Tíminn - 23.06.1953, Blaðsíða 6

Tíminn - 23.06.1953, Blaðsíða 6
c. TÍMINN, þriðjudaginn 23. júní 1953. 137. bla* Æ)j PJÓDLEIKHUSIÐ f Sinfóníuhljómsveitin | í kvöld kl. 20,30. LA TRAVIATA ópera eftlr Q. Verdl Sýningar miðvikudag, fimmtu- dag og föstudag kl. 20.00. Pantanir sækist daginn fyrir sýningard., annars seldar öðrum. Ósóttar pantanir seldar sýning- ardag kl. 13,15. Aðeins fáar sýningar eftir, þar sem sýningum lýkur um mán- aðamót. Aðgöngumiðasalan opin frá kl. 13,15—20,00. Simi: 80000 og 82345 TOPAZ Sýning í kvöld kl. 20 á Akureyri. «* ▼ *- Síml 81936 Vartst glasfra- mennina . (Never trust a gambler) Viðburðarik og spennandi, ný, amerísk sakamálamynd um við- ureign lögreglunnar við óvenju samvizkulausan glæpamann. Dane Clark, Cathy O’Donnell, Tom Drake. Sýnd kl. 5 og 9. Bönnuð bömum. La Truviata Sýnd vegna áskorana aðeins þetta eina sinn. Sýnd kl. 7. NYJA Dollys-systur Hin íburðarmikla og skemmti- lega, ameríska söngva-stórmynd f eðlilegum litum með June Haver, John Payne, Betty Grable. Sýnd kl. 5 og 9. BÆJARBSO — HAFNARFIRÐI — Kvensjórteninyinn Geysispennandi og viðburðarík, ný, amerísk mynd um konu, sem tunni að elska og hata og var jlæsileg samkvæmismanneskja á daginn, en sjóræningi á nótt- imni. Jon Hall, Lisa Ferraday. Sýnd kl. 9. Sim 9184. Blikksmiðjan GLÓFAXI Hraunteig 14. Sími 7236 RÆNNVETG ÞORSTEINSDOTTIR, héraBsdómslögmaCur, Laugaveg 18, slml 80 805 Bkrifstofuttmi V 10—18. AUSTU RBÆi ARBlð | Samhljóntar Æskusihtyvar (I Dream of Jennie) Vegna fjölda áskorana verður þessi hugþekka og skemmtilega, ameríska söngvamynd í eðlileg- um litum sýnd aftur. — Aðal- hlutverkið leikur og syngur hin mjög umtalaða vestur-islenzka leikkona: Eileen Christy. Sýnd kl. 7 og 9. Fuzzy siyrar Hin spennandi og viðburðaríka, ameríska kúrekamynd með Buster Crabbe og grínleikaranum fræga A1 „Fuzzy“. Sýnd kl. 5. Jói stöhull (Jumping Jacks) Bráðskemmtileg ný amerísk gamanmynd með hinum frægu gamanleikurum: Dean Martin Jerry Lewis Sýnd kl. 3, 5. 7 og 9. GAMLA Dans oy dœyurtöy (Three Little Words) Amerísk dans- og söngvamynd í eðlilegum litum. Fred Astaire, Red Skelton, Vera EUen, Arlene Dahl. Sýnd kl. 5, 7 og 9.. TRIPOU-BÍÓ Bardayamaður- inn (The Fighter) Sérstaklega spennandi, ný, a- erísk kvikmynd um baráttu Mexikó fyrir frelsi sínu, byggð á sögu Jack London, sem komið hefir út í íslenzkri þýðingu. Richard Conte Venessa Brown Leo J. Cobb Bönnuð innan 14 ára. Sýnd kl. b. 7 og 9 Prófessorinn Sprenghlægileg amerísk gaman- mynd með hinum skoplegu Marx-bræðrum. Sýnd kl. 3. HAFNARBÍÖ Hœttuleyt leyndarmál (HoIIywood Story) Dularfull og afar spennandi, ný, amerísk kvikmynd, er f jallar um leyndardómsfulla atburði, er ger ast að tjaldabaki í kvikmynda- bænum fræga, Hollywood. Richard Conte, Julia Adams, Henry HuII. Bönnuð bömum innan 14 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9.. Ragaar Jóosson hæstaréttarlöffmaffnr Laugaveg 8 — Blml 7758 Lögfræðlstörf og elgnaum- sísla. Hótel í Reykholts- skóla í Sumar Tímanum barst í gær eft- Irfarandi fréttatilkynning frá hóteiinu í Reykholti: Fynr forgöngu Borgfirð- ingafélagsins í Reykjavík var föstudaginn 19. þ. m. opnaö hótel í Reykholtsskóla, þar sem fólki er gefinn kostur á að fá leigð herbergi gegn vægu gjaldi, ef það leggur sér sjálft til rúmfatnað. Þar verða einnig til leigu eins, tveggja og þriggja manna uppbúin