Tíminn - 22.11.1951, Síða 2
TIMINN, fimmtudaginn 22. nóvember 1951.
265. blaff.
Ufvorpið
Útvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
20.20 íslenzkt mál (Bjarni Vil-
hjálmsson cand. mag.) 20.35
Tónleikar (plötur):: „Borgari
sem aðalsmaður", hljómsveitar-
verk eftir Richard Strauss (Sin-
íóníuhljómsveitin í París leik-
ur. 21.05 Skólaþátturinn (Helgi
Þorláksson kennari). 21.30 Ein-
söngur: John McCormack syng-
ur (plötur). 21.50 Upplestur: Sig
ursteinn Magnússon skólastjóri
á Ólafsfirði les frumort kvæði.
22.00' Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Sinfónískir tónleikar (plöt
ur). 22.55 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
20.30 Kvöldvaka. 20.00 Fréttir og
veðurfregnir. 22.10 „Fram á ell-
eftu stund“, saga eftir Agöthu
Christie; XII. 22.30 Tónleikar
(plötur). 23.00 Dagskrárlok.
Flugferðir
Loftleiðir:
í dag verður flogið til Akur-
eyrar og Vestmannaeyja. Á
morgun er áætlað að fljúga til
Akureyrar, Hellissands, Sauð-
árkróks, Siglufjarðar og Vest-
mannaeyja.
Hvar eru skipin?
Itikisskip:
Hekla er í Reykjavik. Esja
verður væntanlega í Gautaborg
í dag. Herðubreið fer frá Reykja
vík í kvöld austur um land til
Bakkafjarðar. Skjaldbreið var
væntanleg til Reykjavíkur í
morgun að vestán og norðan.
Þyrill er í Faxaflóa. Ármann
var í Vestmannaeyjum í gær.
Eimskip:
Brúarfoss fer frá Tálknafirði
í dag 21.11. tii Akraness og
Reykjavikur. Dettifoss fór frá
Antwerpen 19.11. til Hull og
Reykjavíkur. Goðafoss kom til
London í morgun 21.11., fer það
an til Rotterdam og Hamborg-
ar. Gullfoss kom til Reykjavík-
ur 19.11. frá Kaupmannahöfn
og Leith. Lagarfoss kom til New
York 8.11., fer þaðan 22.—23.11.
til Reykjavíkur. Reykjafoss er í
Hamborg. Selfoss kom til Reykja
víkur 19.11. frá Hull. Tröllafoss
kom til New York 19.11. frá
Reykjavík.
Blöð og tímarit
Stjörnur,
nóv. heftið er nýkomið út.
Sagt er frá hinni nýju kvik-
mynd Lofts og mýndaopna úr
henni. Kvikmyndagreinar: Nef-
ið er mitt vörumerki, segir
Jimmy Durante, Dianna Durbin
syngur vel, þegar hún er ham-
ingjusöm. Bréf frá Hollywood
og kvikmyndafréttir. Smásögu:
Hjúrunarkonan, Nafnspjaldið,
þjófur í speglinum, Góð hug-
mynd, Gestrisni, Afhjúpuð, Dað
ur, Góður eiginmaður og fram-
haldssagan Heimanmundurinn.
Smáletursgreinar: Siðir og
venjur, Gamansemi, Alþýðu-
vísur, Orð af viti, og Hann hjálp
ar mér ekki og svar til Ástrós-
ar eftir Ároru og Stirni.
Hjartaásinn,
nóv. heftiö er komið. Flytur
það að vanda skemmtisögur eft
ir innlenda og erlenda höfunda,
kvæði, lausavísur og þjóðlegan
fróðleik. Efni þessa heftis er
m.a.: Óráð, kvæði eftir Vald.
Hólm Hallstað, Klums, smásaga
eftir Indriða Þorsteinsson. Guð-
mundur Frímann ritar þátt af
Ólafi holdsveika, grein um snjó-
flóð er eftir Óiaf Stefánsson.
