Tíminn - 22.03.1955, Blaðsíða 3

Tíminn - 22.03.1955, Blaðsíða 3
'.M.J 67. blað. TÍMINN, brigjudaginn 22. marz 1655. Frá fimdi Barsiaverndarfólas'sius: Markaði ákveðna stefnu í baráttu gegn hinum tíðu umferðasiysum barna S. 1. sunnudag efndi Barna verndarfélag Reykjavíkur til opinbers fundar í Tjarnar- café. Var þar rætt um slys- farir barna af völdum um- ferðarinnar hér í Rvik og hvað géra mætti til varnar þeim. Fundurinn var allfjöl- sóttur, mikill áhugi ríkjandi meðal fundarmanna og um- ræður fjörugar Dr. Matthías Jönasson, form, Barnaverndarfélags Reykjavíkur bauð fundar- menn velkomna. Hann kvað það einkum vaka fyrir Barna verndarfélaginu með fundin- hm að skapa mönnum vett- •vang fyrir tillögur sínar í þessu. máli og sameina .krafta sem allra flestra, :bæði einstaklinga og félaga- «amtaka til baráttu í þessu :mikla vandamáli. Kvaddi liann Ingimar Jóhannesson, ; f ulltrúa f ræðslumálastj óra, til fundarstjóra. Tók hann við fundarstjórn og nefndi •til ritara dr. Símon jóh. Á- gústssön,' pröfessor. Hófust -þá ræður þriggja frummæl- énda og verða hér á eftir rak ;in helztu atriði í ræðum 'þeirra. - Jón Oddgeir Jónsson, full-, trúi frá Slysavarnafélagi ís-i ; lands'taláði' fyfstur. Ræddi' hann einkum hlut Slysa- varnafélagsi«s- í umferða- málum bæjarins. Umferða- slys barna hér f bænum væru mjög tíð og hlutfallslega miklu fleiri en í öðrum borg- um. Eitt árið' hefðu orðið jafn mörg banaslys á börnum i Kaupmannahöfn og Rvík, eða 4 í hvorri borg. Orsakir þessa væru margar, en eink- um tvær. Annars vegar á- byrgðarleysi foreldra, þeir vanmætu hættúna á götun- um, eh barni innan 7 ára ald urs væri ekki treystandi einu í umferðinni. Foreldrar væru margir aðfluttir í bæinn úr sveitum eða þorpum og gerðu sér ékki grein fyrir umferða -hættúnni. Taldi betra, þótt neyðarráðstöfun væri, að “tjóðra barnið, en sleppa því “"á götuna. Skv. skýrslu eins -vátryggingafélags hefðu á ár unum 1947—52 orðið 6 alvar- ;leg slys á börnum á öðru ári. Erfitt væri að verjast því, að . slys barna á þessum aldri væru fyrst og fremst á á- 'byrgð foreldra. Þá vék hann að hinu atriðinu, sem mestu skipti, aðbúnaði hins opin- bera að börnunum og hvað gert væri til að hindra slys- in. Taldi hann þar mörgú á- bótavant. Nefndi einkum þrennt, sem gera þyrfti. Fjölga leikvöllum, koma upp sérstökum sleða- og skíða- brautum, og loks taka upp gæzlu á leikvöllum. Ólafur Jónsson, íulltrúi lög reglustjóra, tók næstur til máls. Þessi bær hefði ekki upphaflega verið byggður fyr ir allan þann bifreiðafjölda, sem nú væri hér. Fyrir nokkr um árum hefðu bifreiðar ver ið um 2.500 en væru nú 6 þús. Hitt væri þó jafnvel enn alvarlegra, að þæjarþúar væru lítt „umferðahugsandi“. Mætti sjálfsagt rekja þetta til þess, hve margir væru upp aldir í sveit eða þorpum. Börn léku sér eftirlitslaus á akbrautunum 3—5 ára. Slíkt hlyti ávallt að véröa hættu- Giæða verðœr skiImSiag foreldpffl á uinferða- IiaeítimMB. MpiiúIi sköpMð hssstt skilyrði áf opKbem hálfu raieð fjeig’im