Tíminn - 24.12.1953, Blaðsíða 31
JÓLABLAO TÍMAN5 1953
aður settur í það að taka hraust-
legt handtak, hver öðrum til hjálp-
ar, heldur en að gefa á kjaftinn.
Meðal annars þótti alveg sjálfsagt
að láta upp klyfjarnar hjá þeim,
sem minni máttar voru, jafnvel þó
að það væri meðfram af því, að
þeir hefði komist í óþarflega náin
kynni við Bakkus.
Allir riðu smám saman úr sandi.
Sumir komu kannske nokkuð seint
heim um nóttina, giaðir og reifir,
hraustari eftir áreynsluna og
steypibaðið, þó að stórkarlalegt
væri. N
Iðgrænar hlíðar og hvammar,
ofnar silfurböndum fossa og lækja
breiddu út mjúkan faðminn mót
börnum sínum. Efra gnæfði jökull-
inn við heiðbláan himininn, bað-
aður í glóandi geislum morgunsól-
arinnar, — en að baki niðaði bassi
Ægis fyrir Eyjasandi — rólega en
þungt í góðviðrinu.
Kynlegasta kirkja
í lieimi
Framh. af bls. 11.
engu því, sem menn hafa áður séð
á kirkjuturni. Þar eru engir kross-
ar. Turnkollarnir eru settir undar-
legum útvöxtum, kúlum, bogum,
tíglum, teningum, og rninnir allt
þetta til að sjá helzt á fornt dreka-
höfuð. Þetta er allt saman sett af
mikilli list úr ýmsum litfögrum
gljásteinum á svipaðan hátt og viö
notum hrafntinnu og silfurberg.
Fjárþrot.
En brátt kom að því, að fjárþrot
varð við byggingu kirkjunnar.
Gaudi lézt árið 1926 án þess aö sjá
draumin num kirkju sína rætast.
En enn í dag eru í Barcelona og
víðar i Katalóníu til félög manna,
sem vinna af kappi að fjársöfn-
un til kirkjubyggingarinnar og
hafa ekki gefið upp alla von um
að ljúka henni. Talið ér, að það
muni nú kosta 5—600 milljónir
peseta eða 200—250 milljónir ísl.
króna.
Ölduhúsin.
En Barcelona ber fleiri minjar
um hinn hugkvæma og sérkenni-
lega byggingameistara. Við eina
nýrri götu borgarinnar rekur veg-
farandinn augun í undarleg hús.
Veggir þeirra hallast á ýmsa vegu,
ýmist fram yfir götuna eða frá
henni. Engin lína þeirra er bein,
lóðrétt eða lárétt. Dyr og gluggar
hornskakkir eða bogadregnir.
Þarna eru margar sambyggingar
af þessu tagi og oftast kallaðar
ölduhúsin, og hliðstæðu þeirra mun
vart aó finna í nokkurri nútíma-
borg.
Það líður á kvöld, myrkrið skell-
ur yfir, og það er orðið dimmt á
götunum áður en síðustu geislar
kvöldsólarinnar yfirgefa turna Sa-
grada Familia, 127 metra háa. Á
Plaza Sotelo eru cobla-leikararnir
teknir að reyna hljófæri sín, og
unga fólkið raðar sér í hringi og
fer að dansa sardana, gamlari
katalóniskan dans, hægan og ynd-
isfagran hringdans, sem krefst
mikillar sjálfstjórnar í hreyfingum
og æfingum.
Á Rambla, fegurstu skemmti-
göngugötu Evrópu, er orðið sam-
fellt mannhaf undir pálmakrón-
unum. Fjórir turnar Sagrada Fa-
milia gnæfa við dimmbláan him-
in, og hvort sem henni verður
nokkru sinni Iokið, er hún og verð-
ur kynlegasta kirkja í heimi.
Fjarða-Þytur
Framh. af bls. 12
um. Hann þurfti ekki, frekar en
Litla-Löpp Páls Ólafssonar skálds,
að hafa fast undir fæti.
Inn Hvalvatnsfjörð á eggslétt-
um bökkum Gilsár tók Þytiír stutt-
ar en snarpar skeiðrokur milii á-
kafra og ílugléttra stökkspretta.
