Tíminn - 01.03.1955, Side 5
49. blað.
TÍMINN, Iirz'Sjudaginn 1. marz 1955.
Þrtð|ud. 1. marz
Sögulegasta málið
á Alþingi
Nær mánuður er nú liðinn
síðan Alþingi kom aftur sam
an til starfa. Það verður ekki
sagt ag mörg eða stór tíð-
indi hafi gerst á þinginu
þennan tíma. Þó hefir þar
verið tekið til meðferðar eitt
stórt og sögulegt mál, bruna-
tryggingamálið. Afgreiðslu
þess verður áreiðanlega lengi
minnst vegna þess, að það er
mjög lærdómsríkt um vinnu-
brögð flokkanna.
Fyrir þinginu hafa legið
tvö frumvörp um brunatrygg
ingamálin. Annað þeirra, var
frá Framsóknarmönnum og
fjallaði um að gefa bruna-
tryggingarnar alveg frjálsar.
Hitt frumvarpið var frá Sjálf
stæöisflokknum, kommúnist-
um og öðrum stjórnarand-
stæðingum og fjallaði um
það að viðhalda einokun
Brunabótafélagsins í nokkuð
mildara formi en verið hefir
hingað tií.
Frumvarp Framsóknar-
manna var byggt á því, ag
samkeppni myndi henta bezt
'á þessu sviði, þar sem starf-
andi séu nú allmörg trygg-
ingarfélög í landinu. Einok-
un sú, sem Brunabótafélag
íslands hefir haft, var rétt-
lætanleg á þeim tíma, þeg-
ar engin önnur tryggingar-
félög voru til í landinu. Hins
vegar hefir hun reynzt illa
til lengdar, eins og sést á því
að iðgjöldin eru nú yfirleitt
a. m. k. 40% hærri en þau
þyrftu að vera og myndu
vera, ef samkeppnin ríkti á
þessu sviði. Þess vegna er
það áreiðanlega hagkvæmt
húseigendum að brunatrygg
ingar verði gefnar frjálsar.
Þess hefði mátt vænta, að
Sjálfstæðisflokkurinn myndi
fúslega styðja þetta frum-
varp, þar sem hann þykist
fylgja frjálsræði og heil-
brigðri samkeppni. Svo reynd
ist þó ekki. Sjálfstæðisflokk-
urinn snerist hér gegn yfir-
lýstri stefnu sinni eins og
svo oft áður og vann það
til að hafna samvinnu um
málið við samstarfsflokk
sinn í ríkisstj órninni og taka
í staðinn upp samstarf við
kommúnista, er hann þykist
þó fordæma. í Reykjavíkur-
bréfi Mbl. í fyrradag er sú
höfuðskýring gefin á þessari
afstöðu, að frjálsræðið myndi
reynast heppilegt fyrir eitt
af dótturfyrirtækjum SÍS,
Samvinnutryggingar, eða m.
ö. o. Sjálfstæðisflokkurinn
óttast, að Samvinnutrygg-
ingar verði einkafélögunum
hlutskarpari í samkeppni.
Þetta mátti ekki gerast, að
dómi Sjálfstæðisflokksins,
þótt það væri húseigendum
hagkvæmt. Á þessu sést bezt,
að Sjálfstæðisflokkurinn er
fús til að varpa frjálsræðis-
kenningum sínum fyrir borð
og ganga til liðs við þving-
anir og einokun, ef hann tel-
ur sig þannig geta hamlað
gengi samvinnunnar.
Þess hefði einnig mátt
vænta, þótt Sjálfstæðisflokk
urinn skærist úr leik, að
stj órnarandstæðingar veittu
frv. Framsóknarmanna lið-
veizlu. Stjórnarandstæðingar
látast nú mjög fylgjandi öll-
Ræða fjármálará<
(Framhald af 1. síðu.)
Allar greiðslur á rekstrar-
reikningi umfram fjárlög, aðr
ar en vegaviðhald og niðui-
greiðslur, hafa þá numið rúm-
lega 18 millj. Mikill hluti þess
ara fjárhæða eru lögboðin út-
gjöld, en nokkur hluti er á
rekstrarliðum, sem reynst
hafa of lágir í fjárlögum,
þótt reynt hafi verið að veita
aðhald. Umframgreiðslur þess
ar stafa að talsverðu leyti af
því, að lögboðin útgjöld og
önnur óhjákvæmileg útgjöld
eru blátt áfram ekki áætluð
af nægilegri framsýni hjá
stofnunum þeim, sem eiga að
vera þessum hnútum kunn-
ugastar.
