Tíminn - 01.12.1951, Side 8
35. árgangur.
Reykjavík,
1. desember 1951.
273. blaS.
Stúdentar helga l.des-
ember handritamálinu
Mópganga íiáskólaborgara eftfr hádegið
Stúdentar helga í dag hátíðahöld sín baráttunni fyrir endur-
heimt hinna íslenzku handrita í dönskum söfnum. Hátíðahöldin
hefjast með guðsþjónustu í kapellu Háskólans kl. 11 f. h. Kl. 1,15
ganga stúdentar í hópgöngu frá Háskólanum niður að Alþingis-
húsi, þar sem dr. juris Einar Arnórsson flytur ræðu.
Handritin heim. i ans, sem hefst kl. 3,30 í dag.
Stúdentar hafa séð þá miklu Höskuldur Ólafsson stud. jur.
þörf, sem er á því að fylgja hand j formaður Stúdentaráðs flytur
ritamálinu fast eftir, þar sem þar ávarp og dr. phil. Einar Ól.
alltof mikil deyfð hefir verið
um það meðal þjóðarinnar.
Stúdentar hyggjast hrífa þjóð-
ina til umhugsunar og aðgerða
í þessu máli. Allir ættu að vera
sammála um þá innri fyllingu,
sem sjálfstæði íslands hlyti, ef
handritin næðust heim. Flestir
erlendir og innlendir fræðimenn
eru sammála um, að handritin
séu bezt geymd hér heima og
héðan sé þeirra starfskrafta
helzt að vænta, er mest og bezt
muni vinna að rannsóknum á
þeim.
Þess vegna er það áskorun
frá Stúdentaráði Háskólans, að
allir háskólaborgarar eldri og
yngri tjái hug sinn til þessa
máls með því að mæta allir í
hópgöngu stúdenta, sem hefst
kl. 1,15 í dag frá Háskólanum.
Haldið verður niður á Austur-
Völl og mun dr. juris Einar Arn
órsson flytja ræðu af svölum
Alþingishússins.
Fróðlegt blað um handritamálið.
í tilefni af þessum hátíðahöld
um í dag og baráttunni fyrir
endurheimt handritanna hafa
stúdentar gefið út mjög stórt
og vandað blað, þar sem margir
helztu fræðimenn þjóðarinnar
í þessum efnum hafa skrifað
merkar greinar og ritgerðir.
Þar mun vera margt það merk
asta að finna, sem um handrita
málið hefir verið ritað. Verð
blaðsins, sem er um 50 blaðsíð
ur í stóru broti, er aðeins 10,00
kr.
Fjölbrevtt hátíðahöld.
Stúdentaráð efnir til veglegr
ar samkomu í hátíðasal Háskól
Sveinsson prófessor ræðu. Strok
kvartett leikur, en síðan talar
Árni Björnsson stud. jur. Að lok
um syngur kór háskólastúdenta.
Öllum er heimill aðgangur með
an húsrúm leyfir. Um kvöldið
kl. 6,30 halda stúdentar hóf að
Hótel Borg. Þar mun Tómas
Guðmundsson skáld flytja ræðu,
kvartett háskólastúdenta syng-
ur og dr. Sigurður Þórarinsson
syngur gamanvísur.
Forseti Sýrlands
neitar að viður-
kenna ný ju stjórnina
Allt var enn í óvissu um stjórn
arbyltinguna, sem gerð var í
Sýrlandi í fyrradag. Forseti
landsins hefir neitað að viður-
kenna hina nýju stjórn herfor-
ingjanna, sem stóðu fyrir upp-
reisninni. Nokkurn veginn ró
legt var þó í landinu í gær.
*
Agætar sölur í
Bretlandi hjá
íveim togurum
Tveir íslenzkir togarar hafa
nú selt í BfStlandi fyrir af-
bragðsverð. Pétur Halldórsson
seldi í Grimsby í fyrradag,
3477 kitt fyrir 12,017 pund, en
Neptúnus í gær, 4337 kitt, fyrir
12,227 pund.
Keflvíkingur seldi einnig
afla sinn í gær, 2947 kitt fyrir
8257 pund.
Stjórn Í.R. vill engsn
blett á Kolviðarhól
Ekkl kiinniisíi. að neiK éviðmiandi Iiafi
tíerzt þar — eftsrlitsferð lögreglmtaiar
Stjóx-n Íþróttaféíags Reykjavíkur ræddi við blaðanienn í
gær um þann orðróm, sem komizt heíir á kreik um Kolviðar-
hól. Félagsstjórnin segir, að eftir þær upplýsingar, sem hún
hefir aflað sér bæði frá lögreglu og öSrum aðilum, hafi ekk-
ert gerzt þar, sem talizt geti óviðunandi fyrir staðinn, svo
kunnugt sé.
