Tíminn - 02.12.1954, Page 5

Tíminn - 02.12.1954, Page 5
TÍMINN, fimmtudaginn 2. desember 1954. 5 273. blað. Nærtækasti kosturinn,sem mörgum gefst til þess aðvaxa upp úr sjálfum sér, er að elska byggð sína og vinna henni Rœfla Rorarins Björnssoiiar, skólameistara á Akureyri á full- veldisfag'naði Stádentafélags Reykjavíkur Það er með hálfum hug, að ég stend hér, og hefði mér þó sennilega ekki veitt af hon- unl fullum. En ég he'fi aldrei fyrr setið stúdenta-samkvæmi í Reykjavík, hvorki sem ung- ur háskólastúdent né síðar sem ráðsettur borgari. Veit ég þvi ógerla, hversu ég á að haga hér orðum. Má vel svo fara, að ég taki skakkan tón og vérðí hjárómá. Raunar hef ir mér skilizt, að sú sé venjan að vera hér andríkur og skemmtilegur, en til slíks hefi ég enga sérstaka köllun, og því mun ég velja þann kost- inn, sem ég tel áhættuminni, en það er að'vera (bara) leið- iníegur, blátt áfram og eðli- lega. Annars vil ég byrja á því að þakka forráðamönniim Stúdentafélags Reykjavíkur fyrir þá vihsemd og þann sóma, er þeir hafa gert mér með því að bjóða mér hingað i kvöld og trúa mér fyrir þeim vanda að ávarpa svo virðu- lega, samkomu, Hafði ég neit- að þeim í fvrra, en þóttist ekki hafa efni á að neita slík- um heiðri tvívegis. Ég þarf og varla að taka fram, að mér er sönn ánægja að vera hér, og.þykist ég vita, að það verði mér noltkur lærdómur og lífs- reynsla. Og það vermir þegar geð mitt að sjá hér gamal- kunn norðan-andlit, sem minna mig á liðnar og Ijúfar stundir i fóstra okkar margra, Menritásk. á Akurevri. Sú virðist hafa verið stefna Stúdentafélags Reykjavíkur undanfarin ár að.sækja ræðu- menn út á landsbyggðina i til efni þessa dags, og munum vér sízt lasta það. Sennilega er þáð stuðningur við þá við- leitni hæstvirtrar ríkisstjórn- ar að auka jafnvægi í byggð landsins ,eins og það er kallað og nú er á hvers manns vör- um. Er ég þeirri stefnu fylli- lega samþykkur, og má vinna að framgangi hennar á ýmsan hátt. Ein leiðin er sú að kapp kósta að vekja metnað hvers héraðs og hverrar sveitar. Æitti það að líkindum að vera efnna aúðgerðast á Norður- laindi, enda veitir Norðlend- iljgum nú ékki af öllu sínu. Þégar síldm, þessi duttlunga- fulla séiðkona hafsins, sem Iflklega hefði eih verið fær um að keppa við ameríska dollar- inn, hefir brugðizt Norðlend- ipgum ár eftir ár, og jafnvel norðlerizka sólskinið, blessuð súmarsólin, virðist vera að flýtja suður, þá eru góð ráð dýr. Því þá ekki að reyna norðlenzka metnaðinn og norðlenzka montið? Þó að það kunni að reynast rýr kostur til lengdar, eins og guðsbless- unin Magnúsi sálarháska forð um, er það samt andlegur kraftur, sem ekki má missast — og sízt nú. Eins og hver kona verður að eiga sitt stolt, ef hún á ekki að dragast í sVaðið, og hver þjóð sinn þjóð armetnað, ef hún á að halda réisn sinni, þá verður hvert byggðarlag og helzt hvert býli að eiga sinn staðarmetnað. Annars er voöinn vís og upp- gjöfin ein framundan. í út- löndum segi ég það ávallt með nokkurri sjálfsánægju, að ég sé íslendingur. Hér heima er mér það ámóta ánægja að segja, að ég sé Þingeyingur — og er ég þó ekki Suður-Þing eyingþ?! En þannig á það að vera, að hverjum þyki sinn fugl fagur. Það stækkar hvern | mann að drýgja sína dáð í nafni einhvers, sem er meira en hann sjálfur. Og nærtæk- asti kosturinn, sem mörgum gefst til þess að vaxa upp úr sjálfum sér ,er að elska byggð- ina f.