Greiðslur á 20. gr., sem ekki
eru á sjálfu útgjaldayfirliti
fjárlaganna, þótt þær séu
greiddar samkv. 22. grein fjár
laga margar hverjar, og aðr-
ar samkv. lögum og sérstök-
um heimildum, eru þessar
helztar:
Samkvæmt heimild á 22. gr. fjárlaga.
Til Sementsverksmiðju ............... ... 1.000.000,00
Til Flugmálaframkvæmda .................. 810.000,00
Lán til atvinnuaukningar .............. 3.810.000,00
Lán til Sölufélags garðyrkjumanna ....... 300.000,00
Aukið hlutafé í Skallagrími h.f............... 600.000,00 i
6.520.000,00
Umframgreiðslur vegna ríkisábyrgða:
Umfram áætlun á 20. gr. ......... 704.968,00
Vegna Áburðarverksmiðju ......... 949.000,00
Vegna vanskila á togaralánum .. 2.518.000,00
Vegna Landshafnar í Keflavík .. 322.300,00
Samtals 4.494.268,00
(en áb. gr. eru þá alls 4.494h-8704=13.198)
Greiðslur samkv. lögum um land- og lóðakaup 726.216,00
Greidd gömul skuld v/viðgerðar á Esju .......... 1.320.000,00
Geymt vitagjald samkv. lögum ................... 712.000,00
Geymt til Stjórnarráðshúss samkv. þál........... 2.000.000,00
Aukið rekstrarfé ríkisstofnana ................. 4.300.000,00
Samtals kr. 20.072.484,00
Þetta yfirlit um greiðslur á
20. grein sýnir því, að þær 20
millj. króna, sem greiðslur á
20. grein nema meiru en fjár-
lögin gerðu ráð fyrir, eru yf-
irleitt borgaðar samkvæmt
sérstökum heimildum Alþing-
is, samkv. lögum og þingsá-
lyktunum frá Alþingi og vegna
ríkisábyrgða. Þessar greiðslur
eru því alls ekki raunveruleg-
ar umframgreiðslur í venju-
legri merkingu þess orðs.
í hvað fara umfram-
tekjurnar?
Eins og ég hefi frá skýrt,
urðu umframtekjur á rekstr-
arreikningi um 94 millj., og á
20. grein um 3 millj. 750 þús.
Umframtekjur samtals urðu
því rúmar 97 millj. Greiðslu-
afgangur skv. bráðabirgðayfir
litinu verður um 35 millj. kr.,
62 milljónum hefir því verið
ráðstafað í stórum dráttum
þannig, samkvæmt því, sem
ég hefi nú upplýst:
I. Greitt samkv. sérstökum ákvörðunum og
heimildum Alþingis í lögum, þingsálykt-
unum og á 22. gr. fjárlaga (sumt lagt til
hliðar, svo sem v/stjórnarráðshúss og
nýrra vita.) ............................ 24.500.000,00
II. Útlagt v/ríkisábyrgða umfram fjárlög
(hefir þá samtals verið lagt út v/ríkis-
ábyrgða á áririu 13,2 millj. kr.) .......... 4.500.000,00
III. Umframgreiðslur vegna niðurborgana á
verðlagi 5,4 millj. + umframgreiðslur v/
vegaviðhalds 4,0 millj............. 9.400.000,00
IV. Aðrar umframgreiðslur bæði á lögboðn-
um útgjöldum og rekstrarliðum ........... 18.200.000,00
V. Aukið rekstrarfé ríkisstofnana ......... 4.300.000,00
VI. Greidd gömul skuld v/viðgerðar á mótor-
skipinu Heklu ............................ 1.300.000,00
Samtals kr. 62.200.000,00
Þetta yfirlit sýnir, að Alþingi
hefir sjálft ráðstafað 24,5
millj. af umframtekjunum fyr
irfram og Alþingi mun ráð-
stafa greiðsluafganginum 35
millj. Alþingi mun því ráð-
stafa beinlínis 59,5 millj. af
umf ramtekj unura.
Mismunurinn, 38 millj., hef-
ir farið í ríkisábyrgðatöp, vega
um aðgerðum til að hamla
gegn dýrtíð og óþörfum álög-
um. Hér áttu þeir gullið tæki
færi til að styðja ráðstöfun,
er alltaf hefði lækkað bruna
tryggingariðgjöldin um 40%.
Samanlagt hefði það sparað
landsmönnum margar millj.
kr. á ári. í stað þess að stuðla
að þessu, greiddu þeir at-
kvæði gegn því. Af því má
bezt marka, hve mikils er að
vænta af stj órnarandstæð-
ingum sem skeleggum bar-
áttumönnum gegn dýrtíð-
inni.
