Tíminn - 01.03.1955, Page 7
49. blað.
TÍMINN, þrz'ðjudaginn 1. marz 1955.
7
Hvar eru skipin
S.ambandsskip:
Hvassafell fór frá Austfjörðum
24. þ. m. áleiðis til Finnlands. Arn
arfell fór frá Rio de Janeiro 23. þ.
m. áleiöis til íslands. Jökulfell á
að fara frá Hamborg í kvöld áleiðis
til íslands. Dísarfell fór frá Akra-
nesi 26. þ. m. áleiðis til Rotterdam,
Bremen og Hamborgar. Litlafell er
á leið til Faxaflóahafna. Helgafell
er í N. Y. Bes er væntanlegt til ísa
fjarðar í dag. Ostsee fór frá Torre-
vieja 23. þ. m. áleiðis til íslands.
Lise fór frá Gdynia 22. þ. m. áleiðis
til Akureyrar. Custis Woods er nt
anlegt til Rvíkur í dag. Smeralda
fór frá Odessa 22. þ. m. áleiöis til
Rvíkur. Elfrida r væntanlegt til
Torrevieja í dag. Troja er væntan-
legt til Gdynia í dag.
Ríkisskip:
Hekla er á Austfjörðum á norð-
"urleið. Esja fer frá Rvík kl. 13 í
dag vestur um land í hringferð. —
Herðubreið er á Austfjörðum á norð
urleið. Skjaldbreið fór frá Rvík kl.
20 í gærkveldi vestur um land til
Akureyrar. Þvrill er á leið frá Rvík
til Manchester.
Eimskip:
Brúarfoss fer frá Rvík á morgun
28. 2. til Akraness, Vestmannaeyja,
Newcastle, Grimsby og Hamborgar.
Dettifoss fór frá Keflavík 24. 2. til
N. Y. Fjallfoss- fór frá Húsavík 25.
2. til Liverpool, Cork, Southampton,
Rotterdam og Hamborgar. Goða-
foss er í Hafnarfarði. Gullfoss er í
Kaupmannahöfn. Lagarfoss fer frá
Hull 27. 2. til Antverpen og Rotter
dam. Reykjafoss fór frá Norðfirði
26. 2. til Rotterdam og Wismar. —
Selfoss fer frá Rotterdam 1 dag 28.
2. til Bremen og þaðan aftur til
Rotterdam. Tröllafoss kom til N Y.
27. 2. frá Rvík. Tungufoss fór frá
Siglufirði 24 2. til Gdynia og Ábo.
Katla fór frá Akureyri 26. 2. til
Leith, Hirtshals, Lysekil, Gautaborg
ar og Kaupmannahafnar.
■ r- - *
Ur ýmsum áttum
Neðri ðeild.
1. Læknaskipunarlög, frv. 2. umr.
2. Ættaróðal og erfðaábúð,
3. Útsvör.
4. Iðnskólar. Frh. 3. umr.
5. Lífeyrissjóður starfsm. ríkisins.
6. Lífeyrissjóður barnakennara, irv
2. umræða.
7. Lífeyrissjóður hjúkrunarkvenna,
frv. 2. umr.
8. Erfðaleiga á hluta af prestsseturs
jörðum, 1. umr.
Efri deild.
Landshöfn í Keflavíkur- og Njarð
víkurhreppum.
234 kr. fyrir 6 rétta.
Á laugardag varð að fresta 5
leikjum í 1. deild og 6 í 2. deild í
Englandi vegna veðurs. Á seðlinum
eru því aðeins 6 leikir, sem teknir
eru til greina við skiptingu vinninga
og reyndust ekki færri en 62 raðir
með 6 réttum, og koma 39 kr. fyrir
hverja röð, og hæst 234 kr. fyrir seð
il, en 2 seðlar voru með 6 rétta í
6 röðum.
Enn verr tókst til i Noregi og
'gvíþjóð. í Svíþjóð féllu niður 8
leikir á seðlinum, og í Noregi féllu
niður 7 leikir. Eru því aðeins greidd
ir vinningar fyrir 4 og 5 rétta leiki
í þessum löndum.
Bifreiðum stolið
f fyrrinótt var tveimur
bifreiðum stolið hér í bæn-
um. Annari var stolið í porti
Mjólkursamsölunnar. Var
henni ekið inn á Langholts-
veg og stórskemmd á þeirri
lcið. Lögreglan hafði upp á
éðrum þ.iífnum strax um
nóttina en. hinum í gær.
Hin bifreiðin, sem stolið
var um nóttina, fannst á Út-
varpsstöövarvegi í gær. Ekki
er enn upplýst hver stal
henni.
