Tíminn - 21.02.1952, Blaðsíða 2
TÍMINN, fimmtudaginn 21. febrúar 1952.
42. blað.
Eini bóndi veraldarinnar, sem
aðeins stundar fiðri Idab úskap
í litlu þorpi í Kent á Englandi
er lítið býli, sem aðeins hefir
til umráða fjórðung úr ekru
lands. Þar er stundaður búskap
ur, sem mun vera einsdæmi í
heiminum. Þarna býr maður að
nafni Hugh L. Newman, oft
nefndur fiðrildamaðurinn í
Kent.
AHt kvikt af lirfum
og fiðrildum.
Við býli hans eru öll tré og
runnar þakin lirfum, því að
Newman elur upp fiðrildi í tug-
þúsunda tali. Inni í húsunum
eru glerker og glerhylki full af
fiðrildum af hinum margvísleg
ustu tegundum og afbrigðum.
Viðskiptavinir þessa nýstárlega
bónda eru rannsóknarstofur,
skólar, söfn, tilraunastöðvar
landbúnaðarins, fiðrildasafnar-
ar og eigendur stórra búgarða.
Stærstu pöntunina hefir New
man fengið frá nýsjálenzku
stjórninni, sem vildi fá sextíu
þúsund lirfur af sérstakri
fiðrildategund til þess að eyða
illgresi.
ÖII þroskastig og afbrigði.
Á býli Newmans má sjá allt
æviskeið fiðrilda á einni klukku
stund, því að fiðrildin eru þar 1
á öllum stigum lífs síns. Ævi:
þeirra er frá hálfum mánuði
upp í tvö ár.
Litadýrð hinna fullvöxnu
fiðrilda er mikil og margbreyti-
leg, og vængir sumra eins stórir
og lófi manns. Sum afbrigði eru
svo fágæt, að þau eru fimm
hundruð sinnum meira virði en
hinar algengari tegundir. Kven-
dýr eins afbrigðisins gefa frá
sér ilm, sem karldýrið finnur
mílu vegar.
Brautryðjandinn.
Það var faðir Newmans, sgm
hóf þenna'n fiðrildabúskap fyrir
51 ári. Hann hafði verið skrif-
ari hjá tóbaksverzlun, en safn-
aði fiðrildum í tómstundum sín
um. Hann seldi Rothschild lá-
varði safn sitt fyrir meira fé en
hann fékk í árslaun hjá tóbaks-
verzluninni. Og það varð til þess,
að hann hætti skrifarastörfuin
og afréð að stofna fiðrildabú. Nú
á hann hlutdeild í búskap son-
ar síns.
Iléldu, að hann væri vitlaus.
Einu sinni var Newman eldri
á fiðrildaveiðum í námunda við
geðveikraspítala í Suður-Eng-
landi. Hafði hann háf til þess
að veiða með fiðrildin. Fólk,
sem átti leið hjá, spurði, hvort
hann hefði týnt einhverju. New-
man sagðist vera að leita að
„öndum“. Að lítilli stundu komu
gæzlumenn frá sjúkrahúsinu
og veiddu hann sjálfan í net,
áður en hann gat gert þeim
grein fyrir því, að „anda“ nefndi
hann sérstakt afbrigði fiðrilda.
Tillaga um útvarp héð-
an til Grænlands
Það er sagt, að Grænlendingar
séu kannske þakklátustu hlust-
endur íslenzka ríkisútvarpsins. j
islenzka útvarpsstöðin heyrist
þar stöðva bezt, og Grænlending
ar, sem útvarpstæki eiga, hlusta
að jafnaði á alla þá tónleika,!
>em fluttir eru í íslenzka útvarp
:ið. En hins talaða máls njóta1
þeir af eðlilegum ástæðum ekki.1
Grænlendingavaka?
Fyrir nokkru kom Reykvíking
ir éinn að máli við blaðið og j
iskaði þess, að það kæmi á'
framfæri þeirri hugmynd, að (
úkisútvarpið efndi til einnar j
Grænlendingavöku, sem ætluð
/æri sérstaklega Grænlending-
um til skemmtunar. Það væri
/inarkveðja, sem þeim bærist
uéðan yfir Grænlandshaf og
Grænlandsjökla og gæti stuðlað
að því, að vekja vinarhug græií-
ienzks fólks til íslendinga. En
það hefði hagnýtt gildi nú, þeg
ar búast má við vaxandi sigl-
'ngum og veiðiferðum íslenzkra
sjómanna til Grænlands.
