Tíminn - 05.01.1955, Qupperneq 2
TÍMINN, miffvikudaginn 5. janúar 1955.
2. blaff,
í
Hver einstök hreyfing er afstæð
og háð staðbundinni viðmiðun
Flusvcl sýnist óhjákvæmilega á hreyfingu miðaS við jörðina, en kyrrstæð
miðað við sjálfa sig.
Svo segir í kennslubókum, að
jörðin sé hnöttisr og hringsóli
kringum sólina. Slíkt tilheyrir al-
mennri vitneskju og hefir gert um
langt skeið. Af jöfnu láglendi sýn-
ist mynd jarðarinnar flöt, en úr
háu lofti sjáum vér bungu hafs
og Iands, sem eykst að sama skapi
og við fjarlægjumst jörðina.
Ásýnd hlutar er því bundin stöðu
athugandans og svo er um hverja
hreyfingu.
Hugmyndir fyrri kynslóða um
hreyfingu sólarinnar umhveríis jörð
ina eru sprottnar af stöðu þess
athuganda, sem skynjar ekki hreyf
ingu þess hnattar, sem hann er
Bjálfur bundinn við. Sams konar
athugun gerð frá mánanum, fylgi-
/ þannig búningi ætla þeir að ferð-
ast til mánans. Er þangað kæmi,
fyndist þeim máninn kyrrstæður
en jörðin hnita hringa.
hnetti jarðarinnar, mundi því bera
hliðstæðan árangur. Máninn myndi
virðast kyrrstæður, en jörðin hmta
hringa.
„Sól, stattu kyrr“.
Á björtu vetrarkveldi sjáum við
stjörnurnar færast yfir himinhvolf
ið, gagnstætt snúningi jarðarinnar;
þá virðist okkur jörðin standa kyrr,
en stjörnurnar hreyfast. Slík athug-
un á hreyfingu jarðarinnar, gerð
írá hverri þessari stjörnu — ef
möguleg væri — myndi því bera
heim við hugmyndir okkar um
hreyfingar stjarnanna séð frá jörð-
inni. Hver hnöttur, sem athugand-
inn væri bundinn við, virtist kyrr-
stæður, en hreyfing jarðarinnar
yrði þá ljós. Má því segja, að jörðin
standi kyrr, en stjörnurnar hreyfist
og öfugt, og er hvort tveggja jafn
rétt, þar eð hreyfingin er al: ild.
„Spir.al“-hreyfing jarðar.
í hverju sólhverfi er sólin föst
stjarna miðað við þær reikistjörnur
(plánetur), sem tilheyra kerfinu.
Framvinda jarðarinnar, séð frá sól
inni, er sporöskjulöguð hringferö
umhverfis. En nú heldur sólin ekki
kyrru fyrir frekar en aðrir hnettir á
vetrarbrautinni, þótt hún breyti
ekki afstöðu til fylgihnatta sinna
eður grannsóla. Hún er á hraöferð
um geiminn sem hluti af því mikla
stjarnkerfi, sem hún tilheyrir. Þett.a
þýðir, að athugun gerð utan sól-
kerfisins, mundi leiða í ljós, að
hreyfingar jarðarinnar sem annarra
reikistjarna eru ekki hringlaga, held
ur líkjast útdreginni gormfjöður
(spiral). Ef um raunverulega hring
ferð væri að ræða, mundi jörðin
færast aftur að fyrra stað i geimn-
um, en slíkt brýtur í bága við áfram
hald sólar. Svipað má segja um
hreyfing mánans. Ef þessi förunaut
ur okkar væri rannsakaður frá sól-
inni, kæmi í Ijós, að hann hagar
sér gagnvart jörðinni allt eins og
jörðin við sólina, séð utan sólkerfis
ins, nema hvað innbyrðis snúningur
inn er hægari.
Hjólið.
Eftirfarandi dæmi gæti orðið til
skýringar, þótt ýmsu sé annan veg
háttað. — Hjólreiðamaður fer eftir
vegi og hjólhringirnir velta yfir
brautina. Náið á hjólinu leikur hér
hlutverk jarðarinnar, en lokinn í
hringnum mánans. Miðað við náið
er hreyfing lokans hringur, en mið-
að við jörðina (brautina) er hún
sem opnir sveigar, þar sem iokinn
nálgast eða fjarlægist jörðina með
breyttum hraða, þótt engin hraða-
breyting eigi sér stað samanborið
við náið.
