Tíminn - 30.12.1954, Síða 1
Rltatjórl: Q ■m..
Þórarlnn ÞórarlnMoa A ■*»*. . [)
Útgefandi: 0
framsóknarflokkurlnn Vr*
Skriístcíur I Edaahúsl
Préttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðsluslm- 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda.
38. árgangur.
Reykjavík, fimmtudaginn 30. desember 1954.
295. blað.
Maður varð úti á Kleifaheiði
í póstferð á
I'’assnsÉ örendur nokkrai frá s fyrra-
kviild og síéUn pósiliestarnir yfir líkims
Frá fréttaritara Tímans á Patreksfirði í gær.
Það slys vildi til á þriðja dag jóla, að Þorsteinn Þorsteins
son, póstur, til heimilis á Patreksfirði, varð úti í póstferð
fiá Patreksfirði að Brjánslæk á Barðaströnd. Fannst hann
■iíðdegis í gær örendur á Kleifaheiði, efíir skamma leit, og
stóðu pósthestarnir yfir líkinu.
Endurnýjaður við-
skiptasaraningur
við Spán
Viðskiptasamningur ís-
lands og Spánar, sem falla
átti úr gildi um áramótin,
var með erindaskiptum í
Madrid hinn 28. þ. m., fram
lengdnr óbreyttur til árs-
loka 1955.
Pétur Benediktsson sendi-
herra annaðist framlenging-
una fyrir íslands hönd.
Frá utanríkisráðuneytinu.
ísL kolin misjöfn
að hitagifdi
Frá fréttaritara Tímans
á Staðarholti.
Hér um slóðir er nú mjög
víða brennt íslenzkum kolum
úr námunni á Skarðsströnd.
Þykja þau nokkuð misjöfn
að hitagildi, en sums staðar
líka þau mjög vel. Eru kynt-
ar með þeim miðstöövar og
eldavélar, og telja ýmsir þau
litlu verri en erlend kol til
brennslu. HS.
Þorsteinn heitinn lagði af
stað í póstferðina um kl. 9 að
morgni þann 27. des. eða
þriðja dag jóla frá Patreks-
firði með tvo hesta. Annar
þeirra var klyfjaður pósttösk
um.
Kom ekki að Brjánslæk.
Þegar Þorsteinn var ekki
kominn til bæja á Barða-
strönd í gærmorgun, var haf
in leit að honum, og fannst
hann eftir skamma leit örend
ur við svokallaða Hjallalenda
lág á Kleifaheiði nokkuð utan
við veginn.
Hestarnir kyrrir.
Hestarnir stóðu yfir líkinu.
Hafði Þorsteinn tekið ofan af
klyfjahestinum og búizt um
þarna. Færð var afar erfið á
heiðinni vegna fannfergis, en
veður hafði verið sæmilega
gott frá því að Þorsteinn
lagði af stað í ferðina.
Póstur í 25 ár.
Þorsteinn heitinn hafði ver
ið póstur á þessari leið frá
Patreksfirði að Brjánslæk um
25 ára skeið og var því þaul
kunnugur leiðinni. Hann var
og þaulvanur og ötull ferða-
maður. Þorsteinn var 51 árs
að aldri fæddur 29. maí 1903.
Lætur hann eftir sig konu
og eitt ungt barn.
Páll Sveinsson skip
aður sandgræðslu-
stjóri
Landbúnaðarráðherra lief
ir skipað Pál Sveinsson
sandgræðshístjóra ríkisins
frá þesswm áramótwm að
telja. Páll hefir sem kwnn
ugt er gegnt störfum sand
græðslustjóra síöan Runólf
ur Sveinsson, sandgræðsln
stjóri, bróðir hans, lézt.
Páll er nngnr og örtull
maðnr og vel menntaður til
þestea starfs, og má hins
bezta af honum vænta í
þessn mikilvæga starfi. —
Hann fór til Bandaríkj-
anna til náms í þessari
grein ræktunar og hefir
síðan hann kom heim unn
ið hjá sandgræðslu ríkis-
ins.
Frú María Markan (til hægri) í hlutverki prinsessunnar
Mimea í óperunni „VVenn ich König wár“.
„Ég hlakka til að syngja í
óperu á íslenzku leiksviði”
sagði María Markan í viðtall í gærdag —
Blaðamenn ræddu við frú Maríu Markan söngkonu og
Guölaug Rósinkranz, þjóðleikhússtjóra, í gær í tilefni af því,
að hún mun syngja hlutverk Santuzzu í Cavalleria Rusti-
cana á tveim sýningum eftir nýárið, 2. og 5. janúar.
Þjóðleikhússtjóri kvaðst
fagna því, að svo vel skyldi
Enn uppgripa ufsaveiö!
í Keflavíkurhöfn í gær
Stórf skijí, sem kum í Iiöfniiia. dreifði þó
torfummi og traiflaði veiði ibisi ííma — —
Frá fréttaritara Tímans í Keflavík.
Fimm, cða sex bátar voru við ufsaveiöar í Keflavíkur-
höfn í gær og öfluðu tveir þeirrá ágætlega og höfðu fengið
30—40 smálestir í einu kasti hvor bátur í gærkvöldi. Voru
það Ver og Ægir, sem einnig öfluðu mest í fyrradag.
