Tíminn - 10.09.1953, Side 4
4
TÍMINN, fimmtudaginn 10. september 1953.
203. blaff.
Jón Kristgeirsson, kennari:
Orðið er frjálsf
Bæjarbragur á Keflavíkurflugvelli
Niðurlag.
Vinnan.
Starfsdagur byrjar kl. 7
og 7,30 að morgni. Þá eru
mikil umsvif og skarkali.
Starfsfólkið streymir að í
fiokkum og strætisvagnarnir
spúa út úr sér hverjum fólks
farmi af öörum. Meirihlut-
inn er að koma í vinnuna.
En þó eru margir að ljúka
næturvakt. Hér er unnið all-
an sólarhringinn í sumum
starfsgreinum. Því næst taka
aðrir bílar við þeim, sem
þurfa að fara lengri leið til
vinnu sinnar, og skila þeim
á vinnustaðina, en þeir eru
dreifðir víðs vegar. Hér er
gengið allhart eftir að menn
mæti stundvíslega og ef mis
brestur verður á því, þá er
dregið af vinnudeginum ná-
kvæmlega. Þykir mörgum
þetta nokkuð harkalegt, en
við því er ekkert að segja —
rétt er rétt. Svona strang-
leika erum við ekki vanir í
mörgum störfum í höfuð-
staðnum. En hann er engum
til tjóns, því stundvísina eig
um við aö hafa í heiöri. Vinnu
dagur er 10 stundir að lág-
marki. Er tekið matarhlé
einu sinni i 45 mín. eða eina
klukkustund. Vinnutæki eru
mörg og góð af ýmsum gerð-
um. Þau lyfta þunga erfiðis-
ins af verkamönnunum og
gera alla aðstöðu til vinnu
þægilega. Allt skrifstofufólk
byrjar dagsverkið á sama
tíma og menn í öðrum störf-
um. Þetta þætti sjálfsagt dá-
lítið einkennilegt, ef það gerð
ist í Reykjavík, en enginn efi
er á því, að það er mikið hag
ræði fyrir hinar margvíslegu
starfsgreinar, að skrifstofur
séu opnar allan venjulegan
vinnudag verkamanna.
Allir starfsmenn eru ráðn-
ir til óákveðins tíma fyrir
stundakaup. Reglan mun
samt sú, að menn hafa verið
í starfinu á meðan þeir vilja
og þörf er fyrir menn í því,
nema að þeir hafi brotið eitt
hvað af sér. En það eru, að
ég hygg, frekar fá tilfelli sem
komið hafa fyrir, aö mönn-
um hafi verið vikið úr starfi.
en burtrekstur er eina refs-
ingin, sem almennt er talaö
um hér á„ vellinum.
Ráðningarskrifstofa.
Allir þeir, sem hugsa til að
komast í starf á vellinum,
verða að leggja leið sína á
ráðningarskrifstofu, sem fé-
lagsmálaráðuneytið hefir
sett á stofn þar. Fulltrúi í
ráðuneytinu veitir henni for
stöðu. Er það ágætur maður,
sem veitir fólkinu, sem til
hans leitar, margs konar fyr
irgreiðslu. Er mjög mikið hag
ræði að þessari stofnun. Sér-
staklega, ef litið er á hvern-
ig ástandið var síðastliðið
sumar í þessu efni, þegar
menn sendu skriflegar um-
sóknir um störf þarna, og
fengu svo aldrei svar, og vissu
ekki hvert þeir áttu að snúa
sér. Þegar erlenda aðila vant
ar starfsmenn þarna, þá leita
þeir til ráðningarskrifstof-
unnar og hún annast um að
finna hina réttu menn til
starfans. Aldrei hefi ég heyrt
neinn mann hnýta í þessa
stofnun.
Vinnusamningar og
kaupgreiðslur.