Gleðisagan Uppskera augna-
Mynd þessi er af einni teikningu
hins þýzka málara Hansen, sem
nú sýnir í Listamannaskálan-
um. Myndin er af teikningu
listamannsins af stúlku í ís-
lenzkum þjóðbúningi. En hinn
þýzki málari hefir tilkynnt um
myndarlega gjöf til Þjóðminja-
safnsins, sem hann afhendir
þegar sýningunni lýkur, en þaff
verður í kvöld. Um 1400 manns
hafa séð sýninguna.
bliksins er eftir Þeydal. Þýddar
Isögur: Er það ekki nóg? Starfs-
systkin, Morðið, Mannlýsing og
lögreglusagan Maðurinn við
ljóskersstaurinn. Þá er fram-
haldssagan Flóknir eru forlaga-
þræðir.
Úr ýmsum áttum
Frá forsætisráffuneytinu.
Eins og áður hefir verið til-
kynnt, dvelur forseti fslands,
herrra Sveinn Björnsson, í Eng-
landi sér til heilsubótar. Aðgerð
sú, sem á honum var gerð hinn
22. f.m. vegna stækkunar á
blöðruhálskirtli heppnaðist vel
og var forseta leyft að fara úr
sjúkrahúsi 12. þ.m. Eru góðar
vonir um, að hann sé að fullu
laus við kvilla þenna. Forseti er
væntanlegur heim fyrri hluta
desembermánaðar.
Krabbameinsfélaginu
hafa borizt eftirfarandi gjaf-
ir til kaupa á geislalækninga-
tækjunum: Skipshöfnin á Júní
frá Hafnarfirði kr. 2.900,00, Vél
smiðjan Steðji li.f. kr. 1000,00,
Björn Markússon kr. 100,00, J.J.
kr. 100,00 og Kvenfélag Njarð-
víkur kr. 1000,00.
Innilegar þakkir færi ég öll-
um gefendunum. f.h. Krabba-
meinsfélags Reykjavíkur,
Gísli Sigurbjörnsson.
Gestir í bænum.
Gunnlaugur Magnússon,
bóndi á Miðfelli í Hreppum,
Jónas Þjóðbjörnsson, bóndi á
Hóli í Staðarsveit, Kjartan Jó-
hannsson, framkvæmdastjóri á
Akureyri.
Vörn gegn gulu.
í skýringagrein undir mynd
af lækni þeim, sem hlaut Nó-
belsverðlaunin, sagði, að hann
hefði fundiö bóluefni gegn gulu.
Þetta var ekki alls kostar rétt,
þar var átt við gulu hitasótt-
ina, sem er hitabeltissjúkdóm-
ur, er berst með flugum.
Breiðfirðingafélagið.
Féiagsvist og fundur í Breið-
firðingabúð í kvöld. Sýnd verð-
ur kvikmynd frá ferðum félags-
ins um Borgarfjörð og Dali í
sumar.
Smásalar ræða
verzliinarmáliii
á fundi
Samband smásöluverzlana
efndi í fyrradag til almenns
fundar sérgreinafélaga smá-
söluverzlana, og höfðu Óskar
Norðmann og Gunnar Einars-
son prentsmiðjustjóri fram-
sögu á fundinum. Ræddi Ósk-
ar verðlags- og viðskiptamál,
en Gunnar rekstursfjárskort.
Margar samþykktir voru gerð
ar á fundinum. Krafizt var end
urskoðunar á skattalögunum og
mótmælt harðhentum inn-
heimtuaðferðum ríkisvaldsins á
opinberum gjöldum, og sérstak-
lega var mótmælt innheimtu og
álagningu söluskattsins. Fund-
urinn lýsti ánægju sinni yfir
því, að rýmkazt hefir um inn-
flutning á neyzluvörum, en á-
taldi, að bátaútvegsmönnum
hafa verið veitt víðtæk sérrétt-
indi um innflutning og ráð-
stöfun gjaldeyris gegn mótmæl
um verzlunarstéttarinnar. Yrðu
innflutningsréttindi bátaútvegs
manna framlengd taldi fundur-
inn nauðsynlegt að endui-skoða
vöruflokkana. Enn mótmælti
fundurinn því, að síðustu gild-
andi verðlagsákvæði geti skoð-
azt sem réttur grundvöllur til
að miða við vöruverð, og lýsti
yfir því, að smásalar hefðu ekki
brugðizt því trausti, er þeim var
sýnt með afnámi verðlagsá-
kvæða.
