Tíminn - 24.11.1951, Blaðsíða 6

Tíminn - 24.11.1951, Blaðsíða 6
6. TÍMIINN, íaugardaginn 24. nóvember 1951. 267. blað. Dranmagyðjan tnín | I Framúrskarandi skemmtileg l \ þýzk mynd tekin í hinum 1 | undurfögru AGFA-litum. — \ Norskir skýringartextar. Wolfgang Luhschy. Sýnd kl. 7 og 9. Slungiim sölu- maður Sprenghlægileg mynd með f Red Skelton Sýnd kl. 3 og 5. 3;*4«UUmUUUIIIMII|| ; YJA BIO Saga Hubbardfjöl- n skyldumiar I (Another Part of the Rorest) | Sterk og mikilfengleg ný am | érísk stórmynd. Frederic March Dan Duryra Ann Blyth ________ i Sýnd kl. 5, 7 og 9. | Halli í Hollywood f Grínmyndin fjöruga með = Harold Lloyd Sýnd kl. 3. Sala hefst kl. 11. f. h. BÆJARBÍO) - HAFNARFIRÐI - Kranes kaffihús 1 <'• z (Kranens Konditori) I i Hrífandi norsk stórmynd | " byggð á samnefndri skáld-1 : sögu eftir Coru Sandels, sem | nýlega er komin út í íslenzkri = þýðingu. I Aðalhlutverk: Rönnlaug Alten § Erik Hell Sýnd kl. 7 og 9. Sími 9184. ' | Útvarps viðgerðir Hadiovinnusíofan LAUGAVEG 166- M i M = [ Bergur Jónsson Málaflutningsskrifstofa Laugaveg 65. Sími 5833 Heima: Vitastig 14 Mu áeJtaV = 0uufeUi$ut% ...................................iniiiimnnrn i»mimiiimuuiiut»uinnmmiiiiiimiinmm«u»«*uiiniii I Austurbæjarbíó I IVight and day Sýnd kl. 5 og 9. Triggér yugri Sýnd kl. 3. Sala hefst kl. 11. f. h. = iiiiiiiiimiinitiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiimniiimii - : iiiiliiiiiiiiiiiiimiiiiiiimiiimuimmmnmiiiiiiiiii = |tjarnarbíö| | Söngur Stokkhólms | = (Sangen om Stockholm) | | Bráðskemmtileg sænsk | | söngva- og músíkmynd. | Aðalhlutverk: Elof Ahrle Alice Babs 1 = Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. S fiiiiiiimmrimiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiimmiiiiii - : 1111111111111111111111111111111111111 mmmmmmmiiim j (GAMLA BÍÖ( 1 Rifbein Adains | (Adams Rib) | Ný amerísk gamanmynd. Spencer Tracy Katharine Heburn Judy Holliday 1 („bezta leikkona ársins“) 1 Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. I = = Sala hefst kl. 11 f.h. (HAFNARBÍÓj | Englandsfararnir I | Spennandi og afar vel gerð i í norsk mynd um hetjudáðir á | | hernámsárunum í Noregi. | Jörn Ording | Lauritz Falk Elisabeth Bang | Sýnd kl. 5, 7 og 9. Venjulegt verð, Guðrún Brunborg [ Sonur llróa Hattar j Sýnd kl. 3. Sala hefst kl. 11 f.h. tr r Z TRIPOLI-BIO Rakari konungsins } (Monsieur Beaucaire) i | Bráðskemmtileg amerísk | : gamanmynd, með hinum | | heimsfræga gamanleikara i Bop Hope Joan Caulfield Sýnd kl. 5, 7 og 9. Auglýsingasímf f TÍMANS er 81 300. ELDURINNI gerir ekki boð á undan sér. f Þeir, sem eru hyggnir, | tryggja strax hjá 5 Samvinnutryggingum f IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIUUIUIUUI Erlent yfirlit (Franjhald af 5. síðu) síður staðreynd, að eftir fyrir skipunum hans hefir leynilög- reglan farið, er hún hefir fram kvæmt ýms illræmdustu verk sín. Beria hefir haft það orð á sér að fylgja Stalin gegnum þykkt og þunnt, en blanda sér ekki inn í valdastreitu hinna leiðtoganna. Þó hefir verið tal ið, að honum sé ekki um Molo- toff og Molotoff heldur ekki um hann. Beria er og sagður svipaðr ar skoðunar og Stalin um það, að einræðisherra Sovétríkjanna eigi ekki að vera Stór-Rússi. Af þeim ástæðum má vel vera, að hann beiti