£r þetta framkvæmanlegt?
Slíkt væri ekki mikil fórn á
tíma eða fjármunum af hálfu
ríkisútvarpsins. En er þetta
framkvæmanlegt? Þarna þyrfti
að flytja talað mál, sem Græn-
lendingar skildu. Hefir blaðið
því leitað álits Guðmundar
magisters Þorlákssonar um hug
myndina, en Guðmundur mun
sá maður hérlendis, sem bezt
er að sér í grænlenzku máli.
Taldi Guðmundur þessa hug-
mynd skemmtilega, og þótt ekki
þætti tiltækilegt að flytja þar
talað orð á grænlenzku, skildu
allir Græniendingar, sem ein-
hverja skólamenntun hafa hlot
ið, dönsku svo vel, að vel mætti
tala á því máli.
Send útvarpsráði.
Þessi hugmynd er hér með
send útvarpsráði til íhugunar
í von um vinsamlega afstöðu
þess. En ef af slíkri Grænlend-
ingavöku yrði, þyrfti að tryggja
það, að grænlenzkir útvarps-
hlustendur vissu, hvers þeir
mættu vænta og hvenær.
Sveitir Benedikts
og Harðar efstar á
bridgensótinu
Meistaramót Reykjavíkur í
bridge er nú hálfnað og eru
sveitir Benedikts Jóhannssonar
og Harðar Þórðarsonar efstar
með 10 stig hvor. Úrslit í tveim
ur síðustu umferðunum urðu
sem hér segir:
1 5. umferð vann Benediki
Ragnar með 15 stigum, Hörður
vann Hilmar með 24, Gunngeir
vann Zóphónías með 15, Róbert
vann Agnar með 36, Ásbjörn
vann Einar B. með 13 og sveit
ir Hermanns og Einars G. gerðu
jafntefli.
Úrslit í 6. umferð: Hörður
vann Benedikt með 10 stigum.
Einar G. vann Gunngeir með
8, Róbert vann Hilmar með 21,
Zóphónías vann Agnar með 18,
Ásbjörn vann Hermann með 30
og Ragnar og Einar B. gerðu
jafntefli.
Staðan í mótinu er nu þannig,
að loknum þessum sex umferð-
um, en alls verða spilaðar 11
umferðir. Benedikt og Hörður
eru með 10 stig, Ásbjörn og
Zóphónías 8, Ragnar, Einar G.
og Róbert 7, Gunngeir 6, Einar
B. 5, Hermann 3. Hilmar 1 og
Agnar ekkert stig. Næsta umferð
verður á sunnudag. Spilað er
í Skátaheimilinu við Snorra-
braut.
Útvarpið
Auglýsið í Tímannm
AV.V.V.V.V.VAV.VAV.V.V.V/.V.V/.W.V.V,
St;
V.V.VA
Reykvíkingar!
Lítið í Loftleiðagluggann!
Þar getur að líta sýnishorn af vinningum í
happdrætti TÍMANS. — Komið, skoðið og
kaupið miða.!
Dregið 1. marz.
Happdrætti TÍMANS
/.W.VAW.V.,.W.W.W.V//.,AV///AV.V.V.W.W.,.\
Útvarpið í dag:
Kl. 8,00 Morgunútvarp. — 9,10
Veðurfregnir. 12,10—13,15 Hádeg
isútvarp. 15,30—16,30 Miðdegis-
útvarp. 18,25 Veðurfregnir. 18,30
Dönskukennsla; II. fl. — 19,00
Enskukennsla; I. fl. 19,25 Tón-
leikar: Danslög (plötur). 19,40
Lesin dagskrá næstu viku. 19,45
Auglýsingar. 20,00 Fréttir. 20,20
Útvarpssagan: „Morgunn lífs-
ins“ eftir Kristmann Guðmunds
son (höfundur les). XIII. 20,50
Útvarpshl j ómsveitin; Þórarinn
Guðmundsson stjórnar. 21,05
Skólaþátturinn (Helgi Þorláks-
son kennari). 21,30 Einsöngur:
Sigrid Onegin syngur (plötur).
