Tíminn - 14.10.1951, Blaðsíða 2
2.
TÍMINN, sunnudagiun 14. október 1951.
332. blað.
mætr
Nýju og gömlu
dansarnir
í G. T.-liúsinu í kvöld kl. 9
Aðgangur aðeins 10 kr.
ASgöngumiðar í G. T.-húsinu kl. 6,30 — Sími 3355
Jrá htífi til keiða
Utvaipið
TJtvarpið í dag:
8.30—9.00 Morgunútvarp. —
10.10 Veðurfregnir. 11.00 Messa
í Dómkirkjunnj (Kristian
Scheldrup bisfcup á Hamri í
Noregi prédikar; séra Þorgrím
ur Sigurðsson prestur á Staðar-
stað þjónar fyrir altari). 12.11
—13.11 Hádegisútvarp. 15.15 Mið
degistónleikar (plötur). 16.15
fréttaútvarp til Islendinga er-
lendis. 16.30 Veðurfregnir. 18.30
Barnatími (Þorsteinn Ö. Steph-
ensen). 19.25 Veðurfregnir. 19.
30 Tónleikar: Louis Kentner
leikur á píanó (plötur). 19.45
Auglýsingar. — 20.00 Fréttir.
20.30 Einsöngur: Guðrún Á. Sím
onar syngur; Fritz Weisshappel
leikur undir. 21.00 Tónskálda-
kvöld: Niræðisafmæli prófess-
ors Bjarna Þorsteinssonar prests
á Siglufirði. 22.00 Fréttir og
veðurfregnir. 22.05 Danslög
(plötur). — 23.30 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Fastjr liðir eins og venjulega.
20.20 Útvarpshljómsveitin: Þór-
arinn Guðmundsson stjórnar.
20.45 Um daginn og veginn (Páll
Kolka héraðslæknir). 21.10 Ein
söngur: Vladimir Rosing syngur
(plötur). 21.25 Erindi: Um starfs
íþróttir (Árni G. Eylands stjórn
arráðsfulltrúi). 21.50 Tónleikar:
Xavier Cugat og híjómsveit
hans leika <plötjir). 22.00 Frétt-
ir og veðurfregnir. 22.10 Létt
lög (plötur). 22.30 Dagskrár-
lok.
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
Hvassafell er í Aabo í Finn-
landi. Arnarfell er i Genúa. Jök
ulfell er í Guyaquil.
Ríkisskip:
Hekla var á ísafirði síðdegis
í gær á norðurleið. Esja kom til
Reykjavíkur í gærkveldi að aust
an úr hringferð. Herðubreið er
á Austfjörðum. Skjaldbreið er
á leiðinni til Reykjavíkur að
vestan og norðan. Þyrill er .í
Reykjavík. Ármann fór frá
Reykjavík í gærkvöldi til Vest-
mannaeyja.
Eimskip:
Brúarfoss er í Hull, fer þaðan
til Grimsby, Amsterdam og
Hamborgar. Dettifoss er vænt-
anlegur til Reykjavíkur kl. 18.
00 í .dag 13.10. frá Leith. Goða-
foss kom til New York 9.10. frá
Reykjavík. Gullfoss fór frá
Reykjavík kl. 12 á hádegi í dag,
13.10. til Leith og Kaupmanna
hafnar. Lagarfoss fer frá Siglu-
firði síðdegis í dag 13.10. til
Akureyrar. Reykjafoss er í Ham
borg. Selfoss er í Reykjavík.
Tröllafoss kom til New York 4.
10. frá Reykjavík. Bravo lestar
í London og Hull til Reykja-
víkur. Vatnajökull lestar í Ant
werpen 15.—16.10. til Reykja-
víkur.
Ur ýmsum. áttum
Frá ríkisráðsritara.
Bjarni Ásgeirsson, sendiherra
í Noregi, hefir eiiinig verið skip-
aður sendiherra í Póllandi í
stað Péturs Benediktssonar, er
leystur hefir verið frá því em-
bcetti.
Nýtt náttúi'ulækniiigafélag
var stofnað á Akranesi
j fimmtudaginn 11. okt. Á fund-
inum voru forseti Náttúruiækn
ingafélags Islands, Jónas lækn
ir Kristjánsson, sem flutti þar
erindi um orsakir og útrýmingu
sjúkdóma, og framkvæmda-
stjórinn, Björn L. Jónsson, veð-
urfræðingur, sem gerði grein
fyrir stefnu og starfi félagssam
takanna.
