Tíminn - 26.03.1955, Side 8
59. árgangur,
Reykjavík,
26. marz 1955.
71. blað,
Kðttur kom inn á Sögregiustöð
ina og gaut f jórum kettlingum
Lögreglan í Reykjavík er ýmsu vön og reynir jafnan að
leysa vandræði þeirra, sem til hennar leita, hvort sem í
hlut eiga menn, eða málleysingjar. Nýlega kom á lögreglu
stöðina læða komin að goti og gerði sér lítið fyrir og gaut
kettlingum sínum á afgreiðsluborð lögreglunnar, sem tók
síðan börn og móður í fóstur fyrst um sinn.
Þessi atburður gerðist fyrir
sex dögum. Vildu lögreglu-
Belgíska hernum
skipað að vera
viðbúnum
Brussel, 25. marz. — Heim-
ferðarleyfi allra hermanna í
belgíska hernum voru aftur-
kölluð í dag af stjórn lands-
ins og hermönnum skipað að
halda sig í nánd við stöðvar
sínar, þar eð stjórnin óttast
að kaþólskir muni gera al-
vöru úr þeirri hótun sinni
að fara stórkostlega kröfu-
göngu til höfuðborgarinnar
til að mótmæla samþykkt
þingsins um stórlega lækkað
ríkisframlag til skóla, sem
kaþólska kirkjan starfrækir.
Einnig hafa verið gerðar
margvíslegar varúðarráðstaf
anir til að hindra hópgöngu
þessa, þar á meðal settar
hindranir á alla aðalvegi,
sem liggja til höfuðborgar-
innar. Minni háttar uppþot
urðu í mörgum borgum lands
íns í dag.
mennirnir ekki trúa því, að
kisa kysi helzt af öllu búsetu
á lögreglustöðinni og létu
hana út í Pósthússtræti. En
kisa kom jafnóðum inn aftur
og hélt rakleitt inn í af-
greiðslusalinn og bar sig aum
lega.
Vissu lögreglumennimir
ekki fyrr en gesturinn hafði
fætt unga sína. Bjarni Jóns-
íon fangavörður féuk kisu !'l
umsjár og bjó henni ból í
hlýju horni í lögreglukjallar
anum. En kisu hefir ekki skort
umönnun, því allir lögreglu-
mennirnir hafa látið sór annt
um hana.
Kettlingarnir eru fjónr og
er búið að ráðstafa tveimur
þeirra.
Aluienntir fnndur
Iðnnemasamband íslands
boðar til almenns iðnnema-
fundar í Tjarnacafé (uppi)
á sunnudaginn, 27. marz n. k.
Á fundinum verður rætt um
Launabaráttu iðnnema og
iðnskólafrumvarpið. Nauð-
synlegt er að sem flestir iðn
nemar mæti á fundinum og
kynni sér gang þessara mála
og hverjar líkur eru til að
hækkuð verði lágmarkslaun
iðnnema.
Sprengjukast og skothríð á
dansandi gestí í brúðkaupi
Ein kona drepin og 19 gestanna særðir —
Tel Aviv, 25. marz. Á fimmtudagskvöld réðst flokkur
óaldarseggja á veizluklædda brúðkaupsgesti í Patish,
sem er ísraels megin við landamærin á Gazasvæðinu
í Palestínu. Var hér um sveitabrúðkaup að ræða, sem
fór fram að fornum sið. Voru gestirnir að dansa hinn
ævaforna Dafa-dans á grasflöt fyrir framan hús brúð
I hjónanna, þegar handsprengjur tóku að springa um-
hverfis þá og byssukúlur hvinu um höfuð þeirra. Marg
ir féllu þegar særðir og stynjandi til jarðar á gras-
fletinum og voru dregnir eins ljótt og unnt var inn
í húsið. Ein kona beið bana, cn 19 gestanna særðust,
sumir hættulega.
ísraelskir lögreglumenn með sporhunda hófu þegar
leit að bófunum. Um 200 metra frá húsinu fundust skot
hylki og handsprengjukveikjur. Óaldarseggirnir hafa
ekki fundizt enn þrátt fyrir mikla leit, en vopnahlés-
nefndin tilkynnti í dag, að spor hefðu fundizt eftir
4 menn og mátti rekja þau inn yfir landamæri Eg-
L yptalands.
