Tíminn - 23.07.1954, Page 8
38. árgangur.
Reykjavík,
23. júlí 1954.
162. blað
Albert hættur
knattspyrnu
Reykjavík, 22. júlí. NTB. —
Þekktasti knattspyrnumaður
íslands. Albert Guðmunds-
son, sem síðustu 10 árin lief
ir verið atvinnuknattspyrnu-
maður hjá enskum og frönsk
um félögum, hefir nú ákveð-
ið að hætta knattspyrnu. —
Síðast var Albert hjá franska
liðinu Nice. Áður hefir hann
leikið fyrir Arsenal og var m.
a. í liðinu, er það fór í
keppnisför til Argentinu fyr-
ir nokkrum árum.
Hér gætir nokkurra mis-
sagna hjá fréttastoíunni. Al-
bert hefir verið atvinnumað
ur í sjö ár. Fyrst lék hann
með franska liðinu Nancy,
en siðan með ítalska liðinu
Milan. Frá því fór hann aft-
ur til Frakklands. Albert hóf
knattspyrnuferil sinn erlend
is með skozkum og enskum
liðum (Rangers og Arsenal)
og lék með þeim sem áhuga-
maður. Með Arsenal fór hann
til Braziliu, ekki Argentínu,
en þá hafði hann gerzt at-
vínnumaíður fyrir nokkrum
árum. Var hann einasti leik-
maðurinn hjá Arsenal, sem
stóð Brazilíumönnum jafn-
fætis hvað getu snerti.
Ferðir Ferðaskrif-
stofunnar n.k. helgi
Um næstu helgi efnir
Ferðaskrifstofa ríkísins til
skemmtiferða, eins og hér
segir:
Á föstudaginn verður far-
ið að Geysi og Gullfossi. Á
austurleið ekið um Mosfells-
heiði og stanzað á Þingvöll-
um, síðan ekið suður með
Þingvaliavatni og niður í
Grímsnes. Þaðan liggur leið-
in upp að Stóra-Geysi í
Haukadal og verður hann lát
inn gjósa. Frá Geysi liggur
leiðin til Gullfoss. Á heim-
leið verður komið við í Hvera
gerði og síðan ekið um Hell-
isheiði til Reykjavíkur.
Á laugardaginn hefst 2ja
daga ferð til Þórsmerkur.
Lagt verður af stað eftir há-
degi á laugardag og ekin
Suðurlandsleið allt til Fljóts
hhðar og síðan inn á Þórs-
mörk um Krossáraura allt
inn í Langadal og þar tjald-
að. Daginn eftir, sunnudag,
verður svo Mörkin skoðuð,
gengið inn á Stórenda, í
Stakkholtsgjá og víðar, eftir
því, sem tími vinnst til. Um
kvöldið komið aftur til Rvík-
ur.
Sama dag hefst og tveggja
daga ferð til Kerlingafjalla
(Framhald á 7. siöu).
Landsvæði til
skotæfinga
Samkvæmt varnarsamn-
ingnum hefir varnarliðinu
nú verið afhent landssvæði
í landi Voga á Reykjanesi til
skotæfinga. Æfingar munu
hefjast nú þessa dagana og
standa i næstu 6 vikur.
(Frá utanríkisráðuneytinu)
Borgarísjakar á siglingaleið íslendinga Mcndes-Frtmec í franskst þinginu.
Skilmálarnir harðir en
ekki verri en til stóð
París, 22. júlí. — Mendes-France, forsætisráðherra Frakk-
lands, flutti í kvöld franska þinginu skýrslu um samningana
í Genf. Hann kvað sér vera fuhljóst sjálfum, að skilmálar þeir,
sem Frakkar hefðu orðið að sætta sig við í Indó-Kína, væru
þungbærir, en það væru þeir vegna þcss, að þeir endurspegl-
uðu ástand, sem væri ömurlegt.
Þegar Goðafoss var á heimleið frá Air.eríku á dögunum var
óvenju míkið af stórum borgarísjökum á leið skipsins aust-
ur af Nýfundnalandi. Voru þessir miklu risar norðurhaf-
anna þarna á siglingarleið og fór skípið skammt frá mörg-
um beirra. Þótti skipverjum það tilkomumikil sjcn að sjá
þessar fsborgir á hafffetinum. Guðbjartur Ásgeirsson mat-
sveinn á Goðafossi tók þessa mynd af borgarísjaka einum
| miklum, er skipið sigldi hjá honum.