ína og vinna fyrir hana. Og það er manndómsskilyrði fyrir þjóðina. Vér státum rétti lega af því, íslendingar, að hér sé ekki til menningarlaus skríll. Ein ástæðan til þess að svo er, er sú, að hér heíur aldrei ákapazt ábyrgðarlaus múgur, eins og löngum vill verða í þéttbýli stórra borga. í ftrjálbýlinu hér hefir hver orðið sem mest að sjá um sjálf an sig, og þó að það kunni að þykja harðir kostir, er þó eng- in önriur leið til að verða að manni en að hafa ábyrgðina á sjálfum sér. Það vill stund- um gleyma.st í nútímaþjóð- félagi, og þess vegna er hætt við, að þroskinn vaxi ekki að sama skapi og þægindin. Leið in til þroska þjóðarinnar er ekki sú, að láta einstaklinginn hverfa í fjöldann, heldur að gera hvern einstakling að lif- andi verðmæti í sjálfu sér, með ábyrgð á sjálfum sér. Og fámenni strjálbýlisins kveður hlutfallslega fleiri til ábyrgð- ar en þéttbýlið, og því elur það meiri mainndómsþroska. í þéttbýlinu hugsa of fáir fyrir of marga. Að vísu geta þessir fáu vaxið — og vaxa eflaust — af því að hugsa fyrir marga en við það minnka svo marg- ir, að mig uggir, að útkoman verði tap fyrir heildina, fyrir varðveizlu kj arnans, sem þjóðin verður að sækja sina frumorku til. Ég ætla, að þetta séu veigamestu rökin fyrir því, að það borgi sig ekki aðeins, heldur sé að síðustu þjóðargróði að því að varð- veita hinar dreifðu byggðir landsins, þorpin við ströndina og bæina í „dalanna skauti“. En nú læt ég nægja þennan stuðning við hæstvirta ríkis- stjórn og sný mér að stúdent- unum. Þeim mun það flestum sameiginlegt, að þeim þyki ljúft að minnast stúdentsár- anna. Það mun jafn-alþjóð- legt og stúdentsmenntunin sjálf. Þv miður get ég engar stúdentsminningar rakið héð- an úr Reykjavík. Ég dvaldist hér aldrei á stúdentsárum. Ég hefi aldrei reikað hér suður með Tjörn með prófskrekk í maga og ástarsting í hjarta, en þá súrsætu tilfinninga- blöndu munu margir stúdent- ar kannast við, og sumir jafn vel -enn finna eiminn fyrir vitum sér, þótt árum hafi fjölgað og hárum fækkað. En ég hefi setiö úti í Luxemborg- argarðinum í París í maí, „í vorsins græna ríki“, þegar skólasystur minar urðu að létt klæddum skógardísum, en latneska málfræðin hvíldi í gaupnum mér. Og ég hefi hlaupið á harðaspretti eftir götunum í París, af því að ein skólasystir mín hafði tekið ó- eðlilega þétt i hönd mér, þeg- ar við kvöddumst. Já, þá voru enn til nægjusamir menn! En heima biðu min bælcurnar, blessaðar bækurnar, sem allt- af voru nú kjölfestan. En er það ekki einmitt þessi spenna milli lífs og lærdóms, sem ( | meðal annars gefur stúdents- j árunum sitt sterka seiðmagn? j Þyrkingslegar fræðibækur og kvöldhýrar meyjar þreyta þá oft örlagaglímu um lítt ráðnar sálir. Holdið og andinn eigast við í bókstaflegri merkingu, en hjartað, blessað hjartað, þetta rómantíska kjötr tykki, togast á milli — og fylgir þó líklega fremur holdinu. En fleira skapar fyllingu lífsins á stúdentsárum en konur og bækur. Það eru líka, og ef til vill ekki hvað sízt, félagarnir, jafnaldrarnir, er standa á sama menntunar- Þórarinn Björnsson, skólameistari stigi, hafa sömu áhugamál, oft þó með ólíku viöhorfi, svo ag aldrei þrýtur umræðu efni, enda framtíðin eins og óráðinn