Tíminn - 29.12.1951, Page 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur 1 Edduhúsi
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðsh ími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
35. árgangur.
Reykjavík, laugardaginn 29. desember 1951.
295. blaff.
Stofnun menntaskóla að Laugar-
vatni lögfest með fjárveitingu
Siiíisí* í ái*íilangi*i baráttia fyrir stofnnn
menntaskóla I sveit liér á landi
Við þriðju umræðu og afgreiðslu fjárlaganna á föstu-
dagsnóttina fyrir jólin var samþykkt fjárveiting til mennta-
skóla að Laugarvatni, og þótt fjárveiting þessi væri ekki
mikil, er þar um að ræða eitthvert merkasta sporið, sem
stigið hefir verið í íslenzkum skólamáium síðustu áratug-
ina, stofnun menntaskóla í sveit.
Afgreiðsla f járhags-
áætlunar Reykja-
víkur
Síðari umræða um fjár-
hagsáætlun Reykjavikur-
borgar fyrir næsta ár fór
fram á bæjarstjórnarfundi í
gærkvöldi og nótt. Breyting
artillögur Þórðar Björnsson
ar bæjarfulltrúa við fjár-
hagsáætlun Sjálfstæðis-
meirihlutans og framsögu-
ræða sú, sem hann flutti í
upphafi umræðnanna í gær-
kvöldi, birtast á öðrum stað
í-blaðinu í dag.
Við því var búizt í gær-
kvöldi, að afgreiðslu fjár-
liagsáætlunarinnar lyki síð-
ari hluta nætur.
Fjárhagsáætlun Ak-
ureyrarkaupstaðar
Til Tímans frá Akureyri.
Á bæjarstjórnarfundi í gær
var lögð fram og rædd fjárhags
áætlun bæjarins fyrir næsta ár.
Er þar gert ráð fyrir tekjum og
gjöldum bæjarsjóðs, sem nema
10.26 milljónum króna. Af þess
ari upphæð eru áætluð útsvör
8.26 milljónir króna.. Gera má
ráð fyrir, að fjárhagsáætlunin
taki einhverjum breytingum í
meðferð bæjarstjórnarinnar, áð
ur en hún hlýtur endanlega sam
þykkt. í gær var einnig lagt fyr
ir álit frá sparnaðarnefnd bæj
arins, sem skipuð var fyrstu
dagana í nóvember og hefir lok
ið starfi sínu eftir mikla vinnu
og athuganir. Leggur hún til
margháttaðan sparnað í rekstri
bæjarins og bætt fyrirkomulag á
ýmsum sviðum bæjarreksturs-
ins.
Þýzkri messu
útvarpað
Klukkan tvö á morgun
verður útvarpað þýzkri
messu, sem fram fór í dóm-
kirkjunni í Reykjavík á Þor-
láksmessu, og var þá tekin á
stálþráð. Einnig verður út-
varpað helgileik þeim, er leik
inn var í sambandi við at-
höfnina.
í lögum um menntaskóla
er svo kveðið á, að mennta-
skóla í sveit skuli stofna, þeg-
ar alþingi veiti fé til þess á
fjárlögum. |
Við þriðju umræðu fjárlag- 1
anna var svo samþykkt til-1
laga meirihluta fjárveitinga- ,
nefndar um 100 þús. kr. fjár-
veitingu til menntaskóla á'
Laugarvatni. Tekur þar með
g'ildi það ákvæði fræðslulag-
anna, að stofnaður verði
menntaskóli í sveit.
Sigur í langri baráttu.
Eins og kunnugt er, er
þetta sigur í langri baráttu
þeirra manna, sem hafa tal-
ið það brýna nauðsyn og
sjálfsagt menningarmál, að
| stofnaður yrði menntaskóli
í sveit. Hefir það verið bar-
áttumál Framsólcnarflokks-
ins um árabil. En mestan og
giftudrýgstan skerf ein-
stakra manna að þessu máli
á þó Bjarni Bjarnason skóla
stjóri að Laugarvatni, sem
hefir með langri og þraut-
seigri baráttu unnið að mál-
inu, ekki sízt með því að
sýna og sanna á undanförn-
um árum kosti og yfirburði
þess að stunda menntaskóla-
nám í sveit.
Hann réðst í það að hef ja
menntaskólakennslu að
Laugarvatni við hinar erfið-
ustu aðstæður og nauman
stuðning en árangurinn hef-
ir orðið glæsilegri en
fremstu vonir stóðu til.
Mænnveikin ekki
breiðzt úí í
Borgaríirði
Börnin á Grund í Skorra-
dal. sem fengu mænuveikina,
eru nú öll oröin jafngóð.sagði
héraðslæknirinn á Kleppjárns
reykjum við blaðið í gær. —
Veikin hefir ekki breiðzt út
frá Grund og hvergi orðiö
vart annars staðar í hérað-
inu. —
Undanfarna daga hafa stúdentar í Kairó verið allaðsóps-
miklir og farið kröfugöngur miklar gegn Bretum. Hefir lög-
reglan orðiö að nota skotvopn og táragas. Æðri skólum í
borginni hefir verið lokað um sinn, og borgin lýst í neyðar-
ástand næstu dægur meðan kyrrð er að komast á aftur. —
Myndin sýnir stúdenta í kröfugöngu gegn Bretum í Kairó.
