Tíminn - 22.11.1951, Page 7
265. blað.
TÍMIXN, fimmtudaginn 22. nóvember 1951.
7«
FlugmcEiBainiir
_ (Framhald af 1. síðu.)
leitarflokkunum frá Akureyri,
fjórir menn. Var fyrirliðinn
Karl Magnússon, járnsmiður
á Akureyri, og með honum
Tryggvi Helgason, Dúi Edvalds
son og einn Eyfirðingur,
kunnugur maður, sem þeir
höfðu fengið sér til fylgdar.
Héldu þeir nú niður að Ártúni,
eins og áður er sagt, og það-
an til Akureyrar.
Kalinn á fæti.
Þeir félagar, Viktor og Stef
án, voru orðnir allhraktir, en
bera sig þó vel. Stefán mun1
hafa kalið nokkuð á öðrum
fæti, en kalið var ekki kom-
ið fram í gærkvöldi, auk þess
sem hann er nokkuð meidd-
ur, eins og áður er sagt.
Leiðangur til að bjarga
flugvélinni.
Haldist veður gott næstu
daga, hafa þeir félagar hug
á að gera út leiðangur til
þess að bj arga flugvélinni.1
Mun helzt hugsað að fara'
með ýtu eða dráttarvél upp'
Vatnahjallaveg og freista,
þess að draga flugvélina á
sleða niður í Eyjafjörð.
Leitin frá Akureyri.
Það voru sjö leitarflokkar, er
fóru frá Akureyri klukkan
finnn í gærmorgun. Hafði Þor-
steinn Þorsteinsson skipulagt
leitina, ásamt starfsmönnum
Flugfélags íslands á Akureyíi.
Voru þrír til fimm menn í
hverjum leitarflokki. Fjórir
flokkanna fóru fram í Eyja-
fjörð, og fór Þorsteinn með þeim
fram eftir til þess, en tók ekki
þátt í sjálfri leitinni fyrir ald-
urssakir.
Þrír flokkar fóru á vestur-
fjöllin og leituðu um Gloppu-
fjall, Hörgárdalsheiði, Norður-
árdal, Öxnadalsheiði og Nýja-
bæjarfjall. Á Nýjabæjarfjall
fóru þeir Jón Sigurgeirs-
son lögregluþjónn, Vignir Guð-
mundsson og Ragnar Sigtryggs
son, og munu þeir hafa gist á
fjallinu, en koma síðan niður að
Arbæ í Austurdal í Skagafirði.
Voru þeir einir ekki komnir til
byggða í gærkvöldi. Annars voru
flestir komnir til Akureyrar,
nema flokkur sá, sem leitaði í
Djúpadal. Fór Guðmundur Guð
mundsson skíðakappi við ann-
an mann yfir í Öxnadal að
Bakkaseli en 3 félagar þeirra
munu hafa verið komnir að
Litladal, bæ neðst í Djúpadal.
Orðrómur um flugvél
yfir Þelamörk.
Áttundi leitarflokkurinn frá
Akureyri var gerður út um há-
degi, því að upp kom sú fregn,
að fólk á bæjum í Hörgárdal og
Þelamörk hefði heyrt til flug-
vélar. Leitaði þesai flokkur á
þeim slóðum, sem þessar fregn-
ir bentu helzt til. En eins og síð
ar kom á daginn, hefir flug-
vél þeirra Viktors og Stefáns
ekki verið á ferð á þessum slóð
um, né í námunda við þær.
Leitin frá Reykjavík.
Við þessa frásögn Kristófers
Vilhjálmssonar er því að bæta,
að héðan úr Reykjavík var leit
inni stjórnað af skipulagsnefnd
flugbjörgunarsveitarinnar og
flugumferðastjórn — þeim Agn
ari Koefod-Hansen, Erni John-
son og Birni Jónssyni og Sig-
fúsi Guðmundssyni. Fóru átta
flugvélar héðan að sunnan til
leitar, sex íslenzkar af Reykja-
víkurflugvelli, og tvær banda-
rískar af Keflavíkurflugvelli.
Flugu þær yfir hálendið, allt
frá suðurenda Langjökuls og
norður til Eyjafjarðar. Hafði
Ilin nýja og glæsilega farþegaafgreiðsla Eimskipafélags íslands.
Þar er vistlegt eins og myndin ber með sér.
Eimskipafélagið opnar
nýja farþegadeild
Eimskipafélag íslands opnar í dag nýja farþegadeild í
húsi sínu, þar sem áður voru verzlunarbúðir Theódórs Siems
ens og Gunnþórunnar Halldórsdóttur. Er þessi nýja far-
þegadeild mjög smekkleg, og prýðir hana meðal annars líkn
eskj af Gullfossi.
