Tíminn - 03.11.1953, Page 2

Tíminn - 03.11.1953, Page 2
z TÍMINN, þriðjudaginn 3. nóvember 1953. 249. blað. Þeir kvöddu yfirmann sinn tára- iaust í skugga steinveggsins Frægastl stríðsfróttaritari Bandaríkj- anaa. Ernie Pyle, lýsir kveðjum s* vígvelli | , i JCiL MYNDSR Frægastur stríðsfréttaritara síðustu heimsstyrjaldar er s án efa Ernie Pyle. Hann fórst í Kyrrahafi í lok styrjaldar | innar, en hann var þá með bandarískri herdeild. Var her- j deildin að ganga á land á Guadalcanal, er hann varð fyrir j skoti frá Japönum og lézt samstundis. Hér á landi hefir verið sýnd kvikmynd, sem byggð er á frásögum hans, sem stríðsfréttaritara og endar myndin á þeim kafla, sem hér fer á eftir og nefnist Menn Waskóws kapteins kveöja. Þessa grein ritaði Ernie Pjde á vígstöðvunum í Italíu. I í þessu stríði hef ég þekkt marga liðsforingja, er hafa verið vel liðnir af hermönn- um. En ég hef aldrei rekizt á mann, sem naut eins mikill- ar hylli og Henry T. Wasków kapteinn. Wasków var ung- ur maður, tuttugu og fimm ára að aldri og var í 36 her- deildinni. Hann bar með sér þá einlægni og göfug- mennsku, að fólk vildi láta hann ráða málum. „Á eftir föður mínum, met ég hann mest manna“, sagði einn manna hans við mig. „Hann hefir alltaf séö vel um okkur“, sagði. annar. í myrkrinu komu þeir af fjallinu. Ég var viö enda múlasna- slóðarinnar, nóttina sem þeir komu með Wasków niöur. Það var næstum fullt tungl og sást langt upp eftir slóð- Útvarpið tjtvarpið í (lag: Fastir liðir eins og venjulega. 18.00 Döriskukennsla; II. fl. — 18.30 Enskukennsla; I. fl. 18.55 Framburðarkennsla i esper- antó og ensku. 19.25 Þjóðlög frá ýmsum löndum (plötur). 20.30 Erindi: Úr sevintýrasögu mannsheilans; I. (Karl Strand læknir). 20.55 Undir ljúfum lögum; Carl Billich o. fl. flytja létt hljóm- sveitarlög. 21.25 Náttúrlegir hlutir. Spurning- ar og svör um náttúrufraeði (Sigurður Pétursson gerla- f ræðingur). 21.40 Tónleikar (pl.): ,Dauðraeyj- an“, hljómsveitarverk eftir Rachmaninoff. 22.10 Upplestur: Sigfús Elíasson les frumort kvæði. 22.25 Dans- og dægurlög (plötur). 23.00 Dagskrárlok. Útvarpið á morgun: Fastir liðir eins og venjulega. 18.00 íslenzkukennsla; I. fl. — 18.30 Þýzkukennsla; II. fl. 19.25 Óperulög (plötur). 20.20 Útvarpssagan: Úr sjálfsævi- sögu Ely Culbertssons; IX (Brynjólfur Sveinss. mennta- skólakennari). 20.50 Kórsöngur: ítalskir kórar syngja óperulög (plötur. 21.05 íslenzkt mál (Bjarni Vil- hjálmsson cand. mag.). 21.20 Tónleikar (plötur): „Scara- mouche“, svíta fyrir tvö píanó eftir Milhaud. 21.35 Vettvangur kvenna. — Erindi Lis Groes viðskiptamálaráð- herra Dana (frú Ragnheiður Möiler). 22.10 Sinfónískir tónleikar. 23.20 Dagskrárlok. Árnað heilla Hjónaband. í fyrradag voru gefin saman í hjónaband ungfrú Svanfríður Ingvarsdóttir frá Bjaila í Landsveit og Sæmundur Jónsson frá Aust- vaðsholti í sömu sveit. Séra Bjarni Jónsson gaf brúðhjónin saman. Heimili þeirra er að Bergsstaða- stræti 60, Rvík. inni. Dauðir menn höfðu verið að koma niöur af fjall- inu allt kvöldið, bundnir á bök múlasnanna. Þeir komu, liggjandi á maganum þvert yfir reiöingana, og höfuð þeirra héngu niður með vinstri hlið múlasnanna. Stíf ir fætur þeirra lágu ankann anlega með hinni hliöinni og bifuðust eftir hreyfingum asnanna. i | Gat allt eins verið veikur. Ég veit ekki hver sá fyrsti var, sem þeir komu með nið- ur. Þú finnur smæð þína í návist dauðans og spyrð ekki heimskulegra spurn- inga. Þeir renndu honum niður af asnanum og studdu hann á fótum andartak. í daufu skininu gat hann allt1 eins verið veikur maður, sem j hallaöist upp að öörum. Síð-j an lögðu þeir hann í skugg- j ann af steinveggnum. Viö skildum hann