Fullsetinn mennta-
skólabekkur.
Að Laugarvatni er nú full-
setinn einn bekkur nem-
enda við menntaskólanám,
auk þeirra, sem eru þar aö
ljúka námi efri bekkja
menntaskóla og hafa stund-
að þar njenhtaskólanám und
anfarin ár. Af því brautryöj-
andastarfi, sem málinu hefir
verið unnið að I.augarvatni,
kom að sjálfsögðu ekki ann-
ar staður til greina um stofn
un menntaskóla í sveit að svo
komnu máli.
Þótt fjárveiting sú, sem nú
hefir fengizt, sé ekki há og
hrökkvi ekki langt til rekstr-
ar menntaskóla, mun hún
nægja til að standa straum
af þeirri kennslu, sem fram
j fer á þessu skólaári og próf-
jum í vor. En aðalatriðið í
' sambandi við afgreiðslu máls-
jins er sú viljayfirlýsing lög-
^ gjafarþingsins, sem í henni
j felst, um stofnun mennta-
skóla að Laugarvatni.
Héraðslýsing Þing-
eyjarsýslu í útgáfu
Aðalfundur Þingeyingafé-
lagsins í Reykjavík var hald-
inn síðast í nóv. Guðmundur
V. Hjálmarsson, fráfarandi
formaður félagsins flutti
skýrslu stjórnarinnar. Starf-
semi . félagsins Iialði verið
með líku sniði og áður. Fé-
lagsmönnum hafði fjölgað
allmikið á árinu, og í félagið
gengu 51 maður á fundinum.
Af störfum á árinu er helzt
að geta skógræktarstarfsins i
Heiðmörk, þar sem félagið
hefir land til umráða. Þátt-
taka í skógræktarferðum fé-
lagsins var góð og voru alls
gróðursettar nær þrjú þúsund
plöntur í landinu, og voru
255 þeirra gjöf frá Kristjáni
Jakobssyni, formanni skóg-
ræktarnefndarinnar.
Sögunefnd félagsins, sem
sér um útgáfu á ritsafni' einn hásetanna hjó til hennar með.
Þingeyinga, sem út eru kom- ' ....s
in tvö bindi af, eftir þá dr. i 1 ræ 1
Björn Sigfússon og Indriða! Fólkið mun hafa verið
Þórkelssonar á Fjalli, vinnur mjög drukkiö, og kom snögg-
nú að næsta bindi. Verður lega til misklíðar milli kon-
þaö héraðslýsing eftir Jón unnar og háseta, sem hún var
Sigurðsson á Yztafelli. Er bók að drekka með, Stefáns Jó-
sú nú í prentun. Veröur það hanns Valdimarssonar að
mikið rit og vandað, prýtt nafni. Þreif hann búrsax og
fjölda mynda. Má vænta út- hjó-til konunnar, og kom högg
komu þess á næsta vori. ið á hökuna og neðri vörina.
Drukkin kona höggvin
í andlitiö meö saxi
Aðfaranótt 5. desember gerðist sá atburður um borð í
varðskipinu Óðni, sem lá þá í Reykjavíkurhöfn, að kona, er
þar var stödd, hlaut mikinn áverka á andlit af eggjárni, sem
Formaður félagsins var kos-
inn Barði Friðriksson, lögfræð
(Framhald á 7. síðu)
Hljóp þá á milli annar mað-
ur, sem nærstaddur var, og
(Framhald á 7. síðu)
Skaddsöist í andiiti,
er bílbaröi sprakk
Það slys varð um tvöleytið í gær, að gúmmíbarði á bifreið
sprakk, er maður var að dæla í hann lofti, og þeyttist úr
barðanum framan í hann og skaddaði hann mikið I andliti.
Þessi atburður gerðist við
Borgartún 7, en maður sá,
sem slasaðist með þessum ó-
venjulega hætti, var Jón
Andrésson, Álfhólsvegi 7.
Leitað var til lögreglunn-
ar um aöstoð og kom hún á
vettvang. Var maðurinn flutt
ur í Landspítalann, þar sem
hann liggur nú af völdum á-
verka þess., sem hann hlaut.
Jólatrésfagnaður og
alraenn sarakoraa
Frarasóknarfélags
kvenna í Reykjavík
Eins og áður hefir verið
getið hér í blaðinu, efnir
Framsóknarfélag kvenna í
Reykjavík til jólatrésfagn-
aðar fyrir börn fimmtudag-
inn 3. janúar kl. 3 e. h. í
Breiðf irðingabúð. Eins og
venjulega mun jólasveinn-
inn svo líta inn og ræða við
börnin. Aðgöngumiða þarf
að panta sein fyrst í síma
6066 og þar er hægt að fá
allar upplýsingar
Um kvöldið verður svo al-
menn samkoma fyrir full-
orðna. Meðal annars
skemmtiatriði verður að frú
Guðmunda Elíasdóttir óperu
söngkona syngur. Þá verð-
ur dansað. Framsóknarmenn
og aðrir velunnarar flokks-
ins munu fjölmenna á þessa
myndarlegu samkomu.