Farbegaafgreiðsla Eim-1
skipafélagsins var áður í hlið
arherbergi á annari’i hæð, en
nú skiptir mjög, er til þess-
ara nota er tekið rúmgott hús
næði, sem gengið er inn í
beint af götunni.
Húsnæðið hefir verið inn-
réttað að nýju í samræmi við
þarfir farþegadeildarinnar.
Gerðj það Árni Skúlason
eftir teikningum húsameist-
aranna Sigurðar Guðmunds-
sonar og Eiríks Einarssonar.
Hefir mjög verið til alls vand
að, svo að afgreiðsla yrði sem
smekklegust.
Tímaritið vinsæla
Vlrkið í norðri
Áskriftasími 6470 — Póst-
hólf 1063, Reykjavík.
Þorvaldnr Garðar
Kristjánsson
málflutningsskrifstofa,
Bankastræti 12.
Símar 7872 og 81588.
FEóðin
(Framhald af 8. síou.)
að straumurinn sleit trén upp,
nokkru áður en hjálparsveitin
kom á vettvang, og allt fólkið,
sem í krónunni var, hvarf í skol
gráan flauminn.
Kom heim daginn áður.
Margt af fólki því, sem bjarg-
að var, ber sig hörmulega. Einn
af þeim órólegustu var ungur
maður, sem farið hafði til
Frakklands í atvinnuleir., en
kom heim daginn sem flóðin
byrjuðu. Hann fann aldrei konu
sína eða barn. Þau fórust bæði.
Sífelld neyðaróp.
Nótt eftir nótt hafa neyðar-
óp fólks hljómað á flóðasvæð-
inu, en þoka svo dimm, að erf-
itt er að finna fólk, og mikiJl
skortur á bátum til björgunar-
starfsins. Segja leitarmenn, að
hörmulegt hafi verið á að hlýða
og geta ekki veitt hjálp.
Sjóm.ráðstefiia
(Framhald á 8. siðu.)
Línubátasjómenn.
Hvað snertir samninga um
kaup og kjör á línubátum taldi
ráðstefnan þörf á því að sam-
ræma ákvæðið um hlutatrygg-
ingar í samningunum, og yrði
tryggingin miðuð við kaup fyr-
ir átta stunda vinnu verka-
manna við fiskaðgerð. Sömuleið
is vildi ráðstefnan, að ákvæðið
um verð á aflahluta sjómanna
yrði miðað við hæsta gangverð
á fiski. Þá vildi hún að fengin
yrði full uppbót á hlutatrygg-
ingu og yröi leitað eftir sam-
komulagi við útgerðarmenn um,
að það yrði á sama grundvelli
og í samningum verkamanna
frá 21. maí 1951.
Ráðstefnunni þótti og rift
grundvelli, sem samningar urn
hlutskipti hafa frá öndverðu
byggzt á, þar sem fullvíst megi
telja, að sjómenn hafi fengið
annað og lægra verð fyrir afla
hluta sinn en útgerðarmenn
fengu með hinum svokallaða
bátagjaldeyri. Var miðstjórn
Alþýðusambandsins falið að
afla sem beztra upplýsinga um
þetta og gera þær ráðstafanir,
sem henni þættu nauðsynleg-
ar. Skyldi miðstjórnin og leita
eftir því að hafa fulltrúa við
umræður þær, sem fram kunna
að fara milli ríkisstjórnarinnar
og L.í.Ú. um ráðstafanir til að-
stoðar útveginum á komandi
vertíð.
Örygglsmál.
Ráðstefnan gerði margar sam
þykktir um öryggismál. í fyrsta
lagi skoraði hún á þingið að
samþykkja lög um hvíld háseta
á togurum við allar veiðar. í
öðru lagi, að samþykkt yrði til-
laga um réttarrannsókn á að-
draganda allra slysa, sem verða
á sjó. Enn var á það minnt, að
mörg hræðileg slys yrðu af þeim
sökum, að spil og aðrar vinnu-
vélar væru ekki nógu vel varð-
ar, og lagði áherzlu á, að tengsli
væru þannig staðsett við allar
vindur og vinnuvélar, að hægt
væri að stöðva þær fyrirvara-
laust.
í fjórða lagi krafðist ráð-
stefnan fullkomnari laga og
reglna um öryggisútbúnað skipa
og báta, svo sem skýlaus ákvæði
um talstöðvar björgunarbáta,
þar á meðal gúmmíbáta á hverju
fljótandi fari, ljóskastara og
matarforða í vatnsheldum um
búðum, og fái skip ekki haffærn
isskírteini, án fullkomins út-
búnaðar. Skal þess og gætt, að
skipverjar séu svo margir, að
ekki stafi hætta af mannfæð.
