Tíminn - 05.01.1952, Blaðsíða 8
„ERLENT YFIRIir“ 1DAG:
Semja Bretar við Egypta
36. árgangur.
Reykjavík,
S. janúar 1952.
3. blað.
_._L/
Útvegsmenn vilfa miða
fiskverðið við 1,50 á
kg. af siægðum þorski
Með því að samkomulag' lieíir náðst við ríkisstjórnina um að
framlengja hátagjaldeyrisfyrirkomulagið fyrir árið 1952, mælir
stjórn og verðlagsráð L.Í.Ú. með því við útvegsmenn, að þeir láti
skip sín hefja veiðar cg kaupi aflann á eftirtöidu verði miðað
við vel meðfarinn og ógallaðan fisk og skrái skipverja samkvæmt
því:
■ ____ Þorski«.r:
I Slægður með haus 1,05 hvert
j kg„ siægður og hausaður 1,37,
S óslægðiír 0,83, flattur 1,55.
Hundruð raanna
íarast í jarðskjálft-
um í Kína og Tyrkl.
Ýsa: i
Enda sé henni haldið sér- .
skildri í bátunum. i
Siægð með haus 1,15, slægð og
hausuð 1,48, ósiægð 0,95.
Miklir jarðskjálftar hafa útt
sér stað unðxnfarna daga í hér Langa:
aðinu Junan í Vestur-Kina og Slægð með haus 0,93, slægð
hafa hundruð manna látið lífið og hausuð 1,20, óslægð 0,74, flött
en þúsundir meiðzt. Um 40 þús 1,37.
und hús hafa fallið. Síðastlið- |
inn sólarhring hafa jarðskjálft Keila:
ar einnig gengið yfir Tyrkland Slægð með haus 0,38, slægð
og hafa um hundrað manns lát og hausuð 0,55.
izt af þeim, en um 700 hús fall- |
ið til grunna. Hef'ir skapazt
öngþveiti í héruðum þessum af
völdum jarðskjálftanna.
Bretar loka öllura
vegum að og frá
Súes
Allhörð átök urðu í gær við gr. til
aðalbækistöðvar brezka hersins 2,73.
í Ismailia og var skipzt á skot-
um öðru hverju í allan gærdag.
1 þeim viðureignum féllu tveir
Egyptar og aðrir tveir særðust,
að því er brézka herstjórnin tel-
ur. Bretar hafa nú lokað öllum
vegum og járnbrautum að og
frá Súes er að Egyptalandi
liggja. og hefir það í för með
sér, að allir olíuflutningar til
Kairo stöðvast.
Egypzka utanríkismálaráðu-
neytið segir, að í viðureignum
í fyrradag hafi 22 Bretar fallið
en 40 særzt, en brezka herstjórn
in segir hins vegar, að aðeins
tveir liðsforingjar hafi særzt en
engir látizt.
Siglfiröingar vinna
togaraafla i landi
Sigliif j arðar togarinn Haf-
liði kom heim í gærmorgun
með röskiega 150 le'stir af
fiski, og var honum hjmdaö
til vinnslu í Siglufirði, nema
flatfiski og litilsháttar af
öðru, sem hinn bæjartogaT-
inn, Elliði, tekur er hann
kemur inn af veiðum í dag og
siglir með á frjálsan markað í
Bretlandi.
Aðstaðan er enn ákaflega
óhagstæð í Siglufirði til fisk-
vinnslu í landi, þar sem lítil
aöstaða er til frystingar. Þótt
mikið sé af stórvirkum fisk-
vinnslutækja í Siglufirði, eru
þau að heita má öll bundin
við síldina eina, þar til nú að
von er til, að úr rætist, er
stofnsett verður hraðfrystihús
með meiri afköstum í Siglu-
firði.
Nýjar bátagjald-
eyrisvörur
Á þingfundi í gær til-
kynnti Ólafur Thors atvinnu
málaráðherra, að ríkisstjórn-
in hefði ákveðið að setja á
bátagjaideyrislista nokkra
nýja vöruflokka á þessu ári.
Eru vöruflokkar þessir eink
um ullarefni og' ullardúkar all
ir, vörur úr plasti, nylon og
gervisilki, til viðbótar varn-
ingi úr þess háttar efnum, er
áður voru á bátagjaldeyris-
!«sta, útvarpstækt, sjálfblek-
imgar og skrúfblýantar, kvik-
myndatöku- og kvikmynda-
sýningarvélar, óframkallaðar
kvikmyndafilmur, laxveiði-
tæki, eldspýtur, kex, hnetur,
bréfþúrrkur, cldfastur leir,
marmari, terrazzó.
