Tíminn - 31.01.1954, Síða 2
TÍMINN, sunnudaginn 31. janúar 1954.
25. blað.
Bæði veðurspáin og kosningaspáin
er Sjáifstæðismönnum óhagstæð
f dag fara fram kosningar í bæja- og sveitastjórnir. Að sjálfsögðu
hefir kosningabaráttan verið hörðust í bæjunum og þó einkum hér í
Reykjavík, sem undanfarin fjörutíu ár hefir verið stjórnað af Sjálf-
stæðismönnum eða undanförum þeirra. Atkvæðaveiðar Sjálfstæðis-
manna hafa haft á sér sama snið og að undanförnu og hafa þeir ekki
rekið aðra málefnabaráttu en þá, að þylja upp úr Morgunblaðinu slag-
orð frá síðustu bæjarstjórnarkosningum.
í gærkveldi var veðurspáin frem-
ur óhagstæð fyrir daginn í dag og
kann svo að fara, að óhagstætt
veður kunni að draga úr kjörsókn.
En veðurspáin hefir einnig verið
óhagstæð að undanförnu fyrir Sjálf
stæðismenn í stjórnmálalegum
skilningi, svo að með sanni má
segja, að tvisýnt veður sé fyrir þá
í dag í öllum skilningi.
Konfekt og lóðir.
Sjálfstæðismenn neyta margra
bragða til að ná atkvæðum í þess-
um kosningum. Undanfarið hafa
þeir lofað fólki fjölmörgum lóðum,
án þess að hafa nokkurn mögu-
leika til að standa við þau loforð.
Hafa þeir þannig gert sér þaö að
leik, að vekja tálvonir hjá fjöl-
mörgu fólki, aðeins til þess að
tryggja sér atkvæði þess. Sagt er,
að konfektið muni gegna mikil-
vægu hlutverki hjá Sjálfstæðis-
mönnum nú, sem við fyrri kosn-
ingar. Herma sögur, að háttur
þeirra við undanfarnar kosningar
hafi verið sá, að senda stóra kon-
fektkassa inn á sum heimili, þar
sem fylgi hefir verið ótryggt, í
þeirri von, að sætindin tækju mestu
beiskjuna úr háttvirtum kjósend-
um. Eiga þessi sætindi að hafa ver-
ið send sem gjöf frá ýmsum hátt-
settum mönnum í flokknum, en af
nafni þeirra hafi átt að standa
þvílíkur ljómi, að biTgðist konfekt-
ið, myndi nafn gefandans bera til-
ætlaðan árangur.
Viskífiaska pr. atkvæði.
Fræg er sagan orðin frá alþing-
iskosningunum síðustu um viskí-
flöskuna og atkvæðið. Sagan segir,
að þegar líða tók á kosningadag-
inn, hafi þeir vísu hetrar i Hol-
stein séð, að sumir fyrrverandi kjós-
endur flokksins virtust ætla að
sitja heima. Voru sumir þeirra orðn
ir óþjálir, eins og dekurbörn og
heimtuöu eitt og annað á síðustu
stundu og var reynt að verða við
þeim tilmælum. Sumir vildu fá
vín, einkum þegar leið á kvöldið.
Heimtaði einn þeirra flösku. af
viskí, en Holsteinbúar höfðu búizt
við þessum kenjum og gátu þvi
orðið við tilmælum þessum. Var
flaskan send og búizt við að mað-
urinn myndi nú koma með góðu,
en hann sendi bifreiðina til baka
og sagðist kjósa síöar um kvöldið.
Var nú fylgzt með því í bókum,
hvort maður þessi kysi, en ekki
kaus hann og því farin önnur ferð
heim til hans að fregna af atkvæð-
inu. Hafði maðurinn þá gætt sér
svo ríflega á flöskunni, að hann
var ekki viðmælandi. Sagan segir,
* að maðurinn hafi ekki kosið, og
gjöfin því ekki komiö að notum.
j Kann aö vera, að í dag missi
! Sjálfstæðismenn meirihluta sinn á
því, að hlaða svo miklum loforð-
um á háttvirta kjósendur, að þeir
verði svo miður sín, að þeir kom-
ist ekki á kjörstað, jafnvel þótt
þeir hefðu annars farið, þrátt fyrir
, óhagstætt veður. Ekki eru sögurn-
ar um konfektið og viskíið seldar
dýrara en þær voru keyptar, en
þær eru táknrænar um það álit,
sem fólkið hefir á kosningabaráttu
S j álfstæðismanna,
X B-LISTINN!
Vilt þú bera ábyrgð
ina,
Útvarpið
Útvarpið í dag:
Fasf'r liðir eins og venjulega.
