Tíminn - 01.12.1951, Page 4
c.
TÍMINN, laug'ardaginn 1. desember 1951.
273. blað.
Nýtt sjálfstæðisljós
Starfsmaðurinn einn á
Skattstofu Reykjavíkur hefir
nýlega flutt fyrirlestur um
rskattamál og framkvæmd
beirra, á pólitískum flokks-
íundi hjá Sj álfstæöismönn-
um í Reykjavík. Mbl. lofsöng
xyrirlestur þennan í sterkum
tónum strax í næsta blaði. Og
:nú hefir það birt hann ásamt
iirynd af höfundi, svo mönn-
um gefist á að líta.
Hvað er það í tillögum og
málflutningi mannsins, sem
blaðinu finnst svo mikið til
im?
Höf. bendir réttilega á, að
skattar hafa hækkað hlut-
fallslega, miðað við tekjur.
,Þetta er ekkert nýtt eða ó-
eðlilegt, þegar þess er gætt,
að bæði ríkið og bæjarfélög-
ín, eru með hverju ári, sem
iíður tekin að auka starfs-
svið sín og fást við ýmsar
xramkvæmdir og félagsmála-
starfsemi, sem áður var ým-
'ist ekki þekkt eða fram-
kvæmd af einstaklingum.
Þetta er svo víðtækt, að marg
:ir þessara aðila eru þegar
byrjaðir á stórfelldum at-
vinnurekstri, sem krefst mik-
ils veltufjár en rekstraraf-
koma tvísýn.
Öllum, sem fylgjast með
þróun tímans, er þetta ijóst.
Auknar skattaálögur eru óhjá
kvæmileg afleiðing þessarar
stefnu. Enda mun reynast ó-
íramkvæmanlegt, að gera
stórstígar breytingar til
skattalækkunar, nema að end
urskoða allt rekstrarkerfi
þjóðfélagsins og reiða exina
að rótum margs þess, sem kall
aö hefir verið nýsköpun og
xramfarir síðustu ára.
Hitt er ærið viðfangsefni
og ofvaxið ýmsum, að stöðva
sig á braut skattahækkan-
anna. Eru þar nærtækust
dæmi og gleggst, aukaútsvars
hækkun Sjálfstæðismanna í
.Reykjavík á s. 1. Fer ekki vel
í munni þeirra eða Mbl., að
berja sér á brjóst yfir háum
sköttum með þá fortíð að
baki.
Ekki verður vart merkra ný
mæla í máli eða tillögum fyr-
irlesarans. Hann dregur nið-
urstöður sínar saman í 10 liði
eða boðorð og skal vikið nokkr
um orðum að þeim.
1. Samrýma tekju- og
eignaskattskipan núverandi
efnahagsmálum okkar.--------
Almenn orð, sem allir eru
alltaf sammála um, hvernig
sem verður um framkvæmd-
irnar.
2. Brýnustu nauðþurftir
verðj skattfrjálsar. — —
Sama um þetta að segja, og
þurfa Sjálfstæðismenn varla
að efa stuðning annara til
þessarar breytinga. En þá
hækkar skatturinn þeim
:mun meira á hátekju og eigna
mönnum!
3. Útsvarsstigi á tekjum og
eignum verði fastákveðin. —
— Þetta er til bóta einkum í
Reykjavík og getur orðið sjálfs
vörn skattþegnanna gegn við
bótar aukaálagningu eftir geð
pótt fárra manna. Er líkast
:sem ræðumaður sé með þessu,
*ð skjóta loku fyrir hurðir,
vo flokksmenn hans í Rvik
geti ekki endurtekið æfintýr-
ið frá sumrinu, þegar lækka
xekur í kassanum og Mbl.
bakkar!