draumur, sem rúm- ar hinar furðulegustu skýja- borgir. Lífið allt lyftist af þrá hins ókomna, jafnvel af hinni göfugu þrá þess, sem aldrei skal nást, en er þó jafnfiamt farið að kenna rót íestunnar í viðfangsefninu, náminu, sem vér höfum val- ið. Það eru þessi tímamót, sem eru ein hin skemmtileg- ustu ævinnar, þegar viljinn til staðfestu og heillandi dul- úð hins óráðna mætast og renna saman. Hér langar mig til að gera þá athuga- semd, að mig uggir að þessi þrá hins ókomna sé ekki jafn ríkur þáttur í fari ungra stúdenta nú sem áður. Ung- ir stúdentar, eins og raunar annað ungt fólk, keppist of mikig við að lifa. Það gef- ur sér ekki tima til að bíða eftir lífinu, hlusta á það kcma, ef svo mætti segja. Auðlegð draumsins er að glatast úr lífi æskunmanns- ins.Þaðan sprettur tómleik- inn. Bikarinn er tæmdur, áð- itr en hann fyllist, maturinn gleyptur ótugginn, og allir vita, hvað Náttúrulækninga- félagið segir um það. Vel má svo fara, að allt andlegt lif þjóðarinnar verði fátækara fyrir, er fram líða stundir. Draumurinn. draumur skálds ins og draumur þjóðarsálar- innar, hefir verið auðlegð hennar í fátækt sinni. En ef til vill erum vér nú orðnir svo ríkir, að vér þurfum ekki lengur slikan hégóma. Þó að stúdentar hafi oft búið við þröngan kost, losna þeir við ýmsa mæðu, sem suma aðra hrjáir. Hugsið ykk ur t. d. að þeir þurfa ekki að greiða skatta og útsvör. Og stúdentar eiga sjaldnast nokk ar eignir, sem þeir þurfa að haífci áhyggjúr af. Eg var svo heppinn að fá hinn svo- nefnda 4 ára. styrk til náms erlendis, hundrað krónur danskar á mánuði, en þessi 4 ára styrkur er nú illu heilli lagður niður. Þessar hundrað krónur nægðu mér fyrir fæði og húsnæði mánuðinn, ef sparlega var með farið, og ég man það enn, hvað vel mér leið með aleiguna í vas- anum. Mér fannst ég hala minn deilda verð, sem heilög ritning talar um. Þá langar mig til að víkja ofurlítið að háskólastúdent- um nú, og endurtek ég þar að mestu það, sem ég sagði við skólaslit í Menntaskólanum á Akureyri í vor sem leið. Síðastliðirin vetur voru há- skólinn og stúdentar allmjög á dagskrá hjá þjóðinni, og var ekki laust við, að stund- um andaði fremur kalt í þeirra garð. Stafar það éf- laust sumpart af því, að allir hópar, sem eru út af fyrir sig vekja riokkra tortryggni og stundum óvild hjá þeim, sem utan við standa. En að öðru leyti mun ástæðan sú, að fólk gerir — og á líka rétt á að gera — meiri kröfur til stúd- enta en annarra, sem þjóð- íélagið hefir ekki lagt eins mikið í sölurnar fyrir. Marg- ir ætlast til þess, að stúdent ar séu öðrum fremur til for- ystu um það, sem betur má fara, en á því þykir nokkur misbrestur. Þó að gagnrýn- endur hafi án efa eitthvað til síns máls, ætla ég, að oft sé ekki fullrar sanngirni gætt í dómum né nægrar at- hugnunar. Skal hér einkum vikið að tvennu. __________ Annað er það, sem mikið var talað um í fyrra, að meira en helmingur stúdenta, sem skráðir eru í háskólann, ljúki aldrei prófi. Hefir alloft verið gefið í skyn, að stúdentar þessir séu strandmenn vegna ómennsku og þá helzt drykkju skapar. Því miður er slíkt til. En sannleikurinn mun þó betri hér en ýmsir vilja vera láta. Staðreyndin er sú, að fjöldinn allur þeirra stúd- enta, sem skrá sig í háskól- ann og hætta námi, hafa aldrei ætlað sér að halda