herbergi, og cnnfremur verður hægt að' taka á móti stórum hópum ferðamanna, ef þeir hafa með sér svefnpoka eða annan viðleguútbúnað. Veitingar verða bar á boð- stólum allan daginn, og er hægt að fá heitan mat meðj stuttum fyrirvara, hvaða tíma dags. sem er. Hótel hefir ekki verið í Reykholti síðan 1940, en þá var skólinn tekinn undir! barnaheimili. Undanfarin; sumur hefir því verið mikill skortur á gististöðum í hér- aðinu, en þessi framtakssemi Borgfirðingafélagsins ætti að bæta að verulegu leyti úr hon um, auk þess sem fólki gefst þarna kostur á að eyða sum- arleyfi sínu í sveit, án þess að það verði því fjárhags- lega cfviða. Allar upplýsingar um hótel ið gefa Þórarinn Magnússon, Grettisgötu 28, sími 3614, Steingrímur Þórisson, símar 7080 og 81597 og símstöðin, Reykholti. iiwii:i)iafflu«iawwiiii»aimmwmw«iiii»iimmtimtmimiTOi» MARY BRINKER POST: Anna Jórdan 131. dagur. Sjálfstæðismenn eiga . . . (Framhald bí 5. siðu). leynisamniiagnum milli Eim skips og Thorsaranna. Fé- lagi, sem stjórnað er af fá- mennri klíku, á að afhenda ríkiseign, er nemur um 60 millj. kr., án nokkurs end- urgjalds. Og það á ekki að- eins að afhenda því þessar eignir, heldur jafnframt stóraukna einokunarað- stöðu í flutningamálum þjóðarinnar. Á þennan veg myndu stjórnarhættirnir verða, ef Sjálfstæðisflokkurinn fengi aukið fylgi í kosningunum 28. júní og þar með aukin á- hrif á gang þjóðmálanna. Það yrði unnið að því enn misk- unnarlausara og purkunar- lausara en áður að tryggja auð mönnum hans fríðindi og ein okunaraðstöðu á kostnað al- þjóðar. Þess vegna á svar kjósenda að vera það að efla þann flokk, sem er sterkast- ur andstæðingur íhaldsins og það óttast mest, Framsókn- arflokkinn. er hreykin af því.“ Hún fór ofan í veski sitt og tók upp sveran bunka af samanvöfðum peningaseðlum og rétti hon- um. „Ef til vill getur þetta hjálpað þér til að halda fyrir- tækinu gangandi." Hann leit á peningana og hnyklaði brýrnar undrun sleg- inn. „Fyrir hvern er þetta“, hrópaði hann reiðilega. „Þetta eru tuttugu og fimm þúsund dalir, Hugi. Ég fór 1 bankann, strax og hann var opnaður í morgun“. „Ég get ekki tekið yið því, ég get ekki tekið við pening- um þínum“. Hún horfði fast í augu hans. „Þú verð'ur, þú þarft að nota þá. Ég get vel lifað af veitingastofunni. Allt mitt líf hef ég verið hreykin ,af þér og því, sem þér hefir tekizt að framkvæma. Ég hef ailtaf óskað þess að mega taka þátt í því með þér. Lofaðu mér að vera með í þetta skipti, Hugi, lofaðu mér að finna, aó ég hafi getað verið þess megnug’ að rétta þér hjálparhö.nd.“ Hann sneri sér til veggjar, og honum fannst hann hafa misst nær allan mátt^Hann vissi að hann gat aldrei fengið hana til að skipta um skoðun. Hann þekkti það, að þegar hún hafði tekið ákvörðun í einhverju máli, þá gat ekkert fengið hana til að beygja af. Hann vissi einnig, að hann myndi taka við peningum hennar og reyna aö koma fótun- um undir Pólstjörnuna á ný, ekki vegna þess, að hann lang aði til þess, heldur af því, að það virtist skipta hana svo miklu máli, af því það var tákn þess, sem hún áleit hann vera. „Jæja, Anna“, sagði hann að lokum. ,,Ég skal taka við peningunum. Ekki vegna þess að ég vilji það eða álíti að það sé rétt, heldur af því að þú vilt aö ég geri það. Ef yið eigum eftir að sjást aftur, þá mundu, að að varst þú, sem sendir mig í burtu“. „Það fer allt