Tíminn - 03.11.1953, Síða 5

Tíminn - 03.11.1953, Síða 5
248. folaff. TÍMINN, þriffjudaginn 3. nóvember 1953. S Þriðjud. 3. nór. Framleiðslan við sjávarsíðuna Skýrsla sú, er Steingrímur Steinþórsson félagsmálaráð- j herra flutti nýlega á Alþingi,! um starfsemi ráðuneytisins við að koma stoðum undir j framleiðslu á ýmsum stöðum! við sjávarsíðuna, hefir vakið' mikla athygli. Eru afskipti fé-1 lagsmálaráðuneytisins af þess um málum eitt hið merkasta) nýmæli í atvinnumálum í, seinni tíð, þótt þeirra hafi lítt' verið getið til þessa. Samtalsj eru það um 13 millj. kr., semj ráðuneytið hefir lagt fram í| þessu skyni á 3 árum, og hafa um 40 staðir við sjávarsíöuna orðið aðstoðarinnar aðnjót- andi að meira eða minna leyti. Fé þetta hefir yfirleitt verið lagt fram sem síðari veðréttar lán til langs tíma með 5 V2% vöxtum og stundum afborgun- arlaust fyrstu árin. Hefir á þennan hátt víöast hvar verið hlaupið undir bagga meö það sem til vantaði, að nægilegt fjármagn fengist með fram- j lögum heima fyrir eða á ann- • an hátt til að koma á nýjum framleiöslutækjum eða stuðlaj að því aö framleiðslutæki, sem, fyrir væru, gætu haldið áfram | starfsemi á sama staö — svo og að aukinni ræktun á sum- um stöðum. Mun í þessum efn um hafa verið byggt mjög á gögnum og upplýsingum frá atvinnumálanefnd ríkisins, sém skipuð var á sínum tíma. Það er kUnnara en frá þurfi að segja, að afkoma hinna mörgu smáu sjávarþorpa eða kaupstaða á ströndum lands- ins byggist á því fyrs.t og fremst, að þar séu fyrir hendi hæfileg tæki, byggingar eða annar útbúnaöur til fram- leiðslu á gjaldeyrisvöru. Þess ber þó jafnframt að geta, að víða eru á slíkum stöðum góö skilyrði til ræktunar, en þar sem svo hagar til, getur bú- skapur, einkum mjólkurfram- ieiðsla og garðrækt, veriö heimilunum mikill stuðningur jafnhliða sjósókninni og verk un eða vinnslu sjávaraflans. Ef möguleika skortir til fram- leiðslunnar, er þess ekki aö vænta, að hægt sé að tryggja almenningi á þessum stöðum viðunandi tekjur að staðaldri, því aö tímabundin vinna við framkvæmdir stoðar lítt til frambúðar. Hinar svokölluðu atvinnubætur, sem stundum hefir verið gripið til í því skyni að bæta úr atvinnubresti, eru engin lausn á þessu vanda- máli, og má segja að fé, sem til þess hefir veriö varið, hafi verið að nokkru leyti á glæ kastað, þar sem oft hefir þá verið unnið að lítt aðkallandi verkefnum á óhentugum tíma. Hefir Framsóknarflokkurinn jafnan veriö þeirrar skoðunar, að þar væri um neyöarúrræði að ræða. En framleiðsluaukning nú á tímum byggist á fjármagni. Og hér er það sem skórinn kreppir að í sjávarþorpunum flestum og hinum minni kaup stöðum. Heilbrigð uppbygging atvinnulífsins á þessum stöð- um byggist á dreifingu fjár- magnsins. Og slík dreifing fjármagnsins virðist ekki geta komist í kring á annan hátt en þann, að hið opinbera beiti sér að einhverju leyti fyrir út- vegun þess fjármagns, sem til ERLENT YFIRLIT: Stjómmáiin í Noregi Torp segir að stjórn síita liaft ekki fengitl