Tíminn - 05.01.1952, Síða 1
36. árgangur.
Reykjavík, laugardaginn 5. janúar 1952.
3. blaff.
íslenzkur vélbátur
með bilaða vél
við Englaad
Skömmu fyrir jól var vél-
báturinn Ingvar GuSjónsson
frá Sigluíirði, sem er hátt á j
annað hundrað lestir að stærð 1
á leið frá Sviþjóð til Bret-
lands, þar sem hann ætlaði
að taka kolafarm til íslands.
Þegar komið var undir
Englandsströnd bilaöi vél
bátsins, svo að hann komst
ekki hjálparlaust til lands. j
Hefir báturinn síðan verið (
1 Englandi vegna vélabilunar, j
og er búizt við aö viögerðin ,
mundi taka um mánaðartíma. |
Skipstjóri á bátnum er Barði
Barðason frá Siglufirði, kunn
ur síldveiðimaður, en áhöfnin
annars siglfirzk.
Einn bátur byrjað-
ur í Hafnarfirði
Róðrar eru nú um það bil að
liefjast frá Hafnarfirði. Einn
bátur, Hafbjörg, reri fyrsta róð
urinn í íyrradag og kom að
landi með 10 skippund af góð-
um fiski. Báturinn lagði lín-
una um tveggja tíma siglingu
út af Skaga,.
Bátar eru almennt að búast
til róðra í Hafnarfirði. Verða
þar að þessu sinni nokkrir að-
komubátar, eins og áður. Er
vitað um tvo frá Neskaupstað,
Björg og Draupni, og Grenivík-
urbátana tvo, er reru þaðan í
fyrra, Von og Vörð.
í sambandi við frétt í blaðinu
frá Akranesi í gær, skal það
hér tekið fram og leiðrétt, að
Akurnesingar eru ekki þeir
fyrstu, sem taka upp að hafa
matsveina á vertíðarbátunum.
Hefir sá háttur verið hafður á í
Hafnarfirði í nokkur ár og gef-
izt vel, enda varla annað hægt,
þegar róið er með lengstu línu,
enda má þá engan tíma missa,
ef ekki á að sleppa róðrum.
Geta sjómenn þá með engu
móti komizt heim í milli róðra.
Góðar samgöngur
við Hérað
Færð er nú allsæmileg frá
Reyðarfirði um Fagradal upp á
Hérað. Ér ekiö á stórum flutn-
ingabílum og jeppum eft-ir götu
slóða, sem gerður var fyrir all-
löngu yfir dalinn. Hins vegar
er búið að ryðja með snjóýtu af
vegi á lágiendi og upp fyrir
Grænafell.
Hafa ailmiklir fólksflutning-
ar verið þessa leið yfir hátíðarn
ar. Þykir mönnum eystra mikill
munur á vetrinum frá í fyrra, er
allt var ófært og haglaust. Nú
eru hins vegar góðir hagar fyrir
sauðfé víðast hvar.
SIGLFIRÐINGAR GRAMIR:
Meinað að útvarpa ný-
ársmessu prests síns
Jól og áramót voru haldin í SiglufirÖi með miklum hátíða
brag að þessu sinni og gerði hið fagra vetrarveður um há-
tíðarnar sitt til þess að gera þær eftirminnilegar. Snjór er
yfir öllu, en stillur og góð færð eftir þeim götum.'sem rudd
ar hafa verið. í tilefni af komu hins nýja sóknarprests hugð
ust Siglfirðingar útvarpa nýársmessu um talstöð, en leyfi
fékkst ekki til þess hjá öðrum þeim aðila er sækja varð
undir.
Full kirkja um hverja
messu.
GuöþjónusUir voru haldn-
ar í Siglufirði á hverjum
degi hátíðanna, og var kirkj-
an jafnan fullskipuð, og kom
ust stundum ekki allir kirkju
gestir inn. Voru þetta fyrstu
stórhátíðarnar, sem hinn
nýi prestur Siglfirðinga,
Kristján Róbertsson, starfar
þar. Var gerður mjög góður
rómur að ræðum hins nýja
kennimanns.
Siglfirðingar ætluðu að
caka upp þá nýbreytni á ný-
‘ársdag að útvarpa guðsþjón-
Diana cv itobalind eru brcíkar tvíburasystur, sem eru heims-
frægir borðtennisleikarar og heimsmeistarar í greininni sem
stendur. Þær voru nýlega á ferð í Stokkhólmi og sýndu þá m.a. j ustunni, svo að gamalt fólk,
konungsfjölskyldunni listir sinar. Það er Díana, sem sést hér slá 1 sj úkt Og lasburða, sem ekki
knöttinn. Konungsbörnin horfa hugfangin á.
Mikiir samgönguerfiö-
leikar í Rangárþingi
Övenjulega mikill snjúi' í liéraðiuu
Einkafrétt Tímans úr Holtum
Miklar samgöngutruflanir hafa orðið hér í Rangárþingi,
eins og víðar á Suðurlandi, vegna snjóalaga, og bifreiöar-
stjórum reynzt harla örðugt að brjótast áfram í ófærðinni.
í fyrradag voru þrjár ýtur að ryðja snjó af þjóðvegum frá
Þjórsá og austur yfir, en í fyrrinótt fyllti slóðina aftur, svo
að hálfu verra var en fyrr.
. 40 á leið austan úr Vík.
Snjóruðmngurinn j j gær var fjörutívi manns á
sækist seint. leið austan úr Vík í Mýrdal í
Ein af þremur ýtunum bil- bifreiðum. Var það þriðji
aði í fyrradag, en snemma i ferðadagurinn. Fyrstu nótt-
gærmorgun var aftur hafizt jna varð ekki komizt lengra i varpa guðsorði á helgum
degi. En svo er þó ekki. Stjórn
mál og hreppapólitík virðist
þar vera í hærra veldi.
kemst að heiman, geti notið
guðsþjónustu frá kirkju sinni
í Siglufirði og kynnzt þannig
hinum nýja presti. Þetta
reyndist þó ekki unnt, og olli
það miklum vonbrigðum og
óánægju.