1 upphafi gerðu íslenzk
stjórnarvöld vinnusamning
mikinn um laun og kjör allra
starfsmanna, sem hinir er-
lendu verktakar kynnu að
ráða til sín. Er þetta feyki-1
mikið plagg, heil bók. Ég'
hefi aðeins séð hana tilsýnd- |
ar, en lesiö lítið í henni. Það
má nú nærri geta að í svona 1
langri samningsgerð séu ýms 1
atriði, sem skilja mætti á'
fleiri en einn veg. Eða rétt- (
ara sagt, að menn gætu haft
tilhneigingu til þess, eink-1
um, þegar annar aðilinn er
alls ókunnugur íslenzkum I
starfsvenjum og kjörum. Það
er þvi engin goðgá að hugsa'
sér að reynslan þurfi tíma-!
korn nokkurt til að kenna
mönnum rétta framkvæmd
hinna margbrotnu samnings
atriða. Sú hefir líka oröiö
raunin á. Talsverð brögð
hafa verið að því, að starfs-
menn hafa talið, að þeir væru
mjög hlunnfarnir í viðskipt-
um við vinnuveitendur. Voru
oft svo mikil brögð að því,
' að eftir hverja vikuútborg-
un gaf sig fram allstór hóp-
ur manna, sem taldi sig hafa
'yfir ýmsu að kvarta. Margir
þeirra höfðu rétt fyrir sér, en
aðrir ekki, eins og gerist. At-
vinnurekendur tóku sig svo
' til og lögðu stund á að kippa
‘ þessu í rétt horf. Nú er svo
komið, að það er hrein und-
antekning að menn komi
með kvartanir, sem væru á
rökurn reistar. Þekki ég þetta
' af eigin raun, því að ég vinn
' í þeirri skrifstofu, sem fyrst
tekur á móti kvörtunum;
manna yfir röngum kaup- ’
greiðslum. Meginið af eldri
skekkjum er nú leiðrétt. Fé-
lagið hefir í þjónustu sinni
íslenzkan lögfræðing, sem á
j að vinna í þágu réttlætisins,
1 og gæta þess að rétturinn
fái að njóta sín í hvívetna,
og enginn beri skarðan hlut
frá borði. Samt eru nokkur
atriði enn, sem menn telja
1 að þeir þurfi að fá fyllri
samninga um.
Reynslan af öllu þessu hef
ir orðið sú, að nú er sagt að
gerður hafi verið nýr samn-1
ingur, rituð ný bók, um kaup'
og kjör starfsmanna á vell-1
inum. Er sagt, að hún feli í
sér margs konar kjarabæturj
verkamanna. — Bíða menn :
hennar með eftirvæntingu1
og telja stundirnar þangað
til að hún tekur gildi en þó
mun hún vart enn vera full-;
gerð.
Hvað er kaup manna á
vellinum? munu menn1
spyrja. Því er ekki hægt aö
svara í fáum orðum. Það er|
margvíslegt, eftir því hver,
starfsgreinin e)r, og vei'ður
ekki farið nákvæmlega út í
þá sálma. En vikukaup venju'
legra verkamanna er ekki
undir 1000,00 kr. fyrir hinn
ákveðna lágmarks vinnu-
tíma. Eftirvinna eða helgi-
dagavinna kemur til greina,
þá hækkar kaupið að sama
skapi. Aðrir fá hærri laun,
ailt upp í helmingi hærra
eða meir, ef þeir vinna mikla
eftirvinnu. Föstudagur er
mesti hátíöisdagur vikunnar.
Þá fá menn greidd vikulaun-
in. Það er ætíð eftirvænting
að fá að sjá „tékkann“ sinn,
einkum ef menn eiga að baki
næturvinnu. Greiðsla fer æ-
tíð fram með ávísun. Síðustu
vikurnar hefir komið margt
hljóðið úr horni. Vonbrigðin
eru greinileg. Hvað hefir nú
gerzt? Eru svik í tafli? Hvað;
hefir orðið af þriðja parti'
vikukaupsins? Spurningun-
um rignir yfir úr öllum átt-
um. Svariö er ofureinfalt og
nærtækt. Skattayfirvöldin
hafa smeygt litla fingrinum
inn í vasa launþegans. Það
dugar ekki að deila við dóm-
arann. — Þá skilja menn, að
verulegur hluti launanna er
aðeins lán, sem standa verð-
ur skil á til yfirvaldanna. Þar
með er málið afgreitt.