vel, Hugi“, sagði hún blíðlega og kraup við stokkinn og lagði vanga sinn að hans. „Sjáðu til. Og í hvert sinn, sem ég heyri eimskip þeyta eimpípu sína úti á flóanum, þá mun ég hugsa. Máske er þetta eitt af skipum Huga, og ég mun verða stolt. Ef til vill sjáumst við aldrei framar, ástin mín, en vertu ekki sorgmæddur og vertu ekki einmana. Við höfum elskað hvort annað í öll þessi ár og við munum halda áfram að elska hvort annað. Þú verð- ur á Framhæð og ég verð hér við Yeslergötu, en á milli okkar verður ástin, án enda“. Tuttuyasti og fyrsti hafíi. Emilía hafði farið yfir til Margrétar Brookes að spila bridge. Hún og kunningjakonur hennar, Elsa Kata og syst- ir hennar Molly og Margrét spiluðu brigde tvisvar í mán- uði á fimmtudagskvöldum. Þessi spilakvöld voru nokkuð' öðruvísi en spilakvöldin sem hún fór í á þriðjudagskvöldin í Sólarlagsklúbbnum. Þar hittist stærri hópur af fínna fólki, bar voru konurnar klæddár dýrum klæðum og borð- uðu með mikilli varúð þá fitandi fæðu, sem á borðum var. Þar var bridge spilað upp á peninga. Spilakvöldin á fimmtu dögum voru eftirstöðvar frá fyrri tíð, þegar Emilía var ný- lega gift og Margrét var að hefja blaðamennsku sína og átti frí á fimmtudagskvöldum. Hugi fé.kk sér kvöldverö inni í bókastofu sinni, en hann hafði unnið frammyfir í skrifstofunni. Emilía hafði lokið við að borða, þegar Hugi kom heim og var um það bil að fara út. „Það er kalt kjöt í ísnum og ég hef skilið salta eftir handa þér í grænu skálinni. Marta lagaði súkkulaðibúning áður en hún fór í morgun svo ég held þú verðir ekki svangur“, sagði hún, þar sem hún stóð fyrir framan spegilinn í and- dyrinu og nældi á sig mjög snotran hatt með stórri fjöður, sem lá í boga niður að andliti hennar. ,,Mér þykir leitt að vera að fara, rétt í því að þú kemur heim, en ég hafði sagt þér, að við yrðum að borða snemma Hugi. Þetta er spila- kvöldið mitt“. „Ég veit það Emilíaf Ég gat ekki komizt fyrr frá því, sem ég var að gera. Ég var að fara yfir skýrslu frá Tomlinson hjá Kyrrahafsiínunni, ég held að sameiningin ætli að tak- m Ósltlur ferðamanna (Framhald af 3. EÍðu). Skilur það þá stundum eftir ýmiskonar óþrifnað, óhreink ar handklæði, rífur niður pappírsírúllur oí. s. f/v. Er þetta algengur en framúr- skarandi dónaskapur, sem iítt er þolandi- Það gefur auga leið, að veitingamaður sá, sem aldrei fær nokkur fríðindi til neins frá því opinbera, en er sífellt kúgaður af því úm stóra skatta af veitingafekstri sín- um, að hann hefir engar | skyldur til að halda uppi hreinlætistækjum fyrír veg- farendur, nema gesti síns veitingahúss. Er varla ósanngjarnt að ætlast til að það opinbera annaðist slík tæki yið þjóð- vegina með hæfilegu milli- bili. En fyrst það gérir bað ekki, sýnist vera „-.-ijpinnsta krafa til fóllcs, er.^ þarf að stanza, en kærir sig' ekki um að kaupa neitt í veitiiigahús- unum að það 'sýni þeim við- unandi kurteisi. A víðavaugi (Framhald af 6. Bfðu) Flokksstjórn Þjóðvarnar- manna vinnur nú að því, að þessum ágrciningi um það, hvort Þjóðvarnarflokkurinn eigi heldur að verða jafnað- arflokkur eða íhaldsflokkur, verði frestað fram yfir kosn ingar, svo að ekki komi til klofnings í flokknum fyrir þær! Þeir, sem kjósa flokk- inn, fá því ekki að vita, hvort þeir eru heldur að kjósa íhaldsflokk eða jafn- aðarflokk!

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.