Tíminn - 28.11.1952, Blaðsíða 2
2.
TÍMINN, föstudaginn 28. nóvember 1952.
271. blaff.
Svívirðilegur söguburður og dœmafátt óhœfuverk:
Hringt um nótt til konu og henni
sagt að sækja lík mannsins síns
V.W.WAVWW
Logið á saklausan mann innkroímn, þjófn- og rannsóknarlögreglan tjáði
aði, fang'clsisvist ög kjónaskilnaði
Nu í haust hefir hinn furðulegasti orðasveimur verið
j blaðinu, að engar kærur
uppi um ýmsa nafngreinda menn í Reykjavík og gengið
staflaust manna á meðal, þeim og þeirra ril mesta ansurs,
og þessar lygasögur hafa jafnvel leitt til atvika, sem bera
vott um undraverða fúlmennsku.
I hefðu komið á þennan mann,
enda atburður sá. sem á að
hafa verið
spuni.
kært yfir, upp-
Opnum á morgun, laug-
| ardag, nyja nýlenduvörtt,-1
brauða- og kjötbúð aö Borg
arholtsbraut 19, Kópavogí.
Tveir menn, sem orðið hafa
fyrir þessum álygum sneru
sér til biaösins í gær, þar eð
þeir töldu sig ekki lengur
geta undir þessu búið. Hafði
um annan þeirra verið borin
út sú saga, að hann hefði
fyrirfariö sér, en síðar var
henni breytt þannig, að hann
hefði gert tilraun til þess, er
ekki varð lengur um það
villzt, að maðurinn var ljós-
lifandi á ferli í bænum.
Um hinn manninn hefir
því verið dreift út, að hann
hafi brotizt inn hjá Agli Vil-
hjálmssyni, stoliö þar hjól-
börðum, setið í hegningar-
húsinu og konan gengið að
heiman frá honum.
Óheyrð illmennska.
Maður sá, sem logið var á,
að hefði fyrirfarið sér eða
gert tilraun til þess, er bund-
inn við störf fram eftir nótt-
um að jafnaði. Ávextir ósann
indanna um hann sýna, að
þau hafa fallið í frjóan jarð-
veg. —
Nótt eina, er maður þessi
var ekki kominn heim frá
vinnu sinni, vaknaði kona
hans við símahringingu. í
símanum heyrir hún karl-
mannsrödd, og biður rödd-
in hana að sækja lík manns
ins hennar á vinnustað. —
Ekki er vitað, hvaða ill-
menni hér var að verki, en
Ijóst er, hvernig óþokki
þessi hefir fengið hugmynd
ina að ódæði sinu.
Maður þessi segir, að fólki,
sem hann þekkir og mæti ó-
vænt á götu, verði hverft við,
og er ekki að efa, af hverju
það stafar. Hinn logni orð-
rómur er víða kominn, og hon
um hefir verið trúað, því að
| hrekklaust fólk varar sig
ekki á kjaftasögunum.
I
Logið afbrot og tukthúsvist.
Hinn maðurinn, sem sneri
sér til blaðsins, starfaði hjá
strætisvögnunum, en skipti
nýlega um atvinnu. Er hon-
[ um bcrið á brýn að hafa brot
(izt inn hjá Agli Vilhjálms-
jsyni og stolið þar hjólbörð-
urn, og á hann síðan að hafa
sstið í fangelsi um skeið, og
hafi þá konan gengið brott.
Ekki er minnsti fötur fyrir
neinu af þessu, fremur en
hinni sögunni. Gunnar Vil-
hjálmsson hjá Agli Vilhjálms
syni leyfði blaðinu að hafa
það eftir sér, að enginn slík-
ur stuldur hefði verið þar
framinn nú um langt skeiö,
I Vítaverður slefburður.
i Nánar verður ekki frá
greint, hvaða menn hafa
orðið fyrir þessum illkvittna
jró5i, enda munu allir, sem
' heyrt hafa sögurnar og
bekkja til mannanna vita,
hvað hér er verið að fara, og
skilia, hve háskalegar slef-
sögur af þessu tagi geta ver- |
ið. Það er og áskorun blaðs-.
• ins til fólks að trúa varlega
j lausasögum, sem ganga
jmanna á meðal um nafn-
I graint fó’k, og taka ekki
þátt í að breiða þær út.