13.15 Frindaflokkúrinn „Frelsi og
manngildi" eftir John Mac
Murray prófessor í Edinborg;
fimmta erindi (Jónas Pálsson
þýðir og flytur).
17.00 Messa í Laugarneskirkju (Sr.
Árelíus Níelsson predikar).
18.30 Barnatími (Þorsteinn Ö. Step-
ensen).
19.30 Tónleikar: Fernando Germani
leikur á orgel (pl.).
30.20 Erindi: Sérstofnanir Samein-
uðu þjóðanna (Kristján Al-
bertsson sendiráðsfulltrúi).
30.35 Tónleikar (plötur): „Hnotu-
brjóturinn“, svíta eftir Tschai
kowsky.
21.00 Dagskrá Sambands bindindis-
félaga í skólum.
22.05 Danslög (plötur).
24.00 KosningafréttL' og tónleikar
af plötum.
Dagskrárlok á óákveðnum
tíma.
Útvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
18.55 Skákþáttur (Baldur Möller).
19.15 Tónleikar: Lög úr kvikmynd-
um (plötur).
20.20 Heimastjórnin háifrar aldar:
a) Ólafur Thors forsætisráðh.
flytur ræðu.
b) Vilhjálmur Þ. Gíslason út-
varpsstjóri flytur erindi.
c) Samfelld dagskrá: Menn og
málefni á tímamótum.
d) Steingrímur Steinþórsson
landbúnaðarráðherrar flytu
ræðu. — Ennfremur tónleikar
af plötum.
22.10 Um daginn og veginn í fyrstu
viku febrúar 1904: Ýmsir smá
þættir.
22.40 Tónleikar: íslenzk ættjarðar-
lög (plötur),
23.00 Dagskrárlok.
Hvaða umbótamaður vill
bera ábyrgð á því að glæfra
flokkur eins og íhaldið
haldi völdunum í Reykjavík
um næstu framtíð? Getur
nokkur Reykvíkingur fyrir
gefið íhaldinu að loka Aust
urstræti til vesturs með
byggingu hins nýja „Hol-
steins“ og eyðileggja aðal-
götu bæjarins um alla fram
tíð. Það er mikil furða, að
þessir Thorsarar, Hafstein-
ar Thoroddsenar skuli ekki
hafa tekið Austurvöll og
byggt sér þar musteri.
Nú fyrir kosningarnar er
allt til reiðu fyrir þá fá-
tæku. Kosningasmalarnir
lofa öllu. Þeir segja eins og
maðurinn fyrir vestan.
„Sjálfsagt góði“. Lóðir eru
boðnar, lán eru bara sjálf-
sagður hlutur, síma geta
menn auðvitað fengið í,
stuttu máli: Það er allt til
reiðu, ef þú fellur fram og
tilbiður íhaldið, og krossar
við D-listann.
Þetta atferli minnir ó-
þægilega á síðustu daga
Rómaveldis, þegar þrælarn
ir fengu „brauð og leiki“ og
voru síðan bundnir við ár-
ina.
Kjósandi, atkvæði þitt
getur valdið miklu. Vilt þú
bera ábyrgð á, að peninga-
valdið noti þig sem verk-
færi til að liýða sjálfan þig,
vilt þú bera ábyrgðina.
Margir Lýðveldismenn
styðja B-listaíin í da
Bréf það til Gunnars borgarstjóra, sem Tíminn birti í gær frá ein-
um af meðlimum Lýðveldisflokksins hefir vakið mikla athygli. Lýðveld-
ismaður, sem ekki segist vera höfuntlur bréfsins, kom í kosningaskrif-
stofu Framsóknarflokksins í gær, sagði frá furðulegum hótunum, sem
hafðar voru í frammi við hann í gær, þar sem ýmsir Sjálfstæðismenn
þóttust vissir um að hann væri höfundur bréfsins.
En fleiri munu hafa fengið upp-
hringingar, þar sem margir liggja
undir grun um að vera höfundar
bréfsins. En margir Lýðv.menn vildu
gjarnan eiga eitthvað í því. En það
skal tekið fram, að ekki hringdi
borgarstjórinn sjálfuir, né neinn
þeirra manna, sem fremst standa
í röðum Sjálfstæðisflokksins hér
í gær. Ýmsir ,(smærri spámenn"
voru notaðir til þessara starfa,
auk nafnlausra hótunarmanna.