Allsherjarnefnd n.d. fer í heim-
sókn í ,/kjallarann,/ og fangahúsið
Gaf síöan l>inghclmi ófagra lýsingu á þeim
vistarvernm! — „Kjallarinn ekki sæmandi
siSnðu þjóófélagi, fangahiisið óvióunaudi**
Framhaldsumræður urðu í neðri deild Alþingis í gær um
þingsályktunartillögu þá, er Gunnar M. Magnúss flytur um
rannsókn á aðbúð fanga í Rvík. Allsherjarnefnd hafði kynnt
sér tillöguna, en ckki orðið sammála um afstöðuna til henn
ar. Meiri hlutinn vildi að henni vrði vísað til ríkisstjórn-
arinnar en minnihlutinn, að nefnd yrði skipuð skv. tillög
unni til að athuga aðbúnað fanga.
Framsögumaður meirihlul-
ans Björn Ólaísson. ga: ó.'agra
og ýtarlega lýsingu á fanga-
geymslum bæjarins, bæði
kjallaranum í lögregluvarð-
stofunni og eins fangahúsinu
við Skólavörðustíg, en nefnd
in hafði sýnt þá röggsemi að
heimsækja þessa staði til að
kynnast skilyrðum þar.
Ekki siðuðu þjóðfélagi
sæmandi.
Hann kvað klefa fyrir 10
menn í kjallara lögreglustöðv
arinnar. Þeir væru mjög litlir.
en hitt þó miklu verra, að
mjög væri lágt undir loft og
þrátt fyrir endurbætur á loft
ræstingu væri mjög vont loft
þarna. Staðurinn væri allur
mjög óvistlegur og ekki siðuöu
þjóðfélagi sæmandi.
Fangahúsið við Skóla
vörðustíg.
Lýsing framsögumanns á
fangahúsinu við Skólavörðu-
stíg var litlu betri. Hús þetta
væri óviðunandi og ófullnæjj
andi til fangageymslu, enda
80 ára gamalt. Þar væri rúm
fyrir 27 fanga í 12 herbetgj-
um, auk eins sjúkraherbergis.
í sumum herbergjum yrðn að
Aðalfnndur Frara-
sóknarfél. Akraness
Aðalfundur Framsóknarfé-
lags Akraness var haldinn
síðastliðinn sunnudag. Var
hann fjölmennur og bættust
23 nýir félagsmenn við. —
Stjórn félagsins var endur-
kjörin, en hana skipa: Jónas
Márusson, formaður, Bjarni
Th. Guðmundsson, gjaldkeri,
Guðmundur Björnsson, ritari
og varamenn í stjórn Jón Kr.
Guðmundsson og Hallgrímur
Guðmundsson.
Endurskoðendur voru einnig
endurkjörnir Þórhallur Sæ-
mundsson og Ásgeir Guð-
mundsson.
í fulltrúaráö, en það skipa
9 menn auk félagsstjórnar-
innar, voru kjörnir eftirtald
ir menn: Þórhallur Sæmunds
son, Jón Pétursson, Kristján
Jónsson, Daniel Ágústínusson
Ingvi Guðmundsson, Svavar
Þorbjörnsson, Ásgeir Guð-
mundsson, Hallgrímur Guð-
mundsson og Jón Kr. Guð-
mundsson.
Að loknum aðalfundi futti
Daniel Ágústínusson bæjar-
stjóri erindi um stjórnmála-
viðhorfið og sagði tíðindi af
fundi miðstjórnar Framsókn
árflokksins. Að því loknu urðu
fjörugar umræður og tóku
margir til máls. Var fundur
inn hinn ánægjulegasti.
dveljast 3—5 menn og væri
það vafalaust óhollt mjög
fyrir unglinga og aðra sem ef
til vill hefðu lítið af sér brot
ið. Mætti jafnvel nefna dæmi
þessu til sönnunar.
Engar breytingar gerðar.
Engar breytingar hefðu ver
ið gerðar á húsinu síðan það
var byggt, nema hvað stein-
garðurinn umhverfis húsið
hefði verið hækkaður um
helming. Húsinu væri að vísu
vel viðhaldið og hreinlæti virt
ist í bezta lagi. Þótt húsið
hefði verið byggt af miklum
stórhug á sínum tíma (í Rvík
voru þá aðeins um 2 þús. í-
búar), væri nv. brýn nauðsyn
að byggja nýtízku fangahús
í útjaðri bæjarins.
Tillögunni vísað til ríkis-
stjórnar.