leikvalla legt. Nauðsyn væri, að sjálf- sögðu, að koma upp dagskól- um, ieikskólum og leikvöllúm, því að einhvers staðar yrðu bornin að leika sé'r. En for- eldrarnir yrðu þá að kenna böfnanum að ndta lexkvéli- ilia. Oft léku þau sér á göt- únni allan daginn þótt leik- völlur væri rétt við. Það, sem géra þvrfti væri í fyrsta lagi: kunngjöra foreldrum hætt- una, sem börn þéirra væru í, fræöa þá um málið og fá þá til samstarfs. í öðru lagi skapa börnutium þætt skil- yrði til leiks og starfs með léikvöllum leikskólum o. s. frv. En einhliða ráðstafanir í þessu flókna og margslungna vandamáli væru ekki nægi- legar. Bæta yrði umferða- menningu þæjarþúa, og kæmi þá einkum til greina aukin tillitssemi og í öðru lagi aðgæzla vegfarenda, eirik um þeirra er aka vélknúnum farartækjum. Almenningur yrði að venja sig á að hlýða settum reglum og brjóta ekki umferðareglur, hinir íullorðnu að ganga á undan með góðu fordæmi. Fræðsla um þessi mál öll væri afar mikilvæg. Elín Toffadóttir, form. stéttarfélagsins Fóstra var síðust frummælenda. Ræddi hún einkum um leikvelli, dag heimili og leikskóla bæjar- ins. Leikvellir væru eina ör- ugga láðiö gegn slysunum, gatan yrði alltaf hættusvæði. Röskir 20 leikvellir væru nú í bænum. Um 6—7 þeirra væru viðunandi girðingar. Um einn leikvöll, sem hún þekkti vel, væri þannig á- statt, að 3 lítil hlið væru á honum, en engin grind í neinu þeirra. Þá væri það ein algengasta umkvörtun mæðra, að enginn leikvöllur væri nærri þeim og því mjög erfitt að koma börnunum á vellina auk þess sem gæzla væri á aðeins fáeinum. Á leik velhnum við Skúlagötu hefðu verið 2 gæziustúlkur árið um kiing. Þar léku sér daglega um 50—60 börn. Reynslan af þessum leikvelli væri ágæt. Frú' Elín taldi að einkum þyrfti að byggja fleiri leik- velli, þeir yrðu að vera vel girtir og á þeim aðeins eitt hlið, sem hægt væri að loka. Taka ætti upp gæzlu á völl- ’inum. Er hér var komið fundin- um voru lesnar upp tillögur til ályktunar, sem fram höfðu komið á fundinum. Hófust nú fjörugar umræð- ur. Kristján Þorvarðarson, læknir, minntist á samband áfengisneyzlu og slysa og kvað starfandi meðal bíl- stjói-a mjög merkilegan fé- lagsskap, er héti Bindindis- félag ökumanna. Ólafur Gunnar-oson, sál- fræðingur, ræddi um hæfni- próf á bifreiðarstjórum. Rakti erlenda reynslu af slík um prófum bæði frá Frakk- landi og Bandaríkjunum. Kvað hafa komið í ljós, að 3—4% bílstjóranna yllu 30— 40% allra slysanna. Með hæfniprófum væri hægt að finna.flesta þessa hrakfalla- bálka og forða því, að þeir yröu bifreiðastjórar. Erlingwr Pálsson, yfirlög- regluþjónn, ræddi um auk- inn hraða og vandkvæði þau sem af honum stafa í lífi manna. Þá gat hann um skiln ingsleysi almennings og for- eldra á störfum lögreglunn- ár t. d. þegar komið er heim með börn, sem verið hafa í reiðileysi. Óskar Ölason, starfsmað- ur rannsóknarlögreglunnar, ræddi um hirðuleysið á börn unum á götUnni og vildi láta vekja foreldranna og hinn al menna boi’gai’a til aukinna afskipta í þessu