Tíminn - 03.11.1953, Side 3

Tíminn - 03.11.1953, Side 3
249. blað. TÍMINN, þriðjudaginn 3. nóvember 1953. S / síendingajfyættir ÞÍN Fimmtugur: Eiríkur Sigurðsson, yfirkennari Hinn 16. október síðastliðinn varð Eiríkur Sigurðsson, yfir- kennari við Barnaskóla Akur- eyrar, fimmtugur að aldri. Fæddur er hann að Hamraseli í Geithellnahreppi 16. október 1903. Foreldrar hans voru þau Sigurður Þórðarson frá Flat- ey á Mýrum og Valgerður Ei- ríksdóttir frá Hlíð í Lóni. Þriggja ára að aldri fluttist Eirikur með foreldrum sinum að Borgargerði við Djúpavog. Átti hann heima þar til 11 ára aldurs, er foreldrar hans fluttu búferlum að Dísarstöð- um í Breiðdal. Þar dvaldizt Eiríkur svo þangað til hann tók að leita sér menntunar. íVeturinn 1922—1924 stlindaði hann nám á Eiðaskóla. Aö því námi loknu var hann um hríð heimiliskennari í Breiðdal, en næstu 2 ,ár (1925—1927) var hann við nám í Danmörku. 1927—1929 stundaði hann kennslu við.barna- og ungl- ingaskóla í Neskaupstað. 1933 lauk hann prófi við Kennara- skólann í Reykjavík og sama ár gerðist hann kennari við Barnaskóla Akureyrar. Hefir hann stundaö það starf í 20 ár, þar af sem yfirkennari frá 1949. Ritstörf hefir hann stundað nokkuð. Frá 1939 hef- ir hann verið meðritstjóri „Vorsins“ (barnablaðs) og 3 barnabækur hefir hann frum- samið og þýtt aðrar. Auk þess hefir hann ritað greinar nokkrar í blöö og tímarit. Að félagsmálum hefir Eirík- ur starfaö mikið, enda er hann félagslyndur og félagshæfur maður. Hann er mjög áhuga- samur bindindismaöur og hef- ir starfað mikið á vegum Góð- templara og er þar virðinga- maður. Auk þess hefir hann veriö formaður Barnaverndar- félags Akureyrar írá stofnun þess félagsskapar og formað- ur guðspekistúkunnar „Syst- kinabandsins“ á Akureyri hef ir hann verið i 6 ár. Er auk þess 1 stjórn Austfirðingafé- lagsins þar. I Það er svo um þessa upp- talningu á æviatriðum Eiríks Sigurðssonar, eins og aðrar slíkar, aö hún segir ekki mik- ið um manninn, sem verið er að minnast, enda eru störf og stöður og umsvif allskonar í hinum borgaralega heimi, þó að allt slíkt prófi að vísu manninn nokkuð og leiði í Ijós hæfileika hans, samt sem áð- ur lítiö annaö en eins konar umgerð eða rammi utan um hinn raunverulega mann. Sá, er þetta ritar, þekkir ekki mik iö til félagsmálastarfsemi Ei- ríks, en af orðspori — og að vísu af eigin raun að nokkru leyti — telur hann sig geta f ullyrt, að Eiríkur sé hlutgeng ur vel á hverju sviði, þar sem hann kýs aö láta eitthvaö til sín taka, og farsæll starfsmað ur. Hann er greinagóður mað- ur og glöggur á aðalatriði hvers máls, samvinnuþýður, sókndjarfur og gætinn í senn. En mest er þó um það vert, hve hugur hans er opinn og frjáls og hjartað hlýtt. Kvæntur er Eiríkur ágætri konu, Jónínu Steinþóx-sdðít- .ur. Fylgir hún manni sínum fast og vel, bæði á andlegum leiðum og veraldlegum, og er héimili þeirra hjóna mjög á- nægjulegur staður, sem laðar að sér gesti.Stendur lxús þeirra á fögrum staö uppi á „brekk- unni“, er Akureyringar kalla svo, skammt frá barnaskóla bæj arins og Menntaskóla. Hlýtur því umhverfi þetta aö vera hlaðið margs konar mennt og fræðum, og ekki ætti útstreymi (,,aura“) kirkj- unnar, sem