W.%W.-.VAVAW.V.W.W,V.V.V.V.V.VAV.V.V.W/
'AVAV.VAVAV.VAVVAV.V.VAV.VASVAVA'AV.V/
Kielland stjórnar
í kvöld 2. hlió
Útvarpið
Útvarpið í dag:
Kl. 8,00 Morgunútvarp. 9,10 Veð-
urfregnir. 12,10—13,15 Hádegisút-
varp. 15,30 Miðdegisútvarp. 16,30
Veðurfregnir. 17,30 .íslenzku-
kennsla; II. fl. 18,30 Þýzkukennsla;
I. fl. 18,25 Veöurfregnir. 18,30
Frönskukennsla. 19,00 Þingfréttir.
19,20 Harmonikulög (plötur). 19,45
Au: þsin~ar. 20,00 Fréttir. 20,30
Árnas?fnsvaka; Ávörp. — Ræður.
— Sóngur. — Samtalsþáttur. —
Eftirhermur. 22,00 Fréttir og veður
fregnir. 22,10 „Désirée“, saga eftir
Annemarie Selinko (Ragnheiður
Hafstein) — XXV. 22,35 Dans- og
tíægurlcig (plötur). 23,00 Dagskrár-
lok.
Útvcrpið á roorgun:
Kl. 8,00 Morgunútvarp. 9,10 Veð-
urfregnir. 12,10 Hádegisútvarp. 12,50
Óskalög sjúk'inga (Ingibjörg Þor-
bergs) 15,30 Miödegisútvarp. 16,30
Veðurfregnir. 17,30 Enskukennsla;
II. fl. 18,00 Dönskukennsla; I. fl.
18,25 Veðurfregnir. 18,30 Úr óperu-
og hljómleikasal (plötur). 19,45 Aug
lýsingar. 20,00 Fréttir. 20,20 Leik-
rit; „Hættulegt horn“ eftir J. B.
Priestley, í þ, ðingu Ingu Laxness.
Leikstjóri; Þorsteinn Ö. Stephen-
sen. 22,00 Fréttir og veðurfregnir.
22,10 Danslög (plötur). 24,00 Dag-
Ekráriok.
kviðu Beethovens
Menn.gleymi því ekki að í
kvöld leikur hljómsveitin 2.
sinfóníu Beethovens í þjóð-
leikhúsinu. Undirritaður
heyrði æfingu þessa verks
hjá Kielland í gær og vill
hvetja þá, sem hafa öll skiln-
ingarvit í lagi, að láta ekki
hjá líða að heyra verkið í
kvöld, — ekki í útvarpi, held-
ur í þjóðleikhúsinu.
Þetta verk birtir upphaf
allrar þeirrar andagiftar,sem
Beethoven lét síðar koma í
ljós í verkum sínum, — jafn-
vel undirbúningu að temum
9. hljómkviðunnar
Enginn, sem fer í leikhús-
ið í kvöld og hefir eyrun ó-
skert, mun geta heyrt þetta
verk ósnortinn. Jón Leifs.
Raimsóknarlögregl-
una vantar vitni
Rannsónnarlögreglan ósk-
ar eftir vitnum að þremur
umferðarslysum, sem orðið
hafa í bænum síðustu daga,
en þess er að vænta, að vel
verði brugðizt við þeim til-
mælum.
21. nóvember varð slys á
Túngötunni. Ungur maður
kom upp götuna og bar þar
að, er slysið varð og hafði
orð á því, að flytja þyrfti
hinn slasaða í La,ndsspítal- j1
ann. Við þennan mann vill,
rannsóknarlögreglan tala.
í öðru lagi vantar vitni að
slysi, sem varð á mótum Há-
jtúns og Laugarnesvegar 20.
' nóvember.
j Loks er slys, sem varð
klukkan ellefu að kvöldi 24. j
j nóvember. Kona kom ásamt,
fleira fólki út úr strætis- j
vagni á mótum Miklubraut-!
ar og Lönguhlíðar og ætlaði,
j suður yfir götuna, en varð:
fyrir fólksbifreið, er kom
j vestur Miklubrautina. Hafi
'eitthvað af fólkinu úr stræt-
isvagninum séð, er slysið
varð, er það beöið að tala við
rannsóknarlögregluna. 1
ínafararnir
jjj segja írá ferð sinni í Austíirbæjaibíó sunnudaginn 30. £
£ nóv. kl. 2 e. h.
