Tíminn - 31.12.1953, Page 8
TIMINN, fimmtudaginn 31. desember 1953.
296. bla«K>
Við áramótin
(Pramhald af 7. síðu.)
maSiMnn („samvinnumað-
urinn“) atkvæði með því að
velja í nefndina þá menn,
sem öruggt er, að skammta
samvinnufélögunum sem
naumast, en einkaverzlunum
sem mest. Og þetta verður
hann að gera, ef hann vill
vera flokki sínum trúr.
Hvernig á einlægur Sjálf-
stæðismaður að vinna í trún
aðarstöðu fyrir samvinnufé-
lag til þess að ala „snák við
brjóst“ — þjóðfélagsins?
Hvernig á Sjálfstæðismaður
að geta unnið að því af ein-
lægni að efla félagsmála-
hreyfingu, sem er „brýnasta
hagsmunamál allra Sjálfstæð
ismanna" að koma fyrir katt
arnef?
Vígi blindrar einstaklings-
hyggju og samkeppni hrynja
nú sem óðast um víða veröld.
Trúin á þjóönýtingu þverrar.
Það er vaxandi trú á því, að
samvinnan leysi þessar stefn
ur af hólmi og að með henn-
ar úrræðum verði að ráða
fram úr fjölda þjóðfélags-
vandamála, sem hún hefir
lítt eða ekki látið til sín taka
til þessa.
Samvinnuhreyfingin á ís-
landi er nú svo traust vígi,
að það verður naumast unn-
ið utan frá. Það vita andstæð
ingarnir. En þá er ekki eftir
nema ein leið: að laumast
inn í herbúðirnar. Af orðum
þeim og dæmum, sem vitnað
er til hér að framan, getur
mönnum naumast dulizt, að
sú leið verður reynd til þraut
ar.
Egill á Borg vissi sig örugg-
an fyrir þeim er framan að
honum gengu. Eftir sonamiss
inn sættist hann við guð sinn,
minnugur þeirjar þakklætis-
skuldar meðal annars, að sá
guð hafði gefið honum
„-----þat geð
es gerðak mér
vísa fjendr
af vélöndum.“
. Það er áreiðanlega hollt
fyrir samvinnufélögin að eiga
líka þetta „geð“ og lifa sam-
kvæmt þessari lífsréglu Eg-
ils.
NlíSurlzujsarð.
Frelsi okkar er ungt. Þjóð-
félag okkar er á gelgjuskeiði,
enda gætir þess á ýmsa lund.
En þegar á heildarmyndina
er litið, höfum við ástæðu til
þess að véra vongóð, því að
það er furðanlega mikið, sem
áunnizt hefir. Við erum að
vísu fátæk þjóð, en við eigum
talsverðar auðlindir og þær
miklar í ónotuðum vatnsafii.
En mesti auðurinn er þjóðin
sjálf. Við getum hiklaust sagt
það, án þess að verða sakað-
ir um gort eða þjóðarremb-
ing, að þjóðin er dugmikil og
góðum hæfileikum búin. Það
hefir hún margsannað. Ef
þjóðin fer vel með þennan
auö sinn, getur hún vissu-
lega búið sér góð lífskjör. En
i þótt við hefðum fullar hend-
ur fjár og allsnægtir, væri
lífið í þessu landi fáskrúðugt
og lítils virði, ef við ættum
ekki þann skapandi mátt
andans, sem einn getur sann
að tilverurétt okkar sem þjóð
ar. Sá máttur skóp fyrr og
síðar ljóð sem voru „djúp,
sem líf í heilli þjóð,“ eins og
Matthías segir um ljóð Hall-
gríms Péturssonar. Sá sami
máttur tendrar eldinn á
arni vísindanna, stýrir hendi
hagleiksmannsins og er í
hverju verki þar sem dáð er
drýgð. Þennan auð þarf þjóð
in að efla með sjálfri sér. En
skilyrðið til þess, að svo
verði gert með fullum ár-
angri, er fjárhagslegt sjálf-
stæði þjóðarinnar.
íslenzka þjóðin á nú álit-
legan og ört stækkandi hóp
hæfileikamanna, sem búnir
j eru hinni fullkomnustu
menntun á tæknilegum svið-
um. Nokkra þessara manna
höfum við þegar misst úr
!landi varanlega. Og við höld
um áfram að missa þessa
menn, fyrst og fremst úrval-
ið, því að miklum hæfileika-
mönnum standa opnar leiðir
að störfum við þeirra hæfi
j erlendis. Það væri mikið
! tj ón fyrir fámenna þj óð, sem
iþarf mjög á þessum*starfs-
, kröftum og hæfileikum að
halda, ef rétt er unnið. Þjóð-
inni stafar því geigvænleg
hætta af því af mörgum á-
'stæðum, ef við snúum okkur
ekki með hraða og ein-
beitni að því að byggja upp
í landinu iðnað í stórum stíl.
Sá tími, sem viö nú lifum á,
mun meðal annars verða
dæmdur eftir því, hvernig
að þessu veröur unnið. Um
þetta eiga núverandi stjórn-
arflokkar að geta veriö á einu
máli, þótt um margt sé deilt
þeirra á milli.
En fyrst ég minnist hér aft
ur á deilur milli stjórnar-
flokkanna, vil ég endurtaka,
að hjá þeim verður ekki kom
ist milli flokka með svo and-
stæðar skoðanir.
Það er bein skylda flokka,
þótt í samstarfi séu, að gera
þjóðinni Ijósa grein fyrir
stéfnum sínum. Hreinskilni
í þeim efnum getur ekki í j
neinu spillt heilbrigðu stjórnl
arsamstarfi, enda væri sam- J
starfið ekki réttlætanlegt, ef j
það þyldi ekki hreinskilnis-
lega túlkun á . baráttu- og
stefnumálum beggja flokk-
anna.
Að lokum þakka ég Fram-
sóknarmönnum öllum fyrir
samstarfið á liðna árinu og
óska .þeim farsæls nýs árs.
Landsmönnum öllum óska
ég árs og friðar.
i
! GLEÐILEGT NÝÁR!
í
!
Verzlimin Olympía, Laugaveg 26.
j GLEÐILEGT NÝÁR!
!
í l
Nælonsokkar
Patria
Sonbro
Pretty Polly
Hearfield.
Rexweil
Martin Fisher
Emma
Tor
Rayfel
Glamour Girl
Howard Ford
King
Allt þekkt merki
♦ !
í I
j ienzb-erl. verzíunciriéíciaiÉ h.í. 5
Garðastræti 2. — Sími 5333.
o
Auglýsið í TÍMANUM
Hvannbergsbrceður.
GLEÐILEGT NÝÁR!
Tryggingarstofnun ríkisins.
GLEÐILEGT NÝÁR!
Gúmmíbarðinn.
I GLEÐILEGT NÝÁR!
Chemia h. f„ Sterling h. f.
\ GLEÐILEGT NÝÁR!
Slippfélagið í Reykjavík.
\ GLEÐILEGT NÝÁR!
Sig. Þ. Skjaldberg.
\ GLEÐILEGT NÝÁR!
Kexverksmiðjan Esja.
? i GLEÐILEGT NÝÁR!
I! .
Bókabúð Æskunnar.
GLEÐILEGT NÝÁR!
Verzlunin Brynja.