stendur þarna rétt hjá, að skemma aixdrúmsloft- ið. Eiríkur á í tvenns konar skilningi heima í þessu um- hverfi, og mun hann una sér vel þarna. Hann er þar „rétt- ur maöur á réttum stað“. Eng- in tilviljun er það, að hann hefir hneigzt að Guðspekinni og hinum gáfulegu skýringum hennar á lífinu og tilverunni. Veldur því þekkingarþrá haxis og sannleikshollusta. Hann er einnig, aö ég hygg, trúhneigð- ur maður, en mun þó kjósa sér fagurt útsýni og miklar víðáttur á sviði trúarinnar og ekki geta oröið bókstafsbund- inn, og mér finnst það í margs konar skilningi táknrænt fyr- ir hann, að hann skuli búa uppi á „brekkunni". Þó aö seint sé, vil ég með þessum fátæklegu línum senda Eiríki Sigurðssyni beztu afmælisóskir meö þakk- læti fyrir trausta vináttu og samfylgd á „vegum andans“. Gretar Fells. Ríkisútgerð togara til atvinnujöfnunar Hannibal Valdimarsson og Erlendur Þorsteinsson flytja frv. um togaraútgei'ð ríkisins til atvinnujöfnunar. Aðalefni þess er: Ríkið kaupir og gerir sjálft út eigi færri en fjóra togara af þeirri stærð og gerð, sem að áliti reyndustu útgei'ðar- manna eru taldir heppilegast- ir til öflunar hráefnis á heima miöum fyrir hraðfrystihús og önnur fiskiðjuver, sem illa eru hagnýtt vegna hráefnaskorts. Höfuðmarkmið þessarar tog araútgerðar ríkisins er aö jafna atvinnu í kaupstööum og kauptúnum landsins á þann hátt, aö togararnir leggi þar einkum afla á land, sem atvinnuleysi gerir vart við sig og mest er þörf aukinnar at- vinixu hverju sinni. Við á- kvörðun þess, hvar ríkistogari skuli leggja upp afla sinn, má útgerðarstjörnin einnig taka tillit til þess, að illa hagnýtt fiskiðjuver fái aukin hráefni til vinnslu. Stjórn togaraútgerðar ríkis- ins er skipuð þremur mönn- um, kosnum á Alþingi, með sama hætti og stjórn síldar- verksmiðja ríkisins. Stjórnin ræður framkvæmdastjóra. Sala eyðijarða Karl Kristjánsson flytur eft irfarandi frv. um sölu tveggja þjóðjarða: „Ríkisstj órninni er heimilt — aö fengnum meðmælum sýslunefndar Suður-Þingeyj ar sýslu — að selja Hálshreppi eftirtaldar þjóðjarðir, sem eru eyðijarðir þar í hreppi: 1. Eyvindará. 2. Heiðarhús. Söluverö jarðanna fari eft- ir þvi, sem um semst, eða eft- ir mati tveggja dómkvaddra manna, ef samningar takast ekki. Námaréttindi skulu undan- skilin við söluna.“ f greinargerð frv. segir svo: „Frumvarp þetta er flutt samkvæmt beiðni hrepps- nefndarinnar í Hálshreppi. Báðar eru jarðirnar, sem (Framh á 6. 6í5u>. Enska knattspyrnan 0-2 3- 1 4- 3 1-0 Sextug: Halldóra Gunnlaugsdóttir íf Urslit s. 1. laugardag. 1. deild. Arsenal—Sheffield Wed. 4-1 Aston Villa—Bolton 2-2 Blackpool—West Bromwich 4-1 Cardiff—Charlton 5-0 | Chelsea—Liverpool 5-2 ! Huddersfield—Manch. Utd. 0-0 ! Manch. City—Burnley 3-2 j Portsmouth—Middlesbro Sheff. Utd.—Newcastle Sunderland—Tottenham Wolves—Preston 2. deild. Biackburn—Leeds Utd. 2-2 Brentford—Nottm. Forest 1-1 Bristol R.