Þrátt fyrir þetta slæma á-
stand teldi meiri hluti al’s
herjarnefndar ekki ástæðu td
að fara þá leið, sem lagt var
til í tillögunni að skipa 3ja
manna nefnd til að athuga að
búð fanga heldur yrðu álykt
uninni vísað til ríkisstjórnar-
innar. Væri þetta byggt á því,
að undirbúningi, að byggingu
fangageymslu væri nú svo
vel á veg komið, að hún ætti
að geta hafizt á þessu sumri
og verða lokið innan skamms
Sjúkrahús fyrir drykkju-
sjúka.
Framsögumaður minnihiuta
allsherjarnefndar Gunnar Jc-
hannsson áréttaði lýsingu
Björns Ólafssonar á kjallar-
anum og fangahúsinu og vildi
að rannsóknarnefr.d yrði skip
uð. Gylfi Þ. Gíslason kvað
ekki aðeins nauðsvn að
byggja fangageymslu heldur
siúkradeild fvrir drykkju-
sjúka eins og ákvæöi væru um
í lösrum og fé hefði verið voitt
til á fjárlögum.
Armbandsúr
í verðlaun
Nú á miðvikudaginn hófst
keppni í nýjum fimm kvölda
flokki í Framsóknarvist í
Keflavík. Fyrri fimm kvölda
keppnin varð mjög vinsæl og
var þátttaka mjög góð á mið
vikudaginn, þegar ný keppni
hófst. Keppt veröur svo næst
á miðvikudagskvöld í Bíó-
kjallaranum, en verðlaun
hafa nú verið ákveðin arm-
bandsúr fyrir sigurvegarana.
Vinsældir þessara spila-
kvölda sjást bezt á því, að
fólk utan Keflavíkur er far-
ið að sækja þau.
Þá talaði einnig flutnings-
maður tillögunnar og hélfi
fast við skipun nefndar og þá
einkum til, að athuga hvört
lögreglumenn og gæzluiienn.
væru að menntun og skap-
lyndi ’-°im vanda vaxnir að
rækja hin vandasömu störf
sín, á viðunandi hátt, svo og
til að athuga aðstöðu lögregl
unnar yfirleitt til að síhna
þessum störfum. Loks tók
Björn Óiafsspn aftur til máls.
Umræðunni var frestað.
........ "i— ^ >tlii '
Erlendar íréttir
í íáum orðura
□ Gromyko ræddi í næstum
klukkustund við "TrndenrTitih-
ríkisráðherra Svía í gær.
□ Scelbi. forsætisráðþerra |talr.T
er farinn j heimsókn til Banda.
ríkjanna og Kanada.
□ Hansen, forsætisráðherra Dana.
hélt ræðu í gæi; og lagði ein-
dregið til að, Danir sarnþykktu
samningana um tndurvígbun-
að V-Þjóðyerja.:
Verkfalí
útkoraú brezkra
London, 25? 'márz. — Mörg:
af síðdegisblöðunum í Lon-
don komu ekki út i....kvöld.
sökum þess að tæknisérfræð'
ingar ýmsir, sem vinna við-'
blöð'in hafa lagt niður vinnu.
Hafa þeir krafizt hærri
launa, en samningaviðræður
ekki enn borið, árangur. Ná-
ist ekki samkomulag, er hætt
við að flest öll stórblöðin
geti ekki komið út.
Góð skemmtun
Framsóknarraanna
í Hafnarfirði
Frá fréttaritara Tímans
í Hafnarfirði.
Síðast liðið fimmtudags-
kvöld hélt Framsóknarfélagið
hér skemmtisamkomu í Ál-
þýðuhúsinu. Var þar spiluð
Framsóknarvist með miklu
fjöri, undir stjórn Vigfúsar
Guðmundssonar. Guðni Þórð-
arson sýndi fagrar litskugga
myndir frá fiskiveiðum vfð
Lofoten í Noregi. Þótti sam-
komugestum mjög gaman að
kynnast þannig stærsta fi«ki
veri heimsins En Guðni
verið þarna norðurfrá og.tíek.
ið sjáflur myndirrtar, ér hann '
sýndi. — Loks var dansað uncí
ir ágætri músík og sérstaklega
almennri þátttöku samkorriú-
gesta.
Húsfyllir var og hin mesra
gleði ríkjandi yfir ánægjuleg”i
samkomu.
Þökkum við Hafnfirðingar
góðum gestum fyrir komuna
til okkar og vonum að þeir
komi til okkar aftur við tæki
færi.