Oft hefir mér birzt sannleikur
sá, sem Einar Benediktsson segir
í kvæðinu Fákar, og þarna blasti
hann við:
„Það er stormur og frelsi í faxins
hvin,
sem fellir af brjóstinu dægursins
ok.“
„Maður og hestur þeir eru eitt
fyrir utan hinn skammsýna mark-
aða baug.“
-----„og saman þeir teyga í lofts-
ins laug lífdrykk“.
„Sá drekkur hvern gleöinnar dropa
í grunn,
sem dansar á fákspori yfir grund.
í mannsbarminn streymir sem að-
fallsunn
af afli hestsins og göfugu lund.“
„Lát hann stökkva svo draumar
þíns hjarta rætist.“
Að Gili var farið af baki og áö
um stund. Þytur blés ekki úr nös.
Hann greip lystarlega í túnið. Mér
fellur oft hálfilla að beita tún eyði-
býla, þótt ógirt séu og engum helg-
uð. En sú tilfinning gerði eigi vart
við sig gagnvart Þyt. Ekkert strá
er ofgott handa gæðingi.
Þarna skildu leiðir. Við Stefán
Ingjaldsson héldum inn yfir Leir-
dalsheiði. Þórhallur Geirfinnsson
reið aftur á móti út fjarðardalinn
heimleiðis, einyrkjabóndi, landseti
1 einum útúr"knt,nasta „veraldar-
reit“. á becf', sem gaf honum
áreiðanlega marga stund „ríki og
álfur“ ”ndí- og hamingiu.
Við Stefán komum að Hvammi
úr þessum ánægiulega leiðangri
eft'r 10 klukkustunr’a flarveru.
Funáv.m okkar Þórhalls Geir-
finnssonar bar ekki saman aftur
fyrr en í sumar sem leið. Ég spurði
hann r.m Þyt. Hann talaði um
hann eins cg heigm dórn. Mig furð-
aði ekki á því. Minningarnar voru
margar og góðar.-------
Þytur hafði bilað í fótum og ver-
ið felldur haustið 1950 átján vetra
gamall. Fiörbecfíu- veiia sér ekki
undir fætur og stíga ekki gætilega
niður, þótt steinn sé á leið. Örlög
þeirra margra verða þessvegna
ekki langlífi.
Þórhallur gaf mér mvnd af sér
og Þyt. Hún er aús ekki æskilega
göð, en ég birti hana samt. því að
önnur mynd er ekki til af Fjarða-
Þyt.
Þey! Þey! Tíeyrið þið ekki minn-
ingaþytinn af för góðhesta liðinna
ára cg alda um héruð íslands, —
gæðinganna, sem gerðu hvort-
tveggja að bera menn erinda og
„fella af brjóstinu dægursins ok“,
— gerðu „knapann að kóngi um
stunö“ og gáfu honum „kórónulaus
um“ „ríki og álfur“?
Hvað getur fyllt skaro góðhests-
ins hjá manni og þjóð?
Hlustið á þytinn um fjarðabyggð-
ir og hásveitir:
„Sem höfugur niður um hljóða jörð
hófasláttnrinn fer.“
♦J»»o
FERGUSON dráttarvélin Eéttir bústorfin ailt ánfol
Við óskum svo öllum viðskiptcivinum
vorum gleðilegra jóla og gœfuríks
komandi árs.
%
Sími 81395. Hafnarstræti 23, Reykjavík.
Við viljum vekja athygli ykkar, sem eigið FERGITSON DRATT-
ARVÉL, á þvi, að á komandi vori munum við hafa til sölu ívær
tegundir herfa, sem hér birtast myndir af.
Einfalda herfið er með 10 diskum, sem hver er 22 tommur í
þvermál og 9 tomnrur milli diska. Þetta herfi má stilla á ýmsan
veg. Tvöfalda herfiö er með 24 diskum, sem hver er 13 tommiir
1 þvermál og 6’/2 tomma milli diska.
Bæði herfin eru tengd vökvalyftunni, sem lyftir þeim og má
því aka eftir vegi og yfir torfærur án þess að skemrna diskana.
Verð einfalda herfisins mun verða um fjögur þúsund krónur, en
hins um fjögur þúsund og fimm hundruð.
Það er nauösynlegt að pantanir berist fyrir áramótin til þess
að unnt sé að fá herfin til landsins fyrir vorið.
8
|
|