sér gegn Molotoff. Vel má lika vera, að hann hafi fyrirætlanir um aukin völd sjálfs síns, þótt hann fari dult með þær. Hann er vanastur því að flíka ekki fyrirætlunum sín um. En leggi hann sig allan fram, er ekki ólíklegt að svo geti farið, að jafnvel Molotoff verði að lúta í lægra haldi. Hvernlg á að kjósa . . . (Framhald af 4. síðu) misjöfnu myndi njóta sín langtum betur með einmenn- ingskj örsvæða-f yrir komulag- inu, en í allsherjarkosningu þeirri, sem hér er ráðgerð. Það er jafnvel auðvelt að koma í veg fyrir áróður af því tagi, sem tíðkast hér í kosningum fyrir og um kosn- ingar. — Það er t.d. auðgert að leggja bann við því, að blöð prenti fyrirmyndir af kiörseðli, sem hér er ráðgerð- úr. Ætti þá einungis að festa upp greinilegar kosningaleið- beiningar á kjörstað en hvergi annars staðar. Mætti vel svo fara að ráð finndust til að kóma í veg fyrir ýmiskonar gegndarlaus- an áróður af öðru tagi og margvíslegu, við kdsrfmgar. Væri það vel til fallið, ef kosningar til stjórnlagaþings gætu orðið „brú til betrj tíða“ í þessum efnum, gæti skapað hollar og siðlegar venjur við kosningar í stað prettvísi og hræfuglaháttar.sem einkenna oft, og einatt kosningar þing- stjórnarlandanna og ekkj sízt hér á landi, og sem víða hafa skapað slíka ótrú á lýðræði og bingræði, að það riðar til falls í mörgum löndum. (Framhald) $ , . ^ Sigge Stark: I leynum skógarinsl Þorvaldnr GarlSar Krlstjánsson málflutningsskrifstofa, Bankastræti 1.2. Símar 7872 og 81 988. aiai þjódleIkhúsið „ DÓ RI “ Sýning í kvöld kl. 20.00 „Hve gott og fagurt44 Sýning sunnudag kl. 20,00. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 13.15 til 20.00. — Sími 80000. KAFFIPANTANIR t MIÐASÖLU SÍÐDEGISHLJÓMLEIKAR í Leikhúskjallaranum sunnudaginn 25. þ.m. kl. 15,30. Einsöngur: Guðrún Á. Símonar syngur óperettu og önnur létt lög. — Fritz Weisshappel að- stoðar. — Upplestur: Brynjólf- ur Jóhannesson les kvæði. — Danshljómsveit Björns R. Ein- arssonar leikur. Aðgöngumiðar á 10,00 kr. í aðgöngumiðasölu Þjóðleikhúss- ins. 57 g aðstoðarmenn hans entust til þess að sitja kyrrir í öllum þessum ódaun. Þeir hreyfðu sig varla úr stólum sínum, fyrr en komið var langt fram á kvöld. Friðrik í Efra-Ási var ekki eins hnarreistur og hann hafði verið við fyrri réttarholdin. Hann hafði verið í gæzluvarð- haldi, og það hafði sýnilega orkað talsvert á hann. Ef til vill var hann líka farið að gruna, að verr horfði um mál hans en hann hafði upphaflega ætlað. Samt bar hann sig allvel og reyndi að bregða fyrir sig háðsglotti, er hann sá fólk stara á sig. En oft hvimuðu augu hans fram og aftur um sal- inn, og Andrés veitti því athygli, að hvað eftir annað stað- næmdust þau við bekkinn, þar sem Naómí hafði setið við fyrri réttarhöldin. Vissi hann ekki, að hún var dáin? Nýju vitnin, Janni og Fríða, voru bæði harla vandræða- leg. Þau sátu hlið við hlið, og Fríða renndi hvað eftir ann- að augunum til Janna, eins og hún vænti sér einhverrar hug- hreystingai og uppörvunar frá honum. Þegar hann var kall- aður fram til þess að bera vitni, kreppti hún fingurna ut- an um klútinn sinn og reyndi að gera sem minnst úr sér. Barnslegt andlit hennar var sótrautt. — Ja, það var nú þannig, að mömmu var aldrei um þaö gefið, að ég væri að hugsa um hana