Tíminn - 01.03.1955, Side 3
49. blaö.
TÍMINN, þríðjudaginn 1. marz 1955.
3
Féfag íslenzkra símamanna
minnist 40 ára afmælis síns
Félag Isl. símamanna átti
40 ára afmæli síöastl. sunnu-
dag. Það mun vera fyrsta
stéttarfélagið, sem opinberir
starfsmenn hafa stofnað hér
á landi, og hefir líka verið óðr
um slíkum félögum til fyrir-
myndar um margt. í félaginu
eru nú hátt á fimmta hundr-
að félagsmenn eða allir þeir,
sem hafa símastörf að aðalat-
vinnu. Stofnendur félagsins
voru innan við tuttugu.
Félagið var upphaflega
stofnað vegna launadeilu við
ríkisstjórnina. Út af því máli
voru sett lögin um bann við
verkfalli opintaerra starfs-
manna. Félaginu hefir tekizt
áð koma fram fjölmörgum
hagsmunamálum símamanna
og verið brautryðjandi á ýms-
um sviðum. Það fékk settar
sérstakar starfsmannareglur
1935 og hafa þær síðan verið
fyrirmynd við opinberar stofn
anir. Lögin um réttindi og
skyldur opinberra starfs-
manna, er sett voru á fyrra
ári, eru að miklu leyti byggð
á grundvelli þeirra. Árið 1953
átti það þátt í því, að sett var
reglugerð um starfsmannaráð
Landsímans og tilnefnir relag
ið tvo menn af sex í ráðið.
Þetta er algert nýmæli hér á
landi.
Formenn félagsins hafa ver
ið 13 og eru þeir allir á lífi.
Lengst hefir Andrés Þormar
gegnt formannsstörfum. Hann
hefir og verið ritstjóri Síma-
blaðsins; er félagið gefur út, í
30 ár, en það er jafngamalt
félaginu. Fyrsti formaður fé-
lagsins var Ottó B. Arnar. Nú
stjórnar félaginu 15 manna
ráð með fjögurra manna fram
kvæmdastjórn. Hana skipa
nú: Jón Kárason, formaður
Agnar Stefánsson, ritari Að-
alsteinn Norberg, gjaldkeri og
Sæmundur Símonarson, vara-
formaður.
Félagið starfrækir sumarbú
staði á þremur stöðum. Það
á orðið allöfluga styrktarsjóði
Félagið minntist afmælis-
Ins með hófi að Hótel Borg á
Athyglisverð kvik-
niyndasýning
Íslenzk-ameríska félagið
hélt kvikmyndasýningu í Nýja
Bíói á laugardaginn, þar sem
eýndar voru ýmsar skógar-
myndir frá Bandaríkjunum og
áð lokum mynd Skógræktar
ríkisins „Fagur er dalur.“ Á-
horfendur voru margir og
þótti þeim sýningin hin fróð-
legasta og skemmtilegasta.
Heilt ár tekur að
gera við Genúa-höfn
Genúa, 21. febr. S. 1. laug-
ardag reið flóðbylgja mikil
inn í höfnina í Genúa. Urðu
skemmdir á hafnarmann-
virkjum og skipum miklar M.
a. fór sænska flutningaskipið
Nordanland á hliðina í dag
varð sprénging í skipiniv en
síðan kviknaði í því. Enginn
var í skipinu, er sprengingin
varð. Ráðherrar úr ítölsku
stjórninni eru komnir til Gen
úa til að athuga vegsummerki.
Er búizt við að viðgerð á höfn
inni muni taka heilt ár eða
meira.
laugardagskvöldið. Var það
fjölmennt. Andrés Þormar
stjórnaði því. Margar ræður
voru þar fluttar og voru m. a.
ræöumanna Jón Kárason, íor
maður félagsins, Guðmundui
I-Iliðdal, póst- og símamála-
stjóri, Ólafur Kvaran ritsima-
stjóri, Ottó Arnar og Eysteinn
Jónsson, fjármálaráðheria.
Lýsti hann því sérstaklega,
hve mikinn þátt síminn hefði
átt í því að rjúfa einangrun
landsins og greiða hér fyrir
alls konar framförum. Hann
fór lofsorði um starfsmenn
Landsímans og taldi þá vera
til fyrirmyndar í störfum sín-
um. Þá söng tvöfaldur kvart-
ett símamanna og auk þess
voru fleiri skemmtiatriði Að
lokum var stiginn dans. Fór
samkvæmi þetta hið besta
fram.
Fél. ísl. rithöfnnda
kaupir Eimreiðina
Félag íslenzkra rithöfunda,
sem skipað er þeim höfund-
um er sögðu si'g úr Rithöf-
undafélagi íslands fyrir
nokkru, mun nú hafa fest
kaup á tímaritinu Eimreið-
in, sem Sveinn Sigurðsson
hefír gefið út og stjórnað
um langt árabil. Hyggst fé-
lagið gefa ritið út á sínum
vegum. Óráðið mun enn,
hver verður ritstj. Eimreið-
avinnar í hinni nýju vist.
Yarnarsáttmáli
íraks og Tyrklands
fullgiltur
Kairó, 26. febr. — Þingið í
írak hefir fullgilt hinn gagn-
kvæma varnarsáttmála milli
Tyrklands og íraks næstum
einróma og samþykki sam-
hljóða hefir hann hlotið í
tyrkneska þinginu. Samning-
ur þessi gildir til 5 ára. í samn
ingnum segir, að öllum Araba
ríkjunum sé heimilt að gerast
aðilar að honum. Egyptar eru
samningnum mjög andvígir
og krefjast þess, að írak verði
vikiö úr Arababandalaginu.
Sala Salem, upplýsingamála-
ráðherra Egypta er á ferðalag*
um Arabarikin til að kanna
hug þeirra í þessu efni.
Yill að Rússar gefi
úraníum líka
London, 24. febr. — Á morg
un hefst 5 veldaráðstefna í
London um afvopnun. Komn
ir eru til ráðstefnunnar m. a.
þeir Gromyko frá Rússum og
H. C. Lodge frá Bandaríkjun
um. Lodge sagði í dag, að
hann myndi láta einskis ó-
freistað af Bandaríkjanna
hálfu til að koma á afvopn-
un í heiminum. Hann stakk
upp á því að Rússar sýndu
íriðarvilja sinn í verki með
því að leggja fram nokkurt
magn af úraníum i sameig-
inlegar birgðir, sem nú er
verið að koma upp á vegum
S. Þ. Bretar og Bandaríkja-
menn hafa látið stofnun
þéssa fá talsvert magn af
efni þessu.
7/
St. Paul
Vélsturturj
eru viðurkenndar fyrir gæði.:
Þær eru fljótvirkar og örugg
ar og lyfta hátt. — Þær eru
byggðar í sérstökum ramma
og því mjög auðvelt að koma
þeim fyrir á grind bílsins.
Þeir bílstjórar, sem ætla að
fá sér nýj an vörubíl, ættu að
taka beztu fáanlegu sturturn
ar á nýja bílinn.
Umboðsmenn á íslandi fyrir|
St. Paul Hydraulic Iloist, Inc.;
KRISTINN GUÐNASON
Klapparstíg 27
Sxmi 2314.
fj§PF^WB»gl»aUaiRlgjig£
&
Bólstruð
| Betristofu sett
Armstólar
j; Svefnsófar
Dívanar
« í miklu úrvali.
| Htísfiagnaverzlun ||
| Guðmundar Guðmundssonar
| LAUGAVEGI 166 |
SSS5S5SS55SS5S5S5S5S55SSS55S5554S5SSSSSS455SSSSSS5SSS5SSS45SS55555ÍS5S?l