Tíminn - 21.01.1955, Qupperneq 2
2.
TÍMINN, föstudaginn 21. janúar 1955.
16. blaði
Sálgreinlpróf, er kemur fjölkvænis-
mönnum til að biðja um strokleður
Kunnur sálfræðingur frá New York heimsótti nýlega skóla
f Texas og bað fjögur hundruð nemendur að aðstoða sig við
nýja aðferð á prófun persónugerðar. Hann rétti hverjum
nemanda síðu af hvítum, auðum pappír og mjúkan blýant
og bað þá að teikna ávaxtatré. Hann bað þess þeir teiknuðu
aðeins tréð og hugsuðu ekki um að teíkna það rétt, því að
hetta væri ekki hæfnispróf. Þegar nemendurnir höfðu lokið
við aö gera teikningarnar, fór sálfræðingurinn aftur til New
York.
Pjónim vikum síðar kom hann
til baka og hafði meðferðis fjögur
hundruð persónulýsingar, sem hann
hafði ritað niður og byggt á teikn-
ingu hvers og eins. Kennaraliðið
engu siður en nemendurnir var
undrandi yfir hinni nákvæmu sál-
greiningu, þar sem skýrt var frá and
Jegum styrk, skapgerð og alhliða
viðhorfi til lífsins hjá þessum .,til-
raunadýrum".
Gegnumlýsing sálarinnar.
Trjáprófið er það síðasta, sem
komið hefir fram hvað snertir ný-
tízku sálgreiningu og ef til vill pað
eftirtektarverðasta. Það hefir þegar
verið notað af mörgum, en fyrstur
með það á sjónarsviðið var sviss-
neskur sálfræðingur, Emil Juckev,
en kerfið var síðar fullkomnað af
starfsbróður hans, dr. Koch í
Lucern. Eftir að hafa rannsakað
mörg þúsund teikningar af trjám,
komst dr. Kock að þeirri niðurstöðu
að hver teikning túlkaði vissar
eigindir listamannsins. Mátti með
nokkrum sanni líkja þessum teikn-
ingum við gegnumlýsingu, ekki þá
venjulegu, þegar leitað er að mein-
semdum innvortis, heldur gegnum-
íýsingu sálarinnar.
Það, sem kemur fram.
Stundum liggur í augum uppi,
hvað teiknarinn er að fara sér
að ómeðvituðu. Dr. Koch segir þá
sögu af konu einni, sem teiknaði
tré og körfu undir því, að í körf-
•jnni hafi verið fimm ávextir. Svo
vildi til að konan átti fimm börn.
Pyrir skömmu teiknaði kona í París
tré með þremur eplum í greinunum
og fjórða eplið öllu stærst, sem
var að falla til jarðar. Við athugun
kom í ljós, að konan átti þrjár dæt
ur á lífi, en frumburður hennar,
CItvarpið
IDtvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
110.30 Davíð Stefánsson skáld frá
Fagraskógi sextugur; a) Krist
ján Eldjárn þjóðminjavörður
flytur erindi. b) Skáldið les
úr Ijóðum sínum. c) Tónleik-
ar.
ril,30 Útvarpssagan.
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
:22,10 Hæstaréttarmál.
,22,25 Dans- og dægurlög (plötur).
:23,10 Dagskrárlok.
(jtvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
12.45 Óskalög sjúklinga.
13.45 Heimilisþáttur.
Ii8,00 Útvarpssaga barnanna.
118.30 Tómstundaþáttur.
120.30 Þorravaka: Samfelld dagskrá
um mat og drykk í íslenzkum
bókmenntum. — Björn Þor-
steinsson og Andrés Björns-
son búa til flutnings.
122,00 Fréttir og veðurfregnir.
122,10 Danslög, þ. á m. leikur dans-
hljómsveit Bjarna Böðvars-
sonar.
02,00 Dagskrárlok.
Árnað helila
'.rrúlofun.
Um s. 1. áramót opinberuðu trú-
líofun sína ungfrú Jóna Ólafsdóttir
íormanns Ólafssonar í Keflavik og
ÍSigurður Erlendsson hreppstjjra
’.Sjörnssonar á Vatnsleysu í Biskups
tungum.
drengur, hafði látizt fyrir skömmu
af slysförum. Stundum eru þessar
prófanir ekki svona auðveldar og
þá eru það aðeins sérfræðingarnir,
sem geta lesið úr teikningunum. En
það leikur enginn vafi á því, að
bölsýnismenn teikna öðruvísi tré en
bjartsýnismenn. Bölsýnismenn
hneigjast til að teikna þau með
drjúpandi krónu, en bjartsýnismenn
irnir stefna greinunum upp á við.