Jóhann Guðnason, bygginga-
fulltrúi, bauð gestina velkomna
og tilnefndi sem fundarstjóra
dr. Árna Árnason, héraðslækni,
og sem fundarritara Karl Helga
son, póst- og símastjóra. Lög
voru samþykt og í stjórn kosin:
Jóhann Guðnason, bygginga-
fulltrúi, (form.), Rannveig
Magnúsdóttir, frú, Björn Lárus-
son, húsasmiöameistari, Einar
Helgason, bílasmiður, og Gísli,
Guðjónsson, trésmiður. Stofn-
endur voru um 30.
íjnyndunarveikin
verður sýnd í Þjóðleikhúsinu
í kvöld í átjánda sinn. Hefir að
sókn að leiknum verið góð, og er
svo enn.
Flugferðir
Loftleiðir:
Á morgun verður flogið til Ak
ureyrar, Bíldudais, ísafjarðar,
Patreksfjarðar, Vestmanna-
eyja og Þingeyrar.
B/öð og tímarit
Útvarpsblaðið,
12. tölublað þ.á. er nýkomið
út. Flytur það m.a. dagskrá út-
varpsins frá 14. ’til 27. okt. M. a.
efnis eru í ritinu greinar um
þáttinn „Óskalög sjúklinga",
sjónvarp, þáttur er nefnist Æv-
intýrið um skynsemina, ltvæði
eftir Guðmund Frímann, kynn
ing á útvarpsefni o.m.fl. Á for-
síðu er mynd af-Blrni R. Ein-
arssyni, danshljómsveitarstjóra.
Um 120 íslenzkir
listaraenn sýna í
Listvinasalnum
Sýningu Magnúsar og Barb
öru Árnasonar lauk i fyrra-
kvöld og hafði þá staðið í 10
daga. Aðsókn var góð og 20
myndir seldust.
í dag kl. 1 hefur Listvina-
salurinn svo. aftur venjulega
starfsemi sína og verða sýnd
v|rk eftir allflesta íslenzka
listamenn, bæði málverk,
höggmyndir, vatnslita- og
svartlistarmyndir. , _
Meoal þeirra, sem eiga uppi
myndir fyrst um sinn^ eru
þessir: Ásgrímur Jónsson, Jón
Engilbérts, Jón Þorleifsson,
Jóhannes Jóhannesson, Kjart
an Guðjónsson (báðir þeir
síðastnefndu dveljast nú í
París), _ Kristín Jónsdóttir,
Kristján Davíðsson, Nína
Tryggvadóttir, Sigurður Sig-
urðsson, Skarphéðinn Har-
aldsson, Snorri Arinbjarnar,
Valtýr Pétursson og Þorvald-
ur Skúlason.
Að venju er salurinn opinn
daglega frá 1—7, en á sunnu
dögum og fimmtudögum tii
kl. 10. Aðgangur er ölium ó-
keypis. Ný tímarit liggja
frammi. *
Um næstu helgi hefst svo
sýning á nýjum myndum eft
ir Ásmund Sveinsson, og má
vænta þess, að það verði um
deildasta sýning ársins. Verða
þá sýndar nýjustu tréskurðar
myndir hans, en einnig gips-
og steinmyndir. Meðlimatala
Listvinasalarins fer dagvax-
and og er fjárhagsleg afkoma
hans óðum að komast á
traustan grunn.
Alraennur kirkju-
fundur hefst í dag
Almennur kirkjufundur
verður settur í dómkirkj-
unn; í Reykjavík klukkan tvö
í dag, að aflokinni messu-
gerð, þar sem Schelderup bisk
up frá Hamri í Noregi predik
ar. Var honum boðið hingað
á kirkjufundinn af undirbún-
ingsnefndinni
Fundurinn stendur í þrjá
daga, og verður aðallega rætt
um pre:jtakallaskipunina.
Hefjast þær umræður á morg
un og verða framsögumenn
sr. Sveinbjörn Högnason og
Gunnar Thoroddsen.