Aðgöngumiðar fást í bókabúðum KRON og Máls- ,•
I
og mennmgar.
■.VW.VAW.VAVAV.WAWAVAVAV.WA^WAVAS
Gengið á sprekafjöru
★★★ * aff er veriff að undirbúa byggingu æskulýðshallar, þar á meðal
skautahöllar. Þctta er gott og blessað, en kostar þó milljónir.
— íleykjavíkurtjörn cr nú komin á ís, og á hinum kyrrum
kvöldum ætti ísinn þar ekki aff vera síðri en í veglegri skauta-
höll, ef eilthvað væri gert til að bæta þar aðstöðuna. En það
er ekki hirt um að lýsa svæðið né unglinjarnir laðaðir á nokk-
urn hátt að ísnum á tjörninni. Meðan skautahöllin, sem alls
ekki er verið að Iasta, er ekki risin af grunni, ætti þó að beina
unglingunum að tjörninni, þegar skautaís er á henni. Það væri
þcim hcllara en seturnar á sjoppunum og bíóunum og öðrum
vafasömum „uppeldisstöðvum" þessa bæjar.
★★★ Blaðið hefir orðið þcss vart, að ýmsum blæðir allmikið í Bugum
sú staðreynd, að ferðalög 200 manna með GuIIfossi suður í Mið-
jcrðarhaf i vctur, munu kosta þjóðina 2 miiljónir króna eða
ríflega það. Ferðakostnaður hvers farþega er varla undir 10
þúsund krónum og scnnilega verður meðaltalið hærra — Það
©r auðvitað ánægjulegt, að Karlakór Reykjavíkur getur farið
slíka söngför, sem honum og þjóðinni verður vafalaust sæmd
að, en hin öra sala farmiða, þegar yfir þjóðinni vofa verkföll
og atvinnuleysi herjar, er ckki góður vitnisburður um skilning
þjóðar, sem berst við þrengingar.
★★★ Kona, sem ræddi við blaðið í gær, scgist að því er hún bezt viti,
f.vrst manns hafa séð fyrirbrigði það á íslandi, er kallaff er
, fljúgandi diskar". Þaff var 13. júní 1947, klukkan átta til hálf
níu. Hún var þá stödd viff kirkjugarðinn, og sá ókennilegan
Ioftfara koma yfir Öskjuhlíðina og stcfna á Hvalfjörð og fara
mjög geyst. Telur einhver sig hafa séff þess háttar fyrirbæri fyrr?
Bréfaskóli S.Í.S.
NÁMSGREINAR:
íslenzk réttritun,
íslenzk bragfræði,
Danska I,
Danska II,
Enska I,
Enska II,
Franska,
Þýzka,
Esperantó,
Skipulag og starfshættir sam-
vinnufélaga,
Fundarstjórn og fundarreglur,
Sálarfræði,
Búreikningar,
Bókfærsla I,
Bókfærsla II,
Béikningur,
Algebra,
Eðlisfræði,
Mótorfræöi I,
Mótorfræði II,
/ Landbúnaðarvéíar og verkfæri,
Siglingafræði,
Skák I,
Skák II,
Hvar sem þér dveljið á landinu getið þér notiö tilsagn-
ar hinna færustu kennara.
BRÉFASKÓLI S. I. S.
o
o
o
(I
o
o
o
O
O
n
o
o
o
D
O
O
o
O
O
o
O
o
o
o
o
♦
O
o
O
o
o
o
O
O
O
o
O
O
o
^V.V/AVWAW.W/AWAWAVAVAVAVAWMW,'
•: •;
Hjartanlega þakka ég öllum þeim, er heimsóttu mig J«
í og glöddu með heillaóskum og gjöíum á 80 ára af-
■; mæli mínu, einnig fjarverandi frændum og vinum, ■:
er sendu mér vinarkveðjur símleiðis. — Guð blessi ^
l’ ykkur öll. — >
/ Kristján Þorláksson, frá Skoruvík. :■
V.W.VAV/AVAVVAVAVA’AVAV.VAV/AWA'.V.V
'.•I9VU161? Vi
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför mannsins míns, föður og tengdaföður okkar
LARS JÓNASSONAR frá Útstekk.
Ólöf Stefánsdóttir, börn og tengdabörn.
►nmtmrrmstmmmmmmmnamntte
UTBREIÐIÐ TIMANN
1