—Luton T. 3-3 Bury—Fulham 1-3 Derby—Birmingham 2-4 Doncastcr—West Ham 2-0 ! Everton—Leicester 1-2 ! Hull Cify—Rotherham 1-0 j Lincoln City—Plymouth 2-0 j Notts County—Swansea 3-0 Oldham—Stoke City 1-0 Mikið var um óvænt úrslit. Blackpool vann West Brom- wich, sem þar meö tapaði sín- um fyrsta útileik. Leikurinn var frábær af beggja hálfu, en tækifæri Blackpool voru alltaf rneiri. Matthews skín nú j bj artar en nokkru sinni fyrr,! eins og þulurinn sagöi, og réði vörn WBA ekkert við hann. Hann lagði fyrir, er mörkinj voru skoruð. Mortensen, Tayl- or 2 og Perry skoruðu. Matt- hews, Mortensen og Johnston ættu að vera vissir í enska landsliðið eftir leikinn, að minnsta kosti bar Mortensen af Allen hjá WBA, sem sagður er standa nærri því að koma í stað Lofthouse. En í Birm- ingham lék Lofthouse mjög vel með liði sínu Bolton gegn Aston Villa, og er hann að fullu búinn að ná sér eftir meiðsli. ■ Þá verður erfitt að koma honum út. Bolton kast- aði frá sér stigi, en liðið hafði j haft tvö mörk yfir mest all- an leikinn. „Montgomer.y getur leikið í hvaða heimsliði sem er“, sagði þulurinn um miðframvörð Cardiff, eftir að liðiö hafði burstað Charlton. Hann bar mjög að Ufton miðframverði Charlton, sem lék í enska lið- inu gegn FIFA, og átti létt með að brjóta niður sókn Charl- ton. Framlína Cardiff var nú markgráðug, en það ef nokk- uð, sem ekki hefir verið hægt að segja um hana áður. Chis- holm skoraði „Hat-trich“. Sunderland lék mjög vel Eg var að blaða í prestþjón ustubók Skinnastaðarsóknar hér um daginn. Þá varð ég þess vís, að „húsfreyjan á Ær- læk“. eins og hún er venju- lega kölluö, hefir átt sextugs afmæli í haust. Þai’ sem að ég hefi ekki séð þessa minnzt í blöðunum, finnst mér rétt að geta þessarar víðkunnu konu á þessum tímamótum ævi hennar. ^ „Húsfreyjan á Ærlæk“ er j fædd að Hafursstöðum í Öx-! arfirði hinn 11. okt. 1893, dótt j ir hjónanna Gunnlaugs Fló- j ventssonar og Jakobínu Sigur j jónsdóttur, er þar bjuggu góðu búi alla sína löngu bú- j skapartíö. Voru þau hjónj bæði vel ættuð. Gunnlaugur náskyldur Gunnlaugi Odds- syni, dómkirkjupresti og bar nafn hans, en Sigurjón faðir Jakobínu var bróðursonur Gamalíels í Haganesi, sem var talinn höfuöskáld Þing- eyinga um og eftir aldamótin 1800. Halldóra ólst upp í foreldra húsum og aflaði sér góðrar menntunar, bæði innan lands og utan. Snemma tók hún mik inn þátt í félagslífi sveitar- innar og þótti þar liðtæk vel, því að hún er harðdugleg að hverju sem hún gengur, hrað mælsk, bjartsýn og útsjónar söm, en slíkir kostir njóta sín vel í andstööu við þröngsýni og sofandahátt. Það má því segja, að nú um 40 ái'a bil hafi hún verið aðal driffjöðr- in og krafturinn í félagsmál- um sveitarinnar, og hafa ráð hennar og stjórnsemi jafnan þótt gefast vel. enda hefir niikið áunnizt. Liðlega þrítug gekk Hall- dóra að eiga Jón Sigfússon, óðalsbónda að Ærlæk, og hafa þau búið þar stórbúi og farn- azt framúrskarandi vel. Hefir hagur þeirra svo að segja batnað með ári hverju, en arð inn af hinu stóra búi sínu hafa þau jafnóðum lagt í um bætur á hinni miklu og kosta ríku jörð sinni. Er þar nú orð ið ærið myndarlegt heirn að líta, svo að til mikils sóma (Framh. á 6. síðu.) gegn Tottenham og var sá leikur af háum klassa. Elliot, kantmaður Sunderland, keypt ur í haust frá Burnley, bar af á vellinum, og skoraöi tvö mörk, og opnaði auk þess fyr- ir Ford og Bingham. Totten- ham hafði yfir 2—1 í hléi, en Sunderland hóf síðari hálfleik inn með