Þeir, sem búa utan vallar-
ins, fá ofurlítið hærra kaup
en hinir. Nemur sá mismun-
ur 5—6 hundruð krónum á
mánuði eftir því hver vinnu-
starfinn er. Þarna kemur dá-
lítið upp í húsaleiguna, og
gerir það mönnum auðveld-
ara að fást við hana. Þann-
ig er það t. d. með þá, sem
búa í hinu alræmda Lands-
hafnarhúsi í Njarðvik. Þeir
greiða 180,00 kr. í leigu á
mánuði, — svo að þeir fá
eiginlega sem svarar 10.00 kr.
í kaup fyrir hverja nótt, sem
þeir sofa þar. Landshafnar-
húsið er annars bezta hús,
sem hefir veitt fjöida manns
aðstöðu til að vinna fyrir háu 1
kaupi. Eigandi þess hefir líka !
reist annaö hús, nokkru
stærra viö endann á því. Þaö
hefir að geyma 44 herbergi.
í einu þeirra bý ég, og þykir
þar gott að vera og ódýrt
eftir atvikum, og þriðja hús-
ið er nú í smíðum á sama
stað af sömu gerð'.
Fólkiff.
Starfsliðið á vellinum er ó-'
sköp hversdagslegt fólk. Al-;
veg eins og gerist og gengur. j
Það er úr öllum stéttum þjóð'
félagsins og allir stjórnmálai
ílokkar landsins eiga þar ein
hver ítök. Það er áberandi
hversu íslendingarnir eru
yfirleitt margir úr yngri kyn'
slóðinni. Er það skiljanlegt,
því að þeir rosknari eru meir j
bundnir heima við. Margir
eru nemendur úr skólunum,
eöa nýútskrifaðir kandídatar
og aðrir lokaprófsmenn. Hafa
sumir þeirra hlotið hér
mannaforráð og ábyrgðar-
stöður. Yfirleitt eru slíkar
stöður, sem íslendingar'
gegna á annað borð, hér, skip
aðar ungum mönnum, og
sumum kornungum, — virð-
'ist fara vel á því. Við fáum
hógværa og ákveðna af-
greiðslu hjá þeim. Gildir það
ekki hvað sízt um þá, sem'
hafa forstöðu mannaráðn-1
inga hjá fyrirtækinu. Það
mæðir líka mest á þeim, en
til þeirra leita menn með
alls konar kvabb og kvein og
kröfur. Framkoma fólksins
er létt og frjálsmannleg og
ber þess vott að ekki er farið
í manngreinarálit í því til-;
MaS'ur, scm segist haía mik’a
ánsegju að harmoníkuleik hefir
sent fcaðstofunni eftirfarandi
grein:
„Nerski harmoníkusnillingurinn
Toralf Toilefsen hefir nú dvalið
hér á landi í næstuni tvo mánuði
og mun hafa haldið um fimmtíu
hljómleika víðs vegar um landið.
Yfirleitt hafa þó hljómleikarnir
verið halönir í hinum otærri bæj-
um, en þó hefir hann einnig leik-
ið, eítir því, sem frétzt hefir, á
nokkrum stöðum í þéttbýlustu
sveitunum, sem hafa stærst sam-
komulrús.
Þessi norski harmoníkuleikari
hefir verið öllum unnendum léttr-
ar tcnUstar hinn mesti aufúsugest
ur, en hann er á margan hátt frá-
bær snillingur, og kann þá list að
koma skemmtilega fram á sviðinu,
en það heíir ekki svo l'til áhrif á
áheyrendur. En þrátt fyrir, að Tor
alf Tollefsen hafi nú leikið opin-
berlera fyrir fleiri íslenzka áheyr-
endur, en áennilega nokkur annar
útlendingur, eru þó mjög margir,
sem ekki haía átt þess kost, að
heyra í honum að þessu sinni.