á- fram námi til lengdar eða þreyta embættispróf. Á þetta einkum við um kvenstúdent- ana, sem hefir farið sífjölg- andi undanfarin ár. Þær byrja margar þegar að vinna fyrir sér, gjarna á skrifstofu, en vilja ýmsar lesa heimspek ina, jafnframt eða auka kunnáttu riina í erlendum málum. Þess vegna skrá þær sig í háskólann um sinn. Þegar þær hætta. er því ekki um neina uppgjöf að ræða, né neina sóun á tíma og verðmætum. Annars týna stúdínurnar blessunarlega tölunni af eðlilegum ástæð- um, líkt og hjúkrunarnemar. Þess vegna, þegar frá er dreginn allur sá hópur, sem hættir, án þess að ódugnaði qé um að kenna, skerðist drjúgum sá lélegi helmingur stúdenta, sem svo oft var tal ag um í fyrra. Þá er það ánnað, sem oft kveður við um háskólastúd- enta, að þeir séu óheilbrigð- ir og öfgafullir í skoðunum. Þeir hafi lítinn menningar- áhuga. Helzta áhugaefnið séu ómerkilegar stúdentaráðs- kosningar, þar sem menn séu dregnir í dilka eins og sauð- ir á haustdegi. Því miður er þetta ekki með öllu tilhæfu- laust og skal nú athugað nán ar. í fyrsta lagi er það svo um öfgahneigðina, að stúdentar eru ekki einir um hana. Fjöldi ungra manna í öllum löndum á og hefir átt sitt öfgaskeið. Á meðan þeir eru að venja sig af pelanum, ef svo má segja, á meðan þeir eru að losa sig undan of sterkum áhrifum uppeldis og umhverfis, gerast þeir upp- reisnargjarnir og öfgafullir. Það er svo mikið átak að verða sjálfstæður maður, að margir geta það ekki nema með einhverjum ósköpum. En gott er að hugleiða það, að raunverulega er það ekki styrkleikavottur að þurfa að fara þannig að, heldur veik- leika. Ofsinn er aldrei styrk- leika vottur. Annars tekst árum og aldri oft furðanlega að koma mönnum í jafnvægi aftur. En í taili geta af þessu sprottið margvísleg manna- læti, bæði í háttum og skoð- unum. Sumir drekka sig fulla í víni, aðrir drekka frá sér ráð og vit í ofstækisfullum skoðunum, og þeir verst förnu jafnvel í hvort tveggja. En öfgahneigð á sér fleiri rætur en þann eðlilega upp- reisnarhug, sem býr í mörg- um ungum mönnum. Margir í stúdentahópi eru rótslitnir menn. Þeir eru komnir í nýtt umhverfi. Þeir hafa flutzt af þeim hólmi, sem forfeður þeirra hafa, oft um aldarað- ir, barizt á. Synir bænda, handverksmanna og erfiðis- manna gerast andlegrar iðju menn, með innisetum og lík- amlegu áreynsluleysi. Venjur v.mhverfis og heimilis, sem stundum hafa þróazt marga kynliðu, eiga ekki lengur við á nýjum vettvangi. Umskipt in eru snögg og erfiö. Sumir verða hálf-utanveltu, en stundum bætist jafnvel við óróleg samvizka af því að hafa hlaupið af hólmi for- íeðranna, svikið fortíðina. Þetta skapar óþægindi og vanmáttarkennd, öryggis- leysi. Þessum mönnum er þörf á nýrri fótfestu í tilver unni. Og er þá ekki fljótleg ast og auðveldast að fleygja sér í faðm nýrrar trúar, sem býður upp á ráð við flestum vanda? Það veitir þeim styrk sem vantar. Rótslitnir stúd entar leita gjarna þessa at hvarfs, og það getur stund- um verið ótrúlega skammt frá blámóðukenndri sveita rómantík yfir í stjórnmála lega ofsatrú. Þá er ótalið enn eitt, sem stuðlar að því, að stúdentar aðhyllist öðrum fremur ýms ar kenningar, oft óraunsæj- ar. Stúdentar eru oft, eins og vera ber, „intellectuellir“, er Framh. á 9. síðu. i

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.