stórsókn, og skoraði fljótlega þrjú mörk. 10 mín. fyrir leiktíma skoraði Totten- ham sitt þriðja mark, og það sem eftir yar varðist Sunder- land til að bjarga stigunum. Úlfarnir reyndu Wright, fyr irliða enska landsliðsins sem bakvörð, og hann lék þá stöðu svo vel, að hann gæti vel leik- ið hana í enska landsliðinu með sama sóma og aðrar stöð- ur, sem hann hefir leikið þar. Wilshaw skoraði eina markið í leiknum, og er þetta í fyrsta skipti í langan tíma, sem Úlf- arnir vinna Preston. Finney lék ekki með Preston. í 2. deild mættust efstu lið- in Everton og Leicester. Var þaö góður leikur, sem 50 þús. manns horföu á í Liverpool. Rowley og Hines skoruðu fyr- ir Leicester og bar liðiö rétti- lega sigur úr býtum. Leikur- inn varð mjög harður undir lokin og varð að bera þrjá menn útaf. Þetta var 13. leik- ur Leicester án taps, en liðiö tapaði 22. ágúst fyrir West Ham í London. Öll neðstu lið- in hlutu stig nema Bury. Nottm. Forest jafnaði þegar 4 mín. voru eftir í leiknum við Brentford, og var það algjört klaufamark. Notts County sýndi, að liðið er ekki lélegast í deildinni, heldur mætti segja það um Swansea. Hull City sýndi góðan leik og vann Rotherham. Þar kom tvennt í ljós. Rotherham mun ekki sigra í deildinni og Hull ekki falla niður, ef liðið leikur eins knattspyrnu í framtíðinni. f 3. deildunum unnu bæði efstu liðin Port Vale og Ipsvich og hafa því sömu stigatölu fram yfir næstu lið og áður. Staðan er nú þannig: 1. ðfeild. West Bromw. 16 12 2 2 45-21 26 Wolves 16 10 4 2 41-23 24 Huddersfield 16 10 3 3 32-17 23 Burnley 16 10 0 6 36-29 20 Bolton 15 7 5 3 26-21 19 Cardiff 16 7 5 4 20-18 19 Cliarlton 16 9 0 7 38-33 18 (Franihald á 7. síðu.) íslenzkur listmálari heldur sýningu í París París, 26. 10. 1953. Nú um þessar mundir held ur ungur, íslenzkur listmál- j ari, Benedikt Gunnarsson, sýningu á verkum sínum í I Galerie Saint-Placide í París, j sem er stærsti sýningarsalur í Montparnasse-hverfinu, en ,það er eitt aöal listantanna- hverfi Parísarborgar. Sýning i in var opnuð laugardaginn 17. ; okt. og lýkur 31. Að venju |koma listdómar ekki fyrr en ; að enduðum sýningum, en þó i hefir eitt dagblað borgarinn- ' ar getið um sýningu Bene- : dikts nú þegar og farið um hana mjög lofsamlegum orð- um. Á- sýningunni eru 18 olíu- málverk og 21 vatnslitamynd. Myndir þessar eru allar gerð- 'ar á síðastliðnu V/2 ári, sum- ;ar hér heima, en þó flestar *í Frakklandi og á Spáni, en þar dvaldist málarinn s. 1. sumar. Sýning þessi er fyrsta sjálfstæða sýning Benedikts og stærsta einstaklingsmál- verkasýning, sem íslendingur hefir haldið í París. í þessum sömu húsakynn- um sýndu 5 íslenzkir lista- menn verk sín vorið 1951. Benedikt Gunnarsson er fædd ur á Súgandafirði 14. júlí 1929 og hefir numið list sína hér í Reykjavík og síðan á konung lega Listaliáskólanum í Kaup mannahöfn og málaraskóla Rostrups Boyesen. Ennfrem- ur á École des Beaux-arts í París og Academie de la Grand-Chaumiere. Benedikt, sem er vafalaust meðal okkar efnilegustu nú- tíma málara, hefir í hyggiu að halda sýningu í Lista- mannaskálanum hér í Revkja vík um eöa eftir áramótin. S. 1».

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.