Fólk í sjúkrahúsum, sem finnst það
vera einmana og gleymt, hefir til-
hneigingu til að teikna trén stand-
andi á eyium eða hæðum. Áhuga-
samt fólk teiknar öðruvísi en sljótt
fólk, og hamingjusamir öðruvisi en
óhamingjusamir. Dr. Koch hefir nú
komið upp korti, sem gerir sálfræð-
ingum mögulegt að ráða í teikning-
ar fólks. Margur vísindamaður, sem
var í vafa, hafði ekki lengur á móti
trjáprófinu eftir að það hafði gert
þeim mögulegt að skilgreina and-
lega veilu, áður en þeir höfðu litið
sjúklinginn augum.
Auðþekkjanlegar teikningar.
Við trjápróf í New York var
teikningum eftir sjö manns, sem
þjáðust af hryggð og eymd, bland-
að saman við hundruð teikninga
eftir fólk, sem var heilbrigt. Eftir
töflu dr. Koch var auðvelt að tína
úr þær sjö teikningar, sem höfðu
verið látnar í safnið, og jafnframt
fundust þrjár aðrar teikningar, sem
bentu til geðveiki meðal þeirra, sem
annars höfðu verið taldir heilbrigð-
ir. Ein saga sannar bezt, hve sál-
fræðingar geta farið nærri um sál
arástand manna, ef fylgt er þessu
trjáprófi. Rúmlega fertugur verk-
fræðingur í New York, öruggur í
fasi og gáfaður í bezta lági, leitaði
til læknis síns vegna minniháttar
lasleika. Læknirinn hafði fengið
mikinn áhuga fyrir trjáprófinu og
bað sjúkling sinn að teikna tré
svona hinsegin. Trésmynd verk-
fræðingsins vakti undrun læknis-
ins. Hún var eins og gerð af barni
undir skólaaldri. Grunnur bolsins
var réttur, bolurinn óeðlilega lang-
ur og krónan lítil. Tréð var í raun
inni eins og eftir fimm til sex ára
barn og benti það til vanþroska og
algerrar misheppnunar. Læknirinn
reyndi að láta manninn taka þátt í
öðrum prófum, en hann var nú
var um sig og brást eðlilega við
þeim. Það var aðeins teikningin af
trénu, sem gaf til kynna í höndfar-
andi taugaáfall, er leiddi til vistar
á geðveikrahæli tólf mánuðum síð-
ar.
Ekki hægt að koma við svikum.
Jafnvel teikningar þeirra, sem eru
heyrnarlausir og mállausir, hafa yf-
ir sér annan blæ en þeirra, sem lifa
við venjuleg skilyrði. Einn kostur
við þessa trjáprófun er sá, fyrir
utan hvað hún er einföld, að þeir,
sem eru fyilstir grunsemda, taka
þátt í henni viljuglega. Sjúklingar
í géðveikrahælum, sem ekki hafa
játazt undir neina aðra prófun,
eru fúsir til að teikna tré og gefa
þannig rannsökuðinum mikilsverð-
ar upplýsingar, sem annars væru
ófáanlegar. Það er ekki hægt að
koma við svikum í þessu prófi. Mjög
gáfað fólk, sem annars gæti séð í
gegnum öll venjuleg próf sálfræði-
legs eðlis, hefir látið taka sig að
óvörum á þessu prófi.
Tilraunir með dáleiðslu.
Dr. Koch heíir leitað margra ann
anna fyrir því að prófið skilaöi rétt
um svörum. Hefir hann m. a. beitt
Dr. Charles Koch
reiknaði ekki með eplum
dáleiðslu og látið fólk í dásvefni
að fenginni skipun um að vera reitt
eða á barnsaldri eða þjófur, gera
teikningar, sem bentu ótvírætt til
hugarfarsins í hverju þessara til-
fella. Þykir sannað, að trjáprófið
sýni svo ekki verði um villzt, hvort
tuddamennið er bieyða í hjarta
sínu eöa eitthvað annað verra eða
betra, og það sýnir styrk eða veik-
leika skapgerðarinnar.
Fjölkvænismenn báðu um
strokleður.
Trjáprófin eru talin hafa mikla
möguleika, sem enn hafa ekki verið
að fullu kannaðir. Eftirtektarverðar
rannsóknir hafa verið gerðar með
þeim á afbrotamönnum. Trjáteikn-
ingar þess hóps höfðu meðal ann-
ars líkan blæ yfir sér. Eftirtekt
vakti og einnig það próf, sem var
gert á föngum, er höfðu gerzt sekir
um fjölkvæni. Margir þeirra báðu
um strokleður meðan prófið stóð
yfir, til þess að þeir gætu strokiö
út sumt af því, sem þeir höfðu teikn
að. Þetta er táknrænt um það fólk,
sem vill hylja eitthvað, sem sækir
á úr fortíðinni. Að sjálfsögðu eru
þessi próf ekki sérlega ætluð þeim,
sem tilheyra afbrotaflokknum. Þau
geta orðið til mikillar skemmtunar
og verið saklaus leikur. Þeir, sem
eru landslagsmálarar og garðyrkju
menn sýna ekkert í þessum próf-
um, því að augu þeirra eru augu
atvinnumannsins í þessu tilfe’li.
