordal prófessor
yrði sendiherra íslands í
Kaupmannahöfn. í gær, 12.
október, skipaði forseti hann
í embættið.
Kynnisför skógrækt
arfólks til Noregs
að vori
Það er nú nokkurn veg-
inn víst, að næsta vor verður
farin héðan hópferð skóg-
ræktarfólks t.I Norður-Nor-
egs. Það hefir ekki enn ver-
ið endanlega frá því geng-
ið, hvernig þessari ferð verð
ur hagað, en líklegt, að
þetta verði í samvinnu við
Fe rða skr'f st of un a, þannig
að hópum norskra ferða-
manna verði séð fyrir fari
milli landanna nyað sömu
flugvélum og flytja munu
- íslenzka skógræktairfólkið,
svo að flugferðirnar nýtist
sem bezt.
Við þessar fyrirætlanir
hef r enn sem fyrr notið
fyrirgreiðsiu sendiherra
Norðmanna hér, Torgeirs
Anderssen-Rysst.
Skógræktarfélögum lands
ins verður innan skamms
skr fað um þetta mál og
byrjað að undirbúa þátt-
töku í Noregsförinni.
Hvort liðið sigr-
ar í dag?
Knattspyrnuleikurinn, sem
fram fer i dag kl. 2 á íþrótta-
vellinum, milli úrvalsliðs
Reykjavíkúrliðanna og ís-
(Framhald á 7. síðu)