Auk þess er gert ráð fyrir
biíreiðum frá Tékkóslóvakíu
fyrir eina milljón króna gegn
sérstökum skírteinum.
Tildrögum þesa verður nán-
ar skýrt frá síðar.
274 vistmenu á
elliheimilinu Grund
Á árinu sem leið komu alls
82 vistmenn, karlar og konur á
elliheimilið Grund en 47 fóru
þaðan. Á árinu dóu 40 vist-
menn. í árslok voru vistmenn
274.
Meðalaldur þeirra, sem dóu
á árinu var 79 ár og 5 mánuðir.
Frá því að heimilið tók til
starfa hafa alls komið á það
1522 vistmenn, og á því tíma-
bili hafa 610 dáið þar.
Loftur Guðmunds-
son ljósmyndari
látinn
Hrogn. Til 1. apríl 1952: Loftur Guðmundsson ljós-
1. fl. 2,00, 2. fl. 1,00, meðal- myndari andaðist í fyrrinótt
verð (óflokkað) 1,50. 1 eftir langvarandi sjúkleika.
Sameiginlegar skíða-
ferðir skíðafélaganna
Rrýnt fyrir f'ófki. að búa sig' vel
Snjórinn freistar nú skíðafólksins, og hafa skíðafélögin,
Skíðafélag Reykjavíkur, skíðasveit skáta og skíðadeild Ár-
manns, í. R., K. R. og Vals, hafið sameiginlegar skíðaferðir.
Guðmundur Jónasson hef-
ir tekið að sér ferðirnar, en
eins og kunnugt er, hefir
hann á að skipa sterkum bif-
reiðum með drifi á öllum
hjólum, að ógleymdum snjó-
bílnum fræga.
Ufsi:
Slægður með haus 0,55, slægð
ur og hausaður 0,71.
Steinbítur í nothæfu ástandi:
Slægður með haus 0,77.
Skötubörð:
Stór 0,82, smá 0,57.
Skarkoli:
I. iy4, lbs. og þar yfir 3,17, II.
% lbs. til 1 y4 Ibs. 2,65, III. 250
3,4 lbs. 1,80, meðalverð
Þykkvalúra:
I. iy4 lbs. og yfir 2,52, II.
%
lbs. til iy4 lbs. 2.08, III. 250 gr.
til 3/4 lbs. 1,53, meðalverð 2,19.
Lúða:
2—20 lbs. 3,50.
Skipstjorinn á Flying Enter-
* prise fær stýrimann
SkipiS flytur enn, cn ekki hefir tekizt að
fesín á jinð tnug og hefjja för á Inml
Tilhögum ferða og
afgreiðslustaðir.
Fyrst um sinn verða feröir
bæði á föstudagskvöldum,
laugardögum og sunnudög-1
um. Afgreiðslustaður í Mið- I
bænum hefir enn ekki verið
ákveðinn, en verður væntan- !
lega í Lækjargötu við Amt- |
marinsstíg. í austurbæ verðui '
| aifgreiðsla í skátaheímilimi !
i við Snorrabraut og í vestur.)
I bæ í félagsheimili K. R. Upp- )
I lýsingar um ferðirnar verða !
j gefnar í símum Guðmundar1
Jónassonar, skátaheimilisins
og K. R.
| Með þessum bifreiðakosti
ætti í flestum feröum að vera
hægt að komast á áfangastað
' en ferðirnar verða að Lög-
bergi að vegamótum eða í
'Jósefsdal, að Kolviðarhóli. j
| í Hveradali og að Skálafelli'
síðar. |
| í næstu viku ætti afgreiðslu
staður í miðbænum að verða'
tilbúinn meö síma þar og
1 munu félögin tilkynna það þá
í góðu veðri heiman
að búast.
Eins og öllum þeim, sem
sjá um skíðaferöir fólks héð-
an úr bænum, er kunnugt, eru
oft mikil brögð að því, að
skíðafólk, og þó sérstaklega
þeir, sem sjaldan fara á skíði
og pa helzt í góðu veðri af
stað, gæti þess eigi að vera
við öllu búið, því að fljótt
skipast veður í lofti.
Hér áður fyrr, þegar Skíða
félag Reykjavíkur var að'
mestu eitt með skíðaferðir
héðan úr bænum, var ávallt
brýnt fyrir skíðafólki að hafa
útbúnað allan í sem beztu
lagi og voru áminningar til
skíðafólks letraðar á hvern
farmiða.