Þessi Lýðveldismaður sagðist
hins vegar vera alveg óhræddur,
enda vanur ýmsu á langri samleiö
með Sjálfstæðismönnum. Hvorki
hótanir snertand hann eða fjöl-
skyldu hans geta fengið hann og
fylglsmenn hans í Lýðveldisflokkn-
um til að hætta við þá ákvörðun
að svara þessu gerræðisfulla of-
beldi með því að kjósa Framsókn-
arflokkinn, þann flokk, sem Sjálf-
stæðismenn óttast mest í bæjar-
stjórn og liklegastur er til að hefja
þar til vegs virðingu fýrir ráðdeild
og sparnaði í bæjarrekstrínum.
Mennirnir, sem reynt er að kúga
þessa dagana, geta hugsað til fyrri
spora íhaldsins, þegar þvinga átti
Hjalta Jónsson til að falla frá þeim
stuðningi, er hann vildi veita Fram
sóknarmönnum til að virkja Sog-
Ið. Það verður eins með Lýðveldis-
menn og Hjalta, hótanir og svik-
aranöfn hafa öfugar ætlanir, þvl
málstaður réttlætisins sigrar að
lokum. „Þess vegna var Sogið virkj
að og einnig þess vegna mun Gunn
ar ekki verða borgarstjóri áfram,
| ef við Lýðveldismenn fáum ein-
hverju þar um ráðið“, sagði þessi
fyrrverandi stuðningsmaður Sjálf-
stæðisflokksins I kosningaskrifstofu
Framsóknarflokksins í gær. Svo of-
býður honum og mörgum fleirum
nú orðið spillingin og óhófseyðsl-
an I rekstri bæjarins undir stjórn
Gunnars og yfirstjórn Sjálfstæðis-
flokksins, sem rekur bæinn sem góð
gerðastofnun fyrir útvalda gæðinga
sína.
X B-LISTINN!
TILKYNNING
um atviimuleysisskránmgu
Atvinnuleysisskráning samkvæmt ákvörðun laga nr.
57 frá 7. maí 1928, fer fram á Ráðningarstofu Reykja
víkurbæjar, Hafnarstræti 20 dagana 2., 3., og 4. febrú
ar þ. á., og eiga hlutaðeigendur, er óska að skrá sig,
samkvæmt lögunum, aö gefa sig þar fram kl. 10—12
f.h. og 1—5 e.h. hina tilteknu daga. Óskað er eftir,
að þeir sem skrá sig séu viðbúnir að svara meðal ann-
ars spurningum:
1. Um atvinnudaga og tekjur síðustu þrjá mánuði.
2. Um eignir og skuldir.
Reykjavík, 30. janúar 1954
Borgarstjórinn í Reykjavík
Uppboð
sem auglýst var í 91. og 92. tbl. Lögbirtingablaðsins
1953 og 1. tbl. þess 1954 á hluta í eigninni nr. 6 við
Mímisveg, hér i bænum, neðri hæð og kjallaraíbúð,
eign dánarbús Helgu Halldórsdóttur, fer fram á eign-
inni sjáfri laugardaginn 6. febrúar 1954, kl. 2,30 síðd.
Söluskilmálar og teikningar af eigninni eru til sýn-
is hjá uppboðshaldara, og geta þeir, er þess óska, skoð-
að eignina fimmtudaginn 4. febrúar 1954 kl. 2—4 síðd.
Uppboðshaldarinn í Reykjavík.
I
!|
11
ii
:s
o
o
O
(»
(>
ó
AUGLÝSING
Stjórnarráðið verður lokað
mánudaginn 1. febrúar 1954.
ForsætLsráðuneytih.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda hjálp við andlát og
jarðarför konu minnar
JÓHÖNNU VALDIMARSDÓTTUR
frá Krossi.
Fyrir mína hönd, móður og systkina
Ólafur Sveinsson.
Maðurinn minn
LÁRUS Þ. BLÖNDAL
skipstjóri
andaðist að heimili okkar, Sjafnargötu 8, hinn 30. þ.m.
Margrét Ólafsdóttir
iiiiiMiiiiiiiifiiiiititmiiiinintiiniiuiiMuiiiiiiiiuiiiiiiiit
öll notuð lslenzk frímerkl,
hæsta verði. Skrifið og
biðjið um innkaupsverð-
skrá og kynnið yður verðið
Gísli Brynjólfsson
SAMVDNNnnrmTTEœmoAai Barmahlíð 18, Reykjavík
Gætið varúðar
í umferðinni
MJIUUIIIIIIUIIIIMUIIIIUIMIIiamiM
X B-LISTINN!
CtbreHSltt Tíhmuul
Wí
in n incfarópföi
sj.es.
ÁRNÍ QUÐJÓNSSONi hdl.
Málfi^skrífatofa'
\Qarðastreati 17:
Slmi 63M