Fríðu, og þess vegna höfðum við þann sið að læðast út hvort fyrir sig og hittast í skóginum á laugardagskvöldum. Þar er þægilegur hvamm- ur, sem gott er að sitja í, rétt við stíginn heim að húsi Pét- urs Brasks. Þar er stór steinn og runnar í kring, og auðvelt að fela sig, jafnvel þótt tunglskin sé, eins og nóttina sem Eiríkur var skotinn. Við sátum þarna, Fríða og ég, og vor- um einmitt að tala um það, hvaða straumur af mönnum þetta væri sífellt að Mýri, þegar við sáum Friðrik og slátr- arann fara þarna hjá á leið þangað. Við gengum spölkorn inn í skóginn, og það var orðið áliðið, þegar við komum aft- ur í hvamminn. Við settumst samt, og ætluðum að doka dá- lítið við. Þá heyrðum við, að slátrarinn kom aftur frá Mýri, og við hlógum, því að við þóttumst vita, að hann hefði far- ið erindisleysu. Rétt á eftir kom Friðrik, og við héldum, að nú kæmu ekki fleiri, fyrr en Eiríkur færi heim. Og hann kom aldrei frá Mýri fyrr en komið var fram undir morgun. En svo fór, að við vorum þarna lengur en við höfðum upphaf- lega ætlað, því að þaö var sérstaklega fallegt og heillandi í skóginum þessa nótt, og við sáum Friörik enn einu sinni. Hann kom til baka, gekk mjög hægt og bölvaöi við og við. Aö minnsta kosti tautaði hann eitthvað fyrir munni sér. Svo heyrðist okkur líka skrjáfa í runnunum hinum megin við stíginn, en hvort það var bara Friðrik eða Pétur Brask eða einhver annar — það vitum við ekki. Við ætluðum að halda leiðar okkar, en þá heyrðum við einhvern blístra, og mér fannst ég þekkja, að þetta væri Eiríkur. Við urðum ásátt um að bíða þar til liann væri kominn hjá. En hann kom aldrei. Við þögðum og biðum átekta, og svo heyrðum við skrjáfa í laufi og runnum, og svo reið slcotið af. Aumingja Fríða kippt- ist við. Ég get ekki svarið það, en mér heyrðist eitthvað detta. Svo varð dauðaþögn litla stund, og viö biðum með öndina í hálsinum. Svo heyrðist mikið brak, eins og elgur ryddist gegnum skóg, og ég stökk upp og horfði í kringum mig. Þá kom Friðrik hlaupandi með byssu í hendinni og skimaði sitt á hvað. Ja — hann hljóp kannske ekki beinlínis, en mjög hratt gekk hann að minnsta kosti. Mér fannst ég heyra alls staðar skrjáf í runnunum, og honum hefir kann- ske virzt eitthvað svipaö. Þegar ekki heyrðist meira til Ei- ríks, fór mér að detta í hug, að eitthvað kynni að hafa gerzt, og mér datt í hug að gæta að því. En Fríða þreif í kápuna mína og sagði: Farðu ekki, sagði hún. Það er betra að vita ekki neitt. Ef eitthvað hefir komið fyrir, gætu þeir haldið að þú værir valdur að því. — Þetta hafði mér ekki dottiö í hug, og svo hröðuðum við okkur heim sem mest við mátt- um, og daginn eftir fréttum við, að Eiríkur hefði verið skot- inn í skóginum. — Hvers vegna skýrðuð þið ekki strax frá því, sem þið vissuð? — Ja — okkur fannst eins gott, að enginn vissi, að við værum að hittast í skóginum á nóttunni, ég og Fríða.... vegna mommu, sjáið þér.... Það höfðu orðið miklar svipbreytingar á Friðrik, er hann hlustaði á frásögn Janna. Þegar hann heyrði, að til hans hafði sézt þegar eftir að skotið reið af, strauk hann hend- inni um ennið, ,sem var blautt af svita, og skelfingin skein úr augum hans. Hann leit í kringum sig eins og dýr, sem

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.