Tíminn - 11.07.1952, Page 2
TÍMINN, föstudaginn 11. júlí 1952.
153. blað.
I
Saudi Arabía er með olíu- ' Fél<k s/agæð úr dauS
auðugustu löndum beimsins
Allt þar til olía fannst í landi þeirra árið 1938, bjuggu íbú-
ar Saudi Arabíu við sömu lifnaðarhætti og þeir höfðu búið
við um aldaraðir. Þeir voru hermenn, kaupmenn, handiðn-
aðarmenn og bedúínar, sem eyddu lífinu á ferðalögum um
eyðimörkina og leituð» vista og vatn?
Land þeirra var fátækt og
einahgrað frá umheiminum,
utan hinna föstu heimsókna
pílagríma til múhameðsku
helgiborganna tveggja, Mekku
og Medínu, og þær tvær og
hálf milljón punda, sem hinir
trúuðu pílagrímar færðu í
þjóðarbúið árlega, héldu
Saudi Arabíu á floti.
Hornsteinn hins frjálsa heims.
Hin nálægari Austurlönd
og sérstaklega Saudi Arabía
eru nú orðin einn af hyrn-
ingarsteinum hins frjálsa
heims, bæði í stríði og friði.
Ekki einungis liggja venju-j
legar land- og sjóleiðir til
Asíulandanna um Saudi Ara- j
bíu, heldur er landið orðið j
mjög þýðingarmikið frá hernj
aðarlegu sjónarmiði vegna olí
urnar, sem þar er nóg af.
25 millj. tonn af olíu.
Vissulega er Saudi Arabía
orðin þýðingarmikiö land, ef
tii styrjaldar dregur. Megin-
magn olíuframleiðslunnar hef
ir upp á síðkastið hori'ið frá
hinni fyrri miðstöð sinni við
Mexíkóflóann og Karabíska
hafið að Persaflóa. 25 millj.
tonna af olíu voru unnin í
Saudi Arabíu árið 1950, en það
var rétt um einn þriðji af
allri olíuframleiðslu Mið-Aust
urlanda.
Olían fannst 1930
Það var árið 1930, sem olían
fannst á éyjunni Bahrein.
Bahrein er í Persaflóa og inr-
an sjónmáls frá strönd Saudi
Arabíu. Ibn Saud, konungur,
fékk góðar fregnir af fram-
kvæmdunum á Bahrein og
ameríska olíufélagið sendi full
trúa sína á fund hans í
Jeddah og tók hann á móti
þeim með vinsemd. Árið 1933
fóru svo fram samningar, sem
Ibn Saud undirritaði og eftir
þeim samningum hefir
Amerísk-Arabíska olíufélagið
starfað (Aramco) í ríkinu og
hefir það gert leit á stórum
landssvæðum. Nokkur tími
fór í rannsóknir. Og í maí ár-
ið 1939 var fyrsti oliufarmur-
inn fluttur á heimsmarkað-
inn frá Saudi Arabíu. Árið
1950 var lokið við að leggja
olíuleiðslu frá aðal olíusvæð-
inu hjá Sidon að austanverðu
Miðjarðarhafi.
Meðan á stríðinu stóð og
síðan hafa átta ný olíusvæði
Útvarpið
Útvarpið í dag
Fastir liðir á venjulegum tímum.
19,30 Harmonikulög. 19.45
Auglýsingar. 20.00 Fréttir. 20.
30 Útvarpssagan: Grónar göt
ur,‘, frásögukaflar eftir Knut
Hamsun; II. (Helgi Hjörvar).
20.00 Tónleikar. 21.25 Frá út-
löndum. 21.40 íslenzk tónlist.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Tónleikar.22.30 Dagskrái
lok. —
Útvarpið á morgun:
Fastir liðir á venjulegum
tímum. 19.30 Samsöngur (plöt
ur). 19.45 Auglýsingar. 20.00
Fréttir. 20.30 Tónleikar. 20.45
Leikrit: „Alltaf að tapa“ eft-
ir Einar H. Kvaran. 21.45 Tón-
leikar, Kiassísk danslög. 22.00
Fréttir og veðurfregnir. 22.10
Danslög (plötur). 24.00 Dag-
s' 'árlok.