Niðurstaðan hefir því orð-
ið sú, að frv. Framsóknar-
manna hefir verið fellt, en
einokunarfrumvarpiö siglir
hraðbyri gengnum þingið.
Sjálfstæðisflokkurinn og
fylgiflokkar hans geta því
hrósað sigri að sinni. Barátta
Framsóknarmanna og starf-
semi Samvinnutrygginga
verða þó sameiginlega til
þess, að Brunabótafélagið
mun neyðast til að lækka ið-
gjöldin verulega. Meg því hef
ir nokkur sigur unnist, þótt
hann hefði getað orðið meiri,
ef einokunarhömlunum hefði
alveg verið aflétt. Það hefir
sannast hér sem oftar, að
það eru Framsóknarmenn,
er hafa forustu um að dregið
sé úr óeðlilegum milliliða-
kostnaði og brotin niður sér-
réttindi, sem eru almenningl
óhagstæð. Það mun veita
þeim aukin styrk og fylgi til
þess að halda áfram barátt-
unni, unz fullur sigur er unn
inn í þessu máli og öðrum
hliðstæðum því.
viðhald, niðurgreiðslur, aukið
rekstrarfé og loks venjulegar
umframgreiðslur, sem aö
mikiu leyti eru lögboðin út-
gjöld, en áætiuð lægra en
þurft hefði að gera.
Grciðsluafgangurinn.
Samkvæmt bráðabirgðayfir-
litinu nemur greiðsluafgang-
ur rétt um 35 millj. króna.
Af því fé hefir ríkisstjórnin
með samþykki þingmeirihíut-
ans, sem hana styður, ráðstaf-
að til Ræktunarsjóðs og Fisk-
veiöasjóðs, 16 millj. kr., 8 millj
króna til hvorrar stofnunar
um sig. Ræktunarsjóður og
Fiskiveiðasjóður eru meðal
hinna þýðingarmestu lár.s-
stofnana. Varð . þeim mjög
fjárvant í haust, og er raunar
því miður ennþá. Var til þess
gripið að bæta nokkuð úr af
ríkisfé. Verður leitað samþykk
is og staðfestingar Alþingis á
þessari ráðstöfun, en þing-
fylgi fyrirfram tryggt, eins og
ég sagði áðan, enda aldrei til
þess komið, að féð hefði verið
fram lagt, hefði ekki legið fyr
ir samþykki meirihluta alþing
ismanna.
Drögum við þessar 16 millj
frá greiðsluafganginum verða
eftir 19 milljónir. Því miður
er það smávægileg fjárhæö.
Hefði sannarlega þurft að
vera hærri, til þess að vega á
móti þeirri ofþennslu í fjár-
hagskerfi landsins, sem mjög
veröur vart, að ég nú ekki tali
um, ef ríkissjóður ætti að vera
þess megnugur að hjálpa til
að leysa þau fjáröflunarvanda
mál, sem fastast knýja nú.
Þessi fjárhæð þyrfti að geta
gengið, til þess að grynna á
lausaskuldum eilítið og til
framkvæmdasjóðs.sem geymst
gæti, þangað til honum yrði
varið til gagnlegustu fram-
fara, án þess að með þvi væri
framleiðslustarfsemi og efna-
hagskerfi landsins fært úr
skorðum, vegna of örrar fjái-
festingar og þar af leiðandi
skorts á vinnuafli.
Það væri skynsamleg stefna
nú að hafa gréiðsluafgang,
sem lagður gæti orðið til hlið-
ar í þessu augnamiði. Það
mundi styrkja peningakerfið
— vinna móti verðhækkun-
um og verða drjúgt til atvinnu
jöfnunar og aukinna fram-
kvæmda, þegar til lengdar
lætur.
En þessi fjárhæð verður
smá, þegar rætt er um þetta
markmið. Ennþá Ijósara verð-
ur þö, að ríkissjóður hefir því
miður ekki fyrningar eftir
þetta góða ár, er leysa mikinn
vanda, þegar athuguð eru öll
þau fjáröflunar- og greiðslu-
vandamál, sem verið er að
glíma við þessar vikurnar.