Knattspyrnunám-
a
Axel Andrésson hefir nýlokið
námskeiði í Hólaskóla. Alls voru
þátttakendur 67. Á meðan á nám
skeiðinu stóð, fór fram þann 11.
nóv. útikappleikur á milli Hóla
sveina og U. M. F. Hjalta. Jafn
tefli varð 1:1. Sama dag fór fram
í leikfimihúsinu á Hólum kapp
leikur á milli sömu aðila í
„Axelskerfinu". Hólasveinar
unnu með 150 stigum á móti
137 stigum. Námskeiðinu lauk
með kappleik sunnud. 25. nóv.
á milli Hólasveina og U. M. F.
Tindastóll, Sauðárkróki. Leikur
ínn fór svo að Hólasveinar unnu
með 6:1. Leikurinn var leikinn
prúðmannlega. — Námskeiðið
tókst í alla staði vel.
Tíðarfar var ágætt, auð jörð
og stillt og þurrt veður.
Veglegt afmælishóf
karlakórs Mývetninga
Frá fréttaritara Tímans í Mývatnssveit.
Karlakór Mývatnssveitar minntist í fyrradag þrjátíu ára
afmælis síns, en þann dag fyrir þrjátíu árum var kórinn
stofna'öur af átján Mývetningum. Hefir Jónas Helgason,
hreppstjóri á Grænavatni, verið söngstjóri öll þessi ár, en
auk hans starfar einn í kórnum, annar stofnendanna,
Kristján Jónsson, bóndi á Litlu-Strönd.
Það hefir ekki ennþá vei’ið
staðfest, hver óskaö'l eftirlits-
ferðar lögreglunnar á dögun-
um, og hefir lögreglustjóri
ekki gefið félaginU aðrar upp-
lýsingar um það en þar hafi
verið um almenna eftirlits-
ferð verið að ræða.
Þegar lögreglan kom þang-
að klukkan að gánga þrjú um
nóttina, voru fimm stúikur
þar, tvær seytjári ára, en hin-
ar eidri, og vaf ein þeirra
amerískur ríkisböfgari. Engir
hermenn voru þá meö þeim
þar, en 8 eða 9 gfstú þar þessa
nótt og voru gengnir til náða.
Hafa aldrei fengið gist-
ingu með hermönrium.
Stúlkurnar höfðu komiö
með hermönnunum eða um
svipað leyti og þeir og setið
í veitingasal gistihússins, þar
tl hermennirnir fóru í svefn-
skála, en stúlkurnar fóru að
sjá sér fyrir fari til Reykja-
víkur. Lögreglan hjálpaði
stúlkunum til bæjarins, en
bifreið kom að sækj a her-
mennina morguninn eftir,
eins og ráð hafði verið fyrir
gert. _ r
Stjórn ÍR og gestgjafinn á
Kolviðarhólj segja, að aldrei
hafi komið til mála, að her-
menn fengju þar .gistingu, á-
samt íslenzkum stúlkum.
Miklar loftorustur
í Kóreu
Geysimiklar loftorustur voru
háðar yfir Norður-Kóreu í gær
og talið er, að 10 fiugvélar norð
urhersins, þar af 6 léttar
sprengjuflugvélar hafi verið
skotnar niður. Her S. Þ. gerði
harðar árásir skammt frá Shor
won en þeim var hrundið. Flug
menn S. Þ. segja, að um 8 þús.
flutningavagnar hafi sést á veg
um Norður-Kóreu á leið suður
til vígstöðvanna og hafi svo mikl
ir herflutningar ekki sést þar
lengi. Flugvélum norðurhersins
fjölgar og í sífellu.
Hvetur til útflutn-
ings
Merk rit frá Leiftri
á jólamarkaðinn
Leiftur er meðal þeirra bókaútgáfufyrirtækja, sem jafnan
hafa vandað val útgáfubóka sinna, og mun það enn í haust gefa
út merk rit.
H. C. Andersen í þýðingu
Björgúlfs Ólafssonar.
Þegar eru komin í bókabúðir
Ævintýri og sögur H. C. Ander
sens í nýrri þýðingu Björgúlfs
Ólafssonar læknis, sem kunnur
er fyrir bækur sínar um dvöl
sína í Austurlöndum. Er þetta
mikil bók, nær hálft fimmta
hundrað síður í stóru broti, og
prýtt ágætum teikningum, sem
gert hefir Þórdís Tryggvadóttir
Magnússsonar. Hafa allir aðilar,
þýðandi, teiknari og útgefandi,
mjög vandað til verks síns. —
Þetta er aðeins fyrsta bindi.
íslenzkar þjóðsögur og ævintýri.