Áletrunin var á þessa leið:
„Gætið þess vel að binding
arnar'séu i lagi; Munið eftir
skíðááburði og snjógleraugun
um; Bindið skíðin og stafina
vel saman og merkið greini-
lega; Klæðið ykkur vel;“
Formaður Skíðafélagsins
hefir óskað þess, að helzt öll
dagblöðin brýndu fyrir skíða
fólki að fara eftir leiðbeining
um þessum, því nú séu mikil
brögð að því hjá yngra fólki
að gæta eigi slíks.
Merkið skíðaút-
búnaðinn.
Einnig vilí hann benda
fólki á að gæta sérstaklega
bindinga og stafa, því að
nokkur brögð séu að því að
slíkt sé tekið í misgripum,
tekið traustataki um stund,
eða jafnvel stolið, meðan það
er skilið eftir í reiðuleysi og
ömerkt. Skíði, skíðastafi og
bindingar er nauðsynlegt að
merkja, enda er það auðvelt,
því að margir eiga eins út-
búnað og eru misgrip oft
slíkri vanrækslu að kenna.
Ábendingar þessar munu á
sínum tíma hafa verið settar
af skíðafrömuðinum L. H.
Múller, en eru alltaf í gildi.
Skíðafólk: Farið eftir á-
bendingum þessum.
Rjúpurnar
komu niður
Eins og áður var sagt hér í
blaðinu var lítið um rjúpur á
Austfjörðum framan af vetri,
eins og víðast hvar annars stað
ar á landinu, þar sem til spurð-
ist.
Samkvæmt símtali við frétta-
ritara Tímans á Reyðarfirði
varð rjúpna þar talsvert vart
síðustu daga fyrir jólin, og
ferigu margir Reyðfirðingar sér
þá með tiltölulega hægu móti
fuglakjöt í jólasteikina.
Veður breyttist, svo að blota
gerði til fjalla og snjó tók næst
um upp, niðri við sjó. Kom rjúp
an þá niður, og var allmikið af
henni suma daga. Voru þá oft
milli 10 og 20 Reyðfirðingar á
rjúpnaveiðum, og komu margir
með um 20 rjúpur eftir daginn.
En nú er rjúpnaveiðitíman-
um lokið — lauk um áramót.
Bandaríska flutningaskipið Flying Enterprise er enn ofan j
sjávar, og Karlson skipstjóri þess er þar enn, staðráðinn í!
að veröa því samferöa til hafnar. Hann hefir nú fengjð j
mannhjálp, því að fyrsti stýrimaður á dráttarbátnimi
Turmoil er kominn á skipið t:l hans. Ekki hafði þó enn
tekizt að íesta dráttartaugar í skipið í gærkveldi.
Það var laust fyrir mið-
nættið í fyrrakvöld, sem drátt
arbáturinn Turmoil kom að
skipinu. Voru þá þegar gerð-
ar tilraunir til að skjóta línu
yfir þaö, en Karlson skip-
stjóri gat ekki dregið hana
inn, enda er aðstaða hans
hin versta.
Skuturinn hátt
úr sjó.
Snemma í gærmorgun eða
með birtu voru nýjar tilraun
ir gerðar, en veður hafði þá
versnað aö mun. Tókst fyrsta
stýrimanni á Turmoil þó áð
komast yfir í Flying Enter-
' prise, og var hann þar í gær
kveldi ásamt skipstjóranum.
j Samkvæmt viðtali við þá,
töldu’ þeir báðir, að unnt
mundi að draga skipið til
hafnar, ef veður héldist skap
legt.
Skipið er nú nær alveg á
hliðinni, og skuturinn rís all-
mikið hærra úr sjó en fram-
hlutinn. í gærkveldi var ver
(Framhald á 7. siðu)
27 MUÓMll RltÓAA TIL:
æktunar ©g foygginga
i kaupst. ©g sveitum
í gær var lagt fram á Alþingi frumvarp til !aga frá ríkisstjórn-
inni, um heimild ti! að verja allt að 38 milljónum króna aí fyrir-
sjáanlegum greiðsluai'gangi síðasta árs til ýmissa nauðsynja-
mála, svo sem bygginga í kaupstöðum og' sveitum og aukinnar
ræktunar.
38 milljónum ráðstafað.
Þannig er lagt til að lána
ræktunarsjóði 15 milljónir kr„
lána byggingarsjóði verka-
manna 4 milljóriir króna, lána
sveitarfélögum til útrýmingar
heilsuspillandi íbúða 4 millj. kr.
Að lána til bygginga smáíbúða
4 milljónir króna. Að kaupa
hlutabréf í iðnbanka íslands
h.f. fyrir 3 milljónir króna. Að
greiða upp í hlut ríkissjóðs af
stofnkostnaði við skóla, sem þeg
(Framhald á 7. síðu)