--
frá vinstri til hægri með sama hraóa
og sýnist þá óhjákvæmilega á hreyf
ingu miðað við jörðina, virðist kyrr
stæð miðað við sjálfa sig og hrey.fist
þá jörðin. Hvorttveggja er jafn rétt,
en ljóst er, að við lifum í marg-
slungnum heimi, þar sem hver hreyf
ing er afstæð, háð staðbundinni við-
miðun og sannleikurinn hefir tvær
hliðar.
B. Ó.
Réttindi svertingja
í Bandaríkjunum
stóraukin
Ne-yv York, 4. jan. — Félags-
skapur í Bandaríkjunum,
sem vinnur að auknum rétt-
arbótum til handa svertingj-
um og öðrum, sem standa
höllum fæti um mannrétt-
indi þar í landi, segir í árs-
skýrslu sinni, að stórir sigrar
hafi unnizt á s. 1. ári. Er þar
fyrst talinn úrskurður hæsta
réttar, að aðskilnaður svartra
og hvítra í skólum var lýstur
ólögmætur og bannaður. Enn
fremur er fagnað ýmsum
breytingum til aukins jafn-
réttis á sviði menntunar,
húsakynna, skemmtana o. s.
frv.
! i
I Notið Chemia Ultra- j
| Bólarollu og aportkrem. — i
i Ultrasólarolfa sundurgrelulr j
| sólarljóslð þannlg, a8 hún eyk I
| ur áhrlf ultra-fjólubláu gelal- \
\ anna, en bindur rauBu geUl- |
E ana (hltageislana) og gerlr j
| þvf húSlna eðUIegfi brúna r« j
i hlndrar a« hún breniú. - |
\ Fæat í næstu bú>
Málaskóli Halldórs
Þorsteinssonar
Ný fjögurra mánaða nám-
skeið í byrjenda- og fram-
haldsflokkum hefjast 7. jan.
í Kennaraskólanum.
Enda þót't lítiö sé lagt upp
úr tímafrekum þýðingum og
einhliða málfræðikennslu í
skóla Halldór Þorsteinssonar,
eru meginreglur málfræðinn
ar engu að síður kenndar
með fjölbreytilegum stíl- og
talæfingum. Reynslan hefir
þegar sýnt, að þeir nemend-
ur, sem hefja málanám með
miklum talæfingum losna
furðu fljótt við þá ófram-
færni og talfeimni, sem háir
sumum íslendingum, jafnvel
langskólagengnum mönnum
í skiptum sínum við útlend-
inga.
í Málaskóla Halldórs Þor-
steinssonar er reynt að liðka
tungutak nemenda og gera
orðaforða þeirra eins tiltæk-
an og lífrænan og unnt er,
þvi að mörg þau erlendu orð
og orðasambönd, sem nemend
ur úr sumum eldri skólunum
skilja á bók eða geta notað
í stíl, kunna þeif ekki að
nota þegar á reynir í daglegu
tali. Úr þessu talæfingaleysi
er reynt að bæta í skóla Hall
dórs Þorsteinssonar og það er
enginn vafi aö hann hefir
mikilvægu hlutverki að gegna
á sínu sviði.
Bandaríkjastjórn
takraarkar ferðir
rússneskra borgara
New York, 4. jan. --- Banda-
ríkjastjórn gaf út í gær til-
kynningu þar sem segir, að
borgurum Ráðstjórnarríkj-
anna, sem dvelja í Banda-
ríkjunum, sé bönnuð umferð
án sérstaks leyfis, á tiltekn-
um svæðum í Bandaríkjun-
um. Nema þaú samtals ein-
um þriðja hluta af stærð
land.sins alls. Reglur þessar
eru hliðstæðar þeim, sem
Rússar hafa sett um ferðir
bandarískra og annarra er-
lendra borgara, sem dveljast
í Rússlandi. Reglur þessar
taka ekki til rússneskra borg
ara, sem vinna hjá S. Þ. í New
York eða annars staðar í
Bandaríkjunum.
m
m
innin^arápj
SJ.RS.
mpppppppmmmæm
þCRARmKjóitsscu
LOGGILTUR SJtJALAÞÍOANDI
• OG DÖMTOLiUJR I ENSK.U °
KIRKJ’JHVÐLI - simi 81655
Búðardiskur
Vandaður eikar búðardiskur með mörgum skúff-
i; um til sölu með tækifærisverði á Laugavegi 47,
vegna flutnings. — Upplýsingar á staðnum.