Sýningum á Nóa
að ljúka
Um helgina sýndi Leikfélag
Reykjavíkur sjónleiki sína
Frænku Charleys á laugardag
í 72. sinn og Nóa á sunnudags
kvöld í 14. sinn. Var aðsókn
ágæt að báðum þessum sýning
um og hefir félagsstjórnin til
athugunar að sýna Nóa enn
einu sinni og þá á laugardag
inn kémur kl. 5.
Með sýningu á Nóa n. k.
laugardag er sýningum á þvi
leikriti lokið, en aðeins fáar
sýningar eftir á gamanleikn-
um Frænku Charleys. Er nú í
undirbúningi nýtt leikrit hjá
félaginu og munu sýningar á
því hefjast upp úr miðjum
mánuðinum.
Vinsæl söngskemmt
un endnrtekin
í kvöld verður endurtekin í
Gamla bíó söngskemmtún,
sem félag einsöngvara gekkst
fyrir tii heiðurs Pétri Jónssyni
óperusöngvara.
Vegna fjölda áskoranna
verður söngskemmtunin end-
urtekin í kvöld og verða sungn
ar óperuaríur, dúettar og
kvartettar. Þeir, sem syngja,
eru Gúðrún Á. Símonar, Guð-
rún Þorsteinsdóttir, Þuríður
Pálsdóttir, Einar Sturluson,
Guðmundur Jónsson, Jón Sig
urbjörnsson, Kristinn Halls-
son, Magnús Jónsson og Þor-
steinn Hannesson. Við hljóð-
færið Fritz Weisshappel.
Vmræðnr á þingf
(Framhald af 1, síðu.)
kjörinn, lagði á það áherzlu,
að afgangur væri of lítill til
þess að tryggja heilbrigða
fjármálaþróun í landinu. Þá
talaði Bergur Sigurbjörnsson
fyrir Þjóðvarnarflokkinn.
Sagði ríkistekjur vera of
miklar, en greiðsluafgang þó
ekki nógu mikinn. ^
Ósamkvæmir sjálfum sér.
Eysteinn Jónsson, fjármála
ráðherra, svaraði í glöggri
ræðu. Hann kvað það gleðja
sig, að sumir þeirra stjórnar
andstæðinga, sem talað
hefðu, viðurkenndu nú í
fyrsta sinn, að vísu þó aðeins
í öðru orðinu, að greiðslu-
haliaiaus ríkisbúskapur væri
eiri hclzta undirstaða heil-
brigðs fjármála- og atvinnu-
lífs eins og ástatt hefði verið
hér á landi undanfarið.
Þessu hefði hann haldið fram
við þessa sömu menn undan-
farið, sem stöðugt hömruðu
á þvl þá að tekjur ríkissjóðs
væru ríflegri en nauðsyn
krefði. Þessir sömu menn
hefðu ráðist harkalega á sig
undanfarin ár fyrir það að
nokkur greiðsluafgangur
varð.
■'MMMMUltHIIIIIIIIIIIMIIIIlllíllllílllltlIUIflllllllllllllllllll
Traustur gjaldmiðill.
Bergur Sigurbj örnsson
hefði sagt að undanfarið
hefðl ekki verið traust á ís-
lenzkum gjaldmiðli. Benti
fjármálaráðherra á að spari
fjársöfnun landsmanna hefir
farið stórvaxandi á undan-
förnum árum. Ennfremur, að
fyrir lægi álitsgerð frá Ólafi
Björnssyni prófessor og Hag-
stofustjóra, sem gerði ráð
fyrir, að kaupmáttur launa
sé nálega hinn sami og var
fyrir 2 árum. Þetta benti
vissulega ekki til að kaup-
máttur peninga hafi minnk-
að verulega seinustu árin.
Slcattar lækka.
Fjármálaráðherra hrakti
þá staðleysu stjórnarand-
stæðinga, að skattar og toll-
ar væru stöðugt að hækka.
Pkattar hefðu lækkað mjög
mikið á s. 1. ári, tekjuskatt-
ur t. d. um 28% og ýmsir toll
ar einnig lækkaðir. Þetta
væru því hin furðulegustu
öfugmæli. Bátagjaldeyrisfrið
indi hefðu einnig lækkað
um 10% nú um áramótin.
Hagsmwnir verkalýðsins
og kommúnistar.
Þá vék ráðherrann að þeim
ummælum Einars Olgeirsson
ar, að fjármálaráðherra hefði
í ræðu sinni sveigt að verka-
lýðnum, er hann talaði um
að kommúnistar myndu
hvggja á að koma verðhækk
Strandið
(Framhald af 8. aíðu).
Björgun mannanna var
lokið um kl. 11. Skipstjórinn
fór síðastur frá borði. Lækn-
ir fór á strandstað frá Kirkju
bæjarklaustri, en aðeins einn
maður var lítils háttar mar-
inn.