Loks lýsti fundurinn óánægju
sinni yfir því, hversu lánveiting
ar til verzlunarinnar eru tak-
markaðar, og gæti verzlunar-
stéttin af þeim sökum ekki
gegnt hlutverki sínu sem skyldi.
Finnar tapa í Ung-
verjalandi
TILKYNNING
frá landbúnaðarráðuneytinu
Vegna mikillar útbreiðslu gin- og klaufaveiki í flest
um löndum Evrópu og samkvæmt heimild í 3. gr. laga
nr. 11 frá 23. apríl 1928, um varnir gegn því, að gin-
og klaufaveiki og aðrir alidýrasjúkdómar berist til
landsins, hefir ráðuneytið ákveðið að banna fyrst um
sinn, þar til annað verður tilkynnt, allan innflutning
frá löndum Evrópu á lifandi jurtum, blómlaukum,
grænmeti og hverskonar garðávöxtum.
Laiullsi'inaðarráðiuicyíið, 21. uóv. 1951
%V.V.V.W.V,V.V.,.Y.V.V.V.V.V.V.V.V/.,.V.V.Y.,.V.W
\ Sarakvæmt kröfu
í tollstjórans
■!
.■ í Reykjavík og heimild í 4. mgr. 3. gr. laga nr. 112, 28.
I; desember 1950 verður atvinnurekstur þeirra fyrir- j
Ij tækja hér í lögsagnarumdæminu sem enn skulda
;I siiluskatt þriðja ársf jórðung 1951
■; «f> viðbót við söluskatt ársins, 1950,
Ij stöðvaður, þar til þau hafa gert full skil á hinum van j;
greidda söluskatti ásamt áföllnum dráttarvöxtum og
kostnaði. ||>
Byrjað verður að framkvæma stöðvunina fimmtu-
daginn 22. þ. m. og þurfa því þeir, sem komast vilja í
hjá stöðvun að gera full skil til tollstjóraskrifstofunnar Ij
Ij Hafnarstræti 5, nú þegar. íj
■I Lugrcg3ust|árlnii í Rvík 21. uóv. 1951 í
■; Sigurjón Sigurðsson
V.V.'.-wV.VV^V.V.V.V.V.W.V.VV.V.V.V.V.V.V.Y/.'.W
AY.V.V.V.V.V.Y.V.V.V.V.V.V.VAY.V.YAWiYAW.YA
$ ' ::
:: Odýrt ulSargarn, =:
Strengbandf
Herculesarbönd,
Tyllblúndur,
margar breiddir.
Verzlunin GRUND
Horni Klapparstígs og Laugavegar.
!■■■■■■■!
Nýlega fór fram landsleikur í
knattspyrnu milli Ungverja og
Finna í Budapest. Leikar fóru
þannig að Ungverjarnir sigruðu
með 8:0. Skoruðu þeir fjögur
mörk í hvorum hálfleik. Þessi
úrslit koma flestum mjög á ó-
vart, því litið hefir frétzt af
ungverskri knattspyrnu á und-'
anförnum árum.
Bananar
(Framhald af 1. síðu.)
í haust hefir verið unnið að
því að koma niður plöntum
í gróðurhúsið. Eiga þær að
bera ávöxt frá ágústmánuði
að sumri fram í apríl 1953.
Reynt verður af fá sem mest
af ávöxtunum og koma þeim
á markaðinn fyrir jólin, enda
þarf fólk helzt á hinum suð-
rænu aldinum að halda í
skammdeginu, þegar menn
njóta ekkj sólarljóssins.
Unnsteinn telur banana-
ræktina eiga mikla framtíð
fyrir sér hér á landi og frá
sjónarmiði garðyrkjumanna,
sé ekki verri atvinnuuvegur
að rækta þá en til dæmis tó-
mata. Er þá miðað við, að
verði þeirra sé stillt mjög í
hóf.
J
NY KOMIÐ:
MALNINGARPENSLAR
ALLAR STÆRÐIR
;
♦
l
♦
♦
♦
«
t
t
jyjjíLqmKK
H
F
t
RJÚPUR
: L U N D I
Heildsölulilrgðir hjá:
HERÐUBREIÐ
Sími 2678
♦
t
t