Þriðji báturinn, Hilmar,
fékk einnig ágæta veiði, eða
yfir 30 lestir. Var hann við
veiðarnar við ljós í alla fyrri
nótt og þá eitt skipa. Mikil
ufsagegnd er enn í höfninni,
sem sést á því, að svo mikill
afli skuli fást í einu kasti.
í gær urðu óvæntar trufl-
ariir á ufsaveiðunum, þegar
stórt erlent fisktökuskip kom
inn á höfnina og lagðist þar
að bryggju til fisktöku. Við
hreyfingu þá, er komst á sjó
inn við skrúfusnúning þessa
skips, dreifðust ufsatorfurnar
um höfnina og bátarnir urðu
að hætta veiðum í bili, meðan
ufsinn var að þjappast aftur
saman í torfur.
Nokkuð af ufsanum er háf
að upp í veiðibátana, en einn
ig er ufsinn háfaður heint upp
úr nótinni við bryggjurnar,
þegar vel stendur á sjó.
200 bréf án heimilisfangs í
óskilum hjá bæjarpóstinum
Það gleymdist jafnvol nicð öllu að skrifa
ntaii á kréf til kuiiiiiiigjaiina í aiinríkjnu
Það hefir verið handagangur í öskjunni hjá bæjarpóst-
inum um jólin. Aldrei hafa fleiri fengið jólabréf en einmitt
nú. Og að sjálfsögðu dundu ýmsar hrellingar á póstmönn-
unum, sem eru allir að vilja gerðir til að leysa þann vanda,
sem að kann að steðja í sambandi við að kom bréfum til
skila. Þetta er þó ekki alltaf auðvelt, þar sem sendendur hafa
oft í frammi frámunalegt gáleysi í að merkja bréfin.
Blaðamaður frá Tímanum
hafði tal af þeim hjá bæjar
póstinum í gær. Þar var, eins
og venjulega töluvert af óskila
bréfum, sem engin leið var að
koma til móttakenda, þar sem
heimilisföng vantaði, og sums
staðar var ekki að sjá nema
fornöfn viðtakenda. Þetta
hefði nú ekki hrjáð póstmenn
ina svo mjög, ef sendendur
hefðu látið sín getið aftan á
umslögunum. En það er ekki
því að heilsa. Það er mjög
sjaldan, sem þess sjálfsagða
atriðis er gætt, að sendandi
riti nafn sitt og heimilisfang
aftan á umslag.
Röng götunúmer.
Þau bréf, sem bera ekkert
heimilisfang eru eitthvað um
tvö hundruð. En hin eru marg
falt fleiri, sem eru með skakkt
heimilisfang. Betra er þó að
veifa röngu tré en engu, því
póstmönnunum tekst merki-
lega oft að hafa upp á því
rétta. Sem dæmi um aðgæzlu
leysið, er eitt bréf, sem ligg-
ur hiá þeim í póstinum. Á því
er ekkert heimilisfang, ekk-
ert nafn, en innan í því er
fagurt jólakort með Krists-
mynd og sendandinn er Svala.
Þetta eina nafn er allt og
sumt, er gefur til kynna upp
haf og endi bréfsins. Það er
annars margt einkennilegt,
(Framhald á 8. síðu.)
J ólatrésf agnaður
Framsóknarfé-
Iaganna
Munið eftir jólatrésfagn-
aði Framsóknarfélaganna
þriðjudaginn 4. janúar n. k.
kl. 2,30. Fólk er beðið að
vitja aðgöngumiða í dag á
skrifstofu Framsóknarfélag-
anna í Edduhúsinu, sími
55C4.
bera í veiði, að María Markan
er hér stödd þegar óperusýn
ingar þessar fara fram, og
leikhúsgestum gæfist kostur
á að heyra hana syngja óperu
hlutverk.
Frú María Markan kvaðst
ekki síður fagna því og
hlakka til að syngja í óperu á
íslenzku leiksviði og það á ís
landi. Hún kvaðst hafa
fylgzt með æfingum og sýn-
ingum óperanna hér og sér
væri ánægja að þvi, hve vel
hefði til tekizt, sviðssetning
væri ágæt, hljómsveitin prýði
leg og þar kæmu fram söngv
arar á heimsmælikvarða.
María Markan er enginn ný
liði á óperusviði. Hún hefir
sungið fjölmörg óperuhlut-
verk, einkum í Þýzkalandi, en
einnig í Danmörku og Eng-
landi. Oftast kvaðst hun
mundi hafa sungið hlutverk
greifynjunnar í Brúðkaupi
Fígarós.
Snjólétt en hrak-
viðrasamt, það sera
af er vetri ,
Frá fréttaritara Tímans
á Breiðdalsvík.
Veturinn er ákaflega snjó-
léttur á Austfjörðum það
sem af er og eru þeir dagar
teljandi er snjór hefir sést á
láglendi. Þessa dagana er að
eins föl á Breiðdalsvík, en vel
akfært um vegi, aðra en fjall
vegi. Snjór er hins vegar
töluverður í fjöllum. Er þessi
vetur það sem af er með allra
snjóléttustu vetrum eystra og
fé létt á fóðrum, ef ekki
hefði verið mikil hrakviðri í
haust og það sem af er vetri.