eftir við veg- inn og fórum aftur inn í skýl ið og lögðumst þar niður í hálminn og töluöum á með- an við biðum eftir næstu múlasnalest. Svo kom her- maður og sagði að það væru fleiri lík fyrir utan. Við fór- lum út á veginn. Fjórir múl- Jasnar stóðu þar í tunglskin- inu. Hermennirnir, sem teymdu þá biðu okkar. „Þetta er Waskófy kapteinn“, sagði einn þeirra fljótmælt- ur. Og hann fór líka í skuggann. Tveir menn leystu líkama I hans af asnanum og lögðu 'hann i skuggann undir stein veggnum. Aörir menn tóku hina af baki. Að lokum lágu fimm í röð. Þú breiðir ekki yfr dauða menn í vígsvæði. Þeir liggja aðeins þarna í skugganum, unz einhver kemur að sækja þá. Múlasn- arnir fóru á beit. Mennirnir á veginum sýndust eiga erfitt með að/ fara. Loks varð ég var við aö þeir hreyföu sig, einn á eftir öðrum, framhjá Wasków kaptein. Ekki að ég held til aö horfa á hann, heldur til að segja eitthvað að lokum viö hann og sjálfa sig. „Mér þykir það slæmt, gamli minn“. Einn hermaður kom og leit niöur og sagði upphátt: „Andskotans helvíti“. Þaö var allt og sumt, sem hann sagði. Annar kom og sagöi: „Fjandinn eigi þaö ailt“. Hann leit niður andartak og sneri síðan frá og fór. Svo held ég að þaö hafi verið liðs foringi, sem kom. Það var erfitt að greina liðsforingja frá öðrum í rökkrinu, af því allir voru óhreinir og illa til reika. Maöurinn leit framaní andlit kapteinsins og talaði SIBOCC0 Stjörnubíó sýnir um þessar mund ir mynd með þeim Humhrey Bog- art og Mörtu Toren í aðalhlutverk- um. Myndin mun eiga að vera í stíl Casablancafilmunnar, sem á sínum tíma vakti töluverða hrifn- ingu. Bogart er hér aftur um- kringdur ófrýnilegum Aröbum með rautt fez á höfðhiu. Sjálfur er hann í gamla rykfrakkanum og hreyfir lítt efri vörina að vanda. Hann klæðist slitnum flíkum hlut- leysingjans, sem hugsar mest um pyngju sína, en lætur sig litlu skipta hvor endinn snýr upp eða niður á stríðsmönnum og föður- landsvinum. En í Sirocco vantar alveg spennuna og afbrýðissem- ina, sem gerði Casablanca fræga. Hinn harðsvíraði smyglari Humphrey græöir á tá og fingri, daðrar við unnustu fransks liðs- foringja og lætur að lokum lif sitt að hætti píslarvotta, en slíkt er ágætur endir á léttúðugu ævi- skeiði. Um leik Bogarts þarf vart að fjölyrða. Hann er alltaf eins. blessaður karlinn. Meðleikarar hans, Marta Toren og Lee J. Cobb, fara laglega með lítil hlutverk. Þó mun það skoðun manna, að ung- frú Toren standi löndu sinni, frú Ingiríði Bergmann, tæplega á sporði. V. A. til hans, eins og hann væri lifandi: „Mér þykir þetta' slæmt, gamli minn“. Þá kom hermaður og staönæmdist við hlið , liðsforingj ans, og 1 hann talaði til hins látna^ yfirmanns síns, ekki hvísl-, andi en mjög þýðlega, og hann sagði: „Svo sannarlega þykir mér þaö leitt, herra“. Síðasta kveðjan. Þá settist fyrsti maðurinn niður og tók aðra hönd kap- teinsins. Hann sat þannig i rúmar fimm mínútur hald- andi um hönd þess látna og horfði einbeittlega í andlit hans. Og hann sagöi aldrei neitt á meðan hann sat þarna. Að lokum lagði hann hönd hans niður. MeÖ varúð lag- færði hann skyrtu kapteins- ins í hálsmáliö og snyrti tætt föt hans í kringum sár ið. Svo stóð hann á fætur og gekk aleinn á braut í tungl- Skininu. (Þetta er orðrétt þýðing á grein Ernie Pyle um kveðjur þær, sem Wasków fékk hjá mönnum sínum. í kvikmynd inni var þetta áhrifaríkasti þátturinn, enda - síöastur. Burgess Mederith fór með hlutverk Ernie Fyle en Ro- bert Mitchum meö hlutverk Waskóws. Millifyrirsagnir eru blaðsins. Það má geta þess, að þessi frásögn er tal- in með því bezta, sem Ernie Pyle ritaði frá stríöinu). Sandblástur - Málmhúðun Hreynsum rið og málningu af hlutum