uiaijoo til að fraiiikvæma þjóðiiýtingu Þann 12. f. m. fóru fram þing- kosningar í Noregi og urðu úrslitin þau, að Alþýðuflokkurinn vann meirihluta þingsæta í þriðja sinn. Sigur flokksins hafði þó verið tal- inn óvissari í þetta sinn en áður, þar sem gerðar höfðu verið breyt- ingar á kjördæmaskipuninni, sem voru flokknum í óhag. Ef kjör- dæmaskipunin hefði verið óbreytt, myndi flokkurinn nú hafa fengið um 90 þingsæti af 150 alls. í stað þess fékk hann 78 þingsæti, en and stæðingar hans 72 samanlagt. Þótt Alþýðuflokkurinn fengi meirihluta þingsætanna, hlaut hann ekki meirihluta atkvæðanna. í Nor egi er kosið í einum 20 kjördæm- um, mismunandi stórum, hlutfalls- kosningum. Atkvæðamagn Alþýðu- fiokksins notaðist bezt vegna þess, að hann er stærsti flokkurinn. Þá styrkti það einnig mjög aðstöðu hans, að dreifbýlustu kjördæmin hafa tiltölulega færri þingmenn en þéttbýlu kjördæmin, en flokkur inn er sterkastur í dreifbýlustu kjördæmunum, t. d. i Norður-Nor- egi. T. d. hefir Osló ekki nema 13 þingmenn, en ætti að hafa 20 sam kvæmt höfðatölureglunni. Alþýöu- flokkurinn fékk ekki nema 5 þing sæti i Osló, þótt hann fengi 120 þús. atkv. þar. Hins vegar fékk hann 4 þingmenn í Tromsö-kjör- dæmi, þótt hann fengi ekki nema 27 þús. atkvæði þar. Stjórnarstefna Alliýðuflokksins. Úrslit kosninganna urðu annars í höfuðatriðum þau, að Alþýðuflokk urinn fékk 46.6% af greiddum at- kvæðum í stað 45,6% seinast. Hægri flokkurinn bætti við sig 0,8% af öll um greiddum atkvæöum, Kristilegi flokkurinn 1,8% og bændaflokkur- inn 0,8%. Vinstri flokkurinn tapaði hins vegar 3,4% og kommúnistar 0,7%. Kosningaúrslitin má samkvæmt þessu telja traustsyfirlýsingu til Alþýðuflokksins, <£' farið hefir óslit- ið með stjórn síðan stríðinu lauk. Telja má, að þessi traustsyfirlýs- ing byggist á tveimur meginástæð- um. Önnur er sú, að stjórn flokks- ins hefur líkað vel. Hin er sú, að andstæðingar hans eru svo sundr- aðir, að ljóst var fyrir kosningarnar, að þeir gátu alls ekki myndað stjórn saman. Undir þeim kringum- stæðum mun kjósendum hafa þótt ófýsilegt að skipta um. Stjórn Alþýðuflokksins hefir ein kennzt af því, að mikið fé hefir verið lagt í fjárfestingu til að efla atvinnuvegina og ríkið hefir haft strangt eftirlit með fjárfestingu og verölagi. Kaupgjaldi hefir líka veriö haldið niðri, þó án beinnar íhlut- unar ríkisins. Miklar verklegar fram farir hafa því átt sér stað 1 Noregi á þessum tíma. Lífskjör almenn- ings liafa einnig nokkuð batnað, en þó vantar mikið á, að þau séu eins góð og hér á landi. Þótt Alþýöuflokkurinn hafi haft þingmeirihluta síðan 1945, hefir hann ekki beitt honum til að koma á þjóðnýtingu. Atvinnuvegirnir hafa verið efldir á grundvelli einka- reksturs og samvinnu. Stefna flokks ins hefir færzt meira og meira inn á þann grundvöll, að ríkið eigi að- eins að hafa eftirlit með atvinnu- vegunum og tryggja rétta þróun þeirra, en láta þá að öðru leyti vera í höndum einstaklinga og sam vinnufélaga. Verðlagslögin, sem sett