efni. Þorstéinn Sigwr®sso?z, kaup maður, hvatti til að beitt ýrði miskunnarlausum á- róðri. Lagði til, að Austur- stræti yrði lokað fyi’ir um- ferð bifi’eiða. Jón Björnsson, garðyrkju- maður, ræddi um gai’ðana og börnin. Kenna yrði börnun- um að umgangast garðana í stað þess að reka þá út úr þeim. Það væri jafn náuðsyn legt, að læra góða umgengni í garðínum eins og í stof- Ályktanir umferðamálaíundarins I. Fundurinn taldi, að leikvellir bæjarins væru ekki nægilega margir og ekki nægilega búnir að leiktækj- um. Fundurinn skorar því á bæjarstjórn Reykjavík- ur, að fjölga leikvöllum, girða þá og hafa gæzlukonur á hverjum velli. Auk þess verði komið upp afmörk- úðum svæðum, þar sem börnin geti leikið sér óhult I bolta- eða hlaupaleik. II. Strangar kröfur verði gerðar til þeirra manna, sem stjórna ökutækjum og skorar fundurinn á stjórn ufnférðarmála að gera hið bráðasta ráðstafanir í þessa, átt. Ökuleyfi sé veitt þeim einum, sem þreytt hafa hæfnipróf með viðhlítandi árangri. III. Fundurinn telur, að þröngar umferðargötur og vöntun á sérstökum bifreiðastæðum auki stórum slysa, hættuna í bænum. IV. Fundurinn hvatti foreldra eindregið til að' kenna börnum sínum einföldustu umferðarreglur og varúðarráðstafánir um leið og þau fara að ganga út á, göturnar. Fimm ára barn og yngra ætti aldrei að fá, að leika sér eftirlitslaust á umferðargötu, heldur venja. það á að leika sér á óhultum svæðum. Það myndi draga, úr slysahættunni, ef foreldrar eða annar fullorðinn væru úti með barninu eina stund daglega. V. Fundurinn skorar á bændur að gæta fyllstu var- úðar við að fela börnum og unglingum stjórn vélknú- inna farartækja. unni, og heldur ekkert erfið- ara. Kristín Halldórsc’ióttir, ræddi um erfiðleika mæðra í Reykjavík að gæta þarnanna og forða þeim frá götunni. Einnig töluðu allir frum- mælendur öðru sinni. Loks þakkaði formaður Barna- verrídarfélagsins, dr. Matthí- as Jónasson, fundarmönnum komuna, góðar ræður og til- ■lögur. Kvað hann félagið nú mvndi hefja starf á þessum vettvangi og leita samstarfs við hvern þann aðila, sem vildi ljá málinu lið. Hann von aðist til þess, að fundurinn yrði upphaf að mikiili og á- vangursrikri þaráttu gegn um ferðaslysunúm, sem svo mörg börn hlytu nú af bana eða örkuml. Loks voru ályktanir þær, sem einniig eru birtar hér, þó nokkuð styttar bornar upp og samþykktar einróma. Iitið unt atvinnu í Ncskaupstað Fremur lítið er um at- vinnu í Neskaupntað, enr'a, eru allir stæri’i vélbátarnir á, vertið við Suðurland og verða, þar til vors. Eini fiskurinn,, sem á land kemur, er því af Goðanesinu. Um aðra at- vinnu er lítið yfir vetrarmán uðina og því dauft yfir öllu atvinnulífi kaupstaöarins og atvinnuleysi. I»rýstivatnspípur og alls konar tengistykki, ;; Fráremislispípur J; og tengistykki. úr asbestsementi Utanhúss-plötur, sléttar Báru-plötur á þök Þakhellur Innánhúss-plötux EINKAUMBC® Klapparstíg 26, slmi 7373 Czechoslovak Ceramics, Prague, Czechoslovakia.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.