Kommúnistar kiófesta
með valdi yfirmann
leyniþjónustuV.Þýzkal.
Berlín, 22. júlí. — Vfirmaður leyniþjónustunnar 1 Vestur-
Þýzkalandi, dr. Otto John, er hvorfinn að því er cpinberlega
var tiikynnt í morgun. Bendir allt til að hann hafi verið
numinn á brott með valdi af kommúnistum og fluttur til
Austur-Berlínar.
undanfarið þjáðst af þung-
lyndi.
Strax er þessi tilkynning
hafði verið birt, gaf innan-
ríkisráðherrann út tilkynn-
ingu þá, sem áður er nefnd.
Er þar fullyrt, að Otto John
hafi s. 1. þriðjudag heimsótt
gamlan kunningja, dr. Wohl
gemuth í V-Berlín. í íbúð
hans hafi verið ráðizt á hann
og hann síðan svæfður með
klóróformi og fluttur í bíl
Wohlgemuth til Austur-Ber-
línar.
Ennfremur segir, að fundizt
hafi bréf frá Wohlgemuth til
konu þeirrar, er hann bjó hjá
í Vestur-Berlín. Segir í bréf-
inu, að hann verði af sérstök-
um ástæðum að fara til
sjúkrahúss nokkurs í Austur-
Berlín og jafnframt tekið
fram, að Otto John muni ekki
koma aftur til Vestur-Þýzka-
lands.
Innanríkisráðherrann sagði
í lok skýrslu sinnar um málið,
að allt yrði gert, sem unnt er
til að draga úr afleiðingum
þeim, sem það gæti haft í för;
með sér, ef Otto John er á
valdi leyniþjónustu kommún-
ista, en slíkur maður á að sjálf
sögðu ekki svo fá leyndarmál
í fórum sínum.
Fregnir um hvarf Otto
Johns eru annars mjög ósam-
hljóða og óljósar. Síðast sást
til ferða hans í Vestur-Berlin
s. 1. þriðjudag. Var hann þá í
bifreið ásamt manni að nafni
Wohlgemuth, en hann er
kunnur kommúnisti. Voru
þeir Otto John og hann gaml-
ir kunningjar. Staðgengill
Otto Johns birti fyrst tilkynn
ingu um hvarf hans og segir
þar, að hann muni hafa farið
til Austur-Berlínar, en þess
jafnframt getið, að hann hafi
Gríðarlegur mannfjöldi
hafði safnazt saman við göt-
ur þær, sem Mendes-France
ók um, er hann hélt til þing-
hússins. Meira en fjögur þús-
und manns hafði reynt að
tryggja sér sæti á áheyrenda
pöllum þingsins, en þar eru
aðeins sæti fyrir 435 manns.
Þingmenn fögnuðu forsætis-
ráðherranum ákaflega, er
hann hóf ræðu sína. Aðeins
örfáir íhaldsmenn og fáeinir
úr þjóðflokknum klöppuðu
ekki.
Mendes-France byrjaði á
því að hrósa Anthony Eden
fyrir þann mikla skerf, sem
hann ætti í árangri Genfar-
! ráðstefnunnar. Síðan rakti
, hann gang samninganna eftir
að hann varð forsætisráö-
herra. 11. júlí hitti hann utan
ríkisráðherra Viet-Minh í
i fyrsta sinn, en hann setti
' fram þá skilmála, að Viet
Nam' skyldi skipt um 13 brgr.,
' kommúnistar skyldu halda
landsvæðum sínum í Laos og
Cambodia og kosningar
'skyldu haldnar eftir hálft ár.
Öllum þessum skilmálum
[ fékk Mendes-France breytt
' Frökkum í vil.
Mendes-France sagði, að á-
kvæði hefði verið sett inn í
(Framhald á 7. siðu).
Fyrisíestur í há-
skólanum í kvöld
Dr. Henry Goddard Leach,
heiðursíorseti American-
Scandinavian, flytur fyrir-
‘ lestur í hátíðasal háskólans
kl. 6.15 í kvöld. Fyrirlestur-
linn nefnist „The American-
Scandinavian Foundation: a
experiment in international
Education“. Stjórn íslenzk-
ameríska félagsins hvetur
1 meðlimi sína til að sækj a
fyrirlesturinn og taka með.
sér gesti.