voru á seinasta þingi og mestar deilur stóðu um, eiga að tryggja þessa stefnu flokksins í fram- kvæmd. Óbreytt stefna í utanríkismálum, í utanríkismálum hefir enginn verulegur ágreiningur verið á milli Alþýðuflokksins og borgaralegu flokkanna á undanförnum árum. Milli þeirra var algert samkomulag um inngöngu Noregs í Atlantshafs bandalagið og auknar landvarnir á þeim grundvelli. Borgaralegu flokk arnir hafa líka verið sammála AI- þýðuflokknum um það, að ekki væri rétt, eins og sakir stæðu, að láta erlendan flugher fá bækistöðvar í landinu. Allir hafa þó flokkarnir lýst yfir því, að þeir teldu stjórn og þing hafa rétt og skyldu til að leyfa slíka hersetu, ef árás sé alveg yfirvofandi. Allar hervarnir lands- ins eru líka við það miöaðar, að hægt sé með litlum fyrirvai'a að taka á móti her frá Atlantshafs- bandalaginu, því a'f eigin rammleik munu Norðmenn ekki geta varizt, nema skamma hríð. Lange utanríkisráðherra hefir sagt, að því fylgdi vissulega mikil áhætta, að leyfa ekki erlendum flug sveitum dvöl í landinu. Slík dvöl verður hins vegar ekki leyfð, nema brotið sé í bága við yfirlýsingu, sem Norðmenn gáfu Rússum í striðs lokin. Rússar hernámu þá nokkurn hluta Norður-Noregs. Áður en þeir drógu lið sitt til baka, gaf norska stjórnin þá yfirlýsingu, að hún myndi ekki leyfa erlenda hersetu í Noregi á friðartímum. Rússar hafa í seinni tíð kvartað undan því, að nú er verið að byggja stóra flug- velli í Norður-Noregi í samræmi við varnai'áætlun Atlantshafsbanda lagsins. Rússar telja, að þessir flug vellir séu ætlaöir sem bandarískar' bækistöðvar, ef til átaka kemur. í kosningunum lýstu allir flokk- arnir því yfir, að þeir vildu fylgja áfram óbreyttri utanríkismála- stefnu, nema kommúnistar. Vinstri menn höfðu þó nokkurra sérstöð'u og gagnrýndu Lange fyrir undan- látsemi við vestrænu stórveldin. Hinir flokkarnir svöruðu með því, að stefna vinstri flokksins væri orðin óljós í þessum málum. Þessi afstaða vinstri flokksins virð ist hafa verið ein orsökin til ósigurs hans í kosningunum. Norð- menn hafa búið við erlent hernám og fylgja því hiklaust þeirri utan- ríkismálastefnu, sem er líklegust til að hindra, að sú saga endurtaki sig. Ósigur vinstri flokksins. Ósigur vinstri flokksins var stærsti atburður kosninganna. Ýms ar ástæður eru taldar orsaka hann og er þegar búið að segja frá einni þeirra. Tvær ástæður til viðbótar eru taldar hafa orsakað það einnig, að hann hafi misst fylgi til liægri vantar, þegar leitað hefir ver- ið venjulegra úrræða heima fyrir og annarsstaðar. — Stofnun fiskimálasjóðs var á sínum tíma mikilsvert spor í þéssa átt, og hafa margir stað ir notið g'óðs af stofnun hans. Svipað er að segja um ábyrgð- ir, er veittar hafa verið vegna frystihúsa. Að sjálfsögðu verð ur að veita slíka aðstoð meö fullri forsjá og að því tilskildu, að tryggilega sé búiö um stjórn þeirra framleiðslufyrir- tækja eöa framkvæmda, sem um er aö ræða hverju sinni. En höfuösjónarmiðið í þeim málum verður að byggjast