4. Sérskattur hjóna telur
íöf. lausnarorð.----Ekkert
íV irumlegt við þetta. Hins-
/egar heilbrigð skoðun höf.
m að allar giftar konur
l . ;tl sama réttar. Fer honum
Hugldðing skattgreiðauda
þar líkt og Suðurnesjamönn-
um forðum, þegar Hákon
hafði víkkað bálið sitt:
„Þeir vildu, ef það fengi ekki
öll fjörmenni lands. Þá fengi
það alls ekki nein.“
Þetta mál, um aðskilin fjár
hag eða sérsköttum hjóna,
vekur nokkurt umtal og á-
huga ýmsra, sem hafa ekki
gerhugsaö aðstæðuna vel og
er enda ósárt um gamlar þjóð
arvenjur. Góð heimili eru
hornsteinn þjóðíélags okkar.
Góð húsfreyja og móðir leysir
þar af hendi starf, sem henni
verður aldrei ofþakkað. Það
er fjarri því að vera nokkur
þjóðarnauðsyn, að hjón séu
bæði embættismenn og taki
há laun hvort í sinu lagi. Það
hjónanna, sem betur er fallið
til þess, getur unnið að heim
ilisstörfum.
Launakjör þegnanna eru nú
miðuð við, að karlmaðurinn
hafi tekjur, sem nægi heimili
til framfærslu.
5. Að afnema óeðlileg skatt
fríðindi samvinnufélaga og á-
framhaldandi sama tal og hj á
ungum Sjálfstæðismönnum
norður á Akureyri s. 1. sumar
, um það leyti, sem ritstjóri
! Mbl. stóð á heiöarbrúninni og
sá hvaða árangur „skattfreisi
samvinnufélaganna“ hafði
I borið í ræktunarmálum Eyfirð
i inga.
| Vikði skal nánar, aö þessu
skattfrelsistali í greinarlok,
j en leiðinleg stöðnun er, þeg-
, ar greindir menn eru að
heimta tvöfaldan skatt á
samvinnumenn.
6. Almennt tal um að telja
rétt fram og refsa fyrir skatt
svik.-----Hefir heyrst fyr!
7. Ákvæði um að láta ekki
lög verka aftur fyrir sig.
8. Bollalegginar um skatt-
fríðindi við giftingu eða stofn
un mikilvægra atvinnufyrir-
tækja.-----Hver á að hengja
bjölluna á köttinn? Eða dæma
um mikilvægi hlutanna?
Skattstofan eða hvað? Ein-
hver kynni að verða sár yfir
úrskuröinum. — Ágætt að
veita nýgiftu fólki glaðninga.
En þá hækkar skattabyrðin
hjá pabba og mönnum, auk
allra gjafanna. Og riku brúð
hjónin, sem fara í nokkurra
mánaða skemmtiferð til sól-
arlanda, njóta sömu skattfríð
inda og fátæku hjónin, sem
setja heima og strita.
Ekki vandalaust að láta ljós
sitt skína!
9. Breyta framkvæmd
skatta og útsvarslaga. Fækka
framkvæmdaraðilum og
koma á fót dómstól í staö
yfirskatta- og ríkisskatta-
nefnda. — — Vafalítið má
færa ýmislegt til bóta, — eink
um ef mennirnir batna. Deila
má um hvort dómstóll er
nokkru betri en nefndin, og
lítill eðlismunur. Spor aftur
á bak, ef fækka á stigunum,
sem hafa málin til athugun
ar. — Núverandi yfirskatta-
nefndir og rikisskattanefnd
hafa marga vitleysuna lagaö,
sem undirslcattanefndir hafa
gert til breytingar á framtöl-
um manna.
10. Tekin upp innheimta
skatta og útsvara jafnóðum
og tekjurnar myndast. — —
Þessi tilhögun er tvímælalaust
til bóta, en áður kunn. -Er
þegar framkvæmd við útsvars
innheimtu í Reykjavik að
nokkru leyti og víðtekin í sum
um nágrannalöndunum.
Þegar litið er yfir þessar
niðurstöður ræðumanns, verð
ur ljóst, að fátt er þar um
nýjar leiðir. Sumt er réttilega
athugað, en annað orkar
mjög tvímælis. í inngangin-
um er tvívegis getið tveggja
alþingismanna Sjálfstæðis-
flokksins, sem vilja skipa nýja
nefnd til heildarendurskoðun
ar á skattalögunum. En ný-
lega starfaði milliþinganefnd
að þeim málum og má segja,
að þessir ungu Sjálfstæðis-
menn séu ekki mjög smeikir
við nefndafarganið, sem blöð
þeirra tala stundum um.