úr járni. || Málmhúsðum. Sandblásum gluggaskildi og myndstr- ■ um gler. Plötur og steina á grafreiti. S. Helgason S.f. Birkimel við stúku íþróttavallarins. Sími 80243 I BlandatSir ávexíir þiirrkaðir Aprikósar þurrkaðar $ Diiðinr í laaisri vigt \ Samband ísl.samvinnufélaga Langarvaínsskáli 25 ára. (Framhald af 1. sfðu). Nú treystir Bjarni skóla- stjóri á það að hægt sé að endurnýja gamla skólann, og mun sjálfsagt ekki óska sér annars fremur í bygginga- framkvæmdum á þessum tímamótum, en að skólinn fái aftur í afmælisgjöf burst irnar sínar sex og þar með gamla, hlýlega bæjajfsvipinn. Ræða Bjarna skólastjóra verður ekki rakin hér, því hún verður birt í Tímanum innan tíðar. Geta menn sótt þangað fyllri upplýsingar um sögu skólans og kennaralið, þar sem valinn maour er í hverju rúmi. Aðeins einn af kennurum hefir starfað frá byrjun á Laugarvatni. Það er Guömundur Ólafsson, jafn- an elskaður og virtur af öll- um. Á afmælishátíðinni voru haldnar margar ræður, svo að fylla mætti mörg blöð, ef rekja ætti ýtarlega efni þeirra allra. Bjarni Bene- diktsson menntamálaráð- herra talaði næstur á eftir skólastjóra og óskaði þess, að Laugarvatnsskóiinn mætti sem lengst njóta ágætrar skólastjórnar Bjarna. Bjarna sonar. Jónas Jónsson rifjaði upp forsögu skólans og þróun. Lýsti hann því, hvernig það væri algjört einsdæmi, aö maður sem stjórnar jafn um fangsmiklu menntasetri Skuli jafnframt stýra fjár- málum þess með þeim á- gætum, sem Bjarni hefir gert. En skólinn hefir undir hans stjórn skilað heilli milljón króna í arð og sparaö sýslunni um 400 þús. kr. út- gjöld. Skólinn á sjálfur einn myndarlegasta bústofn á Suðurlandi, ásamt búvélum og byggingum. l oá/kar Það hefir því verið gæfa Laugarvatnsskólans að eiga foringja sem ekki hefir spurt um það í störfum sín- um fyrir skólann, hvenær klukkan yrði fimm, eða hvað hann fengi í kaup, heldur hitt hvernig skólinn gæti komist bezt af og eignast traustan fjárhag með bú- skap og íramkvæmdum. Guðmundur Ólafsson kenn ari, talaði af hálfu kenn- ara og sagði að kennarar gæfu skólanum íslenzkan silkifána í afmælisgjöf Böðv ar Magnússon hélt því næst ræðu og sagði, að ánægjulegt væri að sjá, hvernig draum- ar þeirra hjóna væru að ræt ast á Laugarvatni. Það væri bezta þakklætið, sem þau gæu hlotið fyrir að hafa lát- ið jörðina af hendi. Helgi Elíasson, fræðslumálastjóri fór miklum viðurkenningar- orðum um Bjarna skóla- stjóra í ræðu sinni og sagðist búast við miklu en kær- komnu ónæði af honum vegna framkvæmda og á- forma, sem aldrei stöðvuð- ust á Laugarvatni. Sveinn Þórðarson, skóla- meistari, flutti síðan Laugar vatnsskóla kveðju mennta- skólans, hins uppkomna barns héraðsskólans. Las upp ávarp frá menntaskóla- kennurum og afhenti pen- ingaupphæð sem afmælis- gjöf. Þar næst tóku til máls Að- alsteinn Eiríksson, náms- stjóri, sem sagöi að margir skólar vildu mæla sig við Laugarvatnsskóla og taka hann sér til fyrirmyndar. Helgi Hjörvar, skrifstofu- stjóri, talaði fyrir minni | skólastjórans. Séra Kristinn Stefánsson, frikirkjuprestur, sagði frá samstarfi kennara á Laugarvatni á fyrstu árum skólans og sagði að sá skóli myndi vandfundinn, þar sem betur væri haldið um stjórnartauma. Guðmundur Daníelsson skáld las upp kvæði um Laug arvatn, sem hann hafði ort á þarvistardögum sínum. Síðan var gengið til kaffi- drykkju í héraðsskólanum, þar sem bornar voru fram rausnarlegar veitingar. Þar héldu ræður margir eldri nemendur og rifjuðu upp gamla daga. Ræðumenn voru Guðmundur Magnússon, Dan íel Ágústínusson, Páll Þor- steinsson, Vilhjálmur Hjálm arsson, Rósa Blöndal og séra Magnús Ástmarsson.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.