á þeirri staðreynd, að ekkei't byggðarlag getur þrifist af eigin ramleik án þess að þar séu möguleikar til að fram- leiða nægilegt verömæti til að standa undir framfærslu íbú- anna — svo framarlega sem það hefir ekki aöstöðu til að inna af hendi þjónustu í þágu annars byggðarlags eða til aö nota sér atvinnumöguleika annarsstaðar. Slíkir möguleik- ar koma þó ekki að gagni nema fyrir takmarkaðan hóp manna á hverjum stað. Skýrsla félagsmálaráðherra sýnir, að meiri skilningur er á því nú en fyrr aö þörf sé á skipulegri uppbyggingu at- vinnulífsins í hinum dreifðu byggðum við sjávarsíðuna. Þar er enn mikið verk aö vinna. OSCAR TORP ílokkanna. Öi.nuv et sú, að , u'eii- unni milli Alþýðuflokksins og stjórn arandstæöinga um verðlagslögin, stóð hann næstur Alþýðuflokknum. Önnur ástæðan er talin sú, að hann gaf þá yfirlýsingu í kosninga baráttunni, að hann myndi ekki mynda stjórn með hægri flokknum og var eftir það útilokað, að and- stöðuflokkar Alþýðuflokksins gætu myndað stjórn, þótt þeir fengju meirihluta samanlagt. Augljóst virðist, að vinstrí flokk- urinn hafi fyrst og fremst misst fylgi sitt til Kristilega flokksins. Plokkur þessi var stofnaöur eftir styrjöldina, aðallega af mönnum úr vinstri flokknum. Hefir hann jafnan síðan verið vinstri flokkn- um hættulegur keppinautur. Hann beinir máli sínu sérstaklega til trú- aös fólks, en annars er landsmála- stefna hans ógreinileg. Margir telja, að sigur flokksins nú sé að- eins stundarfyrirbrigði, sem stafi af þreytu borgaralegra kjósenda. Plokkurinn múni bráðlega dala aft ur, líkt og Réttarsambandið í Dan mörku, vegna þess, aö hann hafi ekki neina grundvallaða þjóðfélags stefnu til að byggja á. J Engin þjóðnýting. Eftir kosningarnar varð nokkurt umtal um yfirlýsingu þá, sem Torp forsætisráöherra gaf í sambandi við kosningaúrslitin. í yfirlýsing- unni sagði m. a., að flokkurinn myndi nú nota sér það vald, sem þjóðin hefði veitt honum til þess að færa þjóðfélagið í sósíalistiska átt. Þessi orð túlkuöu stjórnarand . stöðublöðin strax þannig, að flokk- ! urinn hyggði á auk'na þjóðnýt- ingu, enda þótt hann hefð'i ekki haft neina þjóðnýtingu í kosninga stefnuskrá sinni. Flokkurinn hefði því farið' aftan að kjósendum. Torp birti þá nýja yfirlýsingu og sagði blöðin hafa rangtúlkað ummæli sín. Með hinum umdeildu orö'um sín- um hafi hann ekki átt við þjóð- nýtingu. Flokkurinn myndi ekki framkvæma neina þjóðnýtingu, nema hann hefði beðið áður um umboð kjósendanna til þess. Um slíkt umboð' hefð'i hann ekki beðið í þessum kosningum og þess vegna myndi hann ekki á komandi kjör- tímabili aðhafast neitt í þá átt. í kosningastefnuskrá Alþýðu- flokksins var að þessu sinni hvergi -Framh. á 6. síðu.) Óvenju mikil ótíð á Austfjörðum Frá í'réttaritara Tímans Stöövarfirði. Óvenjulega mikil ótíð og gæftaleysi hefir verið á Aust- fjöröum i allt haust. Aöeins tvisvar sinnum gaf á sjó í októbermánuði frá Stöðvar- firði, en fiskur virtist þá vera nógur og öfluðu bátarnir allt að þrem