Eitt hefir vakið undrun alira, sem
við þessi próf hafa fengizt, en það
er, að fólk lítur ekki við að teikna
aðra ávexti en epli á trjágreinarnar
(Þetta væri nú eitthvað fyrir hana
evu).
Framsóknarvistiii
(Framhald af 1. slðu).
gat hann þess, að svo
skemmtilega vildi til að 19.
janúar 1930 hefði Hótel Borg
hafið starfrækslu sína. Ætti
hún því 25 ára starfsafmæli
í dag. Væri sérstök ánægja
að samgleðjast þessu aldar-
fjórðungsafmæli Borgarinn-
ar. Laust þá upp fögnuði á-
heyrenda, er bar vott um
hve miklum vinsældum Borg
in á að fagna í hugum þeirra.
Öll var samkoman ánægju
leg. Spurðu margir eftir, hve
nær næsta samkoma væri
ráðgerð og vonuðu að hún
yrði sem fyrst.
Vegna þessa og ýmsra
manna úti á landi, sem oft
láta í ljós að þá langi til að
geta verið á Framsóknarvist
Framsóknarfélaganna, þegar
þeir eru á ferð í Reykjavík,
þykir rétt að geta þess að ráð
gert er að nðesta Framsóknar
vist verði að Hótel Borg mið-
vikudaginn 0. febrúar.
ÚTSALA
að Grettisgötu 26 stendur yfir aðeins í nokkra daga.
Nýjar I. flokks vörur seldar við mjög lágu verði.
tTjSALAN,
Grettisgötu 26.
■
FUILHÁ — OFAHÁtfHÐ
ijiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiniiiiiiiiuiuiiiuiiFuir#.
| Ráðsraaður I
I Ekkja austan fjalls óskar i
I eftir ráövöndum og ábyggi i
| legum manni til að taka að i
! sér lítið bú að vori kom- i
Í andi. Aldur 30—45 ára. i
1 Áskilin þekking á öllu, er }
\ að búskap lýtur. Þeir, sem |
| hafa hug á þessu, leggi til- }
i boð inn til blaðsins fyrir i
Í 20. febrúar n. k. merkt: \
I „Ráðsmaðuú'.
MIIIIIIIIIIIIIHIIMIIIII1111111111111111IIIIIIIIII lllltllllllllflllll
lllllllll■llllilllllll•M■■llllMlllllllllllllmtttltlllll••••'’||||||
} tTSALA
I á vefuaSSiirvöa’Misi {
Húsgagnaáklæði
Blússuefni
Plíserwð efni
Nælonblúndur
Nælon—velour —
1 Jersey
I FELDUR H.F.
Langavegi 116.
5 t
!iliiiiiiiiiiiiiun«i''inniiaiiitniniiiiiiiniiDii^iiiiMun*
UIIIMIIIIIIMIIIIMIIMIIMIIIIIMMIIIIIIMIMIMIIMIIIIMIIIMMII
| Jörð til sölu |
| í næstu fardögum er til |
Í sölu góð, vel hýst jörð í |
f Dýrafirði. Jörðinni geta i
I fylgt dráttarvél, verkfæri í
Í og bústofn ef óskað er. — |
Í Upplýsingar gefur Hjörleif i
Í ur Guðmundsson, Barma- \
I hlíð 14, Reykjavík, sími j
I 7931. i
•iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiimiiiiii'iiiiiiMiiiii*
tJTSALA
I á kveutöskiim }
| FELDUR H.F. |
1 Austnrstræti 10. i
lllllllllllllllIIIIIIIIIIIUIIIMMIIIillllllHllimiUIIIIIIIIIIIIII
IIIIIIIIIIIUUr^UMUIIIIIIIIIIIH^MUUIIIUIIIlllllllllllllI
z =
ÓDYRT!
! BS IJTASALA! I
| Kjjólnefni
Í mynstruð og einlit.
I Rifs, margir litir.
j Galla-satín, margir litir. j
i Nælon-poplin
Í Regnkápu-rifs
i Jersey í peyswr.
| Gabardine
i Taftfóður
} Nwlan pluss
| tJUar pluss
} Nælon loðefni
Í í barnafatnað,
! teppi o. fl.
SATÍN
Í Stíft nælon tjwll í
i millipils. |
| FELDUR H.F. |
Langavegi 116.
• IIIIIIIIIMIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIlíl
IMIIIIIIIIIMIIIIII1IIIMIMIIIMIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIU
f NÝTT FRÁ
i útsölunni
Í Drengjasportblússur
Í 3 stærðir aðeins kr. 38,00
i Sportblússur á fullorðna j
Í áður kr. 115,00 og 135,00, j
= nú kr. 90,00 og 68,00.
i Grænt moleskinn á kr. 25, j
j Gluggatjaldaefni,
i grænt og bleikt á aðeins f
Í kr. 39.00.
[ H. Toft |
Í Skólavörðustíg 8, sími 1035 f
= 3
í íiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiMiimiiiuiimiiiimiiiiiiim