Tíminn - 21.11.1953, Side 6

Tíminn - 21.11.1953, Side 6
TÍMÍNN, laugardaginn 21. nóvember 1953. 265. blað. db leíkfélag; REYKJAVÍKDR1* PJÓDLEIKHÚSID Sumri hulíur Sýning í kvöld kl. 20,00 Vultýr á grœnni trcyju Sýning sunnudag kl. 20,00 Aðgöngumiðasalan opin frá kl. 13,15—20. Símar 80000 og 8-2345. <• ▼ ® . „M“ Breiðtjaldsmynd. Mjög óvenjuleg ný amerísk mynd, sérstæð og spennandi, leikin af afburða leikurum, hef ir alls staðar vakið óskipta at- hygli og er aðvörun til allra foreldra. Þetta er mynd sem ekki mun gleymast. David Hayne, Hovvard da Silva. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð börnum. i SNIÝJA BSÖ Villi stríðsEiiaðui' sisýr Iieini (When Willie Comes Marching Home) Skemmtileg og spennandi ný amerísk gamanmynd. Dan D,ailey Corinne Calvet Colleen Townsend. Sýnd kl. 5, 7 og 9. TJARNARBIÓ Sonni* Imiíáua- Iianans Ævintýralega skemmtileg og fyndin ný amerísk mynd í eðli legum litum. Aðalhlutverk: Bob Hope, Roy Rogers, Jane Russell. að ógleymdum undrahestinum Trigger. Hláturinii lengir Híið Sýnd kl. 5, 7 og 9. 1 BÆJARBÍÓ — HAFNARFIRÐI — Lokaðir gluggar ítölsk stórmynd úr ífi vænd- iskonunnar, sem alls staðar hef- ir hlotið metaðsókn. — Ath. myndin verður ekki sýnd í Reykjavík. Sýnd kl. 9. Sprclliikarlar Bráðskemmtileg ný amerísk gamanmynd með Dean Martin, Jerry Lewis. Sýndkl. 7. Sími 184. h@illasf|ör»iy Gamanleikur í 3 þáttum. Sýning annað kvöld kl. 8. Aðgöngumiðasala kl. 4—7. — Sími 3191. Síðasta sinn. AUSTURBÆJARBfé Utli ökumaðiiriiiu (Escape to Paradise) Bráðskemmtileg og falleg ný mynd. syngur hinn vinsæli níu ára gamli kanadíski drengur: Bobby Breen. Sýnd kl. 5 og 9. kl. 7 og 11,15 Alice Halis og Cltarles IVorman- Tríó Sala hefst kl. 2 e.h. GAMLA BfÓ' Sýnir á hinu nýja, bogna „P AN OR AM A“ -T J ALDI amerísku músík- og ballet- , myndina Ameríkumu&ur í Purís (An American in Paris) Músík: George Gershwin. Aðalhlutverk: Gene Kelly og franska listdansmærin Leslie Caron. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Auschtvitz fangubú&irnar (Ostatni Etap) Ný, pólsk stórmynd, er lýsir á átakanlegan hátt hörmungum þeim, er áttu sér stað í kvenna deild Auschwitz fangabúðanna í Þýzkalandi í síðustu heimsstyrj- öld. Myndin heíir hlotið með- mæli kvikmyndaráðs Sameinuöu þjóðanna. Bönnuð börnum innan 16 ára. HAFNARBIÓ Gullliclllrism (Cave of Outlavs) Feikispennandi ný amerísk kvikmynd í eðlilegum litum um ofsafengna leit að týndum fjár- sjóði. Mac Donald Cary, Alexis Smith, Etlgar Buchanan. Bönnuð börnum innan 16 ára, Sýnd kl. 5, 7 og 9. Sýnd kl. 7 og 9. Frakkarar (Röskir strákar.) Sýnd 1. 5. IVotíð vatnsorknua Bændur og aðrir, er áhuga hafa á vatnsvirkjunum! Hefi fjölda af túrbínum og rafstöðvum á góðu verði til sölu. — Leitið tilboða. Útvega koparvir, staura, rör og allt, er tilheyrir virkjunum. Ágúst Jónsson ravm. Skólavörðustíg 22 sími 7642 Reykjavík Bakkusi sleppt en herferð hafin gegn honum Danska blaðið Politiken skýrir svo frá, að áfengisbæk- ur verði afnumdar í Svíþjóð á næstunni. Óttast menn, að mjög aukin áfengisneyzla muni fylgja í kjölfar þessarar ráðstöfunar. Sænska ríkis- stjórnin hefir af þessum sök- um skipað nefnd sérfróðra anna til að athuga tillögu þess efnis, að farin verði gífurleg herferð, er standi í sex mán- uði, gegn. neyzlu áfengra drykkja. Ef þessi hugmynd kemst í framkvæmd, er ráð- gert að verja í þessu skyni allt að 2,3 milljónum sænskra króna. Öll hugsanleg vopn verða notuð gegn Bakkusi kon ungi í þessari herferð, t. d. er meiningin að semja við alla blaðaútgefendur, að þeir birti engar auglýsingar um sölu á- fengra drykkja. Pearl S. Buck: Dularblómið Saga frá Japan og Bandaríkjunum á síðustu árum. Fordæmi frjálsra I»j«Sverja (Framhaia af 3. Bíðu). selja íbúð á leigu snýr hann sér beint til þessarar leigu- miðstöðvar, sem síðan sér um leiguna á húsnæðinu. Með þessu hafa Þjóðverjar komið í veg fyrir okurleigu. Leiðir til úrlausnar. Hvað telur þú, að við gæt- um helzt lært í þessum efn- um af Þjóðverjum? — Ég vil taka það fram til skýringar, að Þjóðverjar leggja ekki á það áherzlu að byggja stórar íbúðir, heldur minni, ódýrari og hentugri í- búoir. Þetta tel ég aö við ætt- um að athuga. Þá tel ég að ætti að taka upp sérstaka fjög urra ára áætlun um útrým- ingu húsnæðisskorts á öllu landinu. Efnt sé til samkeppni milli húsameistara og bygg- ingarfélaga til að lækka bygg ingarkostnaðinn. Þá verði stofnaður sérstakur bygging- arsjóður fslands, sem hafi það að meginmarkmiði að út- vega fé til bygginga. Þessum sjóði ættu ríki og bæjarfélög að leggja til ákveðna upphæð óafturkræfa, auk þess sem honum væri aflað fjár með öðru móti, t. d. lánum hjá tryggingafélögum, sölu skatt- frjálsra skuldabréfa og fleiru. Við þökkum Hannesi fyrír upplýsingar hans um þessi fé- lagslegu vandamál, sem hús- næðismálin eru, og væntum þess að land og þjóð eigi eft- ir að njóta mikils góðs af rann sóknum hans og störfum í þeim efnum. ►<♦ Cemia-Desinfector fer vellyktandi sótthreinsandf fvökvi nauðsynlegur á hverju fheimili til sótthreinsunar á,, Lmunum, rúmfötum, húsgögnumM, Isímaáhöldum, andrúmsloftl o.,, |s. frv. — Fæst í öllum lyfjabúð-,, fcum og snyrtlvöruverzlunum. < i leik aðhyllast margt það í siðum Ameríku, sem við afneitum nú. Það munu líða fimmtíu ár, þangað til við finnum jafn- vægi í þessum efnum. Og hver veit, hvernig umhorfs verður í heiminum þá. Josui hlustaði. Kobori var skynsamur maður, sneyddur öllu því ofstæki, sem faðir hans bjó yfir. — Ertu ekki hræddur? spurði hún. — Hvers vegna ætti ég að vera hræddur? sagöi hann. Ég er af ganialli og íhaldssamri fjölskyldu. Okkur mun vegna vel á þeim afturhaldssama tíma, sem nú fer i hönd. En ég kenni í brjósti um þær þúsundir barna, sem nú eru hér í barnaheimilum, þessi börn, sem eiga Ameríkumenn að feðr- um en japanskar konur að mæðrum og eru því foreldralaus. Það var undarlegt, að hún skyldi aldrei hafa hugsað um þetta. Ef hún hefði fallið fyrir Allen Kennedy, og jafnvel þótt hann hefði kvænzt henni síðar, mundi harn þeirra hafa verið foreldralaust. — Vesalings litlu sakleysingjarnir, sagði Kobori mildri rödd. Það hefði verið betra fyrir þau að fæðast aldrei í þenn an heim. Hún óskaði þess allt í einu, að hún gæti sagt Kobori allt af létta um það, sem fyrir hana hafði borið. Hann var svo vingjarnlegur, og góðvild hans var svo mikil. Hún gat vel hugsað sér hann sitja hljóðan lengi og hlusta á sögu hennar, og hann mundi kannske skilja, hvers vegna allt hefði farið j eins og raun varð á. Væri ekki rétt af henni að segja honum þetta allt, fyrst hún átti að verða konan hans? Hún horfði á hann án þess að vita, að augnaráð hennar kom upp um hana. Hann hló lágt. — Hvaö var það, sem þig langaði til að spyrja mig um? — Hvernig veiztu, að mig langaði