Stjórnmálaumræður
leyfðar, en ekki messa.
Eins og kunnugt er hefir út
varpið einkarétt á útvarps-
sendingum hér á landi, þegar
frá er tekin talstöðvanotkun,
sem landsíminn hefir umsjón
með. En nú er það svo, að
fyrir kosningar hefir verið
leyft að útvarpa innanháraðs
umræðum um stjórnmál í
mörgum kaupstöðum hér á
landi, og hefir ekkert verið á
móti slíku haft.
Var það því engin goðgá,
er Siglfirðingar létu sér detta
það í hug, aö eins mætti út-
Annar leyfði, hinn
neitaði.
i Þurftu Siglfirðingar að
sækja um leyfi fyrir nýárs-
messunni til tveggja aðila.
Útvarpsstjóri leyfði fúslega
og strax fyrir sitt leyti, að út-
varpið færi fram, en þegar
kom til símamálastjórnarinn
ar, strandaði málið og komst
ekki fram.
I Vera má, þótt ekki viti
menn það í Siglufirði, að slíkt
stuttbylgjuútvarp kunni að
'hafa truflandi áhrif á þjón-
ustu talstöðvanna fyrir skip
og báta. En ef svo er, þá er
heldur ólíklegt frá leikmanns
sjónarmiði séð, að kristindóm
urinn hafi þar skaðlegri á-
hrif til truflunar en þrætur
um stjórnmál og hreppapóli-
tík.
Aldraður maður finnst
bráðkvaddur á götu
handa með hinar tvær að en ag skarðshlið undir Eyja-
ryðja burt snjó, sem skafið fjöllum, og í fyrrinótt var gist
hafði í slóðina um nóttina. a Hellu.
Önnur lagði af stað frá Hár- ----------------------------;---
laugsstöðum klukkan fjogur
í gærmorgun, og komst hún
um eittleytið út að Þjórsá,
rösklega f’mm kílómetra leið.
Hin fór frá Hellu um sexleyt-
ið, og var hún ekki komin að
Rauðalæk fyrr en um klukk-
an eitt, 3 kílómetra leið. 1 Snemma í gærmorgun fannst 68 ára gamall maður, Niels
i Samt var þess vænzt, að Pedersen, til heimilis að Máfahlíð 9, örcndur skammt frá
unnt yrði að gera færtaustur mótum Lönguhlíðar og Máfahlíðar. Krufning hefir ekki far
a H\ols\cll i gc.„i-^vcldi. ið fram enn, en allar likur þykja til, að maðurinn hafi dáið
i af lijartabilun.
Ferðafólk flutt j Níels Pedersen var mjög
a ytum. heilsubilaður og hjartaveill,
I Allir hliðarvegir í héraðinu og það er álitið, að hann hafi
, eru ófærir með öllu, og ferða verið að flýta sér til þess að
fólk úr Holtum og Landsveit, ná í strætisvagn, en ekki þol
er nauðsynlega þurfti að kom að áreynsluna. Hann hafði
ast vestur, brauzt fótgang- fyrir sex vikum verið skorinn
andi í ófærðinni að þjóðveg- upp við botnlangabólgu, en
inum, en var siðan flutt á ýt þar eð sáriö greri treglega,
um út að Þjórsárbrú, þar sem fór hann við og við snemma
bifreið beiö þess. að morgni dags til þess að
láta skipta um umbúðir í
sjúkrahúsi. Er búizt viö, að
hann hafi verið aö fara að
heiman í þeim erindagerð-
um í þetta sinn.
Það eru einmitt þó nokkui
dæmi um það, að hjartabilað
fólk hafi orðið bráðkvatt á
götum úti, er það hefir verið
að flýta sér að ná strætis-
vagni.
Afmælishátíð U.M.F.
Staðarsveitar
Frá fréttaritara Tím-
ans í Staðarsveit.
Þriðja dag jóla hélt Ung-
mennafélag Staðarsveitar
samkomu til þess að minnast
40 ára afmælis síns. Var sam
koman haldin í f-élagsheimili
sveitarinnar að Görðum, og
hófst með guðþjónustu, sem
séra Þorgrímur Sigurðsson að
Staðarstað flutti. Kirkjukór
Staðarstaðarsóknar söng.
Þá fóru fram ýms skemmti
atriði — upplestur, kvartet.t-
söngur og samfeld dagskrá,
þar sem fléttaö var inn ýms-
um þáttum úr starfi félags-
ins á liönum fjörutiu árum.
Félaginu barst mikill fjöldi
skeyta, og sömuleiðis voru
flutt ávörp, bæði í bundnu og
óbundnu máli. Margt gam-
alla félaga sótti afmælisfagn
aðinn, sumir langt aö. Var
samkoman fjölmenn og fór
hið bezta fram.
Fyrsti formaöur félagsins
var Eiríkur Sigurðsson, nú
bóndi í Gröf í Breiðuvík, en
núverandi formaður er Þórð-
ur Gíslason, kennari, Ölkeldu
II í Staðarsveit.
Ungmennafélag Staðar-
tveitar hefir látið mörg á-
hugamál til sín taka fyrr og
síðar, og á merka sögu að
baki, enda óskabarn sinnar
sveitar.
Þess er líka vænzt, að það
, eigi eftir að marka spor í
| framfaramálum sveitarinn-
lar.
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur í Edduhúsi
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslc Imi 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda