Tíminn - 27.01.1955, Qupperneq 1

Tíminn - 27.01.1955, Qupperneq 1
 Ritstjórl: Þórarinn Þórarinssoa Ótgeíandi: Framsóknarflokkqrlnn Skrifstofur i Edduhúsi Préttasímar: 81302 og 81303 Afgreiðslusími 2323 Auglýsingasími 81300 Prentsmiðjan Edda 39. árgangur. Reykjavík, fimmtudaginn 27. janúar 1955. 21. blaff. Togarinn Egill rauði strandaði í blindhríð og brimi við Grænuhlíð, björgun stóð yfir í nótt Björgunarsveit frá ísafirðð á strandstað, 4 togarar útðfyrlr Frá Guðmundi Sveinssyni, fréttaritara Tímans á ísafirði, í gærkveldi. Þau tíðindi bárust hingað á sjöunda tímanum í kvöld að logarinn Egill rauði væri strandaður undir Grænuhlíð, en þar hafa allmargir togarar legið í óveðrinu. Blindhríð var og brim mikið, en skipið strandaði við stórgrýtta fjöru. Skipið liggur flatt fvrir briminu og snýr stjórnborðshlið fram. Var skipið tekið rnjög að brotna. Nærstaddir togar- ar komu á vettvang, björgunarsveit lagði af stað frá fsa- firði. Um kl. tíu birti og veður lægði og vovu vonir um björg un skipshafnarinnar þá taldar betri. Ekki voru þó taldar líkur til að fregnir bærust um, hvernig björgun tækist, fyrr en síðar í nótt. Egill rauði var nýfarinn á saltfiskveiðar og munu því vera á honum 38 menn. Um helmingur þeirra er Færeyingar, nýráðnir á skipið. Það var um klukkan 18,30 í kvöld, sem togaranum Austfirðingi, sem lá undir Grænuhlíð, barst neyðar- skeyti frá Agli rauða. Var þar sagt, að skipið hefði strandað undan svonefndri Teistu og væri að liðast sund ur, og þyrfti hví hjálp að berast strax. Frh. á 2. s. Síðustn fréttir: Mennirnir eru á bátadekkinu, á brúnni og í afturreíðanum Um miðnætti í nótt sím- aði fréttaritari Tímans á ísafirði eftirfarandi: Þaö sem er nýtt af strandinu að frétta er það, að bátarnir komu aftur til Austfiröings kl. 10,50. Sögðu þeir, að ó- gerlegt væri að bjarga mönn um úr Agli frá sjó. Þeir sögðu: Aftíírhluti og brú Egils rauða standa upp úr (Framhald á 2. slðu). r \. i C V ■\ \ ) o ■ N i \ X - — —- Myndin sýnir, hvar togarinn Egill rauði strandaði undir Grænuhlíð. Krossinn innarlega við hlíðina sýnir staðinn. Þar heitir Teistan. Er þar grýtt fjara, en rétt innan við er vik með sandfjöru, en þar innan við Sléttunes. Innan við það fór björgunarsveitin í land og gekk á strandstaðinn um mílu vcgar. ■ ■ Togarinn Egill rauði. Hann var gerður út frá Neskaupstað, smíðaður 1947, 656 rúmlestir að stærð cg talinn hið bezta sjóskip. Talið víst að tveir brezkir tog- arar hafi farizt út af Horni Óvíst um mannbjörg, en nokkrir enskir togarar í niimunda, fárviðri og stórsjór í fárviðri7iu, sem geisaði síðdegis í gær norðvestur af Horni og veðurstofan telur helzt nálgast veðrið, þegar norskii selveiðiskipin fórust um árzð, er talið víst, að tveir brezkir togarar hafi farizt, og var annar þeirra stærsti og fullkomnasti togari Breta, mjög nýlegur. Það var laust fyrir kl. 2 í gær, sem brezki togarinn Conan Doyle sendi skeyti til loftskeytastöðvarinar á ísa- firði og kvaðst hafa heyrt neyðarskeyti frá togaranum Lorella frá Grimsby. Heyrðist ekki framar. Hafði Lorella farið um og lá á hliðinni og gekk sjórinn yfir hann, og var sagt að skipið væri að sökkva. Þetta mun hafa verið 30—40 mílur norðvestur af Horni. Engin íslenzk skip voru í námunda en nokkrir brezkir togarar eigi langt frá. Fóru fjórzr af stað að leita Lorellu og voru (Pramua.ld á 2. síðu.) Síðnstn fréttir Fréttaritari Tímans á ísa firði símaði um miðnætti í gærkveldi að hann hefði heyrt til enska togarans Mar cellus, sem er systurskip Lor ella, sem fyrr fórst. Var skip ið þá statt 50 mílur norður af Straumnesi að leita. Sajgði það 10 vindstig og haugasjó. Henry Hálfdánarson, skrif stofustjóri Slysavarnafélags ins sagði í gærkveldi, að þrjár flugvélar fráf Kefla- víkurflugvelli mundu leggja af stað kl. 8,30 í moorgun til leitar á þessu svæði. Fregnir af strandinu klukkan 6 í morgun: Engin björgun í nótt - ólendandi í Sléttu- bót—björgunarsveitin í land á Hesteyri Guðmundur Sveins'on, fréttaritari Tímans á ísa- fírði, simaði klukkan sex í morgun, að björgun skips- hafnarinnar úr Agli rauða hefði ekki tekizt þá. Björg- unarsveitin frá ísafirði á- samt mönnum af AustfírÖ- ingi fór á vélbátnum Heið- rúnu inn á Sléttubót eins og ráðgert var. Með fór varðskipið Ægir. Gátu ekki lent. Þegar þangað kom var þar austan stormur og var ólendandi í bóti'nni. Urðu menn frá að hverfa þar og yar þá tekið það ráð að fara inn á Hesteyri. Þar var björgunarsveitin sett á land með tæki sín og einn- ig talstöð. Frá Hesteyri er miklu lengri leið að fara á strand staðinn en úr Sléttubót og yfir 250 metra háan og ill- gengan fjallshrygg að fara. Var talið, að björgunarsveit in mundi verða að minnsta kostí þrjár klukkustundir að ganga þá leið og mundí því ekki koma á strandstað inn fyrr en klukkan hálf- átta í fyrsta lagi. Ægir hélt síðan aftur út (Framha’d á 2. siðu.)

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.