til að spyrja þig sagði hún undrandi. — Andlit þitt er sem opin bók. Ég get nær því lesið hugs- anir þínar. ) Hún hikaði, var í vafa um, hvort þetta væri rétta stundin I til að segja honum hug sinn, en hún var þegar sannfærð um, ! að hún ætti að segja honum þetta einhvern tíma, svo að milli þeirra væru engin leyndarmál. ’ — Þig langar kannske til að spyrja, hvers konar maður það sé, sem þú ert heitin, sagði hann brosandi. — Spyr ekki hver kona sjálfa sig slíkrar spurningar? Hún vék sér undan að svara beint meö því aö bera fram gagn- spurningu. •— Jú, áreiðanlega. Þau sátu á fótum sér að japÖnskum hætti. Hann hafði tekið sér sæti nokkuð frá henni, og það bil gaf henni traust ! á honum og hugró. Kobori mundi aldrei leyfa sér að snerta j hana fyrr en þau væru gift. En hann hafði sagt við föður hennar, aö hann liti svo á, aö þau ættu aö kynnast með sam- i ræðum. | Kobori sat þögull um stund. Síðan sagði hann: — Ég held, í að ég sé ekki mjög erfiður viðfangs. Þau ár, sem ég var her- !maður, breyttu mér mjög. Nú get ég ekki fengið af mér aö ! deyöa nokki’a veru. Ég get ekki einu sinni fengio af mér aö drepa mús, ég leyfi þeim að hlaupa frjálst í kringum mig ! fremur en að leggja á þær deyðandi hönd. Og ég er búinn að hlusta svo lengi á dýrslegar þrumuraddir hershöfðingja 'og liðsforingja, að mig langar mest til að tala í hvíslingum ! það sem eftir er ævinnar. Ég hefi séð menn barða og limlesta Ifyrir smávægilegar yfirsjónir, svo að þú þarft ekki að óttast, ■ að ég geti fengið af mér að slá barn, hvað þá meira. Ég hefi í orðiö vitni að svo mikilli grimmd, að ég óska einskis fremur ■ en ástunda mildi og umburðarlyndi. Ef til vill kallar einhver i það veiklyndi. En eins og ég sjálfur þykist geta staðizt eitur j grimmdarinnar, sem breiðist eins og farsótt milli manna, I vona ég aö finna aðrar manneskjur, sem eru sama sinnis, ' og að þeim fjölgi smátt og smátt, svo að grimmdinni verði að lokum útrýmt úr heiminum. Hún hafði aldrei heyrt hann tala svo lengi í einu eða af slíkri alvöru, og hún var honum mjög þakklát. Hún vissi, að hann gerði þetta, af því að honum fannst sem honum bæri skylda til að koma fram fyrir hana eins og hann var í raun og veru, svo að hún kynntist hinu rétta innræti hans. En hann hafði óafvitandi svarað að nokkru þeirri spurningu, sem lá henni á hjarta. Ef hún segði honum nú frá því, að hún elskaði annan mann, mundi hann kannske telja það skyldu sína að draga sig í hlé, svo að hún gæti gifzt þeim manni, sem hún unni, eða að minnsta kosti um sinn, svo að hún fengi færi á að gleyma þeim manni, ef örlögin bönnuðu þeim að eigast. Vafalaust mundi henni takast að gleyma, og vafalaust mundi hún breytast mjög. En hún vildi ekki bíða. Hún vildi giftast sem fyrst, því að skyldur hjónabandsins mundu dreifa huga hennar frá ásókn þeirri, sem hún hafði átt við að búa um sinn. — Þakka þér fyrir, að þú talar þannig viö mig, sagði hún. Ég virði þig mjög, Kobori Matsui. Ég trúi því, að vinátta sé æðsta kennd mannanna, bæði meðal karla og kvenna. Ég vona, að mér takist líka að sýna vináttu. Hún horfði á hann og vonaði, að augnaráð hennar gæfi til kynna þær tilfinningar, sem hún hafði lýst í orðum. Öld- um saman hafði verið stofnað til hjónabanda i Ja,pan án ástar. Virðing og vinsemd hafði verið nóg. Það hafði að

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.