«$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$5
I Höfum til sölu |
DODGE WEAPOX bifroiðar I
| með eða án yfirbygginga, kerrur fyrir DODGE WEAPON |
| og jeppa bifreiðir, vatnstanka, er taka 870 lítra og «
| eru úr ryðfríu efni og vandaða sleða, er bera allt að |
| tveim tonnum.
I{ Sala setnliðseigna ríkisiits 1'
| sími 4944 milli kl. 10—12 f. h. | -
SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSÍ í
Árnað heilla
Hjónaband.
Fimmtudaginn 30. des. voru gefin
saman í hjónaband í Ólafsfirði af
séra Ingólfi Þorvaldssyni ungfrú
Halldóra Guðrún Gisladóttir og
Hannes Sigurðsson, bílstjóri. Heim
ili ungu hjónanna verður að Ólafs-
vegi 5.
Föstudaginn 31. des. voru gefin
saman í hjónaband af sóknarprest-
inum í Ólafsfirði ungfrú Halldóra
Maggý Hartmannsdóttir og Gunn-
laugur Sigursveinsson matreiðslu-
maður. Heimili þeirra verður fyrst
nrn sinn að Aðalgötu 5, Ólafsfirði.
Föstudaginn 31. des. voru gefin
saman í hjónaband af sóknarprest-
inum í Ólafsfirði ungfrú Brynhildur
Einarsdóttir og Konráð Antonsson.
sjómaður. Heimili þeirra verður að
Ólafsvegi 24, Ólafsfirði.
Trúlofun.
Á aðfangadag opinberuðu trúlof-
wn sína ungfrú Aðalheiður Edilons-
dóttir, Ólafsvík, og Sveinn Krist-
jánsson, kennari, Laugateig 14.
Hreyfin; in.
Engin hréyfing verður skynjuð af
einum hlut einum saman. Til þess
að skynja hana, þarf tvo hluti, en
eigi að ganga úr skugga um, hvor
hinna tveggja hluta hafi hreyfzt, er
nauðsyn hins þriðja óhjákvæmileg.
Tökum til dæmis tvo athugendur,
er staddir væru úti í geimnum, þar
sem hvorki sæi til jarðar né annarra
leiðarmerkja. Tæki nú bilið milli
þessara athugenda að styttast eða
lengjast, væru þeir gersamlega
sviptir möguleikum til að komast
að raun um, hvor þeirra hefði
hreyfzt. Með tilkomu þriðja athug-
andans væri málið auðleyst og gæti
þá hvor um sig miðað hverja fjar-
lægð milli sin og hins aðkomna
við stöðu hins annars.
Afstæð hreyfing.
Hver steinn og fastur hlutur á
yfirborði jarðar er kyrr og hreyíist
hvergi, miðað við jörðina sjálfa.
Samt geysist jörðin áfram og hinir
föstu hlutir fylgja henni með snún
ingshraða, sem nemur við yfirborð
ið um 160 þús. km. á 24 stundúm.
Flugvél, sem fer í kringum jörðina
'MiMiimiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiimiiiiiiiiiiiimiiiiiMiiimiiiiii
ÚÉvegsmeim
(Framh. af 1. síðu).
Útvegsmenn á Akranesi
gerðu hliðstæða samþykkt á
fundi, er þeir héldu á sunnu-
dag, eftir að þeim hafði bor-
izt skeyti frá Landssam-
band ísl. útvegsmanna. Út-
vegsmenn í Keflavik hafa
einnig ákveðið að róa ekki.
mnilegt þökklæti til allra sem auðsýndw mér samúð f
og vinsemd í tilefni andláts og jarðarfarar konn minnar
DÓRÓÞEU GÍSLADÓTTUR. 't
Ennfremur þakka ég öllum nær og fjær, er heiðntðu
minningu hennar með margs Itonar minningargjöfum.
Gnð blessi ykkur öll.
Þorleifur Bergsson.
I
SSSSSSSSGi'WKXSSGSSSSS**
BILASALAN
KLAPPARSTÍG 37 árnar öllum viðskiptavinum
sínum um land allt heillaríks komandi árs og þakkar
viðskiptin á því Iiðna. Jafnframt leyfir hún sér að
vekja athygli þeirra, sem ætla að kaupa bíla á hinu
nýbyrjaða ári, á því, að hún hefir ávallt til sölu bif-
reiðar af flestum gerðum, árg. frá 1933—1954. — Sér-
staka athygli vill hún vekja á því, að hún hefir oft
bifreiðar með stöðvarplássum.
sssssssssssssssssggsgsggsssssssssssssssgieisgsssgsssssssssssssssassssss