Ibn Saud
jfundizt í Saudi Arabíu, þar á
meðal einn af stærstu olíu-
völlum heimsins, Abqaiq
Buqqa, þrjátíu mílna langur
og 77,000 ekrur að flatarmáli.
Áætlað er, aö þaðan megi fá
um fimm billjónir tunna af
olíu. |
i ;
1 Vegna hinnar gífurlegu olíu
framleiðslu hefir stórfé borizt
í ríkisféhirzlu Ibn Saud kon-j
ungs og hefir það fé verið not j
að til framkvæmda í landinu.1
Vegir hafa verið lagðir, komið
upp járnbrautarkerfi, borgir
raflýstar o. s. frv. Þegnar Ibnj
,Saud eru nú óðum að venjast
jnýjum og betri lifnaðarhátt-;
um og Saudi Arabía er á1
i hraðri leiö að veröa að ný-j
itízku ríki. Þrátt fyrir það erj
' fyrri störfum sinnt, eins og
jfiskveiðum, perluleit í Persa-
jflóa og bátasmíðum. Helmingj
• ur Arabanna reisa sér enn
i skýli úr ábreiðum, ofnum úr
ikamelhári, hvar sem kamel
i dýr þeirra, kindúr og geitur
'geta fundið grastó, og margir
jbúa í þorpum, sem reist hafa
verið í kringum vatnsbólin.
Með annan fótinn
á sjöundu öld.
Þó að Ibn Saud eigi nokkr-
ar hallir, hefir hann hina
mestu ánægju af því að tjalda
einhvers staðar úti í eyði-
mörkinni og dvelja . þar.
Tvisvar á dag talar hann við
þegnana og leysir úr hinum
smærri vandamálum á sama
máta og kameldýraekill, sem
vill hafa röð og reglu á langri
lest. Einkaritari hans les hon-
um stutt ágrip af heimsfrétt-
unum á hverjum degi. Ibn
Saud hefir ráðið ríkjum leng
ur en nokkur annar konung-
ur, sem nú er á lífi. Með annan
fótinn aftur á sjöundu öld og
hinn í þeirri tuttugustu, ekur
hann í bifreiðum og talar í
síma, klæddur að 13 alda gam
alli venju þjóðar sinnar.
Þorlákshöfn
(Framhald af 1. síðu.)
Búast á reknetaveiðar.
Stærsti Þorlákshafnarbát- j
urinn er á síldveiðum fyrir •
norðan, en hinir bátarnir eru '
nú að búast á reknetaveiðar
hér við Suðvesturlandið. Ýxpis'
stór skip hafa þegar lagzt að.
bryggju í Þorlákshöfn. Bláfell
var þar fyrir nokkrum dög-'
um, og Jökulfell hefir komið'
þar áður. !
um mannL
í Pennsylvaníu var nýlega
geröur uppskurður á "nser
fimmtugum manni. Uppskurð
ur þessi var sérstæður að því
leytinu, að hluti af aðalslag
æð látins manns var tekin og
sett í sjúklinginn. Slagæð
þessi veitir blóði til þess hluta
líkamans, sem er fyrir neðan
hjarta.
Sjúklingurinn hafði þjáðst
af bólgum í æðaveggjunum.
Við uppskurðinn fjarlægðu
iæknar hinn sjúka hluta æðar
innar og settu í staðinn átta
sentimetra langan bút, er
hafði verið tekinn úr líki 19
ára pilts, sem hafði farizt af
slysförum tíu dögum áður.
Hafði æðarbúturinn verið
frystur strax og geymdur
þannig. Uppskurðurinn tók
sjö klukkustundir, en sjúkl-
ingnum varð ekki meint af
þessum æðaflutningi. Hann
fór af sjúkrahúsinu stuttu eft
ir uppskurðinn og var þá við
góða heilsu.