Ekki hægt að bjarga járni
á Dynskógafjöru um sinn
Sjór flæSir iiú yfir yíaðimi þar sem iim 4O®0
lestir aí jánii liggur grafið 3—4 111 í sarnli
Ekki mun reynast unnt að bjarga nokkru járni á Dyn-
skógaf jöru i sumar. Sjór flæðir nú yfir járnið og telur Bergur
Lárusson, sem nýlega fór austur á fjöru til þess að athuga
staðhætti, að járnið muni vera 100—200 metra út í sjó.
Það var árið 1952, sem stæður mjög góðar. Var járnið
Klaustursbræður hófu björg- þá allt á þurru landi. Eftir
un á járninu en þá voru að- að bjargað hafði verið 40 lest
___ um setti sýslumaðurinn í Vík
lögbann við frekari björgun
Þegar mánudagsblaðið kemur ekki út
er spurt: Hver var hneykslissagan?
Mánudagsblaðið lifir á því
að flytja hneykslissögur, sem
stundum eru allmikilfengleg
ar, en þegar útkomu blaðs- .
ins er aflýst, fá enn stórkcst
legri hneykslissögur byr und
ir báða vængi hjá aimenn-
ingi. Og um síðustu helgi
gerðist það, að Mánudags-
blaðið kom ekki út. Sögu-
sagnirnar, sem gengið hafa
í bænum síðan um ástæðurn
ar til þess eru hreint engar
smásmíðar. Skýrir Alþýðu-
blaðið frá því, að ritstjóri
Mánudagsblaðsins hafi
stöðvað útgáfuna, eftir að;
lögfræðingur hans hafi gert
honum Ijóst, að hann myndi
dæmdur til skaðabóta-
greiðslna og til fangelsisvist,
ar, ef hann birti aðalfregn j
blaðsins. Fjallaði sú fregn
um mál, sem mikið hefir ver 1
ið rætt um hér í bænum og
víðar um land.
Ilvert er þetta mál?
Þessi afturköilun á Mánu
dagsblaðinu og dylgjur um
ástæðurnar fyrir afturköll-
uninni hafa að vonum orðið
til þess, að alls konar sögu-
sagnir hafa þróazt. Þegar
ekki hafa fengizt greið svör
um það, hvert þetta mál,
sem blaðið sprakk á, hafi ver
ið, hafa sögur verið búnar
til í snatri, allt frá eitur-
lyfjaneyzlu hjá vissum hópi
fólks í Reykjavík til siðferðis
brots gagnvart telpu vestur
í bæ.
Bræðramál.
Sú saga, sem oftast er
nefnd í sambandi við stöðv-
un Mánudagsblaðsins, er um
viðskipti bræðra nokkurra á
Vestfjöðrum. Bræðurnir eru
sagðir miklir athafnamenn
og fyrirtæki þeirra standi
víða fótum. Hafi þeir til
skamms tíma haft stjórn á
sex fyrirtækjum varöaiidi
sjávarútveg og verzlun. Fýlg
ir sögunni, að fyrirtæki
þeirra megi óhætt meta á
þrjátíu milljónir króna, og
nú séu þeir bræður komnir
í liár saman. Hafi annar
þeirra hætt skyndilega að
veita fyrirtækjum bræðr-
anna forstöðu, en hinn tók
við stjórn að undangengn-
um aðalfundi hluíhafa.
Sögusagnir um fjárdrátt.
Hermir sagan, að þegar að
alfundi lauk, hafi sá, er við
tók afhent löggiltum endur-
(Framha)d á 7. aiðu).
þá.
Síðastliðið sumar eftir að
hæstaréttardómur hafði geng
ið í málinu og staöfestur var
björgunarréttur Klausturs-
, bræðra og þeirra er með þeim
voru í félagi hófust björgunar
aðgerðir á ný. Var þá bjargað
um 400 lestum við mjög slæm
ar aðstæður. Sjór flæddi þá
stundum yfir holuna, sem
grafin hafði verið fimm
metra niður í sandinn og fyllt
ist hún þá af sandi á skömm-
um tíma. Tók þá einn til tvo
sólarhringa að gi’afa holuna
upp aftur og var til þess not-
aður stór vélkrani.
Fjaran, þar sem járnið lig'g
ur, er mjög breytileg, straum
ar bera fjörusandinn til og
frá og getur því fjaran stytzt
á skömmum tíma eins og raun
hefir nú orðið á.
j Eftir munu nú vera um 4000
lestir af járni í sjónum við
Dynskógafjöru og er alveg ó-
víst, hvenær eða hvort hægt
verður að bjarga einhverju af
i því magni.