Brýndi ráðstefnan það fyrir
skipskoðunarmönnum, að gæta
þess jafnan, að allur öryggisút-
búnaður, ofan þilja og undir,
væri í lagi, svo sem lensitæki,
öryggislokur og annað.
Loks var skorað á þingið að
samþykkja þingsályktunartil-
lögu frá þingmönnum Norðlend
inga um björgunar- og eftirlits
skip fyrir Norðurlandi og frum-
varp um öryggi á vinnustöðum
með nokkrum breytingum.
Atvinnuleysi.
Sjómannaráðstefnan ræddi
um voða þann, sem stafar af
atvinnuleysi í útgerðarbæjum
víða um land, og æskti þess, að
lánsfé yrði dreift hlutfallslega
eftir stærð útgerðarstaða og inn
flutningur á varningi, sem hægt
er að framleiða í landinu, yrði
takmarkaður. Yrði fiskiðjuver-
um og smáútvegsmönnum séð
fyrir rekstursfé, svo að hægt sé
að gera vélbáta út allt árið og
fiskiðnaðurinn blómgist, nýj-
um fiskiðjuverum komið upp og
ríflegum hluta mótvirðissjóðs
varið til nýrra atvinnutækja,
bæjarútgerðum og togaraút-
gerðarmönnum séð fyrir auknu
rekstursfé, gömlu togararnir
teknir til viðgerðar og gerðir út
gerðarhæfir og iðnaður landsins
styrktur. Varað var við þvi að
flytja afla islenzku togaranna
óverkaðan úr landi.
Landhelg-ismál.
Fulltrúarnir fögnuðu komu
nýja Þórs, og fór fram á stór-
aukið björgunareftirlit og land-
helisgæzlu, og lét i ljós þá
vissu sína, að útgerðin myndi
blómgast, ef landhelgin yrði
stækkuð og firðir og flóar frið-
aðir fyrir hvers konar botnsköf
um. Hét ráðstefnan á alla að
fylgja stækkun
fram til sigurs.
IIEIHIIIItBi
I _P_»I J
hver flugvél ákveðið leitarsvæði,
sem hún athugaði gaumgæfi-
lega.
Fregnin um það, mennirn-
ir væru komnir fram. barst til
Reykjavíkur, er klukkan var
þrjá fjórðunga gengin í eitt í
gær.
Framsóknarfélag Hafnarfjarðar
2* heldur aðra
I kvöldskemnitun
‘l sína á þessum vetri í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði í
£ kvöld klukkan 8,30.
I; Til skemmtunar verður:
■2 Spiluð Framsóknarvist
■I Ræða: Skúli Guðmundsson alþm.
í DANS
;■ Venjuleg spilaverðlaun verða afhent auk þess 500
2= kr. verölaun fyrir flesta slagi á skemmtunum félags-
l' ins i vetur.
E.s. Selfoss”
fer héðan föstudaginn 23. þ.
m. til Vestur- og Norðurlands.
Viðkomustaðir:
ísaf jörður,
Siglufjörður,
Akuureyri,
Sauðárkrc’íur.
H.f. Eimskipafélag íslands
Vasaljós 1
og rafhlöður, sívöl,
flöt og tvöföld.
VELA- OG RAF-
TÆKJAVERZLUNIN,
TRYGGVAGÖTU 23.
SÍMI 81279.
BANKASTRÆTI 10.
SÍMI 6456.
Húsmæður!
Ný handsápa er komin á
markaðinn, ein af hinum
vinsælu
INO
hreinlætisvörum
Ilmurinn er einstæður
|»u. „f'v
Rafíækjavinnustofa
Þingholtstræti 21
Sími 81 556.
Raflagnir — Viðgerðir
Raflagnaefni
Ragnar Jónsson
hæstarét rarlogmaður
Laugaveg ó - Slml 7752
L8gfræð1stórt í*f eísmauití-
landlielginnar
ICIIIII
■.y.
Frimerkjaskipíi
Sendið mcr 100 íslenzk frí-
merki. Ég sendi yður um hæl
200 erlend frímerki.
J Ó N A G N A R S
Frímerkjayerzlun, -
P. O. Box 356 .Reykjavík.
Bændur!
Athugið að Sauðfjárbókin
fæst í flestum kaupfélögum.
SAUÐFJÁRBÓKIN
^ Máfahlíð 39.
Blikksmiðjan
GLÓFAXI
Hrauntcjg 14. — Sími 7236