smálestum hver í þessum tveimur róðrum. Þykir mönnum þaö ergilegt, aö ekki skuli gefa á sjó, þegar vitaö er, að fiskur er i firðinum, en frá Stöðvarfirði ganga ann ars fjórir bátar, einn stór þil farsbátur, einn sjö lesta bát- ur og fjórir smærri trillubát- ar. Á viðavangi Kveldúlfshúsin og Eimskipafélagið. Fyrir nokkru birtist hér í blaffinu greinargerð frá Eim skipafélagi íslands, þar sem skýrt var frá því, að félagið væri byrjaff aff nota Kveld- úlfshúsin sem vörugeymsl- ur, en jafnframt reynt aff færa fram afsökun fyrir þeirri einstæðu ráðstöfun, aff festa kaup á þeim fyrir 12 milljónir króna. Þrátt fyrir varnarrökin í þessari greinargerff, kom þaff eigi að síffur glöggt fram í henni, aff þessi kaup hafa veriff félaginu óþörf og óhag. stæff. Þaff er nefnilega upp- lýst í greinargerðinni, aff fé lagið eigi góðar lóðir bæði við höfnina og á milli Borgartúns og Sigtúns, en þar í nánd á aff byggja nýja höfn í framtíðinni, Á báðum þessum lóðum ráff gerir félagiff að reisa stórar vörugeymslur. Hefði vitan- lega veriff miklu hyggilegra fyrir félagið að byggja þær strax, en það hefði veriff leik andi liægt fyrir þá upphæff, sem greidd var fyrir Kveld- úlfshúsin. Þegar þessar geymslur komast upp, verða þær að sjálfsögðu fyrst og fremst notaðar, því að þær verða næstar höfninni og er vafasamt, aff félagið þurfi þá á meirum vörugeymslum aff halda, þar sem búast má viff aff vöruflutningar frá út- löndum aukist til staða utan Reykjavíkur. Miklar Iíkur eru til þess. að Kveldúlfs- húsin verffi í framtíffinni sama og ekkert notuð. Með kaupunum á Kveld- úlfshúsunum hefir félagið því eytt iniklu meira fé í vörugeymslur en þörf var fyrir og jafnframt tafiff fyr ir nauðsynlegum bygging- um. Þó hefðu þessi kaup verið afsakanlegri, ef ekki hefffi veriff greitt margfallt meira verð fyrir húsin, en nokkur annar kaupandi hefði boðið. Það voru hags- munir Kveldúlfs, sem réffu kaupverðinu, en ekki hags- munir Eimskipafélagsins. Landsmenn verffa svo aff borga brúsann í dýrari og óhagstæðari vöruflutningum til landsins en ella, því aff annars staðar frá hefir Eim skipafclagið ekki gróða sinn. Þögn Mbl. um Hjalta. Mbl. heldur áfram aff skrifa um raforkumálin og reyna að eigna Sjálfstæðis- flokknum forgönguna í þeim. í .öllum þessum miklu skrifum Mbl. er þó vandlega forðazt að minnast á þann eina fovgöngumann, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefir átt í þessum málum fyrr og síðar, en það er Hjalti ,íóns- son skipstjóri. Það var hann, sem knúði Sjálfstæðisflokk inn til þess aff vera fylgj- andi fyrstu virkjun Sogsins. Sjálfstæðisflokkurinn féllst ekki á aff styðja þá fram- kvæmd fyrr en Hjalti, sem þá var bæjarfulltrúi. hótaði aff gera ella bandalag viff Framsóknarflokkinn og Al- þýðuflokkinn viff borgar- stjórakjör. Undan þessari hótun lét Sjálfstæðisflokk- urinn og féll frá andstöðu sinni við Sogsvirkjunina eft ir margra ára andstöffu. (Framh. á 6. síðu)

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.