21,45 Upplestur: Andrés Björns
son les ljóð eftir Jóhann Jóns-
son. 22,00 Fréttir og veðurfregn
ir. 22,10 Passíusálmur nr. 10.
22,20 Sinfónískir tónleikar (plöt
ur). 23,10 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Kl. 8,00 Morgunútvarp. — 9,10
Veðurfregnir. 12,10—13,15 Há-
degl|,\sútvarp. 15,30—16,30 M'ið-
degisútvarp. 18,15 Framburðar-
kennsla í dönsku. 18,25 Veður-
fregnir. 18,30 íslenzkukennsla;
I. fi. 19,00 Þýzkukennsla; II. fl.
19,25 Tónleikar: Harmoníkulög
(plötur). 19,45 Auglýsingar. 20,00
Fréttir. 20,30 Kvöldvaka: a) Þór
arinn Grimsson Víkingur flytur
erindi: Ferð til Alaska og lax-
veiðar þar; — fyrri hluti. b) Út
varpskórinn syngur; Róbert A.
Ottósson stjómar (plötur). c)
Ásmundur Jónsson frá Skúfs-
stöðum les kvæði eftir Matthias
Jochumsson: Víg Snorra Sturlu
sonar. d) Jens Hermannsson
kennari flytur frásögu: Bardagi
á Siglufirði. 22,00 Fréttir og veð
urfregnir. 22,10 Passíusálmur nr.
II. 22,20 „Ferðin til Eldorado“,
saga eftir Earl Derr Biggers
(Andrés Kristjánsson blaðam.).
XIV. 22,40 Tónleikar (plötur).
123,10 Dagskrárlok.
ENGLISH ELECTRIC
RAFMÓTORAR
eins fasa, 4 og 5 hestafla
eru komnir. — Pantanir
óskast sóttar sem fyrst.
€» II* IICilíw
Laugaveg 166.
‘.V.V.V.VAV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.VAW.V.V.’.V
s í
$ V erkamannaf élagið Dagsbrún: í
Árshátíð
í
5
Alfreð
Ketill Jensson syngur
Dagsbrúnar verður í Iönó n. k. laugardag 23. þ. m. I;
:: Hátíðin hefst kl. 8 s. d. með sameiginlegri kaffi
:I drykkju.
Til skemmtunar verður:
íjj Björn Þorsteinsson magister flytur ræðu
I* Andrésson, skemmtiþátt
■: einsöng og Söngfélag verkalýðsfélaganna syngur
I; — dans. i;
■_ ■
Sala aögöngumiöa hefst í skrifstofu félagsins n. k. ■:
:! föstudag kl. 2 e. h.
í Verð aögöngumiða kr. 30.00 og kr. 200. (dansinn). :I
W.VMiW.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.W.V.V.VAW.V.V
Efnisútboö
o
o
o
o
o
Ábiirðarverksmiðjan h. f. æskir tilboða
í eftirtalið byggingarefni: Seuienl.
steypustyrktarjárn, timbur, saum,
mótavír og bindivír. Útboðsskilmála
iná vitja í teiknistofu Almenna bygg-
ingafélagsins h. f., Borgartúni 7, í dag
og nsestu daga kl. 4—5 síðdegis.
Áburðarverksmiðjan h.f.
\
Útför
GUÐMUNDAR ÁSBJÖRNSSONAR,
bæjarstjórnar-forseta fer fram frá Dóm-
kirkjunni föstudaginn 22. febrúar, kl. 2,15
e. h. — Athöfn í kirkju verður útvarpað.
Vandamenn.
Bæjarstjórn Reykjavíkur.
Faðir og tengdafaðir okkar
ÞORSTEINN DAÐASON
verður jarffsettur frá Fossvogskirkju föstudaginn 22. þ. m.
ki. 13,31. Athöfninni verffur útvarpaff.
Guðmundur Þorsteinsson,
Ólafía Jónsdóttir.