Tíminn - 29.11.1953, Qupperneq 10

Tíminn - 29.11.1953, Qupperneq 10
Ið TÍMINN, sunnudaginn 29. nóvember 1953. VEGUR VAR YF8R Eftir SlgEirð Magnnsson, Uennara HÖFUNDUR þessarar taókar er fyrir löngu þjóðkimnur n vegna ágætra útvarpserinda og snjallra greina. Hér segir ! > hann meðal annars frá hópferoum íslendinga til Norður- '1 landa, kynnum af veiðimönnum á austurströnd Grænlands (( og mörgu fleira. Hann lýsir bardaga í Bankok, hann ,, strandar norður í íshafi, er handtekinn í Síam, stendur < i við dauðans dyr í Kína, fer til selja í Noregi o. m. fl. '1 Hrakningar og heiðarveggr 3. bindi iSfcráð imfa Pálnil Maiiiiesson og Jón Eyþórsson ÞRÁTT FYRIR marglofaða tækni nútímans fara menn sér enn að voða á heiðavegum og öræfum þessa lands. — Bókin flytur fjölmarga örlagaþrungna þætti af fang- brögðum íslendinga við hina harðráðu og svipulu náttúru landsins. Kjarni hinna þjóðlegu spakmæla að „enginn ræður sínum næturstað" og „sjaldan er bagi að bandi né byrðarauki að staf“ ganga sem rauður þráður gegnum bók- ina. Þetta er þjóðleg bók í beztu merkingu þeirra orða. BOKAUTGAFAN NORÐRI Pearl S. Buck: s: Dularblómið Saga frá Japan og Bandaríkjunum á síðustu árum 272. blað. HÖDLEIKHÚSID HARVEY Sýning í kvöld kl. 20.00. Aðgöngumiðasalan opin írá kl. 11.00—20.00. Sími: 80000 og 82345. Meil borg í hœttu Afburða spennandi ný amerísk mynd um óhugnanlega atburði er áttu sér stað í New York fyrir nokkrum árum og settu alla milljónaborgina á annan end- ann.. Leikin af aíburða leikur- um. Sýnd kl. 5,'7 og 9. Bönnuð börnum. Gene Autry í MexíUó Bráðskemmtileg amerísk mynd. Sýnd kl. 3. NÝJA BÍÓ PINK Y Tilkomumikil og áhrifarík amerísk stórmynd, sern fjallar um eitt mesta og viðkvæmasta vandamál Bandaríkjamanna. Aðalhlutverk: Jeanne Crain, William Lundigan, Sýnd kl. 5, 7 og 9. Endalaus hlátur með Charles Chaplin, Harold Lloyd og fleiri. Sýnd kl. 3. TJARNARBÍÓ Soniir Indíána- banans Ævintýralega kemmtileg og fyndin ný amerísk mynd í eðli legum litum. Aðalhlutverk: Bob Hope, Roy Rogers, Jane Russell. ógleymdum undrahestinum Trigger. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9. BÆJARBÍÓ - HAFNARFERÐI - Loha&ir gluggar ftölsk stórmynd úr lífi vænd- iskonunnar, sem alls taðar hef- ir hlotið metaðsókn. — Ath. myndin verður ekki sýnd í Reykjavík. Sýnd kl. 7 og 9. Litli ökumaðurinn Bráðskemmtileg, falleg hans- og söngvamynd. 9 ára gamall drengur BOBBY BRIEN. Sýnd kl. 5. ný Bakkabræ&ur Hin bráðskemmtilega kvikmynd Óskars Gíslasonar Sýnd kl. 3. Sími 9184. ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦< LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR1 „Skóli fyrir skattgreiðendur“ Gamanleikur í þremur þáttum eftir Louis Verneuil og Georges Berr. Þýðandi: Páll Skúlason. Leikstjóri: Gunanr R. Hansen. Aðalhlutverk: Alfred Andrésson. Sýning í kvöld kl. 20.00. Aðgöngumiðasala í dag frá kl. 2. UPPSELT AUSTU RBÆJ ARBÍÓ Innrásin (Breakthrough) Sérstaklega spennandi og við- brðarík, ný amerísk stríðsmynd, er byggist á innrásinni í Frakk- land í síðustu heimsstyrjöld. Aðalhlutverk: John Agar, Bavid Brian, Suzanne Dalbert. Bönnuð börnum. ‘ Sýnd kl. 5 og 9. Sala hefst kl. 1 e. h. HLJOMLEIKAR KL. 3. SAMSONGUR KL. 7. ♦♦♦♦♦♦♦♦ >♦♦♦♦< GAMLA BÍÓ K I M Ný amerísk MGM stórmynd, tekin í Lndlandi í eðlilegum lit- um. Gerð eftir hinni kunnu skáldsögu eftir Rudyard Kipling. Aðalhlutverk: Errol Flynn, Dean Stodewell, Poul Lukas. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bambi Sýnd kl. 3. XM ►♦♦♦♦♦♦ ♦♦ ♦♦♦ V r : TRIPOLI-BIO Broudivay Burlesque Ný amerísk bourlesqumynd. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð börnum innan 16 ára. Prakkarar (The little Rastolles) Ný amerísk barnamynd. Sýnd kl. 3. HAFNARBÍÓ CLAUDETTE COLBERT ANN BLYTH Systir Mary .(Thunder on the ill) Efnismikil cg afbragðsvel leik- in ný amerísk stórmynd, byggð á leikritinu „Bonaventure", eftir Charlotte Hastings. Aðrir leikendur m. a.: Robert Douglas, Anny Craford, Philip Friend. Aukamynd: Bráðskemmtiícg mynd með íslenzku tali. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Hrói Höttur óg Litli Jón Hin spennandi ameríska ævin- týramynd Sýnd kl. 3. Ðyggasti þjóitn Bjarna (Framhald af 7. síðu.) Þannig tók varnarmálanefncl að sér að sjá nm að kaup- skránni væri framfylgt. Þessar tvær meginstað- reyndir, sem hér hafa verið raktar, sýna það skýrt og ótví rætt, að varnarmálanefnd hef ir bæði haft endanlegt vald um ákvörðun kaupskrárinnar og eins séð um framkvæmd hennar. Félagsmálaráðuneyt ið hefir haft það eitt með þessi mál að gera, að það hef- ir lagt til einn mann í kaup- skrárnefnd, er starfaði raun- verulega sem undirnefnd hjá varnarmálanefnd, þar sem varnarmálanefnd fylgdi ekki tillögum hennar, nema henni svo sýndist. Húsbóndahollusta Guð- mundar í. við Bjarna Bene- diktsson hefir þannig leitt hann út á þann hála ís að ljúga upp á félagsmálaráðu- neytið og kaupskrárnefnd af- skiptum, sem þessir aðilar hafa ekki haft, til þess að draga þannig athyglina frá mistökum varnarmálanefnd- ar og Bjarna. Með slikum vinnubrögðum mun þó ekki vegur þessara aðila vaxa, held ur leiða þau bezt í ljós, hve báglegur málstaður þessara aðila er. Hins vegar getur það verið til nokkurrar ieiðbein- ingar um það, að enn á Sjálf- stæðisflckkurinn sín ítök í Alþýðuflokknum, að sá mað- ur, sem reynzt hefir Bjarna trúastur og dyggastur, þegar jafnvel Heimdellingar hafa afneitað honum, er einn af sex þingmönnum Alþýðu- flokksins, Guðmundur í. Guð- mundsson. Skrlfað og skrafalS (Framhhld af 6. síðu.) eru hin gömlu deiluatriði vakin upp í útvarpsumræð- um og í Mbl. A5 sjálfsögðu verður ekki við því þagað, þótt ástæða sé til að harma að þannig skuli á málunum baldið einmitt nú. hennar skyldi ekki hafa kallað á hana. Hún sá hann hvergi, og eftir litla stund kom móðir hennar út úr samna- stofunni. — Faðir þinn er orðinn lasinn aftur, sagði móðir henn- ar. Þessi dagur hefir orðið honum um megn. Þú skalt ekki tala við hann í kvöld. Þú skalt segja mér það, sem þér ligg- ur á hjarta. Móðir og dóttir stóðu andspænis hvor annarri. Hvernig átti Josui að segja móður sinni sorg sína? Þó vissi hún, að hún varð að gera það. Ástin var hræöileg. Vald hennar var svo mikið, að hún rak fólk til aö fremja grimmdarverk, þótt menn hötuðu grimmd og vildu vera góð og hlýðin börn foreldrar sinna. Og nú varð hún meira að segja að særa móður sína, sem ætíð hafði veriö henni góð og umhyggju- söm. Tárin fylltu augu hennar, og hún liorfði hrygg á móð ur sína án þess að geta sagt orð. Móðir hennar tók fyrr til máls hógvær og blíð. — Viltu giftast þessum Ameríkumanni? — Já, mamma. En ég óska þess, að ég vildi það ekki. Ég vildi, að ég hefði aldrei hitt hann. Þá hefði ég getað gifzt Kobori og orðið hamingjusöm, þar sem ég hefði engan annan þekkt. Ég hefði lært að elska hann smátt og smátt eins og þú lærðir að elska pabba. Þú hittir hann aldrei áð- ur en þið giftuzt, var það? Móðir • hennar brosti ekki. Ófrítt andlit hennar breytti engum drætti. — Þá voru aðrir tímar. Æska mín var önnur en þín. Ég hlýddi aðeins, það var mitt hlutskipti. — En þú hefir samt verið hamingjusömu, sagði Josui. — Já, svaraði móðir hennar. En hamingja mín~ fékkst aðeins með þrautum. Ég vænti mér einskis, og því gafst mér meira en ég vonaði. Þær stóðu enn saman, og Josui íagði höndina á hand- legg móður sinnar. — Mamma, skilur þú mig, þegar ég segi þér, að ég elski þennan mann svo heitt, að ég geti ekki breytt á annan hátt? Móðir hennar horfði á hana, djúpum, athugulum augum, fullum af sorg. — í gær hefði ég ekki skilið það, en i dag skil ég þig. Hún leit undan, og fölar varir hennar skulfu. — Ó, mamma, gráttu ekki, sagði Josui. Það er svo langt síðan. Pabbi er alvegUúinn aö gleyma því. — Hann var ekki búinn að gleyma því, sagði móðir henn- ar lágt grátkæfðri röddu. — Það var aðeins sært mikillæti hans sem minnti hann á þa& aftur, ságði Josui. Þú veizt, hve stærilæti hans er mikið. — Nei, það var ekki það, sem minnti hann á það, sagði móðir hennar. Það var hin forna ást hans, sem særði hann á ný. Það var þess vegna, sem hann vildi fara frá Ameríku. Hann dáði Ameriku, og þegar Ameríkumenn snerust gegn honum — eins og ameríska stúlkan hans haföi áður gert — var ást hans særð með sama hætti og þegar hann var ungur. Og þessi sárindi uxu þangað til hann yfirgaf land sitt — Ameríka var land hans.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.