Seint í ræðunni er vitnað í
tillögur sambandsþings ungra
Sjálfstæðismanna, sem mjög
athyglisverðar. Og í miðjum
pistlinum er S. í. S. og sam-
vinnufélögum tekið tak út af
„skattfrelsinu.‘*
Fer nú, að skiljast hvers-
vegna Mbl. þykir mál þessa
nýja sjálfstæðisljóss svo gott.
Krafan um tvöfaldan skatt
af samvinnumönnum er ekki
ný. En það er eftirtektar vert,
að reyndari og gætnari menn
Sjálfstæðisfiokksins, hafa
hljótt um hana. Fyrir kosn-
ingar er hún aldrei nefnd í
samvinnuhéruðum landsins.
En margir Sjálfstæðismenn
virðast nú mjög halda henni
á lofti. Þeir virðast ekkert
skilja eðlj samvinnuverzlunar
og reka erindi kaupmanna og
heildsala, sem eðlilega er ekk
ert um keppinauta sína.
Samvinnumenn hvorki vilja
né þurfa nein sérréttindi. En
þeir krefjast réttar síns til
jafns við hvern annan. Megin
þorri samvinnumanna eru bú
settir í sveitum og þeir viður
kenna ekki rétt verzlunarinn-
ar, að taka af sér fé umfram
það, sem nauðsyn krefur til
verzlunarrekstursins. Nóg er
blóðtaka sveitanna síðustu
áratugina, þótt verzlunin sé
ekkj höfð að skálkaskj óli til
að draga fé úr sveitunum um
fram þörf.
. i
VoraðSkálholtsstað
Þetta er lítið ljóðakver eftir
Báru Bjargs, helgað minningu
Þórðar Daðasonar, dóttursonar
Brynjólfs biskups, og með for-
mála eftir séra Sigurbjörn Ein-
arsson.
Koma að Skálholtsstað á vor
degi hefir vakið þessi ljóð. Höf-
undinum birtast sýnir frá for-
tíðinni, eins og í leiðslu sér hún
atvik úr lífi sumra þeirra, er
hér hafa lifað og dáið, þjáðst
og glaðst, elskað og harmað. Sér
staklega birtist hermi svipur
Þórðar Daðasonar hins unga
elskulega drengs, sem misskilið
réttlæti og mannasetningar
meinuðu að njóta ástríkis göf-
ugrar móður. Saman við sýnirn
ar fléttast og að sjálfsögðu djúp
hryggð yfir niðurníðslu hins
fornfræga Skálholtsstaðar, þar
sem fátt eitt minnir framar á
forna frægð.
Á síðustu árum hefir vaknað
hjá mörgum íslendingum löng-
un til þess að rétta Skálholts-
stað við og bjarga þar því, sem
bjargað verður — eða réttara
sagt setja það i viðeigandi um-
gerð. Er ekki ólíklegt, að hinn
mikli helgiblær, sem hvílir yfir
öllum sögumenjum á Hólum í
Hjaltadal hafi gert sitt til þess
að vekja þá, sem þangað komu,
til meðvitundar um hverju hef-
ir verið glatað í Skálholti.
Vonandi tekst Skálholtsfélag
inu, sem nýlega hefir verið
(Framhald á 6. síðu)
i tilefni af orðrómi, sem hefir
komizt á kreik í tilefni af veit-
ingu dósentsembættis við heim
spekideild háskólans, hefir blað
ið aflað sér upplýsinga þeirra
hjá dr. Birni Þórólfssyni, er hér
fara á eftir:
„Dósentsembætti í íslenzku nú'
tímamáli og hagnýtri íslenzku
kennslu i heimspekideild há-
skólans var í ágústmánuði síð-
astliðnum veitt Halldóri Hall
dórssyni menntaskólakennara á
Akureyri. Embættið var veitt
samkvæmt tillögu heimspeki-
deildar.