Bezta sundkona
heimsins
Ragnhild Hveger er nú sú
danska sundkonan, sem Dan-
ir búast við að nái beztum
árangri á Ólympíuleikunum.
Á úrtökumótinu fyrir leikana
sigraði hún bæði í 100 m. og
400 m. skriðsundi og sigraði
hún hina frægu sundkonu
Gretu Andersen. Tími hennar
*
♦
f
♦
t
♦
Fyrirliggjandi:
SÆNGURVERA DAMASK og
CAMBRIC LÉREPT
HeiSdverzSiin Sig. Arnaids
Túngötu 5.
Sími 4950.
AMBOÐ
(?í*f
Hrífur
Hrífushöft
Hrífuhatisar
Hrífuklasr
Ljtnr
Brt/ui
llverfisteinar 18” í þvermtíl w
Het/hvíslar I
Skóflur, mfsmunaiidi tognudir ♦
i
Vörugeymsla KRON
Hverfisgötu 52. — Sími 1727 (millisamband).
♦
f
♦
Jarðýtur tii sðiu
Tilboð óskast í Allis-Chalmers jarðýtu meö G.M. diesel
.vél H. D. 7. Ennfremur Cletrac með Herkules dieselvél
60 ha. Jarðýturnar eru til sýnis í Áhaldahúsi Reykja-
víkurbæjar viö Skúlatún.
Tilboð óskast send i skrifstofu bæjarverkfræöiúgs,
Ingólfsstræti 5, og veröa opnuð laugardaginn 19. júlí kl.
11,30.
•
o
o
o
O
o
1»
o
1»
I*
'(
í báðum greinunum var mjög
góður, m.a. synti hún 400 m.
á 5:09,8 mín., sem er bezti
tími i heiminum í ár. Þess má
geta, að Hveger var upp á sitt
bezta um 1940 og setti hún þá
hvert heimsmetið á fætur
öðru og standa þau öll enn.
Á hernámsárunum giftist hún
þýzkum manni, hætti sundæf
ingum og féll í algjöra ónáð
hjá dönsku þjóðinni. En i
fyrra hóf hún keppni aftur
og þrátt fyrir aldurinn er hún
nú aftur orðin fremsta sund-
kona heímsins.
Fall Önnu Paiiker
(Framhald aí 5. siðu.)
og oftrausta í sessi. Þá sé
minni hætta á nýjum Tító.
Fall Önnu Pauker er vissu-
lega ný sönnun um það, að
efnahagsástandið í leppríkj-
um Rússa er ekki jafn gott og
stjórnarfar ekki eins heilbrigt
og málgagn kommúnista hér
vill vera láta. Það hefir líka
verið sagnafátt um þennan at
burð. -
lO
i
TILKYNNING
til kaupenda um blaðgjald ársins 1952:
Blaðgjald ársins 1952 hefir verið ákveðið sem hér
segir:
I. Verðsvæði: Árgangurinn kr. 180,00.
(Rangárvallasýsla að Dalasýslu en meðtalið verzlun-
arsvæði Stykkishólms i Dalasýslu, Akureyri og Siglu-
fjörður).
II. Verðsvæði: Árgangurinn kr. 150,00.
(Dalasýsla að Rangárvallasýslu, að undanskildum
Siglufirði, Akureyri og verzlunarsvæði Stykkishólms i
Dalasýslu).
Frá og með 1. maí eru öll blaðagjöld er greiðast eigi
í heilu lagi fallin i gjalddaga. Svo og blaðgjald fyrstu
sex mánaða þessa árs er greiðast mánaðarlega eða árs-
fjórðungslega til umboðsmanna blaðsins.
Þeir, sem greiða eiga blaðið í heilu lagi til innheimtu
manna eða beint til innheimtu blaðsins eru vinsam-
legast beðnir að ljúka greiðslu sem fyrst.
Munið að blaðgjaldið féll í gjald-
daga 1. maí s. 1. «
Innheimta Tímans