Innan skamms kemur einnig
önnur útgáfa af íslenzkum þjóð
sögum og ævintýrum, sem dr.
Einar Ól. Sveinsson hefir tekið
saman. Er þessi útgáfa prýdd
mörgum myndum, gerðum af ís
lenzkum listamönnum, Ásgrími
Jónssyni, Einari Jónssyni, Guð
mundi Thorsteinsson, Halldóri
Péturssyni, Jóhannesi Kjarval,
Kristni Péturssyni og Tryggva
Magnússyni. Er þetta i alla staði
mjög falleg útgáfa, sem hæfir
vel efninu.
Unglingabók.
Ein unglingabók kemur líka
bráðum frá þessu forlagi, Ferð
ir Gúllivers um ókunn lönd,
þýdd af Ævari Kvaran og Ólafi
Halldórssyni. Þessi hók er einn
ig prýdd teíkningum.
Kórinn efndi í fyrradag til
samsöngs í Hótel Reynihlíð,
og voru á söngskránni lög,
sem kórinn hefir æft á ýms-
um tímum frá stofnun hans.
Hóf að Hótel Reykjahlíð.
Að loknum samsöngnum
bauð kórinn öllum gestum til
hófs að Hótel Reykjahlíð. —
Stýrði því Þráinn Þórisson
skólastjóri, formaður kórsins.
Voru þar ræöuhöld, söngur
og annar gleðskapur.
Meðal boðsgestanna voru
gamlir félagar, sem nú eiga
heima f. Húsavík og Akureyri.
Margar kveðjur bárust, meðal
annars mjög vegleg blóma-
karfa frá karlakórnum Geysi
á Akureyri.
Var þetta hin fjörugasta
og skemmtilegasta samkoma.
205 lög æfð.
Karlakór Mývatnssveitar
liefir alls æft 205 lög á þess-
um þrjátíu árum, og hafa ver
ið í honum sjötíu Mývetning-
ar. Eru nú sex þeirra látnir,
en 21 fluttur brott. Nú eru í
kórnum 28 menn.
Þýzkt skip í hættu
við Noregsströnd
Þýzka vélskipið Achen með 12
manna áhöfn var í hættu statt
fimm mílur undan vesturströnd
Noregs í gærkveldi. Norska drátt
arskipið Salvator var með það
í drætti í gær vegna vélbilunar
á leið til hafnar, en í gærkveldi
um kl. 19 slitnaði þýzka skipið
aftan úr og hvarf í þokuna, svo
að dráttarskipið íann það ekki
aftur.
Stjórn Kaupfélags Þingeyinga
er hefir mjög mikil viðskpiti
hélt fund á Húsavík á mánudag
inn og gerði svolátandi sam-
þykkt um útflutning íslenzks
dilkakjöts:
„Að gefnu tilefni lýsir félags
stjórn Kaupfélags Þingeyinga
yfir þvi, að hún telur nægilegt
kjötmagn fyrir hendi til neyzlu
innanlands þó mestur hluti þess
dilkakjöts, sem eftir er í landinu,
sé seldur á erlendum markaði.
Ennfremur lítur stjórn K. Þ.
svo á að ölluni stéttum þeri að
sýna þann þegnskap að hlynna
sem mest að opnun hins nýja
kjötmarkaðs í Ámeríku, sem er
lífsnauðsyn fyrir framtíð land
búnaðarins og gjaldeyrisöflun
þjóðarinnar.
Fyrir því skorar stjórn Kaup
félags Þingeyinga eindregið á
ríkisstjórnina að leyfa hiklaust
útflutning á því magni dilka-
kjöts, sem S. í. S. hefir farið
fram á að fá að flytja á Banda-
ríkjamarkaö“.
Innbrot framin að degi
til - þrjá daga í röð
í gær var brotizt iiin í mannlausa íbúð við Sólvallagötn,
og öllu umturnað í henni í Ieit að peningum. Voru skápar
opnaðir og skúffur dregnar út og öliu dreift um gólfin,
myndir rifnar úr albúmum og margs konar hlutum tvístr-
að á víð og dreif. —
Eldhúsgluggi hafði verið
opnaður og farið inn um
hann, meðan húsmóðir
skrapp frá og var úti svo sem
tvo klukkutíma.
Þriðji dagurinn í röð.
Þetta er þriðji dagurinn í
röð, að innbrot er framið í
Reykjavík, meðan enn er dags
birta. í fyrradag var brotizt
inn í íbúð við Njálsgötu, hurð
ir sprengdar upp og skápar
og stolið ýmsu smálegu. Á
miövikudaginn var brotizt
inn í búð að Lækjargötu 6A
um hádegisbilið og stoliö þar
200 krónum.