I
Sérstök ástæða var til þess,
að þessi embættisveiting vakti
eftirtekt. Tillaga heimspeki-!
deildar í málinu virtist vera
reist á rökum, sem ekki mættu |
samrímast grundvallaratriðum
í tillögu læknadeildar háskól-1
ans um veitingu prófessorsem- J
bættis í handlækningum. í
þeirri tillögu mun það hafa
verið grundvallaratriði, að dokt J
orsnafnbót skyldi vera skilyrði
þess, að menn gætu fengið J
kennaraembætti í læknisdeild.
háskólans, og var embættið veitt
samkvæmt tillögu deildarinnar.
Halldór Halldórsson hefir
ekki doktorsnafnbót, þó mundu’
sumir telja, að hún ætti ekki
síöur að koma til greina um
veitingu embætta i heimspeki-
deild en læknadeild.
Háskáli vor, telur sig eiga sið
ferðilega réttarkröfu á því, að
embætti háskólakennara séu
veitt samkvæmt tillögum hans.
Af því leiðir, að gera verður
kröfu um það, að nokkurt sam-
ræmi sé með deildum háskól-
ans í tillögum þeirra' um em-
bættaveitingar. Þetta er mál-
efni, sem alþjóð varðar.
Við dr. Sveinn Bergsveinsson
sem báðir vorum meðal umsækj
enda um dósentsembættið í
heimspekideild, skrifuðum
menntamálaráðherra bréf dags.
10. sept. s.L og fórum þess á leit,
að birt yrði í blöðum eða út-
varpi umsögn dómnefndar, sem
skipuð var til að meta hæfi um-
sækjenda, svo og tillaga heim-
spekideildar um veitingu em-
bættisins. Töldum við, að al-
menningur ætti heimtingu á
því að geta kynnt sér málavexti,
þar sem misbrestur virtist vera
í því samræmi með deildum há-
skólans, sem æskilegt væri aö
jafnan ætti sér stað.
Menntamálaráðuneytið svar-
aði okkur með bréfi dags. 15.
okt. og fylgdi bréfinu afrit af
umsögn dómnefndar, sem ráðu
neytið heimilaði okkur að birta.
Umsögn dómnefndar gefur
þó ekki skýringu á því atriði
málsins, sem við beiddumst
skýringar á, sem sé því, hvert
mat skuli lagt á doktorsnafn-
bót, þegar um embættaveiting
ar í heimspekideild háskólans
er að ræða. Dómnefndin segir
aðeins um óprentað rit eftir
Halldór Halldórsson, „að líklegt
sé, að það yrði tekið gilt til varn
ar 'fyrir doktorsnafnbót."
Hér er þörf frekari skýringar,
ekki vegna menntamanna
einna heldur alls almennings".
Það er aúðséð á þessum upp-
lýsingum dr. Björns Þórólfsson-
ar, að heimspekideildin fer eft-
ir öðrum reglum en læknadeild
in, er líún velur í milli umsækj-
enda. Hér skal ekki lagður dóm
ur á, hvor reglan sé réttari,
regla heimspekideildarinnar
eða regla læknadeildarinnar, en
hins vegar leiðir það augljós-
lega áf þessu ósamræmi hjá há'
skóladeildunum, að veitinga-
valdið er ekki eins bundiö af
tillögum þeirra.
Starkaður.
i FYRIRLIGGJANDI:
J vatnskassaelement í jeppa.
X
Önnumst viðgerðir á alls konar vatnskössum.
Einnig nýsmíði og viðgerðir á benzíngeymum og hljóð-
deyfurum bifreiða og annarra ökutækja.
Framleiðum þakrennur og rör, einnig þakglugga.
Sent um allt land gegn póstkröfu.
Blikksmiðjan Grettir
Brautarholti 24. Símar 2406 og 7529.
V.W.VAVAVVVA\V.VAV.%W.,.VA,JW.V.V.WAVJW
( O p n u m j
í dag, 1. desemher i-
í I
á Skóðavörðustíg 4 ■:
i VERZL. MANCHESTER 1
Skólavörðustíg 4 ||
ÍV.VAVAVV.'.V.VAV.V.V.’.V.VAV.VW/AW.V.V.WÍ