Haldið til bæja.
Var síðan haldið í skip-
brotsmannaskýlið, sem er
skammt frá strandstað, en
skipið hafði strandað á Skál
arfjöru. Síðan var haldið til
tæja. Gistu strandmenn á
Langholti, Kotey og Bakka-
koti 1 nótt. Skipið stóð í gær
'rétt og sneri stefni að landi,
er lítið eða ekki skemmt og
ekki sjór í því. Stutt er um
íjöru út í það. VV.
amP€R
| Raflagnir — Viðgerðir i
Rafteikningar
Þingholtsstræti 21
I Sími 8 1556 I
unarhjólinu af stað á nýjan
leik. Þetta væri algerlega
rangt, sagði ráðherrann. Um
mæli þessi ættu við kommún
ista, en þeir stefndu að Því að
koma á sem mestu öngþveiti
í þjóðfél., og slíkt ætti ekk-
ert skylt við hagsmuni verka
lýðsins, enda alveg víst, að
hagsmunir hans og komm-
únista færu ekki saman.
Vlltlltllllllllllllllllllltlllllllllllllllllllllllllllllltlllllllltl*
| Ptötur á grafreiti 11
| Gerið pantanir fyrir vorið. |
| VerkstæSið Rauðarárstíg: 26, |
kjallara.
1 Símar 6126 og 2856.
.......................
UNIFLO.
MOTOR OIL
■iiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiii
| Nýkomið: |
1 Gluggatjaldaefni. Velor |
1 grænt og rautt.
| Gluggatjalda-damask. \
| Storesefni.
H. Toft
| Skólavörðust. 8. sími 1035 I
Ulll>*'lllllll1111111111111IIIIIIlll11111111111111111111111IIIIIIIIIX
Hiiiiiiiiiiiiiiiiimimmmimmmiimiinmiiimmimiii
MUNIÐ (
KALDA
BORÐIÐ
AÐ
RÖÐL I
iiimmmmimmmmmmmmimmmmmmmmiiiii
Ein þyfekt,
er kcmur í stað
SAE 10-30
lOlíufélagið h.f.
SÍMI: 81600
imnniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiim
Kapp er bezt með
forsjá
SAívffvnrrríU'in»’aTt5<DŒH'<DA2i
aaSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSgSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSsasiiMiassSCSSSSS*
Kolsholt
VILLINGAHOLTSHREPPI í FLÓA, er laut til ábúðar
f næstkomandi fardögum. Á jörðinni er gott íbúðar-
hús, nýlegt fjós fyrir 32 nautgripi, fjárhug fyrir 70
kindur, 1000—1200 hesta þurrheyshlöður og votheys-
hlöður fyrir 250—300 hesta. Túnið er 14 ha. og gott
áveituland 79 ha.
Upplýsingar gefa Skúli Gunnlaugsson, oddviti,
Bræðratungu og Þórarinn Sigurðsson, ábúandi jarðar-
innar. —
T I L K Y N
N G
Samkvæmt samningi vorum við Vinnuveitendasamband íslands, atvinnurekend-
ur í Hafnarfirði, Árnessýslu, Akranesi, Keflavík og í Rangárvallasýslu, verða kaup-
taxtar fyrir vörubifreiðar frá og með deginum í dag og þar til öðru vísi verður á-
kveðið, sem hér segir:
Tímavinna:
Fyrir 2V2 tonns bifreiðar .........
— 2i/2 til 3 tonna hlassþunga ..
— 3 — 3 y2 — — ....
— 31/2—4 — —
— 4 —41/2 — —
Aðrir taxtar verða óbreyttir að þessu sinnii.
Reykjavík, 1. hiarz 1955.
Dagv. Eftirv. N.og helgidv,
48,28 56,20 64,11
53,87 61,79 69,70
59,43 67,35 75,26
65,01 72,93 80,84
70,57 78,49 86,40
Vöruhílastöðin Þróttur,
REYKJAVÍK
V&ruhílstjfórufcl. Mjölnir9
ÁRNESSÝSLU
Vörubílastöð Keflavíkur,
KEFLAVÍK
íSS5555S555$>S*ÍSSS555$SSSS5SSSS53SSSSSSS$55SSSSS555:*5SS$5>5$S#W535S555SSS5SSSSSS55SS5$S5SSSSS35S5S5S5S5SS55S:
í Jímmm
VI K %s$mr€/éMUifét
Vörubílastöð Hafnarffarðar,
HAFNARFIRÐI
Bifreiðastöð Akraness,
AKRANESI.
Bílstjórafélafi Ranyœinya.
HELLU.