Nú langar mig að beina því til
útvai’pshis, hvort ekki sé mcgu-
legt, að taka upp á stálþráð þá
eínisskrá, sem Tollefsen hefir leik-
ið á hljómleikum sínum hér, og
útvarpa því síðan á einhverjum
góðum tíma, er sem flestir hafa
gott tækifæri til að hlusta á út-
varpi'ö.
Er víst, aö það yrði vel þegið af
mörgum, sem ekki hafa heyrt í
Tollefsen nú, að fá að heyra
alla efnisskrá hans í útvarp.
Að vísu eru oft leiknar plöt-
ur, sem TcTefsen heíir leikið inn á,
í úívarpinu, cn nú er vitað, aö á
siðustu árum liefir hann breytt
nckkuð lagavali ,sínu, og yrði því
nokkuð nýnæmi í Iögum þeim, er
hann leikur nú. Vona ég ao út-
varpið taki þessa íiilögu mína til
greina.
Þá lamgar itmg að, lokum að
þaklca Ingibjörgu Þoiber s fyrir
þátt hennar, „óskalög sjúklinga".
Er það einn bezti þáttur útvarps-
ins. £érstakle;a vil ég þakka henni
fyrir þá nýjung, sem hún kom rneð
s'ðastliðinn laugardag, er hún lék
tvö lög, sem tveir af hinum nýju
dægurla; asöngvurum, sem komu
íram á hljónileikum nýlega, sungu
inn á. Margan mun áreiðanlega
fýsa að heyra moira frá þeim.“
Hcr cru þá að lokum þrjár stök-
ur eftir Brynjólf Björnsson frá
Norðíirði, sem hann nefnir Sláttu-
vísur:
Falla strá af fægðum ljá
íyrir knáum armi.
j Blómin smáu bana fá,
brjóst mitt þjáist harmi.
#■
Fríð i skyndi falla blóm;
ier um stryntíi skárinn.
| Rósum myndar dauðadóm,
| í dularyndi Ijárinn.
Reíla í slcrúði rjóð á kinn,
rifjaði trúður heyflekkinn.
Krííu lúði hýr og svinn,
handar prúða ungfrúin.
Lýkur svo baðstofuhjalinu í dag.
Starkaður.
ARKAÐURINN
Bankastræti 4,
Hafnarstræti 11.
Y.W.V.VnVr'.WAV ;.W.V.,/.,.‘.'.V.W.W.V.V.VAV.V
\ . 5
Eg þakka hjartanlega öllum-þeim, sem vottuðu mér j,
? vináttu og heiðruðu mig á fimmtugsaímæli mínu. jjj
\ Með vinarkveðju í
;• Jens Gucbjörnsson. í
’wV.VAVAW.VAV.VVV/rtSWVAVW-WVrt'A/ AWVI
liti. Um helgar eru hér mikl-
ir þjóðflutningar að og frá
staðnum. Um sexleytið á laug
ardagskvöldum eru mættir
margir stóru bílarnir hans
Steindórs. Þeir bíða eftir
farmi. Og þegar einn hefir
fengið fylli sína fer hann af
stað, en sá næsti opnar sína
hurð. Auk þess flytja stræt-
isvagnar Hamiltons fólkið til
Revkjavíkur, eins og þeir fá
annað. Sama sagan endurtek
ur sig á sunnudagskvöldum
og á mánudagsmorgnum kl.
um 5,30 fara menn að safn-
(Framh. á 6. slðu).
Jarffarför mannsins míns
JÓNS JÓNSSONAR,
Nesi, RangárvöIIum,
er andaSist 5. sept. s. I., fer fram aff Odda laugardag-
inn 12. september og hefst meff húskveðju að heimili
hans kl. 2 e. h. — Samkvæmt ósk hins látna, evu blóm
og kransar afbeffiff, en þeir, sem vildu minnast hans,
beðnir aff láta Oddakirkju njóta þess.
Anna Guðmundsdóttir.
•iimiiiiiiuiimiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiMiiiiiiiiiitiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimiiiiiiiHiiiiiiiii.tiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiik
Vinnið ötullefia að útbreiðslu TÍMANS
iimiimimiiiimimmmmimmmmmmmmmmmiiiumKmimiimimmiimiimiiaiiiimuiimiiimmiitáumia