Klukkan fimm í dag messa
aðkomuprestar í öllum kirkj
um Reykjavíkur og þjóðkirkj
unni í Hafnarfirði, og klukk-
an hálf-níu flytja erindi í
Hallgrímskirkju, Helgi
Tryggvason um uppeldismál
og séra Sigurður Pálsson um
gregoríanskan tíðasöng.
Á morgun kl. fimm talar
Sf;gurb,iörn E.naSrsson próf-
essor í húsi K.F.U.M. um end
urreisn Skálholtsstaðar og
séra Sigurbjörn Á. Gíslason
um Gyðingaland, og um kvöld
ið flytur Schelderup biskup
erindi í dómkirkjunni.
Anglýsið í Tíuiamuu
Vtbreiðiii Tímaun
Her S.Þ. sækir frara
á miðvígstöðvunum
Sambandsliðsf oringj ar
herjanna í Kóreu hittust í
gær og rannsökuðu saman
hver hæfa værj fyrir þeirri á-
sökun herstjórnar norður-
hersins, að herflugvél S.Þ.
hefði ráðizt á stað einn á hlut
lausa svæðinu. Engin tilkynn
ing var gefin út um niður-
stöðu þeirrar rannsóknar, en
fulltrúarnir munu hittast aft
ur í dag og ræða þá um ýmis
fyrirkomulagsatriöi þeirra að
gerða sem nauðsynlegar eru
áður en vopnahlé kæmist á.
Brezkar og bandarískar her
sveitir sóttu nokkuð fram í
gær á miðvígstöðvunum suð-
austan Kumchon allt að
tveim km. á 22 km. langri víg
línu gegn harðri mótspyrnu.
Á austurvígstöðvunum stóðst
suðurherinn mjög hörð á-
Hlaup norðuþhersins og til
raunir til að ná hæðum þeim,
sem suðurherinn tók fyrir
nokkrum dögum á þessum
slóðum.
Fregnum ber saman um
það, að kínverskar hersveitir,
sem eru til varnar á miðvíg-
stöðvunum séu mjög vel bún-
ar og harðvítugar í bardög-
um, og betur þjálfaðar en
fyrri hersveitir. Þá er einnig
Ijóst, að kínverskar hersveit
ir leysa se meira af hólmi her
sveitir Norður-Kóreumanna
á vígstöövunum og á tveimur
þriðju hlutum hinnar 200 km.
löngu víglínu yfir þveran
skagann eiga herir S.Þ. nú
að mæta kínversku liði.
W/AVAV.V.Vft’.VAV.VV.V.V.V.V.V.V.WAVAV.V.V
\ SJÓMANNADAGS- í
KABARETTINN \
3 s ý n i n g a r í d a g
í ki. 7 og 9.15 :*
>
■: Barnasýning kl. 3 (Verð 1000) í
:■ Aðgöngumiðar frá kl. 11 I Austurbæjarbíó ^
:■ Sjómannadacfólalarettinn %
'v%VVAV.V.V.VAW.V.V.V.VAW.V.,.W.V.n%Wrt,ftí
rtV.'.V.Y.V.VV.VV.V.V.V.'.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.VV
l KNATTSPYRNA! í.
í; í dag kl. 2 leika
i; _ _ i
•; á w Akranes — s
:• ..—' & Hr (úrval) ■;
Reykjavík
:■ Þetta verður aðalleikur ársins.
(úrval)
Mótanefndin
% V
f.V.W.VV.V.V.V.V.V.VVV.V.V.V.W.V.V.VV.VW.VV.VV
«awi»lll!ltt!
Almennur borgarafundur
3BWIIIWI
XI
il
N
!!
!i
1
*• ♦*
:: Barnaverndarfélag Reykjavíkur boðar til almenns ::
i| umræðufundar i Iðnó 15. þ. m. ki. 20.30. ::
f:
Fundarefni: Siðgæðisþróunin og æskan.
:: Málshefjendur: Síra Emil Björnsson og Friðgeir :j
•• Sveinsson. j:
XX 5*
:j Fjölmennið, borgarar! Ræðið vandamálin! ::
Stjórnin
ATHYGLI
Þeirra innheimtumanna blaðsins og annarra
er stunda innheimtu blaðgjalda, sem ekki hafa
gert full skil skal vakin á því, að brýn nauðsyn
er að gera sem alla beza skil í þessum mánuði.
Látið uppgjörið ekki dragast.
Ennhelmta Tímans
Kaapið Tímanu!