Ég nefni nokkur, til þess að
bregða ljósi yfir viðfangsefn-
in. Fyrirsjáanlega þarf meira
fé í raforkuáætlun ríkisstjórn
arinnar, en gert var ráð fyrir
í byrjun. Er það ekkert nýtt,
að slíkar framkvæmdir verði
fjárfrekari en í öndverðu er
ætlað. Sparifjárbætur þarf að
greiða lögum samkvæmt og
það helzt í peningum. Rækt-
unarsjóður er févana eins og
stendur og óafgreiddar eru
meira að segja mjög margar
lánbeiðnir út á framkvæmd-
ir fyrra árs. Veðdeild Búnað-
arbankans skortir starfsfé
Kskiveiðasjóð vantar fé. ó-
greiddar eru milljónir og aít-
ur milljónir upp í hafnargerö-
ir og skólabyggingar. Fjárþörf
er brýn til íbúðalána í sveit-
um, kauptúnum og kaupstöð-
um. Fjár er vant til þess að
endurbyggja hrynjandi stór-
brýr. Handbært fé til sjúkra-
húsabygginga er sárgrætilega
lítið miðað við þörfina og það.
sem færst hefir verið i fang
Þetta eru aðeins dæmi um
verkefnin, en ekki tæmandi
upptalning á þeim framfara-
málum, sem fé skortir til, eins
og nærri má geta. En það verð
ur ekki mikið úr 19 milljónum
andspænis þessu, þótt ekki sé
fleira til tekið. — Ennþá
minna þó, ^egar þess er gætt,
að greiðsluafgang ríkissjóðs
hefði þurft að leggja til hlið-
ar, til þess að auka fram-
kvæmdir síöar, en draga úr
ofþennslu nú.
Það mun koma fram síðar
á háttv. Alþingi, hvað ríkis-
stjórnin leggur til að gert
verði í þessu máli.
Greiðsluafgangur ríkissjóðs
á síðastliðnu ári er óneitan-
lega minni en hann hefði
þurft að vera í jafn óvenju
góðu ári. Leit út fyrir fram-
an af árinu, að afkoma ríkis
sjóðs myndi verða enn betri,
en hún hefir orðið. Tekjur
voru á þeim tíma veruleg-
um mun hærri en í fyrra.
á síðustu mánuðum ársins
varð á þessu breyting og dró
úr tekjunum samanborið við
það, sem verið hafði fram-
an af árinu. Þag má þö segja
að afkoma rikissjóðs á síðast
liðnu ári hafi orðið dágóð,
en alls ekki óvenjulega góð,
og ekki nógu góð, þegar litið
er á þá miklu þennslu, sem
nú er í þj óðarbúskapnum.
Ríkissjóður hefði þurft að
hafa verulegan greiðsluaf-
gang, til þess að vega á móti
ofþennslu annars staðar í
fjárhagskerfinu. Leggja hefði
þurft fé til hliðar beinlinis
og verja til nauðsynlegra
framkvæmda síðar, þegar
minna var um að vera hjá
öðrum aðilum.
Greiðsluafgangur hefði get
að orðig allmiklu meiri en
raun er á, ef Alþingi hefði
ekki með löggjöf og með því
ag samþykkja heimildir, sem
átti að nota, ráðstafað fyrir-
fram milljónatugum af um-
framtekjunum eða samtals
24,5 millj., samkvæmt því,
sem ég gaf yfirlit um hér
áðan. Kröfur um fjárfram-
lög úr öllum áttum eru há-
værar og pressa svo mikil á
lögð. Hélzt háttvirtri ríkis-
sjórn því ekki vel á fé, þótt
þörf hefði verið á öðru, til
þess að styrkja afkomu þjóð
arinnar út á við og truna á
fjármálakerfi landsins inn á
við.
Stjórnarandstaðan hér á
háttvirtu Alþingi hefir það
einkennilega sjónarmið, að
hún telur til ódáða, ef greiðslu
afgangur kemur fram. Er þó
meira en skrítið ag svo skuli
vera, þegar litið er á öll hin
ólevstu veikefni.
Á hinn bóginn mun verða
haldið fast við það grund-
vallaratriði að hafa greiðslu-
hallalausan ríkisbúskap. Geta
menn þá af og til orðig að
gera sig seka um þann „glæp“
að hafa fremur afgang en
hitt. Annars væri nokkurn
veginn vist, að menn mundu
lenda „vitlausu megin við
strikið" af og til — og fá
greiðsluhalla á ríkisbúskap-
inn.
Greiðsluhallalaus ríkisbú-
skapur hefir stuðlað að frjáls
ari v’ðskiptum, stöðugu verð-
lagi, aukinni framleiðslu,
auknum sparnaði, aukinni
atvinnu og velmegun yfir-
leitt.
Það eru til öfl í þjóðfél. sem
telja sig geta sett verðbólgu-
hjólið af stað aftur, þrátt
iyrir greiðsluhallalausan rík
(Framhald á 6. síðu).